Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1999, Qupperneq 61

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1999, Qupperneq 61
X>”V LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1999 \gsonn 73 - 4W pi’' Alain Lefévre leikur í Salnum í Kópavogi annað kvöld. Píanósnillingur leikur Liszt Sunnudaginn 3. október næst- komandi verða aðrir tónleikar í Röð 1 í Salnum í Kópavogi og hefj- ast þeir kl. 20.30. Kanadíski píanó- leikarinn Alain Lefévre leikur glæsilega efnisskrá en hann hefur þrátt fyrir ungan aldur vakið heimsathygli fyrir leik sinn, hlot- ið einróma lof og fjölda viður- kenninga. Alain Lefévre er fæddur í Frakklandi en fluttist ungur að árum til Kanada. Snemma öðlað- ist hann frægð og frama er hann vann alls níu sinnum til fyrstu verðlauna i Kanadísku tónlistar- _, : “ keppninni. Of Tonleíkar langt mál yrði --------------að segja frá öllum þeim viðurkenningum og verðlaunum sem Alain Lefévre hefur hlotið. Á síðasta ári hélt hann tónleika í Megaron í Aþenu þar sem honum var fagnað af meira en eitt þúsund áheyrend- um. Alain Lefévre hefur gefið út margar hljómplötur og Fandango var valin besta klassíska plata ársins 1997 af I¥ADISQ. Á tónleikunum flytur Alain Lefévre Prelúdíu og Fúgu no. 1 í a-moll eftir Bach-Liszt, Tilbrigði Liszts um bassastef úr kantötu Bachs: Weinen, Klagen, Sorgen, Zagen, Mephisto-valsinn og Funérailles eftir Lizt og eftir Wagner-Lizt, Isoldeís Liebestod úr Tristan og Isolde, Resitatív og Söngurinn um Kvöldstjörnuna úr Tannháuser. Gullregn, elri, sígræn tré í haust hafa Skógræktarfélag ís- lands, Garðyrkjufélag íslands og Ferðafélag íslands staðið fyrir göngum til kynningar á áhuga- verðum trjátegundum á höfuðborg- arsvæðinu. í göngunum eru teknar fyrir ákveðnar trjátegundir, reynt að hafa uppi á þeim trjám sem hafa verið mæld og kannað hvem- ig þeim hefur reitt af. Einnig er fjallað um hagnýt atriði við rækt- un viðkomandi trjátegunda. í dag verður síðasta haustgangan og verður skoðað gullregn, elri og sí- græn tré. Gangan hefst klukkan 10 við stóra hlyntréð á horni Vonar- strætis og Suðurgötu og tekur um tvo tíma. Allt áhugafólk um rækt- un er hvatt til þess að mæta. Þeir sem hafa tekið þátt í öllum göngun- um geta átt von á óvæntum glaðn- ingi í lokin. Útivera Ljósmyndasýning Sýning á ljósmyndaverkum stendur nú yfir í nýjum sal félags- ins íslensk grafík að Tryggvagötu 17 (hafnarmegin). Þetta er önnur sýningin í sýningarsalnum, sú fyrsta var á grafíkverkum Braga Ásgeirssonar. Salnum er ætlað að vera vettvangur fyrir verk unnin ______________á pappír; graf- Svnin^ar ík’ teiknmgar Oyillllgdl og ljósmyndir, svo eitthvað sé nefnt. Þau sem sýna eru Einar Falur Ingólfsson, Guðmundur Ing- ólfsson, ívar Brynjólfsson, Spessi og Þorbjörg Þorvaldsdóttir og öll sýna þau ljósmyndir. Verkin hafa ekki verið sýnd áður í Reykjavík. Sýnlngin stendur til 10. október. Aðgangur er