Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1999, Síða 62
j, 7, myndbönd
★ ★
LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1999
>
K v i k m
Welcome to the Dollhouse
Óhamingja
★★★ Líflð er ekki auðvelt hjá stúlkunni Dawn Wi-
ener (Heather Matarazzo). Hún er heldur ófríð og
klæðnaður hennar er vægast sagt skelfllegur. Hún er
nýbyijuð í gaggó og þar er niðst á henni miskunnar-
laust. Eldri bróðir hennar er leiðinlegm- lærdómshest-
ur en litla systirin óþolandi uppáhald foreldra sinna
sem eru engu skárri. Er þetta eitthvert líf?
Leikstjórinn Todd Solondz átti eina albestu mynd
nýliðinnar kvikmyndahátíðar. Þótt Welcome to the
Dollhouse gangi hvergi nærri jafntlangt og Happiness
umlykja hana sömu gnmdvallaráherslur. Bandaríska
millistéttin er tekin fyrir af áður óþekktu miskunnar-
leysi og sýnd i sinni hryllilegustu mynd. Áhorfendur
vita hreinlega ekki hvort þeir eiga að hlæja eða gráta yfir ósköpunum á
skjánum. Svo segir mér hugur að Solondz eigi eftir að verða lykilhöfundur í
bandarískri kvikmyndagerð innan tíðar eða kannski hann sé orðinn það nú
þegar. Welcome to the Dollhouse hlotnaðist fjöldi verðlauna og átti Heather
Matarazzo sín svo sannarlega skilin. Hún leikur Dawn af mikilli sannfær-
ingu og leggur grunn að góðri mynd.
Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: Todd Solondz. Aðalhlutverk: Heather
Matarazzo, Matthew Faber, Daria Kalinina, Brendan Sexton og Eric Mabi-
us. Bandarísk, 1995. Lengd: 89 mín. Bönnuð innan 12. -BÆN
Cube
Hetjur og
★★Á Mikið af þeim vísindaskáldskap sem sést á
hvíta tjaldinu er enn fastur í tjötrum uppruna síns, lé-
legu bílabíósmyndunum frá sjötta áratugnum. Megnið
af þessu er ódýrt rusl og ekkert sérstaklega vel gert eða
áhugavert. Vísindaskáldskapur getur hins vegar verið
skemmtilegur ef vel er með farið og ég hef alltaf gam-
an af því þegar ein og ein mynd rís upp yflr meðal-
mennskuna, eins og Cube gerir þótt hún fari ekki eins
hátt og sumar aðrar.
Cube hefur nokkra af göllum B-myndanna. Leikar-
amir eru fremur slappir og hugmyndafræðin á bak við
söguna er afar ósannfærandi, eiginlega fremur bjána-
leg. Hún bætir það hins vegar upp með ákveðnum
ferskleika og þori. Sögusviðið er frumlegt, eins konar þrívíddarvölundarhús
með teningslaga herbergjum og lífshættulegum gildrum hér og þar. Nokkrar
persónur vakna inni í því, grunlausar um hvers vegna þær séu þama og þurfa
að sameina krafta sína til að komast út. Hugmyndin er soldið sniðug og ágæt-
lega unnið úr henni og persónumar em skemmtilega uppbyggðar. Hlutverk-
in em vel skrifuð og sveiflast frá hetju td skúrks og öfugt. Spennan í handrit-
inu byggist einmitt mikið á þessari tvíræðni.
Útgefandi Stjörnubíó. Leikstjóri Vincenzo Natali. Aðalhlutverk: Nicole de
Boer, Andrew Miller, Nicky Guadagni, David Hewlett og Maurice Dean
Wint. Kanadísk, 1997. Lengd 90 mín. Bönnuð innan 16 ára. -FJ
skúrkar
Ravenous
Mannætutryllir
★★★ Antonia Bird varð fræg fyrir mynd sína, Priest,
en hún hefur auga fyrir fleiru en dramatískri samfé-
lagsrýni eins og hún sýndi síðan með hinni ofbeldis-
fullu og miskimnarlausu Face. Hér kemur hún með
léttlyndan spennuhroll.
Myndin segir frá hermanni sem sendur er í fjarlægt
virki vestan við Siema Nevada-fjöllin þar sem hann
kemst í kynni við mannætur. Guy Pearce leikur her-
manninn ágætlega en er leiðinlegasta persóna myndar-
innar. Hann er samviskan í myndinni og þarf því að
vera alvarlegur og ábúðarmikill meðan hinir leikar-
amir mega leika sér. Þar fer fremstur í flokki Rohert
Carlyle sem leikur sturlaðan ferðalang af miklum
krafti.
