Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1999, Síða 15
FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1999
15
Þorbjörn Ásgeirsson uppfinningamaður:
Fann upp jarðankeri til að
festa niður fótboltamörk
Á undanförnum árum hefur
nokkuð borið á því að fótboltamörk,
sem standa víða í bæjum og á viða-
vangi, hafa fallið yfir börn og veitt
þeim áverka; í sumum tilfellum lífs-
hættulega. Oftast verða
slysin með þeim hætti
að krakkar gera
sér leik að því að
hanga á þver-
slánum og
sveifla sér þar
með fyrrgreind-
um afleiðingum.
Mörg fótbolta-
markanna eru
þung og geta
veitt þeim sem fyr-
ir verður mikið
högg. Algengustu
áverkarnir munu vera
högg á höfuð og brjóst-
kassa.
Þorbjörn Ásgeirsson,
fyrrum bóndi og nú-
verandi nudd-
fræðingur,
hefur
und-
anfarið ár unnið að hönnun jarð-
ankeris sem ætlað er að halda knatt-
spyrnumörkum niðri. Aðspurður
um tilurð uppfmningar sinnar sagði
Þorbjörn: „Ég var mikill hestamað-
ur á árum áður og mig langaði að
hanna jarðankeri þannig að
menn gætu tjóðrað hesta sína
á fjöllum. Síðan var það ein-
hverju sinni, fyrir um ári,
að ég var á göngu og varð
litið á fótboltamörk á
víðavangi. Þá rann
i skyndilega upp fyrir
mér ljós að auðvitað
væri jarðankerið tilval-
ið til að festa niður fót-
boltamörkin, enda hafði
ég heyrt af slysum þar
sem börn og unglingar
hafa lent
undir mörkunum og sum jafnvel
slasast mjög alvarlega," segir Þor-
bjöm.
Spennandi verkefni
Þorbjörn hóf þegar í stað að end-
urbæta jarðankerið, sem ætlað var
hestunum og hann skoðaði fjölda
fótboltamarka. „Ég velti mikið
vöngum og lá yfir þessu verkefni
hvenær sem timi gafst.
Mér fannst þetta spenn-
andi verkefni." Iðntækni-
stofnun veitti síðan Þor-
bimi styrk til þróunar
og prófunar á jarð-
ankerinu en hann
kynnti
þeim
. hug-
Þorbjörn með uppfinningu sína sem hann vonast til að muni koma í veg
fótboltamörk falli á börn og unglinga.
myndir
sínar
síðast-
liðinn
vetur. Þor-
björn segir að
við prófun
hafi komið í
ljós að tog-
kraftur
ankerisins
hafi
mælst
frá 70 til
200 kíló-
um eftir
því í hvaða
horn var
togað áður
fyrirað en það losnaði úr jörðu.
Herdís Storgaard.
Jarðankerið er 30 cm langt og 26 cm
breitt. Það er ferkantað með oddi á
öðram enda og smýgur niður í jarð-
veginn. Það verður hins vegar að
festa niður með ákveðnum tækjum
en Þorbjöm segir það ekki verða
vandamáli. „Það er þegar búið að
smíða eitt jarðankeri og Vélsmiðjan
Héðinn vinnur nú að smíði tveggja
annarra fyrir mig. Næsta vor stefni
ég á að ankerið verði komið í fulla
framleiðslu og það er von mín að
það verði til þess að slysum við
knattspyrnumörk muni fækka,“
segir Þorbjörn Ásgeirsson uppfinn-
ingamaður. Einnig er hægt að nota
ankerið til að festa niður veitinga-
tjöld til að þau standi af sér veður.
Lífshættulegir
áverkar
Herdis Storgaard hefur unnið að
slysavömum barna og unglinga í
fjórtán ár. Hún gegnir nú starfi
framkvæmdastjóra átaksverkefnis
um slysavarnir barna og unglinga.
Herdís hefur kynnt sér jarðankerið
og segir að sér lítist vel á það.
„Þetta er gott framtak enda ekki
vanþörf á að gera betur í
þessum málum. Slys af völd-
um fótboltamarka hafa verið
stórt vandamál allt frá því ég
fór að vinna að slysavörnum
fyrir fjórtán árum. Bæjarfé-
lögin hafa víða tekið sig á en
mér finnst enn vanta töluvert
á að íþróttafélögin standi sig
sem skyldi. Það gerist líka
alltof að mörk sem hafa verið
fest kirfilega niður eru losuð,
menn vilja færa þau þar sem
grasspretta er betri eða til að
forðast polla.
