Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1999, Side 4
4
LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1999 DV
fréttir_________________________
Skuldir ríkissjóðs lækka ört:
Algjört svínarí að
borga háa vexti
- sagði fjármálaráðherrann þegar hann kynnti Q árlagafrumvarp ið
þingsins í gær. Hann sagði áríð-
andi að nefnin félli ekki í þá
freistni að nýta mikinn tekjuaf-
gang ríkisins til að auka útgjöld
eða minnka tekjur með þvi að
draga úr eða „koma skattstofn-
um fyrir kattarnef'. „Það er
miklir framtiðarhagsmunir sem
hanga á spýtunni; mikið tæki-
færi til að létta byrðum af þeim
sem á eftir koma. Það verður
seint fyrirgefið ef við gerum það
ekki,“ sagði hann.
Samkvæmt frumvarpinu
munu heildarskuldir ríkissjóðs
við upphaf nýrrar aldar, í lok
ársins 2000, nema um 30% af
landsframleiðslu miðað við 51%
árið 1995.
2,5 milljarða niðurskurður
„Frumvarpið er mikilvægt
efnahagslegt útspil af hálfu rík-
isstjórnarinnar og er hugsað til
að draga úr þenslu, verðhækk-
unum og viðskiptahalla," sagði
fjármálaráðherra. Hann kynnti
sérstaklega frestun áður ákveð-
inna framkvæmda. Samtals
verður frestað verkefnum fyrir
2.247 milljónir króna á næsta
ári en Geir sagði aðeins um
frestun að ræða og að engu
verkefnanna hefði verið ýtt út
af borðinu. Þá væri fyrirliggj-
andi að sumum þeirra yrði lok-
ið á áður ákveðnum tíma þar
sem vinnu við þær yrði þjappað
saman á þar næsta ári. Aðgerð-
irnar þýða að fjárfestingar rík-
issjóðs dragast saman um 14%
miðað við árið í ár.
Mesti niðurskurðurinnn er í
samgöngumálum, um einn
milljarður króna, þar af 550
milljónir til vegamála, mest i
Reykjavíkur- og Reykjaneskjör-
dæmum, 350 milljónum minna
er veitt til hafnamála og 100
milljónum til flugvallagerðar.
Sú upphæð sem eftir stendur,
rúmlega 1.200 milljónir, er feng-
in með frestun ýmissa bygging-
arframkvæmda og viðhalds-
verkefna, t.d. með frestun á við-
byggingu Alþingis. -GAR
Fyrrverandi aðstoöarfélagsmálastjóri leitar réttar síns:
Óþverraleg aðför
- segir hann og kveðst vændur um skjalaþjófnað
„Það er góður bissnes að
borga upp lán,“ sagði Geir
Haarde fjármálaráðherra í gær
þegar hann kynnti frumvarp
sitt til fjárlaga fyrir árið 2000.
Geir sagði að mjög vel hefði
gengið að greiða niður skuldir
ríkissjóðs og sagði vísbendingu
um það vera að í stefndi að út-
gjöld vegna vaxtagreiðslna
myndu lækka um tvo milljarða
króna á næsta ári miðað við
árið 1998.
Geir sagði mjög mikilvægt að
nýta 24 milljarða króna láns-
fjárafgang sem frumvarpið ger-
ir ráð fyrir á næsta ári, að með-
töldum 4 milljarða hagnaði
vegna sölu eigna, til niður-
greiðslu skulda en ekki til
reksturs. „Því það er algjört
svínarí að horga svona háa
vexti,“ sagði hann og bætti við
að í stefndi að ríkissjóður hefði
samanlagt greitt niður skuldir
sínar um 60 milljarða króna á
árunum 1998-2000.
Ósammála Þjóðhags-
stofnun
Samkvæmt frumvarpinu
munu tekjur ríkissjóðs á árinu
2000 nema 205 milljörðum
króna en útgjöld 190 milljörðum
og dragast þau saman um 1,5%
að raungildi. Geir sagði Þjóð-
hagsstofnun gera ráð fyrir 3,5%
verðbólgu og að góðar líkur
væru á að sú spá rættist. Hann
sagðist hins vegar ósammála
spá Þjóhagsstofnunar um hag-
vöxt á næsta ári en stofnunin
teiur að hann muni hrapa nið-
ur í 2,7% miðað 5,3% til 5,8%
fjögur ár þar á undan. Geir
sagði ólíklegt að stökkið verði
svo mikið milli ára. Hann benti
m.a. á að i forsendum Þjóðhags-
stofnunar væri ekki gert ráð
fyrir virkjana- eða stóriðju-
framkvæmdum.
