Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1999, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1999, Blaðsíða 44
~ 56 LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1999 Ferðir til fjarlægra heimshluta eru að verða æ algengari meðal Is- lendinga. Ein af þeim ferðum sem Heimsklúbbur Ingólfs stendur fyrir er tveggja vikna ferð til Taílands með viðkomu í Bangkok og Pattaya. 'V Þar sem við vorum nýútskrifuð hjón og ferðin á hentugum tima varð hún fyrir valinu en við höfðum einnig heyrt marga mæla með Taílandi og þá sérstaklega þeirri þjónustu og viðmóti sem ferðamenn fá þar. Lagt var af stað þann 2. sept- ember og flogið til London þar sem skipt er yfir í lúxusvél Thai Air, Boeing 747-400 breiðþotu af stærstu gerð. Ferðin til Bangkok tekur hátt í 12 tíma og er næturflug á leiðinni þangað. Segja má að maður fá smá- forsmekk af TaUandi þegar flogið er með Thai Air því að þjónustan um borð er þvílík og flugþernur og þjón- ar á báðar hendur. Boðið var upp á kvöldverö og morgunverð sem val- ^ inn er af matseðli og allt áfengi var frítt um borð, hvort sem um var að ræða bjór eða koníak. Bangkok Bangkok er stór borg á suður- asískan mælikvarða, með yfir 8 milljónir íbúa. Hún er byggð við fljót og er aðeins um metra yfir sjáv- armáli, enda liggja síki og skurðir um hana alla. Há yfirborðsstaða vatnsins gerir líka allar lagnir og byggingar neðanjarðar illmögulegar * og eitt af því sem íslendingum finnst mjög skrýtið að sjá þar er Einhver algengasti ferðamáti Bang- kok-búa er um síkin og skurðina á hvers kyns fleytum. - þar sem þjónustan við ferðamenn er lykilatriði Fuglunum sleppt til að öðlast hamingjuríka lífdaga á musterishæðinni í Pattaya. Áð á musterishæðinni í Pattaya. Takið eftir skiltinu til vlnstri. hvemig rafmagnið er lagt utan á húsin, upp í trén og yfir fjölfarín gatnamót, að því er virðist í einni bendu. Ekkert neðanjarðarlestakerfi er þar heldur af þeim sökum en bygging lestakerfis á brúarstöplum, eða svokölluð „Skyline", er komin vel á veg. Einhver algengasti ferða- máti Bangkok-búa er þó um síkin og skurðina á hvers kyns fleytum. Al- gengt er að sjá langar flatbytnur með gamalli bílvél sem breytt hefur verið þannig að búið er að setja langt drifskaft aftur úr henni með skrúfu á endanum. Flest opinber þjónusta fer fram eftir þessum leið- um og má þar nefna alla neyðar- þjónustu, lækna, póstburð, sorp- hirðu, og ef hengdur er blár borði utan á húsið koma starfsmenn Taílandsbanka í heimsókn eftir þessum leiðum. Skoðunarferð um síkin, og þá með viðkomu í íbúðar- hverfum innfæddra, þar sem hægt er að fylgjast með mannlífinu, er því óhætt að mæla með. Pattaya Borgin sú var aðeins þorp þangað til fyrir rúmmn þrjátíu árum, er bandaríski herinn kom þangað og gerði hana að hvildarstað fyrir her- menn úr Víetnam-stríðinu. Afleið- ingin var sú að vændi varð brátt að- alatvinnugreinin þar og nafnið Patta- ya stóð fyrir stærsta hóruhús í heimi. Svo hvarf Kaninn á braut og skildi eftir sig tómar byggingar og fólk sem var orðið háð verslun við hann. Ráðið við því var að byggja stað- inn upp sem ferðamannastað, sem gert var af miklum glæsibrag, og standa þar lúxushótelin í röðum við ströndina. Reyndar hafa vinsældir Pattaya dalað aðeins á síðustu ármn vegna tilkomu fleiri ferðamanna- staða í Taílandi og aukinnar meng- unar i flóanum. Enn kemur þó mikið af túristum þangað frá öllum heims- hornrnn. Verðlag þar er mjög hag- stætt á evrópskan mælikvarða, svo hagstætt að passa þarf að láta ekki plata sig því að okkur finnst hlutur- inn ódýr þegar verið er að okra á manni. Oftast er hægt að slá næstum helming af uppsettu verði vörunnar nema í stórmörkuðunum þar sem um innflutta vöru er að