Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1999, Qupperneq 4
4
MIÐVKUDAGUR 1. DESEMBER 1999
Fréttir
Ófermdi sóknarnefndarformaöurinn um bréf séra Gunnars:
Sáttamögu lei kar
eru úr sögunni
„Mér líður alveg ágætlega þrátt fyr-
ir að vera ófermdur. Það er í lagi frá
mínum bæjardyrum séð að séra Gunn-
ari hafi þótt ástæða til að geta þess al-
veg sérstaklega í bréfi sínu til prófasts-
ins að ég sé ófermdur. Það er eitt af því
mjög fáa í bréfi Gunnars sem er sann-
leikanum samkvæmt," segir Gunn-
laugur Finnsson, sóknamefndarfor-
maður í Flateyrarsókn, en séra Gunn-
ar Bjömsson sá ástæðu til að geta þess
sérstaklega i bréfi sinu til prófasts að
Gunnlaugur væri ófermdur.
„Ég er alveg rólegur vegna þessa,
enda veit ég hvað það var sem vakti
fyrir prestinum með þessu. Ég er
skírður og skímin er sakramenti en
fermingin einungis staðfestingarat-
höfh. Þaö sem vakti hins vegar fyrir
séra Gunnari var að gera mig tor-
tryggilegan og setu mína á kirkjuþingi
í 28 ár. Gunnar vildi láta lita þannig út
að þar hafi ég verið eins og umboðs-
Gunnlaugur Finnsson, sóknarnefndarformaður á Hvilft.
laus bastaröur. Reyndar var séra Sig-
urbimi Einarssyni biskupi fúllkunn-
ugt um það á sínum tíma að ég væri
ófermdur, en það vora engar athuga-
semdir gerðar," segir Gunnlaugur.
Er einhver möguleiki á sáttum
sóknarbama við prestirm sinn eftir
þetta bréf Gunnars?
„Nei, þetta bréf lokar endanlega á
allt slíkt og hafi einhveijir möguleikar
verið fyrir hendi þá em þeir úr sög-
unni. Það hafa reyndar komið upp
hlutir sem maður taldi endanlega úti-
loka sættir, en nú er það alveg á
hreinu,“ segir Gunnlaugur.
Gunnlaugur segist ekki eiga von á
því að neitt gerist í deilumáli prestsins
og sóknarbamanna í Önundarfirði á
næstunni. Beðið sé eftir því að biskup
aðhafist í málinu og það sé eiginlega
ekkert annað fyrirsjáanlegt í málinu á
næstu vikum.
-gk
Biskup íhugar að flytja séra Gunnar í annað prestakall:
Hér hafa aldrei veriö deilur
- segir frú Ágústa í Holti
Biskupinn yfir íslandi
íhugar alvarlega að flytja
séra Gunnar Bjömsson,
sóknarprest í Holti í Ön-
undarfirði til í starfi
tímabundið svo helgihald
geti orðið með eðlilegum
hætti í Holtsprestakalli
um jól og aðventu. Frú
Ágústa Ágústsdóttir,
prestsfrú í Holti, segir
hins vegar aö í kirkju-
sókn eiginmanns síns sé
allt með kyrrum kjörum:
„Hér hafa aldrei verið
deilur. Hér er logn og gott
veður og við hlökkum til jólanna,"
sagði frú Ágústa í símtali úr prests-
bústaðnum í Holti í gær.
í yfirlýsingu frá Biskupsstofu
vegna mála séra Gunn-
ars í Holti segir meðal
annars: „Biskup harmar
þá erfiðleika sem eru í
sóknum Holtsprestakalls
og lítur ástand mála al-
varlegum augum. Unnið
er að því að koma mál-
um í viðunandi horf eins
og nokkur kostur er og
eins fljótt og unnt er svo
safnaðarstarf og helgi-
hald geti orðið með eðli-
legum hætti um aðventu
og jól. í þvi sambandi
kemur til greina að flytja
sr. Gunnar Bjömsson til í starfi
tímabundið."
