Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1999, Qupperneq 4
4
FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1999
Fréttir
Hundruð sóttu um 21 einbýlishúsalóð í Grafarvogi:
Byggingartilboö
upp úr öllu valdi
- hrikalegt úrræðaleysi og hækkandi fasteignaverð, segir Júlíus Vífill
Svæ&iö í Grafarholti þar sem þær íbú&arbyggingar munu rísa sem nú var verið að bjóða út. DV-mynd Hilmar Pór
„Þetta ber vott um hrikalegt úr-
ræðaleysi og framtaksleysi í skipu-
lagsmálum. Það er óþolandi og al-
gjörlega óviðunandi að höfuðborg
skuli ekki sjá til
þess að íbúða-
svæði séu skipu-
lögð,“ sagði Júlí-
us Vífill Ingvars-
son, borgarfull-
trúi Sjálfstæðis-
flokks, um nýj-
ustu umsóknir og
tilboð í bygging-
arrétt fyrir íbúð-
arhús í Grafar-
vogi.
Samkvæmt upplýsingum frá
Reykjavíkurborg bárust 475 um-
sóknir um 21 lóð, sem úthlutað var.
Þá bárust 533 tilboð í byggingarrétt
111 íbúða í fjölbýlishúsum, 32 íbúða
í raðhúsum, 12 ibúða í keðjuhúsum
og 28 íbúða í tvíbýlishúsum.
Júlíus Vifill sagði að Grafarholtið
væri fyrsta íbúðasvæðið sem skipu-
lagt væri af R-listanum eftir að
hann komst til valda í Reykjavík
1994. Sú staðreynd að ekki hefðu
verið skipulögð nein ný svæði hefði
leitt til lóðaskorts og hækkandi fast-
eignaverðs á höfuðborgarsvæðinu.
„Við sjáum hvernig lóðaskortur-
inn endurspeglast í þessu útboði,
þar sem hundruð manna sækja um
21 einbýlishús," sagði Júlíus Vífill.
„Það er erfitt að kalla þetta nokkuð
annað en neyð því fólk á ekki um
annað að velja.
En það sem er ekki síður alvar-
legt er að þau tilboð sem borist hafa
í íbúðir sem þarna voru boðnar út
eru margfalt yfir þeim gatnagerðar-
gjöldum sem hafa verið í gildi í
Reykjavík á undanfómum árum.
Lágmarksgjöld voru sett vegna út-
boðsins. Þau em mörg hver 50 pró-
sent yfir gatnagerðargjöldum, eins
og þau voru fyrir útboðið. Þrátt fyr-
ir þaö eru menn að bjóða tvöfalda
lágmarksupphæðina. Þessi útkoma
mun augljóslega leiða til enn hækk-
andi fasteignaverðs í Reykjavík,
hækkandi leigugjalda, auk þess sem
einhverjir munu ekki treysta sér til
að fara út í húsbyggingar sem ella
hefðu gert það. Hækkað fasteigna-
verð mun auka á þensluna sem mun
skila sér út í verðlagið. Áhyggjuefni
manna í dag eru skuldir heimilanna
sem eru að miklu leyti verðtryggð-
ar. Við erum með verðbólguboltann
í höndunum og ég tel að R-listinn sé
þarna að koma af stað þeirri ógnar-
legu þróun sem verðbólgan kallar á
á öllum sviðum." -JSS
Júlíus Vífill
Ingvarsson
borgarfulltrúi.
Gjaldþrot Sæunnar Axels á Ólafsfirði:
Grafalvarlegt mál
- segir Ásgeir Logi Ásgeirsson bæjarstjóri
DV, Akureyri:
„Þetta er grafalvarlegt mál fyrir
okkur sem hér búum. Við munum
nú setjast yfir þetta og meta hverjir
möguleikar okkar eru í framhald-
inu. Auðvitað vonaði maður að
svona myndi ekki fara, en þetta er
orðin staðreynd og við verðum að
taka á því. Það er enginn uppgjafar-
tónn hér,“ segir Ásgeir Logi Ás-
geirsson, bæjarstjóri á Ólafsfirði,
um þá stöðu í atvinnulífi bæjarins
eftir að stærsti atvinnurekandinn,
Fiskverkun Sæunnar Ax-
els, hefur verið tekinn til
gjaldþrotaskipta og 50-60
starfsmenn hafa misst
vinnuna.
„Það veit enginn á þess-
ari stundu hvaða áhrif
þetta kemur til meö að hafa
hér í bænum. Þessir hlutir
eru að gerast, og það á eftir
að koma í ljós hvert fram- Ásgeir Logi Ás-
haldið verður. Það má geirsson: „Petta er
segja að við séum i miðjum grafalvarlegt mál.“
storminum og það verður DV-mynd gk
ekki fyrr en fer að lægja að
maður sér hvemig landið
liggur. Við höfum verið í
mikilli vamarbaráttu við að
halda íbúatölunni hér í horf-
inu og það hefur tekist, en
það hefur ekki orðið nein
aukning. Auðvitað er maður
hræddur við hugsanlegar af-
leiðingar þess að tugir
manna missa atvinnu sína -
að fólk hugsi sér til hreyf-
ings,“ segir Ásgeir Logi.