ókeypis. Rigning víðast hvar Skýjað að mestu en úrkomulítið á Suðurlandi en rigning víðast hvar um landið norðan og austanvert. Hiti 4 til 10 stig. Á morgun verður Veðríð í dag norðanátt 13-18 m/s. Rigning norð- austantil, skýjað með köflum sunn- antil og allra vestast en annars skúrir. Slydduél norðantil síðdegis. Hiti 0-8 stig, svalast norðantil. Höf- uðborgarsvæðið: Norðlæg átt, víða 10-15 m/s en heldur hægari á morg- un. Skýjað með köflum. Hiti 5 til 9 stig fram á nótt en 3 til 7 á morgun. Sólarlag í Reykjavík: 18.55 Sólarupprás á morgun: 07.41 Síðdegisflóð í Reykjavík: 24.22 Árdegisflóð á morgvm: 00.22 Veðrið kl. 12 á hádegi í gær: Akureyri Bergstaðir Bolungarvík Egilsstaóir Kirkjubœjarkl. Keflavíkurflv. Raufarhöfn Reykjavík Stórhöfói Bergen Helsinki Kaupmhöfn Ósló Stokkhólmur Þórshöfn Þrándheimur Algarve Amsterdam Barcelona Berlín Chicago Dublin Halifax Frankfurt Hamborg Jan Mayen London Lúxemborg Mallorca Montreal Narssarssuaq New York Orlando París Róm Vín rigning 7 úrkoma í grennd 7 rigning 5 8 alskýjaö 8 skýjaö 9 rigning 7 skýjaö 9 skúr á síö. kls. 8 rigning 9 skúr 15 skúr 13 rign. á síð. kls. 11 15 hálfskýjaö 9 skýjað 15 heiðskírt 24 skýjaó 15 léttskýjaö 23 skúr á síð. kls. 16 léttskýjaö 6 rigning 10 skúr 14 skýjað 16 skúr á síð. kls. 14 skýjað 5 úrkoma í grennd 16 skýjaö 13 skýjaó 27 léttskýjaö 11 heiöskírt 0 léttskýjaö 13 skýjaö 24 skýjaó 17 léttskýjaö 26 hálfskýjaö 20 Hallgrímskirkja: Sálmar lífsins Sigurður Flosason saxófónleik- ari og Gunnar Gunnarsson org- anisti fluttu eftirminnilega tón- leika í Hallgrímskirkju á Jazzhá- tíð Reykjavíkur þar sem þeir fluttu sálmalög í eigin útsetning- um. Tónleikana nefndu þeir Sálma lífsins og var nærri húsfyllir. Vegna fjölda áskorana ætla þeir fé- lagar að endurtaka tónleikana á ■ Sigurður Flosason og Gunnar Gunnarsson flytja sálmalög í Hallgríms- kirkju. morgun kl. 17. Sigurður og Gunn- ar flytja tólf sálmalög, flest úr sálmabók ís- —-----------— íensku þjóð Skemmtamr kirkjunnar. --------------- í útsetningum þeirra á sálmunum er mikil áhersla lögð á spuna. Undirtitill dagskrárinnar er Frá vöggu til grafar og endurspeglar sálmavalið helstu viðburði mannsævinnar og stórhátíðir kirkjunnar. Nokkrir sálmanna eru lítið þekktir, en flestir eru meðal hinna mest sungnu. Elsta lagið er frá fimmtándu öld en þau yngstu samin af Þorkeli Sigurbjörnssyni á liðnum áratugum. Gunnar leik- ur á Klais-orgel Hallgrímskirkju en Sigurður á sópran-, altó-, tenór- og barítonsaxófóna. Blómaball Hljómsveitin Á móti sól leikur á blómaballi í Ingólfskaffi-Ölfushöll- inni í kvöld. Dómnefnd gengur um sali hússins, kikir á sætu stelpum- ar og velur síðan með hjálp áhorf- enda þá sætustu. Sú fær að laun- um 50.000 króna inneign á debet- korti frá Viðskiptanetinu og að sjálfsögðu veglegan blómvönd. Leikhópurinn í Töfratívolíinu. Töfratívolí í Tjarnarbíói standa yfír sýn- ingar á bama- og