Þá hefur biskup til skoðunar bréf
það sem séra Gunnar sendi prófasti
Frú Ágústa
Ágústsdóttir.
Séra Gunnar Björnsson, sóknarprestur í Holti.
sinum og birt
hefur verið hér
í DV. Þar ber
séra Gunnar
hluta sóknar-
bama sinna
þungum sökum
og lýsir þeim
sumum sem
geðfötluðum. í
yfirlýsingu frá
Biskupsstofu
segir um þenn-
an anga máls-
ins: „Bréfið er
til athugunar,
m.a. hvort það
gefi tilefni til
sérstakra að-
gerða.“ -EIR
Hveragerði, það er ég
Mikill titringur er í Hveragerði.
Ekki er hann vegna núnings í iðrum
jarðar heldur er núningurinn of-
anjarðar, í mannheimum. Ástæðan
er sala á rafveitukerfi Veitustofnana
Hveragerðis. Tilboð bárast frá þrem-
ur aðilum sem máttu bjóða í raf-
veitukerfið. Lögin meinuðu víst ein-
um aðila, RARIK, að vera með í til-
boðsslagnum. Tvö tilboðanna fólu í
sér verulega lækkun á raforkuverði,
nokkuð sem hlýtur að teljast fýsilegt
frá sjónarhóli íbúanna. Eftir að til-
boðin höfðu verið opnuð gerist það
hins vegar að RARIK fær leyfi ríkis-
stjómarinnar til að bjóða í raforku-
kerfið. Og þar sem RARIK vissi þá
hvað hinir höfðu boðið ákváðu for-
ráðamenn á þeim bæ auðvitað að
sparka keppinautunum út í ystu
myrkur með mun hærra tilboði. En
þó tilboðið sé hærra segja menn að
því fylgi hækkanir á raforkuverð-
inu. Það er nokkuð sem telst miður
fýsilegt út frá sjónarhóli íbúanna.
í dag verður lokaöur bæjarstjómarfundur sem
fjalla á um sölu rafveitukerfisins til RARIK. Bæj-
arstjórinn segir engum koma það við að fundur-
inn sé lokaður. Bæjarstjóm ráði því sjálf hvort
fundir eru opnir eða lokaðir. Og um tilboð
RARIK segir bæjarstjórinn að honum þyki alls
ekki óeðlilegt að RARIK hafi sent inn tilboð eftir
að hafa séð tilboð hinna. Hins vegar viti hann
ekki hvað RARIK hafi frétt af tilboðunum því
hann sé ekki RARIK.
„Hveragerði, það er þó ég,“ skín úr orðum bæj-
arstjórans sem lætur sér fátt um fínnast þó bæj-
arbúar, sem eygja lækkun rafmagnsreikninga,
vilji fylgjast með. Bæjarbúar verða að átta sig á
þeim þráláta misskilningi að bæjar-
stjórinn sé þeirra þjónn. Hann er
þjónn bæjarfélagsins og bæjarfélagiö
er hann. Þess vegna er það hans mál
og hans ákvörðun hvort fundir eru
opnir eða lokaðir. Og við sölu raforku-
kerfisins verður hann að hafa hags-
muni bæjarfélagsins eina að leiðar-
ljósi því bæjarfélagið er undir hans
stjóm og hagsmunir beggja fara sam-
an. Hagsmunir bæjarbúa geta ekki
farið saman við hagsmuni seljanda né
kaupanda því þeir binda vonir við
lægra raforkuverð sem aftur þýðir að
taka verður lægra tilboði en þeirra
sem buðu með leyfi ríkisstjórnar eftir
að tilboðsfrestur var útrunninn.
