Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1999, Page 26
LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1999
26 Hkadan ertu?
** - -------
Þarna var t.d. vetrarbeit stunduð
og ástæðan fyrir því kannski
hversu snjólétt er þarna og hægt
að beita fé úti stóran hluta vetrar-
ins. Þannig að maður var svona
dálítið í gamla tímanum og fór
ekki í bíó fyrr en svona 10-11 ára
gamall. Það eru breyttir timar.“
Ævar Kjartansson útvarpsmaður ólst upp á Grímsstöðum á Fjöllum:
Man tímana tvenna
- fyrir og eftir rafmagn
- fór ekki í bíó fyrr en 11 ára
Uppá-
haldsmat-
ur: M.a.
pitsa og
ýmis jólamatur eins og hangi-
kjöt og hamborgarhryggur.
Uppáhaldsdrykkur: Kók ...
Fallegasta manneskja fyrir
utan maka: Eldri systirin í
10 Things I Hate About You.
Fallegasta röddin: Koníaks-
röddin hans Björgvins Hall-
dórssonar og Megasar.
Uppáhaldslíkamshluti:
Krumlumar!
Hlynnt(ur) eða andvíg(ur)
ríkisstjórninni: Hlutlaus.
Með hvaða teiknimynda-
persónu myndir þú vilja
eyða nótt: Marge Simpson!
Uppáhaldsleikari: Keanu
Reeves, Harrison Ford og
Brendan Fraser.
Uppáhaldstónlistarmaður:
Fatboy Slim og auðvitað fullt
af hljómsveitum.
Sætasti stjórnmálamaður-
inn: Jóhanna Sigurð-
ardóttir...
Uppá-
haldssjón-
varpsþáttur:
Friends.
Leiðinlegasta auglýsingin: |
Bónus-auglýsingamar.
Leiðinlegasta kvikmyndin: j
Star Trek-myndimar og alltj
sem þeim tengist.
Sætasti sjónvarpsmaður-j
inn: Elín Hirst.
Uppáhaldsskemmtistaður:
Félagsmiðstöðin Miðberg.
Besta „pikk-öpp“ línan: No
comment.
Hvað ætlar þú að verða
þegar þú ert orðin(n) stór:
Ritstjóri á stærsta tímariti
landsins og búa úti í New
York í einhverri glæsivillu.
Eitthvað að lokum: Minn
tími mun koma!
Ævar Kjartansson útvarpsmaður fluttist úr sveitinni til Akureyrar og þaðan til Brasilíu sem skiptinemi.
DV-mynd Hilmar Þór
Vildi sjá meira en göturnar
á Akureyri
Og svo ferðu að Laugum?
„Já, ég fór í héraðsskólann á
Laugum í Reykjadal i Suður-Þing-
eyjarsýslu. Þar var ég í gagnfræða-
skóla í tvo vetur og tók landspróf
og siðan lá leiðin til Akureyrar, í
Menntaskólann þar.“
Þá er kannski við hæfi að spyrja
sömu spumingar og Áslaug Dóra
var spurð í síðustu viku: Em
menntaskólaárin bestu ár ævinn-
ar?
„Nei, langt því frá. Þetta er erf-
iður aldur þessi menntaskólaár.
Reyndar var þetta svolítið gaman
því menn eru að springa út, menn
og konur, og það er mikið nýja-
brum á heiminum og margt spenn-
andi. Mér fannst þessi tími dálítið
Ingiberg,
ritstjóri tónlistarblaðsins Sánd
Ingiberg er ritstjóri tónlist-
arblaðsins Sánd sem komið
hefur tvisvar út. Ritstjómar-
mennimir em allir ungir að
árum þannig að framtakið
þykir mjög markvert. Næsta
tölublað kemur út í nóvem-
ber og er dreift ókeypis út um
allt.
Fullt nafn: Ingiberg Þór Þor-
steinsson.
Fæðingardagur og ár: 9.
nóvember 1985.
Maki: Enginn.
Böm: Engin.
Skemmtilegast: Gefa út
Sánd, spila á pianó, hlusta á
tónlist og stúdera hana og
gera eitthvað skemmtilegt
með vinunum.