Ravenous fetar einstigið milli klassísks, gamaldags bókmenntahryllings og
svartrar kómedíu af mikiili list. Sagan er auðvitað út í hött en leikstjórinn
nær nokkrum spennandi augnablikum og leikaramir gæða persónurnar lífi
þannig að i heildina er myndin vel í skárri kantinum sem afþreying. Pæling-
ar myndarinnar um dekkri hliðar mannssálarinnar eiga hins vegar lítið er-
indi í nútíma kvikmyndagerð.
Útgefandi Skífan. Leikstjóri Antonia Bird. Aðalhlutverk: Guy Pearce og
Robert Carlyle. Bandarísk, 1998. Lengd 97 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ
Celebríty
Stjörnustælar
★★Á Blaðamaðurinn Lee Simon (Kenneth
Branagh) er orðinn langþreyttur á taugaveikl-
aðri eiginkonu sinni, Robin (Judy Davis). Hann
segir skilið við hana og reynir að öðlast lífsfyll-
ingu innan um fræga fólkið. Lee liunar einnig á
kvikmyndahandriti sem hann grátbiður stjörn-
urnar um að koma á hvíta tjaldið. Þótt það
gangi skrautlega fyrir sig jafnast það vart á við
kynni hans af kvenkyninu. Robin, sem er í
fyrstu miður sín eftir skilnaðinn, tekur aftur á
móti stakkaskiptum eftir óvænt kynni á lýtaað-
gerðastofu.
Woody Allen er afkastamikill sem endranær
þótt hann taki sér frí frá leiknum í þetta skiptið. Það er Branagh
sem fær hlutverk hinnar dæmigerðu Allen persónu og er honum
reyndar nokkur vorkunn því oft er sem hann sé að leika „Allen“. Að
vanda koma fjölmargar aðrar stjörnur við sögu en hlutverkin eru
þess eðlis að ímyndir þeirra skipta meiru en leikhæfileikamir. Oft
er myndin skemmtilega sjálfshæðin þótt ekki risti háðið djúpt. Þá
saknaði ég Allens, hann er svo mikill sjarmör.
Útgefandi Myndform. Leikstjóri Woody Allen. Aðalhlutverk: Kenneth
Branagh, Judy Davis, Winona Ryder, Melanie Griffith og Leonardo
DiCaprio. Bandarísk, 1998. Lengd 116 mín. Bönnuð innan 12. -BÆN
Kvikmyndahátíð á
myndbandaleigunum
- þriðji hluti
Ég er nú búinn að fjalla
nokkuð rækilega um ýmsar
athyglisverðar kvikmynda-
hátíðarmyndir sem gefnar
hafa verið út á myndbandi
síðustu árin. Öðra hvora
gefa íslenskir myndbanda-
útgefendur út litla gullmola
sem ekki hafa komið í bíó
og mun ég nú benda á
nokkra slíka.
Ræningjadrottning
Myndir sem gerðar era í
enskumælandi löndum
(Bandaríkin, Bretland, ír-
land, Ástralía, Kanada) eiga
ágæta markaðssetningar-
möguleika en myndir frá
öðram löndum eiga erfiðara
uppdráttar. Leið slíkra á
myndbandamarkaðinn hér
liggur í flestum tilvikum í
gegnum kvikmyndahátíð-
amar, þ.e. þær fáu sem á
þær komast. Ég man þó eft-
ir einni góðri sem fór beint
á leigumar en það var at-
hyglisverð, sannsöguleg,
indversk mynd um konu
sem gerðist leiðtogi ræn-
Citizen Ruth. Laura Dern í titilhlutverkinu.
stríðandi fylkinga þegar hún
verður ófrísk.
Fresh er sláandi mynd þar
sem aðalsöguhetjan er níu
ára gutti úr fátækrahverfi
sem sendist með eiturlyf fyrir
smákónga hverflsins. Þegar
hann fær nóg einn daginn set-
ur hann af stað áætlun þar
sem hann etur flkniefnabar-
ónum hverfísins hverjum
gegn öðrum og sigrast á þeim
með kaldri herkænsku sem
hann lærir við skákborðið.
Myndin er í senn niðurdrep-
andi volæðisdrama og upp-
örvandi hetjusaga, líður seint
úr minni.
