Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1999, Síða 28
28
LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1999 DV
%ikhús
Er ástín að knýja dyra?
- Frankie og Johnny, eftir verðiaunahöfundinn Terrence McNally, frumsýnt í Iðnó
Frankie: Guð minn góður, af hverju erum við að hleypa fólki inn í líf okkar sem svo hatar okkur þegar allt kemur til
alls. Johnny: af því að við... Frankie: ...hötum okkur sjálf.
Ertu tilbúinn til að hleypa ástinni
inn þegar hún knýr dyra?
Þessu verða þau að svara,
Frankie og Johnny, á fyrstu frum-
sýningu leikársins í Iðnó næstkom-
andi fostudag. Eins og menn eflaúst
muna var gerð vinsæl kvikmynd
eftir leikritinu Frankie og Johnny
árið 1992, með þeim A1 Pacino og
MicheOe Pfeiffer í aðalhlutverkum,
en í sviðsuppfærslunni í Iðnó eru
það þau Kjartan Guðjónsson og
Halldóra Bjömsdóttir sem leika
þetta ólíklega par sem hittist þegar
Johnny hefur störf á veitingahúsi
þar sem Frankie er gengObeina.
Þau Frankie og Johnny hafa
kannski ekki of margar ástæöur tO
að ætla að ástarguðinn sýni J>eim
miskunn sína, því fortíð beggja er
óttalegt klúður, sem hægt og bítandi
leiðir tO vonleysis og tOgangsleysis.
Upp úr þessari fortíð verða þau
Frankie og Johnny að krafla sig, áð-
ur en þau geta metið hvort ástin
hefur knúið dyra.
Fmmsýningin verður 8. október,
leikstjóri er Viðar Eggertsson. Þýð-
andi er Kristján Þórður Hrafnsson,
Jómnn Ragnarsdóttir hannar leik-
mynd og búninga og lýsing er í
höndum Kjartans Þórissonar.
Johnny: Það er ekki hægt að grípa of fast um það sem mann langar að fá.
Frankie: Jú, Johnny. Ef það er önnur manneskja.
Johnny: Þú vilt ekki heyra neítt nema það sem þú telur þig vita nú þegar. Ég skal segja þér dálítið, öskubuska, prins-
inn er kominn. Vaknaðu áður en önnur þúsund ár líða hjá... Veldu mig. Flýttu þér. Það er farið að birta úti.
Frankie: Eg er langt frá því flókin manneskja og stjórnast af frekar svona
hversdagsiegum hlutum í lífinu.
Johnny: Eg er þreyttur á að vera alltaf að skima f kringum mig þegar allt sem
mig langar í er hér.
Johnny: Ég kem auga á eitthvað sem mig langar í og ég sætti mig ekki við
neitun. Ég gerði það hér áður fyrr en ég geri það ekki lengur.
Frankie: Að hieypa einhverjum upp í rúm til sín skiptir engu í samanburði við
það að hleypa einhverjum inn í líf sitt.