Fjárlaganefnd falli
ekki í freistni
Geir kynnti fjárlagafrum-
varpið fyrir fjárlaganefnd
Barnaverndarstofa:
Ekki neitt
gefiö
í skyn
„Framkvæmdastjóri fjöl-
1 skyldusviðs spurði mig hreinlega
! að því hvemig mér þættu þessi
gögn koma fyrir sjónir, Ég hafði
á orði viö hann að það sem mér
kæmi á óvart þarna í Hafnarflrði
væri að þessi hluti vinnunnar,
þ.e. viðtöl við börn, skyldu ekki
finnast í meiri mæli í skjölunum
en raun bar vitni. Ég var ekki að
gefa neitt í skyn,“ sagði Guðjón
Bjarnason, starfsmaður Barna-
verndarstofu, sem athugaði
bamaverndarmálin í Hafnarfirði
og sendi tölvupóstinn til fram-
kvæmdastjóra fjölskyldusviðs.
I„Ég er bara að vitna í það sem
starfsmennimir sögðu, þ.e. að
þeir væru ekki alveg vissir um
að skjöl, sem hefðu verið rituð,
hefðu ratað inn i málin. Ég gat
ekki vitað um þetta að neinu
leyti. Þegar ég skoða þessi gögn
sé ég bara það sem ég sé. Ég veit
ekkert hvaða gögn eru ekki
þarna.“ -JSS
Einar Ingi Magnússon, fyrrver-
andi aðstoðarfélagsmálastjóri Hafn-
arfjarðarbæjar,
íhugar að leita réttar sins eftir að
bæjaryfirvöld í Hafnarfirði höfðu
sagt honum upp með tveggja daga
fyrirvara, svo sem greint hefur ver-
ið frá. Þá kveðst Einar Ingi hafa
orðið fyrir „óþverralegri aðfór“ er
hann hafi verið vændur um skjala-
þjófnað á grundvelli plaggs starfs-
manns Barnaverndarstofu. Það
plagg lagði framkvæmdastjóri fjöl-
skyldusviðs Hafnarfjarðarbæjar
fram á fundi bæjarráðs nýlega.
Forsaga málsins er sú að rann-
sókn er í gangi á vegum Barna-
verndarstofu. Samið var við félags-
málastofnanir, þ.á m. Félagsmála-
stofnun Hafnaríjaröar, um aðgengi
að gögnum frá árunum 1995-1997.
Starfsmaður Bamaverndarstofu fór
í gegnum gögn stofnunarinnar í
Hafnarfirði í sumar. I framhaldi af
því barst tölvupóstur frá honum til
sviðsstjóra fjölskyldumála sem fór
með plaggið inn á bæjarráðsfund
þar sem látið var að því liggja að
gögn vantaði í umrædd mál sem eru
yfir 20 talsins. Þetta var gert án
samráðs við barnaverndarnefnd
Hafnarfjarðar. „Það er raunvera
lega verið að brigsla mér um gagna-
þjófnað,“ segir Einar Ingi, sem segir
m.a hafi verið látið að því liggja að
hann hafi tekið gögn með sér í
„einkaskjalasafni" sínu.
Enn var tölvupóstur frá starfs-
manni Barnaverndarstofu lagður
fram á fundi bæjarráðs og síðar
barnaverndarnefndar þar sem hann
dró til baka allar ásakanir og frábað
sér frekari rannsókn á málinu. Bæj-
arráð hafði í millitíðinni falið bæj-
arlögmanni að gera athugun á þessu
máli. Niöurstaða hans, svo og ann-
arra sem að málinu komu, var á
eina leið; ekkert væri athugavert
við vinnslu umræddra mála, að
sögn Einars Inga.
„Ég ætla ekki að láta þetta óupp-
gert mál. Einhvers staðar rýrir
þetta mitt traust sem er algjörlega
að ósekju. En það er lágt seilst til að
ata fólk auri.“
Einar Ingi hefur kallað eftir gögn-
um um þetta mál. Hann hefur sent
erindi til bæjarlögmanns, barna-
verndarnefndar og bæjarráðs um
málið þar sem bornar eru upp ýms-
ar spurningar og beðið um gögn.