Rauðhetta og úlfur-
inn
Að lokum ætla ég að nefna
eina af mínum uppáhalds-
myndum, Freeway, þar sem
ævintýrið um Rauðhettu er
fært á einkar hugmyndarík-
an hátt á þjóðvegi Bandaríkj-
anna. Kynferðislegu tilvísan-
irnar í ævintýrinu era færð-
ar upp á yfirborðið en í þetta
skiptið er Rauðhetta ekki
eins mikið fómarlamb og í ævin-
týrinu. Hún er tímanna tákn, ung-
lingsstúlka, sem þrátt fyrir ákveð-
ið sakleysi er sjálfstæð og lætur
ekki vaða yflr sig. Reese Wither-
spoon og Kiefer Sutherland era
mjög eftirminnileg í hlutverkum
Rauðhettu og úlfsins.
í þessum greinum hef ég ein-
göngu fjallað um þær myndir sem
íslenskir myndbandaútgefendur
hafa gefið út síðustu árin en úrval-
ið og fjölbreytnin í útgáfunni hafa
aukist mjög mikið. Það er þó til
hellingur af frábæram myndum
sem aðeins er hægt að nálgast
ótextaðar í betri leigum bæjarins
og væri alltof langt mál að fara yflr
það en leigur eins og Aðalvídeó-
leigan, Laugarásvídeó, Vídeóhöllin
og eflaust einhverjar fleiri hafa séð
sóma sinn í að bjóða upp á gott úr-
val jaðarmynda.
Funny Bones 1995. Oliver Platt í hlutverki skemmti-
kraftsins.
-PJ
ingjaflokks. Myndin heitir Bandit
Queen og hefur ýmislegt að segja
um stöðu kvenna í stærsta lýðræð-
isríki heimsins.
Ef við færum okkur þá til Bret-
lands vil ég neflia tvær mjög ólíkar
myndir, Funny Bones og Nil By
Mouth. Funny Bones er skemmti-
lega undarleg kómedía með Oliver
Platt í aðalhlutverki. Margir góðir
grinleikarar eru í henni en Lee
Evans (The Fifth Element, Mouse
Hunt) fer á kostum með trúðagríni
sinu. Nil By Mouth er hins vegar
hrottalega átakanleg mynd um alkó-
hólisma, eiturlyf, atvinnuleysi og
heimilisofbeldi en hún er fyrsta
leikstjórnarverkefni stórleikarans
Garys Oldmans.
Vestur um haf
Föram þá vestur um haf og kíkj-
um þar fyrst á Affliction, öflugt
drama byggt á bók eftir Russel
Banks sem einnig skrifaði bókina
sem The Sweet Hereafter var gerð
eftir. Nick Nolte og James Cobum
eru frábærir í helstu hlutverkunum
en myndin fékk litla athygli hér-
lendis þangað til Cobum fékk öllum
að óvöram óskarsverðlaun fyrir
hlutverk sitt.
Citizen Ruth er skemmtilega ófyr-
irleitin mynd sem fjallar á hæðnis-
legan hátt um hræsnina í kringum
deilur fylgjenda og andstæðinga
fóstureyðinga í Bandaríkjunum.
Laura Dem fer á kostum í hlutverki
óábyrgs sniffara sem verður bitbein
Myndbandalisti vikunnar
SÆTI FYRRI VIXA VIKUR Á LISTA TITILL ÚT6EF. TEG.
1 í 1 2 Payback WnerMjndr Spenna
2 2 3 PatchAdams CIC Myndbönd Caman
3 NÝ 1 She's all that Skifan Gaman
4 13 2 Festen Háskóbbw Drama
5 4 3 Facolty Myndfoim Spenna
6 NÝ 1 LoUta SAMMyndbönd Drama
7 3 4 Comiptcr Myndform Spenna
8 7 8 Blast Frotn Tbe Past Myndfonn
9 6 6 BasketbaH CfC Myndböod Gaman
10 5 6 You've Got Mail WafnerMyndr Drama
11 NÝ I 1 1 Onetough cop Myndform Spemta
12 8 7 Night At The Roxbuiy dCMyndböod Gaman
13 10 1 6 Thin Red Line Skífan Draraa
14 9 3 Rushmore SAM Myndbönd Gaman
15 15 2 Utlevoice Skrfan Gaman
16 14 5 1 still know what you did... Skffan Spemu
17 11 3 1 Freemoney Myndform Gaman
18 Al 4 i Pemanent midnight SAMMyndbönd Drama
19 S NÝ 1 Eaithly possession Beffvðt Dranu
20 17 3 How Stella got her groove back Skífan Gaman