Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1999, Blaðsíða 59

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1999, Blaðsíða 59
LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1999 71 Jóhannes Gunnarsson Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, Álakvísl 55, Reykjavík, verður fimmtugur á morgun. Starfsferill Jóhannes fæddist í Reykjavik og ólst þar upp. Hann lauk gagnfræða- prófi frá Núpi í Dýrafirði, prófi sem mjólkurfræðingur frá Óðinsvéum i Danmörku 1970 og stundaði þar framhaldsnám 1970-71. Jóhannes var mjólkurfræðingur í Mjólkurbúi Flóamanna 1972-73, Mjólkursamlagi Neskaupstaðar 1974, Mjólkursamlagi Borgfirðinga 1975-80, var upplýsinga- og útgáfu- stjóri Verðlagsstofnunar 1980-90 og hefur starfað hjá Neytendasamtök- unum frá 1990. Jóhannes var formaður Starfs- mannafélags Mjólkurbús Flóa- manna 1973, sat í stjórn Starfs- mannafélags ríkisstofnanna 1984-90, sat í ýmsum nefndum á vegum SFR og BSRB, var formaður Neytendafé- lags Borgarfjarðar 1978-80, var for- maður Neytendasamtakanna frá 1984-97 og frá 1999 og var fram- kvæmdastjóri Neytendasamtakanna 1990-99. Hann sat í framkvæmda- stjórn Alþýðubandalagsins 1985-87 og í miðstjórn þess í nokkur ár frá 1987. Fjölskylda Fyrri kona Jóhannes- ar var Magnea Jóns- dóttir, f. 1.11. 1949, hús- móðir. Böm Jóhannesar og Magneu era Sigrún, f. 8.11. 1970, búsett í Dan- mörku, gift Einari Benediktsyni og eiga þau eina dóttur; Lilja Guðný, f. 9.10. 1972, kennari á Neskaupstað og á hún einn son. Seinni kona Jóhann- esar er Sigþrúður Sigurðardóttir, f. 9.10. 1952, ritari við Sjúkrahús Reykjavíkur. Foreldrar hennar eru Sigurður B. Guðbrandsson, fyrrv. verslunarmaður í Borgarnesi, og k.h., Helga Þorkelsdóttir húsmóðir. Böm Jóhannesar og Sigþrúðar eru Gunnar, f. 28.5. 1977, háskóla- nemi en unnusta hans er Lilja Mar- ía Snorradóttir; Elín Eir, f. 4.5. 1979, húsmóðir í Reykjavík en hennar maður er Brynjar Örn Áskelsson og eiga þau eina dóttur. Fósturdóttir Jóhannesar er Erla Helga Sveinbjörnsdóttir, f. 29.12. 1971, kennari í Súðavík, gift Trausta Sigurgeirssyni og eiga þau tvö börn. Systkini Jóhannesar eru Gísli, f. 19.3. 1938, prófessor í sagnfæði við HÍ, kvæntur Sigríði Sigurbjörnsdótt- ur; Vilborg, f. 6.4. 1941, póstútibússtjóri í Reykjavík, gift Hilmari Þór Sigurðssyni; Guð- finna, f. 31.12. 1943, hjúkrunarfræðingur á Akureyri, gift Torfa Gunnlaugssyni; Skarp- héðinn, f. 17.9. 1946, starfsmaður hjá Imbak í Reykjavík, kvæntur Kol- brúnu Sigurðardóttur; Guðbjörg, f. 4.5. 1948, hjúkrunarfræðingur í Reykjavík, gift Guð- mundi Vilhjálmssyni; Þóra Guðný, f. 7.7. 1954, skrifstofu- maður hjá Stöð í Reykjavík, gift Jón- birni Pálssyni. Foreldrar Jóhannesar: Gunnar Jóhannesson, f. 20.7. 1905, d. 26.1. 1990, póstfulltrúi í Reykjavík, og k.h., Málfríður Gísladóttir, f. 18.10. 1911, d. 22.4. 