Leiðinlegast: Að sitja á rass-
inum inni og bora í nefið
Ævar Kjartansson er líklega
flestum islendingum að góðu
kunnur. Hann er einn af þeim sem
hafa verið eins og heimilisgestur
hjá mörgum í gegnum árin. Djúp
og hljómþýð rödd hans hefur yljað
mörgum um hjartarætumar án
þess þó að menn viti endilega hver
þessi maður er og hvaðan. Ævar
var fáanlegur í smáspjall og segir
hér útvarpshlustendum frá upp-
vexti sínum á Fjöllum og því sem
við tók.
Alinn upp
á Gríms-stöðum
„Ég er frá Grímsstöðum á Fjöll-
um en þangað flutti ég þriggja vikna
gamall og var tekinn í fóstur af
móðursystur minni, Kristínu Axels-
dóttur organista, og manni hennar,
Benedikt Sigurðssyni bónda. Ég ólst
upp hjá þeim alveg fram á unglings-
ár þegar ég fór að fara í heimavist-
arskóla á Laugum í Reykjadal og
síðan Menntaskólann á Akureyri.
Þetta var svona hefðbundin leið
sveitamanna fyrir norðan."
Barðist við snjóskaflana
með sverði
Hvernig var svo bamæskan á
Fjöllum?
„í minni minningu er afskap-
lega bjart yfir barnæskunni. Ég er
oft spurður hvort þetta hafi ekki
verið einangrað og maður fúndið
til einhvers einmanaleika en ég
get nú ekki sagt það. Grímsstaðir
eru eins og menn vita við Þjóð-
Herðubreið.
braut, eða voru því það er búið að
leggja veginn fram hjá núna.
Þannig að manni fannst maður
vera í miðri traffikinni yfir sum-
armánuðina en á veturna var allt
auðvitað fámennara. En maður
lærði að leika sér dálítið einn og
berjast við snjóskaflana með
sverði og þar fram eftir götunum."
Kynntist sauðfjárbúskap
eins og hann hafði verið
stundaður öldum saman
Var búskapur á bænum?
„Já, þarna var fjárbúskapur
þannig að maður ólst upp við öll
svona hefðbundin sveitastörf í
kringum sauðfé. Reyndar voru
þarna líka kýr til heimilisfram-
leiðslu á mjólk. Ég er það gamall
að mér finnst ég muna tímana
tvenna þar sem ég man þá tíð þeg-
ar ekki var rafmagn og í rauninni
var viðkvæðið að vera sjálfum sér
nægur.
Þá er kannski að spyrja hvenær
Ævar er fæddur?
„Ég er fæddur árið 1950 þannig
að það er ekki fyrr en ég er 6-7 ára
sem rafmagn var lagt og maður
kynntist þeim nútímahátfúm. í
bamæsku kynntist ég því svona
sauðfjárbúskap eins og hann hafði
verið stundaður áratugum og jafii-
vel öldum saman að stórum hluta.
erfiður. Það var nú reyndar dálít-
ið erfitt ástandið á Menntaskólan-
um á Akureyri á þessum tíma.
Hann var staðnaður og þreyttur og
ýmsir nýir straumar í loftinu. Þar
má nefha ‘68 hugmyndir manna
um breytingar. Það var einhver
óþolinmæði í sveitamanninum. Ég
var svo óþolinmóður eftir því að
sjá eitthvað meira heldur en göt-
urnar á Akureyri þannig að ég
skellti mér á miðjum menntaskóla-
tímanum sem skiptinemi til
Brasilíu. Það svona sló á útþrána
og ævintýralöngunina i bili að
komast til útlanda. Fyrsta skipti
sem ég fór til útlanda var sem
sagt til Brasilíu. i
Gifti sig í menntaskóla
Þetta hefur verið nokkurt stökk
úr sveitinni til Akureyrar og svo til
Brasilíu.
„Jú, þetta var nokkuð stórt stökk
fyrir sveitamanninn.“
Svo lýkurðu stúdentsprófi og ferð
svo bara beint í bæinn, eða hvað?
„Ja, nokkum veginn. Ég gifti mig
reyndar þegar ég var í sjötta bekk.
Við nýgiftu hjónin vorum svo eitt ár
eftir útskrift í Neskaupstað að
vinna. Eftir það fór maður að vinna
hjá Útvarpinu og I Háskólann og
þar fram eftir götunum. Nú fyrir
utan einhverja dvöl í Ítalíu og
Frakklandi hef ég búið hér í Reykja-
vík síðan."
Hefðbundin leið sveitamannsins
á þessum tíma á mölina?
„Já, eigum við ekki að segja það.“
-hdm
^VIývatn
Grímstaðir á fjöllum