Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1999, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1999, Síða 20
20 LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1999 DV m Litir úr lokuðum heimi Sigurður og Gísli sem hafa stundað myndlistarnám hjá Öldu Sveinsdóttur vinna eftir gerólíkum aðferðu. Gísli er vatnslitamálari en Sigurður vinnur í olíupastel. DV-myndir ÞÖK Sumir heimar eru okkur lokaðir. Heimur einhverfra og heyrnarlausra hefur ekkert aðgengi fyrir okkur hin þrátt fyrir tæknibyltingar, jafnvel þótt við komumst til tunglsins, vitum allt, kunnum allt og getum allt. Allir okk- ar vitsmunir og vísindasnilld eru fá- nýt tæki þegar við stöndum andspæn- is slíkri fótlun. Þaö er stundum sagt að listir séu ekki bara málverk, söngur, dans, leik- ræn tjáning eða ritað orð, heldur sé listin öflugt samskiptatæki. Þegar við heyrum söngverk sem samin voru fyrr á öldum í Mið-Evrópu skiljum við strax á tjáningunni um hvað þau eru, þótt við skiljum ekki orðin. Þegar við sjáum myndlistarverk frá framandi landi áttum við okkur fljótt á því Sigurður notar minnstu pastelmol- ana og nudda þá út. hvers konar samfélag er verið að tjá og hvaða tilfinningar listamaðurinn ber í brjósti til þess lands. Og það er auðvitað þessi sama list sem er eina tækið sem getur sagt okkur sögur úr heimi einhverfra og heyrnarlausra, sögur af því hvemig þeir sjá heiminn og hvaða tiifinningar þeir bera til hans. Á mánudaginn, þann 4. október, verður opnuð einstök sýning á Mokka við Skólavörðustíg þar sem saman sýna tveir einhverflr og heyrnarlaus- ir menn, þeir Sigurður Þór Elíasson og Gisli Steindór Þórðarson. Sigurður vinnur verk í olíupastel og Gísli sýnir vatnslitamyndir. Gerólíkir listamenn sem einnig hafa gerólíka nálgun í vinnu sinni - en mikið að segja. Vatnslitir og olíupastel Gísli er fæddur í Gaulverjabæ í Ár- nessýslu árið 1954. Faðir hans var skólastjóri þar og Gísli ólst upp í for- eldrahúsum til sex ára aldurs, næstyngstur fjögurra systkina, en fluttist þá á Kópavogshæli. Þar bjó hann þar til hann fluttist á sambýlið að Lækjarási 8 í Reykjavík á vormán- uðum 1998. Gísli er einhverfur, heym- arlaus og þroskaheftur. Vegna fotlun- ar sinnar átti hann ekki kost á skóla- göngu við hæfi þegar hann var á skólaaldri. Þó fór hann hluta úr vetri í Heymleysingjaskólann. Hann sótti einnig myndlistarnámskeið hjá full- orðinsfræðslu þjálfunarskólans fyrir nokkrum misserum. Á fyrri hluta ársins 1999 sótti Gísli myndlistamámskeið hjá Öldu Sveinsdóttur í vatnslitamálun og er af- rakstur þess námskeiðs á sýningunni á Mokka. Sigurður er fæddur árið 1964 i Neskaupstað og ólst þar upp til átta ára aldurs, yngstur flög- urra systkina. Þá komst hann í skóla fjölfatlaðra en hann er einnig ein- hverfur, heymarlaus og þroskaheftur. Sigurður var einnig í Kjarvals- húsi og Öskjuhlíðar- skóla. Sextán ára fór hann í Sólheima í Grímsnesi þar sem hann var við leik og störf uns hann fluttist til Reykja- vikur á sambýli að Byggðarenda. A vormánuðum 1998 fluttist Sigurður á sambýlið Lækjarási 8. Á Sólheimum fékk Sigurður nokkra þjáifun í notkun pastellita hjá frönskum starfsmanni þar. Á fyrra hluta ársins 1999 var hann einnig á námskeiði hjá Öldu Sveinsdóttur og sýnir afrakstur þess námskeiðs á Mokka. Lýkur alltaf við myndirnar Gísli sýnir vatnslitamyndir og þegar kennari þeirra, Alda Sveins- dóttir, er spurð um vinnuaðferðir þeirra segir hún Gisla byrja á því að teikna myndir sínar mð blýanti vegna þess að hann hafi verið fast- ur í að teikna út frá hringjum og hún hafi því þurft að velja fyrir- myndir handa honum. „Hann hef- ur gengið beint til verks og veit ná- kvæmlega hvemig hann á að vinna myndina," segir