1996, húsmóðir í Reykjavík. Ætt Gunnar er sonur Jóhannesar, sjó- manns í Stykkishólmi, Einarssonar. Móðir Gunnars var Guðbjörg Jóns- dóttir, b. á Harastöðum á Fells- strönd, Oddssonar, bróður Valent- ínusar, langafa Haralds prófessors og Odds blaðamanns Ólafssona. Móðir Jóns var Vilborg Pétursdótt- ir. Móðir Vilborgar var Valgerður Einarsdóttir, móðir Valgerðar, langömmu Ólafs, fóður Gunnars Ragnars á Akureyri. Móðir Guð- bjargar var Jóhanna Sveinbjarnar- dóttir, b. á Hallsstöðum á Fells- strönd, Jónssonar, bróður Saura- Gísla. Gunnar var þremenningur við Berg, fóður Guðbergs rithöfund- ar. Málfriður er dóttir Gísla, kennara í Krossgerði á Berufjarðarströnd Sigurðssonar, af Ásunnarstaðaætt- inni, bróður Áma, langafa Hannes- ar Hlífars Stefánssonar skákmeist- ara. Móðir Gísla var Málmfríður, systir Sigriðar, móður Jóns Helga- sonar prentsmiðjustjóra og ömmu Vals Gíslasonar leikara, föður Vals bankastjóra. Málmfríður var dóttir Gísla, b. í Krossgerði, Halldórsson- ar, b. í Krossgerði, Gíslasonar, bróð- ur Brynjólfs, langafa Gísla, langafa Ólafs Davíðssonar ráðuneytisstjóra í forsætisráðuneytinu. Móðir Málm- fríðar var Vilborg Einarsdóttir, b. á Hamri í Hamarsfirði, Magnússonar og Guðfinnu Jóhannsdóttur Malmqvist, sjómanns á Djúpavogi, bróður Jóhönnu, langömmu Jó- hanns Malmqvist, afa Guðmundur Malmqvist, framkvæmdastjóra Byggðastofnunar, og Jóhanns Malmquist prófessors. Jóhannes er í útlöndum. ______________Qréttir Jóhannes Gunnarsson. Undirmannaðir leikskólar: Sameiginlegur vandi okkar og foreldra - segir Bergur Felixson, forstöðumaður Dagvistar barna „Það er ekki önnur leiö hjá þess- um tiltekna leikskóla en þessi. Ástandið er mjög alvarlegt vegna þess að það vantar starfsmenn," seg- ir Bergur Felixson, forstöðumaður Dagvistar barna í Reykjavík. Eins og DV greindi frá i síðustu viku hef- ur verið gripið til þess ráðs hjá leik- skólanum Bakkaborg að senda börn heim dag og dag í senn vegna þess að nægilega margir leikskólakenn- arar og aðrir starfsmenn fást ekki til starfa og skólinn er undirmannaður. DV ræddi við Guðmundu Valdísi Helgadóttur sem á bam á leikskól- anum og varð að taka sér launalaust leyfi frá vinnu til að gæta barnsins sjálf vegna þess að leikskólinn sendi það heim. Guðmunda Valdís óttast að þetta ástand sé orðið viðvarandi í Bakkaborg og gerir alvarlegar at- hugasemdir við það að vera rukkuð um fullt gjald fyrir bam sitt án þess þó að það njóti fullrar þjónustu á móti. Bergur Felixson var spurður hvort foreldrar yrðu mkkaðir um fullt skólagjald þegar svona væri ástatt. Hann sagði að það færi eftir umfangi þessara ráðstafana. „Við höfum ekki gert neitt í því ef þetta hefur verið lítils háttar, enda lítum við svo á að þetta sé sameiginlegt vandamál okkar og foreldra og í raun og vera okkar og samfélags- ins,“ sagði Bergur. Hann sagði að bæði Dagvist barna og leikskóla- stjórar hefðu bent á að þessi mál færu versnandi og aö það vantaði fleiri leikskólakennara samhliða því sem uppbygging leikskóla hefði fariö fram í borginni. Nú væri svo komið að ekki væri hægt að manna alla leikskólana. Hann kvaðst von- ast til að bæði foreldrar og leikskól- ar gætu leyst þessi mál án mikilla óþæginda. „Auðvitað verður það skoðað, ef við neyðumst til að draga verulega úr þjónustunni, að þá fái fólk afslátt af gjöldum," sagði Berg- ur Felixson. -SÁ Evrópusamkeppni ungra vísindamanna: íslendingar á toppinn Þeir Tryggvi Kjartansson, Páll Melsteð og Sverrir Guðmundsson, sem tóku þátt í Evrópusamkeppni ungra vísindamanna í Thessaloniki í Grikklandi dagana 