Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1999, Qupperneq 22
4
26
FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1999
Fréttir
Fjarkennsla er hagsmuna-
mál fyrir landsbyggðina
DV, Siglufirði:
„Fjarkennslan á háskólastigi er í
mjög örri þróun og íslenskir háskól-
ar mega hafa sig alla viö til að drag-
ast ekki aftur úr í þeirri samkeppni.
Fyrir íslenskt samfélag er mjög
mikilvægt aö íslenskir háskólar geti
boöið fjarkennslu á alþjóðlegum
vettvangi. Óviöunandi fjárhagslegt
og tæknilegt umhverfí er hins vegar
mikill dragbítur á þróun f]ar-
kennslu hér á landi,“ sagði Þor-
steinn Gunnarsson, rektor Háskól-
ans á Akureyri, í erindi sem hann
flutti á ársþingi sveitarfélaga á
Norðurlandi vestra í síðustu viku.
í erindi rektors kom m.a. fram að
fjárveitingar til fjarkennslu hafa
verið ónógar til þessa en þó var gert
nokkurt átak til úrbóta við af-
greiðslu fjárlaga yfirstandandi árs.
Með uppsetningu byggðabrúarinnar
Þorsteinn Gunnarsson í ræðustól á
ársþingi SSNV. DV-mynd Örn
hefur Byggðastofnun veitt þessu
máli umtalsverðan stuðning. Enn
fremur kom fram að flutningskerfi
Landssímans stenst ekki þær lág-
markskröfur sem gera verður til
óbjagaðs flutnings á mynd og hljóði
og stendur flutningsgeta hér langt
að baki þeirri þjónustu sem mennta-
stofnanir búa við í nágrannalöndun-
um okkar.
„Efling fjarkennslu er afar mikil-
væg fyrir byggðaþróun í landinu.
Sú takmarkaða reynsla sem Háskól-
inn á Akureyri hefur haft styður
þessa fullyrðingu. Ef Háskólinn á
Akureyri hefði ekki boðið fram fjar-
nám í hjúkrunarfræði á ísafirði sl.
haust hefðu væntanlega 10 nemend-
ur flutt þaðan til að leggja stund á
háskólanám annars staðar. Þessir
nemendur eiga sínar fjölskyldur
sem hefðu flutt með þeim þannig að
hér hefði getað verið um að ræða
brottflutning 30-40 íbúa frá ísafirði.
Af þessu eina dæmi sést að hér eru
mikilvægir hagsmunir í húfi fyrir
landsbyggðina," sagði Þorsteinn
Gunnarsson rektor. -ÖÞ
►
>
Seiðarannsóknir Hafrannsóknastofnunar:
Niöurstaðan
vissulega
fagnaðarefni
Orð Davíðs Oddssonar á Stöð 2 á föstudag:
Fáheyrðar ásakanir
- segir Ágúst Einarsson
- segir forstjóri Útgerðarfélags Akureyringa
Biðröð myndaðist fyrir utan BT-tölvur kl. 10 á föstudagsmorgun þegar verslunin var opnuð. Þá hófst sala á nýjum
tölvuleik, Tiberian Sun, sem beðlð hefur verið með mikllli eftirvæntingu. Að sögn starfsmanna var mikil örtröð allan
daglnn vegna leiksins. DV-mynd S
„Davíð Oddsson forsætisráðherra
fór út fyrir öll eðlileg mörk þegar
hann ásakaöi fréttamann um að
gæta hagsmuna eiganda fjölmiðils
fréttamannsins. Þetta er fáheyrð
ásökun í nútímaþjóðfélagi. Ég hvet
blaðamenn til að ræða þetta mál sin
í milli. Þetta er ekkert einkamál for-
sætisráöherra og fréttamannsins,"
sagði Ágúst Einarsson, fyrrv. al-
þingsmaður, i samtali við DV.
I grein á heimasíðu sinni fjallaði
Ágúst um þau orð Davíðs Oddsson-
ar forsætisráðherra í fréttaviðtali
Stöðvar 2 við Kristin Hrafnsson
fréttamann á föstudag, að fréttir
Stöðvar 2 af kaupum Orca S.A. á
hlutabréfum í FBA væru ómarktæk-
ar og litaðar af því að Jón Ólafsson
væri einn eigenda Stöðvar 2. Segir
Ágúst þetta mjög alvarlegar ásakan-
ir sem blaðamenn verði að taka til
sérstakrar umræðu. „Á forsætisráð-
herra að komast upp með að brigsla
fréttamönnum um að vera múl-
bundnir vegna hugsanlegra hags-
muna eigenda?" Ágúst sagðist við
DV telja þetta mál grafalvarlegt,
ekki síst af þvi að forsætisráðherra
væri með þessum orðum að grafa
undan trúnaðartrausti milli fjöl-
miðla, almennings og stjórnmála-
manna.
