Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1999, Page 2
2
LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1999 33 "V
fréttir
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti íslands, setti Alþingi í gær. Davíð Oddsson forsætisráðherra stjórnar húrrahrópum þingheims. Forsetinn er með hönd í fatla
eftir óhapp fyrr í vikunni. DV-myndir gva
Markaðsöflin og framkvæmdavaldið:
Hallað á Alþingi
- sagði forseti íslands í setningarræðu á Alþingi
„Örlög byggðanna í landinu mega
aldrei ráðast á þann hátt að hagnað-
ur og hagræðing séu einu lóðin á
vogarskálunum,“ sagði herra Ólafur
Ragnar Grímsson, forseti íslands, í
ræðu sinni við setningu Alþingis í
gær. Forsetinn sagði að Alþingi
væri örlagavaldur í lífi þjóðarinnar
og í öndvegi stjómskipunar lands-
ins en að nokkuð hefði borið á því
að hallað væri á Alþingi með því að
hefja hlutverk framkvæmdavalds-
ins og markaðarins í æðra veldi og
að sagt væri að leikreglur nútímans
skipuðu Alþingi á hliðarlínu á leik-
velli áhrifa og valds.
„Það gleymist oft að uppspretta
þess umboðs sem framkvæmdavald-
ið fær er hjá Alþingi einu,“ sagði
Ólafur Ragnar og bætti við að hvorki
flokksagi né forystuvald gæti fært
framkvæmdavaldinu þá ábyrgð sem félagsmálaráðherra, stýrði fyrsta af núverandi alþingismönnum. herra Karl Sigurbjörnsson, biskup
Alþingi bæri. fundi nýsetts þings en Páll hefur Guðsþjónusta var í Dómkirkjunni yfir íslandi, fyrir altari en sr. Skúli
Páll Pétursson, alþingismaður og lengst gegnt samfelldri þingmennsku fyrir þingsetninguna og þjónaði Ólafsson predikaði.
Glaðar þingkonur við þingsetninguna, Bryndís Hlöðversdóttir, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, Svanfríður Jónas-
dóttir, Þórunn Sveinbjarnardóttir, Guðrún Ögmundsdóttir og Margrét Frímannsdóttir. í baksýn sér í Sighvat Björg-
vinsson.
Forræðisdeilan sem foreldrarnir unnu:
Einar Oddur Kristjánsson um Skelfisk:
Sjálfhætt
kúfiskmiðin hafa brugðist
„Þaö er sjálfhætt, því miður.
Kúfiskmiðin hafa verið að bregðast
og fiskifræðingar eru hræddir um
að við höfum ofnýtt þau. Einu miðin
ur af örlögum Skelfisks og áhrifa
þeirra á atvinnuástandið. „En þetta
var ákveðið brautryðjendastaif og
vitað að brugðið gæti til beggja
vona með reksturinn. En aðalatrið-
ið er að við sjáum nýja vaxtar-
brodda í bæjarfélaginu, t.d. fjöl-
mörg ný störf hjá íslenskri miðlun.
Þrátt fyrir áfóll höldum við ótrauð
áfram að berjast fyrir bættu at-
vinnulífi og afkomu íbúanna." -hlh
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri vígðu nýju Skeiðarvogsbrúna yfir Miklubraut í gær. DV-mynd E.ÓI.
Stúlkan ætlar í mál
Einar Oddur Halldór Halldórs-
Kristjánsson. son.
sem hafa fengið viðurkenningu heil-
brigðisyfirvalda í Bandaríkjunum,
FDA, og þar sem eitthvað veiðist,
eru miðin í kringum Þórshöfn. Þar
er verksmiðja en við eigum þau
tæki sem vantar. Þórshafnarmenn
fá skip í vor og það er báðum aðilum
hagstætt að Skel ÍS fari að veiða þar
og að verksmiðjan verði tilkeyrð.
Það er þegar búið að tilkynna Verð-
bréfaþinginu að við séum að sam-
einast,“ sagði Einar Oddur Krist-
jánsson, framkvæmdastjóri Skel-
fisks á Flateyri, við DV í gær.
Einar segir að um 17 manns
missi vinnuna á Flateyri. Þar af séu
7-8 manns frá Þingeyri og einhverj-
ir útlendingar. „En allir sem vilja
geta fylgt skipinu austur."
Halldór Halldórsson, bæjarstjóri
í ísafjarðarbæ, sagðist hafa áhyggj-
„Ég ætla í mál við barnavemdar-
nefnd. Ég hef hugsað þetta mjög lengi
og er ákveðin í þessu. Ég á ekki góð-
ar æskuminningar. Það er barna-
vemdarnefnd að kenna því hún tók
mig frá foreldrum mínum. Síðan við-
urkenndi barnaverndamefnd mistök-
in.“
Þetta segir Vigdís Björt Ómars-
dóttir Ragnarsson, íslensk 15 ára
stúlka sem búsett er í Noregi. Barna-
vemdarnefndin í Reykjavík svipti
foreldra hennar forræðinu yfir henni
þegar hún var fimm ára. Vigdísi
Björt var komið fyrir hjá fósturfor-
eldrum. Foreldrarnir reyndu ítrekað
að fá forræði yfir telpunni en án ár-
angurs. Árið 1993 fluttu þau til Nor-
egs með ungan son sinn þar sem þau
komu undir sig fótunum. í apríl 1998
komu þau til landsins í fermingar-
veislu Vigdísar. Föðurbróðir hennar
hafði þá verið skipaður forræðismað-
ur hennar þar sem fósturforeldrarnir
höfðu sagt fóstursamningnum upp.