fjölskylduleik- ritinu Töfratívolí og eru næstu sýningar í dag og á morgun kl. 14. í leikritinu segir frændi Teddu og krökkunum söguna af Töfratívolí- inu og svörtu perlufestinni. Fyrir langa löngu var Kiddi kúreki dæmdur fyrir að stela svörtu perlufestinni hennar fröken Melónu. Kiddi kúreki var einn af starfsmönnum Töfratívolísins, sem birtist einu sinni á öld. í Töfratívolíinu eru margir kynleg- ir kvistir, Brúnhildur og Lufsa era systur sem aldrei eru sam- mála. Halli hestamaður eigandi hringekjunnar og hesturinn hans Sörli birtast en þeir eru orðnir gamlir og lún-_______________ ir. Jói byssa | oilíhHC er skotskífu- i-Cimiua stjóri. Spá- maður og Doktor Önd eru i tívolí- inu en þar eru einnig Bói og Bóbó lífverðir hins ógurlega Prófessors Vaxmanns og Tedda, ung stúlka sem er á réttum stað á réttum tíma þegar Töfratívolíið byrtist. Áhorfendur eru virkir þátttak- endur í sögunni. Þeir þurfa til dæmis að passa perlurnar svo Prófessor Vaxmann finni þær ekki aftur. Áhorfendur hjálpa lika Teddu og Þorra að leika á Prófess- or Vaxmann. Leikarar eru Aino Freyja, Stefán Sturla, Skúli Gauta, Brynhildur Bjömsdóttir, Níels Ragnarsson og Gunnar Sig- urðsson sem einnig er leikstóri sýningarinnar. MS 30 ára Menntaskólinn við Sund (áður Menntaskólinn við Tjömina) varð 30 ára í gær. Að því tilefni verð- ur afmælishátíð í skólanum frá kl. 11-14 í dag.-jj-;;----- Bjöm Bjama- Samkomur son mennta----------------- málaráðherra flytur ávarp. Sýnt verður brot úr nýjustu mynd Friðriks Þórs Friðrikssonar Englum alheimsins, eftir sam- nefndri sögu Einars Más Guð- mundssonar, söngur o.fl. Karlar selja kaffi Kristniboðsfélag karla í Reykja- vík heldur árlega kaffisölu sina á morgun í Kristniboðssalnum, Háaleitisbraut 58. Hefst hún kl. 14.30 og lýkur kl. 18. Allur ágóði af sölunni rennur til Kristniboðs- sambandsins. Fálaga kennara á eftirlaunum Skemmti- og fræðslufundur verður í dag kl. 14 i kennarahús- inu við Laufásveg. Á dagskrá er félagsvist og söngur og Torfí Guð- brandsson, fyrrv. skólastjóri, flyt- ur erindi sem hann kallar Skóla- hald við íshafið. Gengið Almennt gengi LÍ 01 10. 1999 kl. 9.15 Eininq Kaup Sala Tollgenqi Dollar 72,290 72,650 72,410 Pund 116,520 117,110 119,320 Kan. dollar 48,600 48,900 49,450 Dönsk kr. 10,3340 10,3910 10,2100 Norsk kr 9,3400 9,3910 9,2890 Sænsk kr. 8,9210 8,9700 8,7990 Fi. mark 12,9244 13,0021 12,7663 Fra. franki 11,7149 11,7853 11,5716 Belg. franki 1,9049 1,9164 1,8816 Sviss. franki 48,0600 48,3300 47,3400 Holl. gyllini 34,8707 35,0802 34,4441 Þýskt mark 39,2902 39,5263 38,8096 ÍL lira 0,039690 0,03993 0,039200 Aust. sch. 5,5845 5,6181 5,5163 Port. escudo 0,3833 0,3856 0,3786 Spá. peseti 0,4618 0,4646 0,4562 Jap. yen 0,650900 0,65480 0,681600 irsktpund 97,572 98,159 96,379 SDR 99,030000 99,63000 99,940000 ECU 75,9000 Símsvari vegna gengisskráningar 5623270
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.