Karl Garðarsson, vakthafandi
fréttastjóri á Stöð 2, sagði að af
hálfu Stöðvar 2 yrði ekki um við-
brögð að ræða vegna orða forsætis-
ráðherra. -SÁ
DV, Akureyri:
„Niðurstöður þessara mælinga
Hafrannsóknastofnunar
eru vissulega fagnaðar-
efhi og ég fagna henni.
Það er alveg ljóst að sú
verndar- og uppbygging-
arstefna sem rekin hefur
verið varðandi þorskinn
er að skila sér,“ segir
Guðbrandur Sigurðsson,
forstjóri Útgerðarfélags
Akureyringa hf., um þær
jákvæðu niðurstöður
sem gefnar hafa verið út
um j árlegar seiðarann-
sóknir Hafrannsókna-
stofnunar.
Niðurstaðan varðandi
þorskseiðin er sú að „vísitalan" sem
miðað er við er sú langhæsta sem
mælst hefur frá því þessar rann-
sóknir hófust fyrir þremur áratug-
um. Útbreiðslan er mikil, allt frá
Vestfjörðum austur um land að Suð-
austurlandi.
“Þaö er ekki sjálfgefið að þetta
skili sér í auknum afla en ef það
gerist, sem vissulega eru miklar lík-
ur á, eru þetta stórtíðindi fyrir fyr-
irtæki eins og ÚA. Ef
seiðaárgangurinn sem
nú var mældur skilar
sér í veiðarnar árið 2003
og næstu árgangar verða
góðir, gæti heildarveiðin
árið 2003 numið 350 þús-
und tonnum af þorski og
það gæti þýtt að afla-
heimildir ÚA færu úr
rúmlega 11 þúsund tonn-
um af þorski í um 16
þúsund tonn. Þetta er
því stórmál. Allur fasta-
kostnaður er fyrir hendi
og varla að við þyrftum
að bæta við okkur skipi
til aö taka þessa aukningu, hvað þá
annað.
Þetta er því mjög jákvætt. Þær
áhyggjur sem ég hef snúast hins
vegar um rækjustofninn, m.a. vegna
þess hversu sterkur þorskstofninn
virðist vera að verða,“ segir Guð-
brandur. -gk
Guðbrandur Sigurðs-
son: „Ég fagna þess-
ari niðurstöðu mjög.“
Frá ársþingi SSNV á Siglufirði.
DV-mynd Örn
Sjöunda ársþing SSNV:
Atvinnu- og mennta-
mál í brennidepli
DV, Sigluíirði:
Sjöunda ársþing samtaka sveitar-
félaga á Norðurlandi vestra (SSNV)
var haldið á Siglufirði 27. og 28.
ágúst sL Helstu mál þingsins voru
atvinnulíf og menntun á Norður-
landi vestra. Framsöguerindi um
þessi mál höfðu Þorsteinn Gunnars-
son rektor, Björn Bjarnason
menntamálaráðherra, Ingunn Helga
Bjarnadóttir, landfræðingur hjá
Byggðastofnun, og Hörður Rík-
harðsson, starfsmaður Iðnþróunar-
félags Norðurlands vestra.
Gestir þingsins voru Páll Péturs-
son félagsmálaráðherra og Þórður
Skúlason, framkvæmdastjóri Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga. Að
auki fluttu Snorri Björn Sigurðsson
sveitarstjóri og Elín Líndal, oddviti
sveitarstjómar Vestur-Húnavatns-
sýslu, erindi og fjölluðu um reynsl-
una af sameiningu sveitarfélaga í
Skagafirði og Vestur-Húnavatns-
sýslu. Þá flutti Ingimundur Sigur-
pálsson, bæjarstjóri í Garðabæ, er-
indi um fjármál sveitarfélaga og
þróun byggðar.
í lok þingsins voru samþykktar
nokkrar ályktanir m.a. um að verkefhi
frá rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins
og landbúnaðarins verði unnin á Norð-
urlandi vestra. Þá var skorað á
menntamálaráðherra að beita sér fyrir
þvi að komið verði á fót öldungadeild
við Fjölbrautaskólann á Sauðarkróki.
Þá skoraði þingið á Alþingi og nefnd
sem vinnur að endurskoðun á tekju-
stofhum sveitarfélaga að sjá til þess að
sveitafélögunum verði tryggðir full-
nægjandi tekjustofhar til að sinna
þeim verkefnum sem þeim eru falin
samkvæmt lögum og reglugerðum.-ÖÞ