Foreldramir tóku dótturina með sér
til Noregs og sóttu forræðismálið
þaðan. Það ráku þau sjálf án lög-
fræðiaðstoðar.
Norska barnaverndarnefndin og
félagsmálastofnunin studdu foreld-
rana í forræðisbaráttunni. Það var
svo eftir 10 ára baráttu foreldranna
sem bamaverndarnefndin í Reykja-
vík ákvað að veita þeim aftur fullt
forræði yfir dóttur sinni.
„Þegar ég flutti til föðurbróður
míns fannst mér ég loksins eiga ein-
hverja fjölskyldu. En skólagangan
hefur verið í molum hjá mér. Núna
loksins í 10. bekk er mér farið að
ganga betur í skólanum og fæ góðar
einkunnir. Ég ætla í mál vegna þess
að ég veit að það eru margir krakkar
á mínum aldri, eldri eða yngri, sem
lenda í þessu. Ég vil reyna að gera
eitthvað til að koma í veg fyrir það.
Kannski koma fleiri á eftir og því
fleiri þeim mun betra því þá verður
eitthvað gert,“ sagði Vigdís. „Það veit
enginn hvemig þetta er nema að hafa
lent í því sjálfúr."
Lögmaður hér heima hefur þegar
tekið málið að sér. -JSS
stuttar fréttir
Dómur fyrir netfjársvik
IRúmlega tvítugur maður var
dæmdur í 2 mánaða fangelsi i
Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir
fjársvik í viðskiptum á Netinu.
Reyndist maðurinn sekur að því
að hafa látið skuldfæra á Netinu
rúmlega 35 þúsund króna reikn-
ing á greiðslukort annars aðila
vegna kaupa á tölvugeislaspilara.
Mbl. sagði frá.
Hanna Birna ráðin
Hanna Bima Kristjánsdóttir
stjómmálafræð-
ingur, sem
gegnt hefur
starfi fram-
kvæmdastjóra
þingflokks sjálf-
stæðismanna,
hefur verið ráð-
in aðstoðar-
Iframkvæmdastjóri Sjálfstæðis-
flokksins.
Vöruskiptajöfnuður
Vömskiptajöfnuðurinn við út-
lönd var 2,3 ma.kr. betri fyrstu
* átta mánuði þessa árs en á sama
tíma í fyrra.
Hástemmdar lýsingar
Samkeppnisráð komst að
í þeirri niðurstöðu að Ármannsfell
hafi brotið gegn samkeppnislög-
J um með hástemmdum yfirlýsing-
um í auglýsingabæklingi vegna
byggingar fjölbýlishúsa við
Kirkjusand. Mbl. sagði frá.
Úr lífshættu
Maður sem lenti í alvarlegu
umferðarslysi í Eyjafjarðarsveit í
gærkvöldi er mikið slasaður að
sögn læknis á slysadeild Fjórð-
ungssjúkrahússins á Akureyri,
;1 en úr lífshættu. Mbl. sagði frá.
SH kaupir
Stjórn SH samþykkti á fundi
sínum í gær að
j veita, Gunnari
Svavarssyni,
forstjóra félags-
ins, heimild til
að ganga frá
samningum við
Scandsea AB
'j um kaup á 20% hlut í fyrirtæk-
1 inu.
Tölvuþrjótar í VÍ
Tölvuþrjótar hafa brotist inn á
kerfi Verslunarskóla íslands
samkvæmt heimildum Vísis.is.
Hafa þeir m.a. átt við verkefni
nemenda og kennara og breytt
£ aðgangsorðum. Nokkrum nem-
| endum hefur verið vísað tíina-
bundið úr skóla á meðan rann-
| sókn málsins stendur yfir.
Öllum sagt upp
Öllu starfsfólki kjötvinnslufyr-
j irtækisins Kjötkaups á Reyðar-
firði, 11 manns, hefur verið sagt
| upp störfum. RÚV sagði frá.
Réttmæt húsleit
Hæstiréttur hefur vísað frá
kröfum Söiufé-
lags garðyrkju-
manna, Ban-
ana og Ágætis,
vegna aðgeröa
Samkeppnis-
stofnunar. Fyr-
irtækin kröfð-
ust þess að úr-
skurður Héraðsdóms um húsleit
í fyrirtækjunum yrði dæmdur
1 ólöglegur, og að gögnum yrði
skilað. Aðgerðir Samkeppnis-
stofnunar, undir forystu Guð-
mundar Sigurðssonar, voru því
rétmætar.
Meirihlutinn féll
Meirihluti H- og S-lista í Norð-
ur-Héraði er fallinn. Tók nýr
meirihluti við á sveitarstjórnar-
fundi í gærkvöld.
MS 30 ára
Menntaskólinn við Sund, áður
Menntaskólinn við Tjömina, er
30 ára um þessar mundir. Af því
tilefni verður afmælishátíð í
skólanum í dag. -hlh