Hann bíður nú svara. Hiti hefur
verið í umræðum um málið á fund-
um bæjarráðs og bamaverndar-
nefndar að undanfórnu.
Einar Ingi segir réttindabaráttu
sinni ekki þar með lokið. Hann eigi
rétt til fimm ára með forgang að
sambærilegum störfum sem augýst
eru þegar um skipulagsbreytingar
er að ræða. Staða skólasálfræðings
hafði verið auglýst og í hana ráðið i
millitíðinni. Hann telur að fram hjá
sér hafi verið gengið við ráðning-
una. „Þessi aðfór að mér nú er gerð
í þeim tilgangi að draga úr mögu-
leikum mínum á að fá störf sem ég
á forgangsrétt að.“ -JSS
mwmm
i
Titringur
Mikið flug er á forsvarsmönn-
um Skjás 1 og margt nýmæla sem
ætlað er að festa stöðina í sessi.
Prestssonurinn og eigandinn,
Ámi Þór Vigfússon, ætlar að
ganga í skrokk á
Stöð 2 og klípa af
henni áhorf. Meðal
nýmæla eru orða-
leiksþættir sem
eiga að vera með
þátttöku sem
flestra íþróttafé-
laga. Forsjár-
menn Skjás 1
hringdu í öll fé-
lögin og líklegt er að náist sam-
an um málið. Búist er við mikl-
um auglýsingatekjum í kjölfarið.
Mikill titringur er sagður vera á
Stöð 2 vegna bramboltsins...
Skítamál
Hinn alvöruþrungni frétta-
maður Stöðvar 2, Eggert Skúla-
son, fór á kostum i vikunni þeg-
ar hann fjallaði um kúkinn í
fjöra Grafarvogs. ítarleg umfjöll-
un hans og nær-
mynd af fjöru-
kúknum varð til
Jþess að hinn geð-
þekki borgar-
stjóri, Ingibjörg
Sólrún Gísla-
dóttir, áttaði
j sig á því að
jþetta er skíta-
mál og greip
| strax til aðgerða. Eggert var
óvenjufrjór þar sem hann lýsti
því að borgarstjórinn hefði lagt á
sig ferð á Eyjabakka en fengist
ekki til að skoða fjöruna við
Geldinganes. Þá færðist Eggert
enn í aukana þar sem hann lýsti
þvi að 1,5 tonn af lambakjöti færa
í veislu vegna sameiningar Slysa-
vamafélagsins og Landsbjargar.
„Eins gott að holræsin virki,“
klykkti hann út með...
Gæðingur á bið
Vandræðagangur Halldórs
Ásgrímssonar utanríkisráð-
herra vegna ráðningar forstjóra
I Leifsstöðvar ætlar engan enda að
taka. Ómar Kristjánsson situr á
forstjórastólnum til
bráðabirgða en
staðan var fyrir
margt löngu aug-
lýst laus til um-
sóknar. Vandi
ráðherrans er að
of hæfir umsækj-
endur sóttu um
stöðuna ásamt
Ómari og erfitt
yrði að ráða hann varanlega. Því
var þrautalendingin að ráða
hann til bráðabirgða til eins árs.
Gæðingurinn er við stallinn en
ráðherrann þorir ekki að leggja á
hann,“ sagði eldri kona innan fé-
lags framsóknarkvenna í hálfum
hljóðum...
Með gaddavír
Yfirvofandi brotthvarf Árna
Þórs Sigurðssonar úr Samfylk-
ingunni yfir til VG er eitt helsta
mnræðuefni I stjórnmálaheimin-
um. Hin skelegga Margrét Frí-
mannsdóttir, tals-
maður Samfylking-
ar, gefur ekki mik-
ið fyrir yfirvof-
andi brotthlaup
og lét hafa eftir
sér að það hlyti
að vera óþægi-
legt fyrir Árna
Þór að vera
klofvega á girðingu. Af því
tilefni orti Erla Guðjónsdóttir á
Seyðisfirði.
Frá gárungunum gengur hér
gamansagan ljóta.
Með gaddavír hún Magga er
á milli sinna fóta.
Umsjón Reynir Traustason
Netfang: sandkorn @ff. is