ræða. Utan við hótelin við ströndina bjóða inn- fæddir svo þjónustu sína: sæþotur, fallhlífasvif, nudd, handsnyrtingu, hárgreiðslu, skoðunarferðir og allt sem nöfnum tjáir að nefna. Klæðskerinn viðkunnanlegi Eitt að því sem ferðamenn gera mikið að þegar þeir koma til Taílands er að láta klæðskerasauma á sig fót. Við höfðum með okkur nafnspjald klæðskera sem vinnufé- lagi minn hafði mælt með og reynd- ist hann okkur mjög vel. Jakkaföt, kasmírullarfrakki og þrír kjólar, auk ýmislegs annars, kostaði aðeins 35.000 krónur og gæðin voru 100% út i gegn. Klæðskerinn, sem var indverskur, var okkur einnig mjög hjálplegur við að mæla með þeim stöðrnn sem við skyldum heimsækja þar og einn eft- irminnilegasti dagurinn var þegar við leigðum mótorhjól og skoðuðum aðeins nágrennið. Uppi á hæðinni fyrir ofan bæinn er musteri með stærðar Búddalíkneski sem við heimsóttum. Þar getur maður keypt nokkra fugla í búri og sleppt þeim til að öðlast gæfuríkt líf og reykelsisilm- urinn yfirgnæflr þar allt annað. Það sem er eftirminnilegast eftir ferðina í heildina er þægilegt viðmót Taí- lendinga sem maður sér í nýju ljósi. Þjónustulund og brosandi andlit mæta ferðamanninum alls staðar og gerir hann staðráðinn í að heim- sækja landið einhvem tímann aftur. -NG Umdeild málverkasýning Þeir sem eru á leið til New York á næstunni eiga þess kost að fara á eina umdeildustu mál- verkasýningu sem þar hefur ver- ið haldin undanfarin ár. Sýningin er haldin í Brooklynlistasafninu og ber yflrskriftina Sensation. Um er að ræða verk breskra sam- tímalistamanna sem era í eign auglýsingakóngsins Charles Saatchi. Sýningin var fyrst sett upp fyrir tveimur áram í Konung- legu akademíunni í London þar sem hún hlaut metaðsókn; ekki áður höfðu fleiri gestir skoðað sýningu um samtímalist í hálfa öld. Það er hins vegar borgarstjór- inn í New York, Robert Guiliani, sem er ósáttur við sýninguna sem hann segir jaðra við guðlast. Er það helst málverk Chris Offilis af Maríu mey sem ögrar borgarstjór- anum og hefur hann m.a. hótað að skera niður styrki til safnsins. Lætin út af sýningunni hafa hins vegar gert það að verkum að að- sókn hefur fremur aukist en hitt enda menn vart viðræðuhæfir nema þeir hafl myndað sér skoð- un á verkum sýningarinnar. Hætt að reykja Þeim sem hefur mistekist að hætta að reykja býðst nú að slá tvær flugur í einu höggi; láta af hinum bráðdrepandi ósið og njóta um leið sólar og sælu í strand- bænum Algarve í Portúgal, en staðurinn hefur einmitt verið vin- sæll hjá Islendingum um árabil. Á fimm stjömu hótelinu Vilara er nú boðið upp á sex daga meðferð þar sem reykingamenn eru vand- ir af ósómanum, m.a. með nál- arstungum. Hægt er að kynna sér námskeiðið nánar á www.thermalia.co.uk á Netinu. Ættaróðalið opið almenningi Nú geta aðdáendur bresku gamanþáttanna Ættaróðalið (To the Manor Bom), sem sýndir vora á níunda áratugnum í Ríkis- sjónvarpinu og endursýndir á Skjá eitt fyrr á árinu, dvalið á sjálfu Ættaróðalinu. Setrinu, sem er í Somerset-héraði, var nýverið breytt í hótel og kallast Cricket St. Thomas. London vinsælust Nærri þriðjungi landsmanna finnst líklegt að hann fari í helgar- eða borgarferð nú í haust. Þetta kemur fram í Flugleiðafréttum og er byggt á könnun Gallups fyrir fé- lagið. Þær borgir sem flestir vilja heimsækja eru London, Barcelona og París. Dublin var áður í þriðja sæti en vera kann að vinsældir Parísar megi rekja til þess að nú er flogið þangað áriö um kring. Alls sögðust 62% aðspurðra hafa farið í borgarferð á síðustu funm árum; íbúar á höfuðborgarsvæð- ; inu og fólk á aldrinum 25 til 34 ára 3 hefur að jaínaði íarið í fleiri borg- arferðir en aðrir hópar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.