Alda. „Ef hann lendir í strandi horflr hann á mig og réttir mér blýantinn og þar sem ég er takmörkuð í táknmáli reyni ég að fara inn í hugsunina hjá hon- um og sýna honum á mjög einfald- an hátt hvemig hann getur haldið áfram. Síðan heldur hann áfram og hann lýkur alltaf við myndina. Ég reyni að gera eins lítið og mögulegt er til þess að láta hann halda áfram. Þá er myndin hans. Síðan raða ég upp vatnslitum fyrh hann og læt hann hafa litina og pensla. Hann lítur spyrjandi á mig og ég gef honum merki um að halda áfram. Það hefur verið skemmtilegt hvað Gísli hefur oft valið bjarta liti. Hann er líka per- sónulegur í þvi hvemig hann vinn- ur andlit á fólki, augun em oft op- in og starandi og svo gerh hann nefið oftast á sinn sérstaka hátt. Að öðru leyti fylgir hann útlínum." Notar mikinn líkamlegan kraft Sigurður vinnur í olíupastel og vinnur þá þannig að hann vill taka minnstu molana af pastellitunum og nudda þá út, horfa á hvemig ár- angurinn verður. Svo bæth hann við og bæth við. „Sigurður getur orðið mjög ákafur og þá nofar hann mikinn líkamlegan kraft í að vinna litina," segh Alda. „Hann er sfundum latur að byrja en nær upp miklu kappi á meðan á því stendur að vinna myndina. Sigurður byijaði aðeins á þess- ari myndgerð á meðan hann var á Sólheimum og þá var það franskur maður, Benjamín, sem sá hvemig hann vildi vinna, virti þetta per- sónulega hjá honum og leyfði hon- um að halda áfram í því. Þetta hef- ur haldið áfram á námskeiðinu hjá mér 'og ég finn að þetta á mjög vel við hann.“ Þegar Alda er spurð hvort það sé ekki erfitt að vinna með svo fötluð- um einstaklingum svarar hún því neitandi. „Þeh era oftast ákaflega glaðh að loknu verki og finnst þeh hafa verið að afreka eitthvað - sem þeh hafa vissulega verið að gera.“ -sús Gísli vinnur eftir fyrirmyndum og byrjar á því að teikna mótívið með blýanti. Svipuhögg í stað punktakerfis - hert viðurlög við umferðarlagabrotum í Sádi-Arabíu Ráðuneyti umferðarmála í Jeddah í Sádi-Arabíu hefur hafið herferð gegn auknum fjölda um- ferðaróhappa með því að herða viðurlög. Þar 1 landi hefur það lengi tíðkast að láta akstur krakka eða unglinga óáreittan og ekki var óalgeng sjón að sjá jafn- vel tólf ára gutta skutlast með móður sína í aftursætinu. Umferðarlögreglan í Riyadh hóf herferðina með því aö stöðva öku- menn af handahófi til að fullvissa sig um að þeir hefðu tilskilin vega- og ökuréttindi. Þar sem akstur gegn rauðu ljósi er aðalá- stæða dauðaslysa þar í landi hef- ur ráðuneytið ákveðið 900 sádiar- abiskra ríala sekt (18.000 kr.) fyr- h þannig brot, auk 3 daga i fang- elsi. Sama refsing er fyrir akstur á móti umferð og of hraðan akst- ur. Ógætilegur og hættulegur akst- ur, eins og sú list þeirra Sádi- Araba að taka handbremsubeygj- ur fyrir horn og í gegnum U- beygjur, felur einnig í sér sekt. Þess háttar ökumenn fá hámarks- refsingu, 1.500 SAR, auk 20 daga fangelsis og 20 svipuhögga. Samkvæmt frétt dagblaðsins Al-Madinah verða farþegar í fylgd þessara ökumanna einnig sektað- h um 1.500 SAR og fá einnig 20 svipuhögg. Þrátt fyrir þetta lét yf- irmaður lögreglunnar í Baba hafa það eftir sér að slysum hefði fækkað i umdæmi hans og sagði hann það vera vegna aukinnar vitundar Sádi-Araba um hversu hættuleg umferðarmenningin þar í landi er orðin. Hann útskýrði einnig að hlutverk lögreglu- manna myndi beinast meha að því að finna lögbijóta og að fylgst yrði sérstaklega með öryggisbelta- notkun sem verður orðin skylda frá og með fyrsta degi ramadan sem er 9. desember samkvæmt okkar tímatali. -NG "Swa ID f lillill|||!|| m — ’.........4 | iii iii iii in Gatnamót í miðborg Jeddah með mosku í baksýn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.