Dagfari verður að hafa sig allan við
til að henda reiður á leikreglum í lýð-
ræðisþjóðfélagi voru. Sá sem vill
bjóða í opinber fyrirtæki eða mann-
virki verður að átta sig á því að þó að
fram fari útboð og áhugasamir skili
inn tilboöum fyrir tilskilinn frest geta
fleiri tilboðshafar bæst í hópinn þó
seinna sé. Þeir eru undanþegnir leikreglum út-
boðsins enda með leyfi ríkisstjómarinnar upp á
vasann. Og um tilboð þeirra er fjallað á lokuðum
fundi þar sem hagsmunir seljanda og kaupanda
eru í hávegum hafðir. íbúa bæjarins varðar ekk-
ert um þaö. Því Hveragerði, það eru ekki þeir.
Dagfari
sandkorn
Klifurgarpur
í sjónvarpsleik nokkrum, sem
kallaður er „Hollywood Squares" og
sjónvarpað er um öll Bandaríkin,
koma fram stjörnur á borð við
Whoopi Goldberg, Danny Glover
og fleiri. í þættinum
spila þau eins konar
„myllu“ með kepp-
endum. í þessrnn
þætti kom litla Is-
land mikið við
sögu nýlega. Þátt-
arstjómandinn
spurði Danny
Glover, leikarann
góðkunna, hvað
Vigdís Finnbogadóttir
hefði gert sér til frægðar á íslandi.
Svar kappans var fiarri sanni.
Hann skaut á að hún hefði verið
fyrsta íslenska konan til að klifa
Everest. Þegar hið rétta kom í ljós,
að hún hefði verið fyrsti kvenfor-
setinn, þögnuðu þeir amerísku...
Kann sér ekki læti
Axel og félagar heitir spjall- og
skemmtiþáttur á Skjá einum.
Þættinum stjórnar Axel Axels-
son, ungur og ör maður sem
virðist ákafur um að slá í gegn
hiö fyrsta. Sand-
korni er tjáð að
nefndur Áxel hafi
áður unniö á út-
varpsstöðinni FM
og ekki farið dult
með þá ætlan sína
að stjórna eigin
þætti í sjónvarpi.
Nú, þegar á
hólminn er kom-
ið, kann stjómandinn sér vart
læti og veður um víðan völl. Ung-
ir áhorfendur munu ánægðir
með margt í þætti Axels en eldri
áhorfendum verður sumum nóg
um ákafann og lætin, verða
hreinlega sveittir þar sem þeir
liggja i letistólum sínum...
Frestaði fríinu
Vinsældir á Uppistandi Jóns
Gnarrs í Loftkastalanum em
verulegar. Er nú þegar uppselt á
níu sýningar. Ætl-
unin var annars að
hafa aðeins þrjár
aukasýningar þar
sem Jón þyrsti í
frí með fiölskyld-
unni og vildi
ferðast til fiar-
lægra og heitari
landa. En Jón er
með flughræddari
mönnum eins og fram hefur kom-
ið í viðtölum. Og ekki minnkaði
sá ótti í kjölfar flugslys egypsku
þotunnar á dögunum. Segir sag-
an að það slys hafi orðið til þess
að flugferð á sólarströnd var
skotiö á frest, í bili að minnsta
kosti. Flughræðsla er ekkert
gamanmál en víst er að aðdáend-
ur Jóns fagna fleiri sýningum
með honum...
Allir þig dáðu
Tækniframlarir og breyttir at-
vinnuhættir munu
væntanlega skilja
eftir sig spor í
minningarorðum
framtíðarinnar.
Þannig getur nú-
verandi stunu-
drottning síma-
þjónustu átt eftir
að verða amma
síðar meir og hljóta
eftirmæli frá bamabömunum:
Þú kvaddir í gær á þinn hljóða
hátt.
í hugskoti efst er mínu
hve allir þig dáðu sem áttu bágt
'í einkalífinu sinu.
Af minningum um þig er ég rík,
aldrei þeir fiársjóðir tæmast.
Amma mín, þú varst engum lík,
það var unun að heyra þig
klæmast.
Umsjón: Haukur L. Hauksson
Netfang: sandkorn @ff. is