Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1999, Síða 64
76
LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1999 1-lV
Qárikmyndir
>
—
AHORFENDUR
áhorfendur I
Happiness
ÍblÍrfUr&Jfe
Sýndkl. 9og11. Sýndkl. 3og5. Sýnd6.30.9og11.30.
ALVÖRU BÍÚ! mpolby
STAFRÆNT ■"«»»»
HLJOÐKERFI í UJ V
ÖLLUM SÖLUM! -uU-Ll
TAKTl/ ÞATT
GUNUM
OG ÞU KSMST
SANNtÆtKAmjM
THE GENERAL’S
&AUGHTER
DÓTTIR FORINQJANS
EMENDUR
lENNARAN
Tomners
BIG DADDY
ADAM SANDLER
*
I
John Travolta og Madeline Stowe.
Háskólabíó frumsýndi i gær Dóttur hers-
höfðingjans (General’s Daughter), nýja spennu-
mynd sem gerist aö mestu leyti innan her-
stöðvar þar sem önnur lögmál gilda en fyrir
utan girðinguna. John Travolta leikur foringja
í lögregluliði hersins, Paul Brenner, sem feng-
inn er til að rannsaka morðmál en dóttir hers-
höfðingja eins, sem sjálf var yfirmaður i hern-
um, hefur verið myrt. Þótt Brenner hafl völd
til að handtaka hvem sem er innan herstöðv-
arinnar, allt frá hershöfðingjum niður í
óbreytta, rekur hann sig fljótt á vegg þegar
hann fer að yfirheyra fóður stúlkunnar, Camp-
bell hershöfðingja (James Cromwell), sem
þekktur er fyrir heiðarleika og hörku og er
einn virtasti hershöfðingi í Bandaríkjaher og
er í slagnum um varaforsetaembætti Banda-
ríkjanna. Þar sem hershöfðinginn og hans nán-
ustu óttast það versta í rannsókn Brenners eru
honum fengnir tveir aöstoðarmenn, Sarah
Sunhill (Madeline Stowe) og Kent höfuðs-
maður (Timothy Hurtton). Saman fara
þau í gegnum líf fómarlambsins og
komast að ýmsu sem ekki þolir
dagsins ljós innan veggja herbúð-
anna og brátt kemur í ljós að
nokkrir hafa haft ástæðu til að
drepa dótturina og meðal grun-
aðra er hershöfðinginn sjálfur
og höfuðsmennimir Fowler (Cl-
arence Williams) og Moore
(James Woods), báðir nánir
samstarfsmenn hershöfðingj-
ans.
Auk upptaldra leikara má
geta þess að leikstjórinn kunni
John Frankenheimer leikur
einn hershöfðingjann. Leik-
stjóri Dóttur hershöfingjans er
Simon West, sem ekki verður
annaö sagt um en að hafi byrjað
feril sinni i Hollywood með
glæsibrag, en hans fyrsta kvik-
mynd var spennumyndin Con
Air með Nicholas Cage í aðal-
hlutverki. West er breskur og
réði sig til BBC árið 1981. Vann
hann sig fljótt upp virðingarstig-
ann og leikstýrði mörgum þekkt-
um sjónvarpsmyndum, bæði leikn-
um og heimildamyndum. Þegar
West hætti hjá BBC fór hann um
stundarsakir i auglýsingabransann
og gerði einni tónlistarmyndbönd
vann til verðlauna fyrir slíkar mynd-
ir. Leið hans lá tll Bandaríkjanna
snemma á tíunda áratugnum og vann
til að byrja með aðallega við gerð aug-
lýsingamynda og varð einn af leik-
stjórunum sem gerði garðinn frægan
hjá Propaganda Films. Pepsi auglýsing sem
hann gerði fyrir úrslitaleikinn í ameríska fót-
boltanum árið 1995 vakti mikla athygli og vann
til margra verðlauna, meðal annars á Kvik-
myndahátíðinni í Cannes. General’s Daughter
er önnur kvikmynd hans i fullri lengd sem
hann gerir.
-HK
Dóttir hershöfingjans:
Hneyksli
Kevin Spacey og Annette Bening í hlutverkum sínum í
American Beauty:
Óskarsverðlauna-
kantídatinn,
American Beauty
Frá því American Beauty var frumsýnd, á kvikmyndahátíð-
inni í Toronto fyrir nokkrum vikum, hefur myndin hlotið mik-
ið lof og eftir að hún fór til almennra sýninga hefur aðsókn far-
iö stigvaxandi. Hún er í dag meðal vinsælustu kvikmynda í
Bandaríkjunum þótt hún hafi verið sýnd í mun færri kvik-
myndahúsum en stóru myndirnar. Strax var talað um að Amer-
ican Beauty myndi verða heit þegar að óskarsverðlaunum
kæmi og nú eru menn þess fullvissir að American Beauty er sú
kvikmynd sem reikna þarf með á næstu mánuðum þegar þær
myndir sem stóru fyrirtækin telja líklegastar til óskarsverð-
launa verða settar á markaðinn.
American Beauty er svört kómedía og fjallar um mann sem
fær alveg nóg af leiðinlegu starfi og óþolandi hjónbandi. Hann
fer að lifa tvöfóldu lífi, breytir sér í töffara þegar tækifæri gefst,
en afleiðingarnar eru dapurlegar. Kevin Spacey og Annette
Bening sem leika aðalhlutverkin fá bæði mjög góða dóma fyrir
ieik sinn, sérstaklega þó Spacey sem þykir öruggur um tilnefn-
ingu til óskarsverðlauna.
Það er Draumasmiðja Stevens Spielbergs og félaga sem fram-
leiðir American Beauty og stóð Spielberg sjálfur á bak við gerð
hennar. Hann fékk handritið i hendur frá höfundinum AÍan
Ball og hreifst svo af, að hann yfirbauð nokkra aðila sem höfðu
gert boð í handritiö. Það sem meira er, hann bauð Bretanum
Sam Mendes, þekktum sviösleikstjóra, að leikstýra myndinni.
Mendes haiði enga reynslu af kvikmyndum, en hafði vakið-at-
hygli fyrir sviðsetningu sína á Cabaret og The Blue Room á
Broadway.
í viðtali segist Sam Mendes að það hafi tekiö hann tiu ár að
heröa upp hugann og leikstýra kvikmynd. „Ég var alltaf svo
hræddur um að mér myndi mistakast að ég frestaði þessu alltaf
þótt hugur minn stæði til kvikmynda. Það var aftur á móti mik-
ill heiður fyrir mig þegar Steven Spielberg boðaði mig á sinn
fund og bauö mér að leikstýra American Beauty. Hann sagði:
„Það er eitthvað i þessu handriti sem heillar mig. Lestu það yfir
og gefðu mér svo svar“. Ég fann strax fyrir sama spenningnum
og eftir þaö var ekki aftur snúið. Mendes segir að Spielberg hafi
gefið honum eitt gott ráð að lokum: „Ef þú færð allt í einu hug-
dettu um frábært „skot“, framkvæmdu það og eigðu svo við af-
Ieiðingamar eftir á".
-HK