Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1999, Blaðsíða 68
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Stöð 2 og
Bylgjan með
morgunsjón-
varp
„Við höfum unnið að þessu verk-
efni frá í vor og farið vel yfir allar
mögulegar forsendur morgunsjón-
varps. Það er því ekki hægt að líta á
ákvörðun okkar sem viðbrögð við nýj-
ustu útspilum á
sjónvarpsmark-
aðnum. Þetta var
alltaf spuming um
hvenær en ekki
hvort við hæfum
útsendingar á
morgnana," sagði
Hreggviður Jóns-
son, forstjóri ís-
lenska útvarpsfé-
lagsins, við DV.
Ákveðið hefur
Hreggviður
LJónsson.
verið að Stöð 2 og Bylgjan hefji sam-
eiginlega útsendingu á morgunsjón-
varpi 1. nóvember. Morgimsjónvarpið
er sameiginlegt verkefni Stöðvar 2 og
Bylgjunnar og verður sent út í opinni
dagskrá á rásum beggja miðla frá kl.
7-9.
- Hvað fær fólk að sjá í morgun-
sjónvarpi?
„Þarna verða fréttir, veðurfréttir,
íþróttafréttir auk fjölbreytts efnis á
léttum nótum um dægurmál og hvað
^ina í mannlífmu. Fréttir frá frétta-
stofu verða strax klukkan 7 og síðan
7.30, 8, 8.30 og 9,“ segir Hreggviður.
Því er við að bæta að kvöldfréttatími
Stöðvar 2 kl. 10.30 feliur niður. -hlh
Átján árekstrar
Átján árekstrar urðu í fostudags-
umferðinni Reykjavík í gær, á tíma-
bilinu frá kl. 7 til kl. 18. Frekar
hvasst var en skilyrði annars ágæt.
Engin alvarleg meiðsl urðu á fólki
en nokkurt eignatjón.
-hlh
Spánn
iT/Jf
MERKILEGA MERKIVELIN
brother PT-igQQ_
Islenskir stafir
5 leturstærðir
8 leturgerðir
6, 9 og 12 mm prentborðar
Prentar I tvær línur
Verð kr. 6.603
Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443
Þessir þjóðþekktu menn tóku tal saman að afiokinni setningu Aiþingis í gær. í þeirri umræðu kom í Ijós að það var ekki einungis Ólafur Ragnar Grímsson
forseti sem hafði axlarbrotnað. Páll Pétursson alþingismaður hafði áður fyrr orðið fyrir þeirri reynslu, svo og biskupinn, herra Karl Sigurbjörnsson. Við þessi
tíðindi varð Davíð Oddssyni forsætisráðherra að orði að þeir væru svo sannarlega allir margbrotnir menn. Sjá bls. 2
DV-mynd GVA
Bréfberar kvarta undan drápsklyfjum:
Óhóflegt álag
- bök og liöþófar í hnjám gefa sig
„Álagið er óhóflegt á bréfberum
vegna aukinnar þyngdar á pósti,“
sagði Thelma Ásdísardóttir.
Hún hefur verið bréfberi í Hafn-
arfirði að undanfómu en hefur nú
látið af því starfi. Bréfberar hafa
kvartað mjög undan auknu álagi,
enda kannast flestir við alls konar
auglýsingablöð og bæklinga sem
streyma inn um póstlúgumar á
hverjum degi.
Theíma sagði, að bréfberar hefðu
efnt til tveggja funda að undan-
fomu. Þar hafi fólk komið saman og
lýst áhyggjum sínum með. Yflr-
mönnum íslandspósts hefði verið
boðið á fyrri fundinn. Þeir hefðu
síðan fengið 3ja vikna frest til úr-
bóta. I fyrradag hefði verið haldinn
annar fundur. Þar var bréfbenun
tjáð, að til stæði að halda líkams-
beitingarnámskeiö. Thelma sagði að
slíkt námskeið létti póstburðarpok-
ana ekkert. Hins vegar hefði komið
fram, að af stað væri farin aðgerð til
að fá fólk til að merkja póstlúgum-
ar betur.
„íslandspóstur hefur verið með
skýra stefnu um að mæla upp hverf-
in, sem er mjög af hinu góða,“ sagði
Thelma. „Þá minnka væntanlega
mörg hverfi og þar með álagið. En
þetta gengur allt svo hægt. Meðan
þeir em með þetta í athugun og em
að spá og spekúlera eru bök að fara
og liðþófamir. í hnjánum að gefa sig.
Þetta er ófremdarástand eins og það
er í dag. Stundum eri allt upp undir
80 kíló af pósti í 50 prósent hverfið,
sem þýða 160 kíló í hverfið í heild.“
Þuríður Einarsdóttir, formaður
Póstmannafélags íslands, sagði við
DV, að dropinn sem fyllti mælinn
hefði verið að um síðustu mánaða-
mót hefði vantað starfsmenn, auk
þess sem póstmagn hefði verið mik-
ið. Sumir hefðu unnið tvöfalda
vinnu. „Póstmagnið hefur verið að
smáaukast en keyrði um þverbak
fyrir ári síðan.“
Þuríður sagði að fram hefði kom-
ið á síðari fundi bréfbera, að sum-
um hefði þótt lítið hafa.gerst til úr-
bóta að hálfu íslandspósts, meðan
öðrum hefði þótt málin komin í
nokkuð gott horf. íslandspóstm-
hefði boðað á fundinum í fýrradag
að stöðugt væri unnið að því að
koma málum til betri vegar.
-JSS
Veöriö á morgun:
Hægviðri
Hæg vestlæg átt og dálítil súld allra vestast, norðan 10-15 m/s og skúr-
ir allra austast en annars hæg vestlæg átt og víðast léttskýjaö.
Hiti 0 til 6 stig, mildast suðvestan til.
Veðrið á mánudag:
Votviðri
Suðvestan 8-13 m/s og rigning, einkum vestan til.
Hiti 5 til 10 stig.
Veðrið í dag er á bls. 73.