18. til 24. sept- ember, náðu þeim ágæta árangri að fá ein af þrennum fyrstu verðlaun- um sem veitt voru í keppninni. Alls voru þátttakendur 80 talsins frá 30 löndum og höfðu þeir áður unnið sér rétt til þátttöku með sigri í keppnum i heimalandi sínu. Þremenningamir tóku þátt í keppninni fyrir hönd Menntaskól- ans í Reykjavík. Páll M. Jónsson, sem var farar- stjóri íslensku þátttakendanna í Grikklandi, segir verkefni þeirra fé- laga hafa falist í samanburði á mis- munandi stiamfræðilegum gagna- grunnum og að þeir hafi notað Internetið til að ná í gögnin. Þeir þóttu sýna mikla þekkingu á efninu og setja niðurstöður vel fram en þær vöktu athygli fyrir að benda á áður ókunnar staðreyndir varðandi mismunandi þéttleika gagnagrunn- anna. Þá þótti athyglisvert hvemig þeir sýndu fram á að venjulegir áhugamenn geta notað Intemetið til að nálgast og vinna úr upplýsingum sem áður voru aðeins tiltækar fræðimönnum. Tryggvi, Páll og Sverrir hlutu samtals jafnvirði um 400 þúsund króna í verðlaun auk þess sem þeim hefur verið boðið til dvalar í stjörnuskoðunarstöð Norðurland- anna á fjallatoppi á Kanaríeyjum. Það voru stúlka frá írlandi, sem kynnti nýjar lausnir í dulmálskóð- un, og ungur Pólverji, með verkefni þar sem notaðar voru gróðurfléttur sem vísir á iðnaðarmengun, sem deildu fyrstu verðlaununum með ís- lendingunum. -GAR F.v.: Tryggvi Kjartansson, Páll Melsteð, Sverrir Guðmundsson. Tll hamingju með afmælið 3. október 80 ára Bjarni Helgason, Suðurgötu 38, Hafnarfirði. Sveinbjörn Sigurðsson byggingameistari, Miðleiti 7, Reykjavík. Sveinbjöm tekur á móti gestum að heimili sínu í sal. Hann afþakkar gjafir en bendir á Byggingarsjóð Reykjalundar. 70 ára Gunnar Finnsson, Túngötu 7, Ólafsfirði. Ingibjörg Ólafsdóttir, Hamai'sstíg 18, Akureyri. María Pétursdóttir, Suðurbraut 2, Hafnarfirði. 60 ára__________________ Bjöm Ómar Jónsson, Víðihlíð 43, Reykjavík. Einar Hálfdánsson, Holtastig 18, Bolungarvík. Hanna Sigurbjörg Kjartansdóttir, Reynimel 22, Reykjavík. 50 ára Dagmar Þóra Bergmann, Funafold 26, Reykjavik. Gunnar Eiríkur Hubner, Sjávargrund lOb, Garðabæ. Hannes Stefánsson, Vogi, Selfossi. Lúðvík Finnsson, Heiðarbóli 51, Keflavík. Sigursveinn Hallsson, Litluhlíð 5b, Akureyri. Soffía Árnadóttir, Funalind 9, Kópavogi. Þómí Eiríksdóttir, Ásbúð 28, Garðabæ. 40 ára Anna Þórdís Guðmundsdóttir, Hlíðarhjalla 1, Kópavogi. Guðlaug Jónína Ágústsdóttir, Nestúni 2, Stykkishólmi. Hafliði Gunnarsson, Dvergagili 2, Akureyri. Hallgrímur P. Gústafsson, Suðlbr. 15, Baldurshaga Reykjavík. Hermann Þ. Waldorff, Selsvöllum 5, Grindavík. Hrafnhildur Ingibergsdóttir, Lækjarbergi 46, Hafnarfirði. Kristján Már Gunnarsson, Lóurima 29, Selfossi. Linda Valbergsdóttir, Goðalandi 10, Reykjavík. Oddbjörg Ragnarsdóttir, Skógarhjalla 11, Kópavogi. Reynir Gunnlaugsson, Grettisgötu 32, Reykjavík. Rósa Dagný Grétarsdóttir, Fifuseli 14, Reykjavík. Sigrún Valgeirsdóttir, Háteigsvegi 23, Reykjavík. Sigurjón Hjörtur Magnússon, Leiðhömrum 19, Reykjavík. Stefán R. Sigurbjörnsson, Miðvangi 1, Bakkafirði. Dýr kunna ekki umferöarregiur. Höldum þeim frá vesunum. tffUMFERÐAR l. \ http://www.umferd.ls ráð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.