Að sögn Herdísar hafa um 100
börn verið lögð á spítala eftir
áverka af völdum fótboltamarka
sem hafa fallið niður. „Af þessum
hópi hefur 41 barn slasast lífshættu-
lega en algengast er að börnin hljóti
höfuðáverka eða að líffæri fari í
sundur. Mér vitanlega hefur eitt
barn hlotið varanlegan skaða eftir
slíkt slys,“ segir Herdis.
Hættulegustu mörkin eru oftast
þau sem standa á víðavangi og em
úr þungu jámi. „Síðustu árin hafa
menn í auknum mæli farið að nota
álmörk; sem bæði er léttara að bera
en þau hafa líka þann kost að létt-
leikinn gerir það að verkum að þótt
þú verðir undir slíku marki eru litl-
ar líkur á alvarlegum áverkum.
Hvað mörk á víðavangi varðar þá er
eftirlit nauðsynlegt og mér vitan-
lega er til dæmis öflugt eftirlit bæði
i Reykjavik og á Akureyri. Það er
nefnilega ekki nóg að festa mörkin
kirfilega því fólk getur eyðilagt fest-
ingarnar og þá er voðinn vis.“
Að lokum vill Herdís brýna það
fyrir foreldrum að kenna börnum
sínum að umgangast fótboltamörk
og vara þau við hættunni sem stafar
af þungum mörkum sem ekki er fest
niður.
Verðkönnun á skólavörum:
Griffill ódýrastur
Flestir grunnskólar landsins vom
settir í gær og á næstu dögum má
búast við að skólastarfið hefjist fyr-
ir alvöra. Það er því ekki seinna
vænna að festa kaup á nauðsynleg-
um skólavörum. Úrvalið er mikið
og oft úr vöndu að ráða þegar skóla-
fólkið velur sér blýanta, stílabækur
og fleira fyrir veturinn.
Hagsýni fór í nokkrar verslanir
sem selja skólavörur og gerði verð-
samanburð á níu hlutum til skól-
ans. Verslanirnar í verðkönnuninni
voru Mál og
menning, Penn-
inn/Eymunds-
son, Hagkaup,
Griffill, Úlfars-
fell og Bókabúð-
in Hamraborg.
Skólavörum-
ar voru eftirfar-
andi; ódýrasta gerð
af A4 stílabók,
(línustrikuð og
rúðustrikuð, 80
blaða með gorm-
um), 30 cm glær
reglustika af ódýr-
ustu gerð, yddari í
dós af ódýrustu
gerö, gulur yfír-
strikunarpenni af
ódýrustu gerð, Bic
kúlupenni, Boxy-
svart strokleður,
Crayola vaxlit-
ir (8 í pakka) og blýantur, 2,5 í
mýkt, af ódýrustu gerð.
Þegar heildarverð innkaupa-
körfunnar er skoðað kemur í ljós
að Grifflll er ódýrastur en þar
kosta vörurnar samtals 577 krón-
ur. Talsverður munur er á Griffli
og þeim næstódýrasta sem er Mál
og menning en þar kostaði karfan
752 krónur. Fast á hæla Máls og
menningar koma Penninn/Ey-
mundsson með 769 krónur og
Bókabúðin Hamraborg með 795
Karfa með níu hlutum
fyrir skólann
kr. 795
964
kr. 842
kr. 769
kr. 752
py|
V
Mikill munur
á pennum og
litum
Töluverður verðmunur
mældist á þeim vöruteg-
undum sem voru þær
sömu í verslununum. Til
frá 28 krónum og upp í 75 krónur
á milli verslana. Ódýrastur er
penninn í Griffli en aftur dýrastur
í Úlfarsfelli. í hinum verslunun-
um kostuðu pennarnir á bilinu
45 til 50 krónur. Boxy-strokleð-
ur er ódýrast í Hagkaupi, kost-
ar 64 krónur, og næstódýrast í
Griffli á 65 krónur.
Það er ljóst að töluverður
verðmunur er
á milli versl-
ina og vert
að gera
saman-
burð
krónur. í Hagkaupi kostuðu
vörurnar samtals 842 krón-
ur og í Úlfarsfelli 964 krón-
ur. Gæðamunur getur ver-
ið á nokkrum skólavörum
en ekki var tekið
tillit til þess í
könnuninni,
einungis beð-
ið um ódýr-
ustu gerð af
sex vöruteg-'
undum.
keypt
er mn
fyrir
vetur-
mn
dæmis voru
ódýrustu Crayola-lit-
irnir á 34 krónur í Griffli
en dýrastir voru þeir í Úlf-
arsfelli á 110 krónur. Þá rokk-
ar verð á Bic-kúlupennum allt
ma
geta
þess í
lokin að
víðast
hvar er
hægt að
gera góð
up í stíla-
bókum þeg-
ar keypt-
ar eru
fimm
saman
í pakka.