Hann segir að undanfarið
hafi verið unnið að því að koma í
gang fjarvinnslufyrirtækinu íslensk
miðlun - Ólafsfjörður, þar sé búið
að ráða um 10 manns. „Það hefur
gengið hægt en sú starfsemi er að
fara í gang á næstu dögum. Við höf-
um einnig verið aö slægjast eftir
störfum hjá Hagstofunni en það er
ekkert á hreinu í þeim efnum. Þetta
er áfall, en lífið heldur áfram og við
munum berjast fyrir okkar byggðar-
lag með þeim ráðum sem við kunn-
um best,“ segir Ásgeir Logi.
-gk
Of lítil þióð - of stór heimur
T
mufj
Tilnefningar til íslensku bók-
menntaverðlaunanna fóru fram
fyrr í vikunni. Rithöfundar,
skáld og fulltrúar þeirra voru
ekki fyrr komnir með blómin í
fangið en óánægjan í íslenskum
bókmenntaheimi braust fram í
formi yfirlýsinga um hversu
ónýtar þessar tilnefningar
væru vegna þess að hinn og
þessi hafði ekki verið tilnefnd-
ur heldur þessi og hinn. Gagn-
rýnendur lýstu tilnefningunni
sem hallærislegu skrípói og
óskuðu eftir rökum fyrir því að
þessi og hinn hefði ekki verið
tilnefndur. Og stöku rithöfund-
ur tók undir en sá helst ljósið í
Qölda tilnefndra ljóðabóka. Þær
hefðu verið nær hunsaðar til
þessa en hlytu nú uppreisn æru. Meðaltalstölfræði
íslensku bókmenntaverðlaunanna væri borgið. Út-
gefandi sagði að þjóðin væri kannski of lítil fyrir
verðlaun eins og þessi.
Þriggja manna nefnd sér um að tilnefna bók-
menntaverk til þessara verðlauna. Það úrvalsfólk
sem nefndina skipar er sér mjög meðvitað um hlut-
verk sitt, ekki gengur að láta jafngóða dóma og vin-
sældir meðal almennings villa sér sýn. Þetta eru jú
íslensku bókmenntaverðlaunin. Og sögur um djúp-
stæðan ágreining innan nefndarinnar, sem lekið
hefur verið út, undirstrika að hart hafi verið tekist
á um niðurstöðuna.
Dagfari skilur því ekki hvað fólk er að væla yfir
því að þessi eða hinn skuli ekki vera tilnefndur til
íslensku bókmenntaverðlaunanna. Lesendur verða
að gera sér grein fyrir að þarna er ekki verið að
velja vinsældalista sem endurspeglar vilja þjóöar-
innar í þessum efnum. Þarna eru helstu bók-
menntaspekingar á hverjum tíma aö velja fyrir
þjóðina bestu skáldverkin. Því íslenska þjóðin hef-
ur ekki hundsvit á bókmenntum og þess vegna á
hún auðvitað ekki að hafa neitt um íslensku bók-
menntaverðlaunin að segja - hvorki tilnefna skáld-
verk né gagnrýna val dómnefnd-
arinnar. Dómnefndin er einfær
um valið. Og þar sem vit gagn-
rýnenda á bókmenntum er um-
deilanlegt, eins og viðbrögð
þeirra við tilneíhingunum sýna,
verður ekki séð hvaða erindi
þeir eiga I fjölmiðla með hall-
ærislegar athugasemdir sínar.
íslensku bókmenntaverðlaunin
eru ekki neinn skrípaleikur.
En af því að Dagfari hefur
snefil af bókmenntaviti þá veit
hann að bækur sem þykja
skemmtilegar, spennandi, lipur-
lega og vel skrifaðar, mergjaðar,
dásamlegar, hrífandi og svo
magnaðar að lesandinn öðlast
algleymi við lesturinn hafa of
almenna skírskottm til að bók-
menntaspekingar taki þær alvarlega. Að velja slík
verk þýðir að bókmenntaspekingar missa sérstöðu
sína og eiga á hættu að vera gagnrýndir fyrir eftir-
látssemi við kröfur markaðarins. Þetta ættu vin-
sælir höfundar að athuga næst þegar þeir stinga
niður penna. Að öðrum kosti gætu þeir lenti í
hremmingum eins og að hljóta Menningarverð-
laun ónefnds dagblaðs og bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs í framhaldinu. Því þó þjóðin sé
of lítil fyrir íslensku bókmenntaverðlaunin er
heimurinn of stór fyrir þau.
Dagfari
sandkorn
Kæri mágur
f Sandkorni á dögunum var athygli
vakin á því hvernig afstaðan til
Fljótsdalsvirkjunar væri ólík innan
fjölskyldna, t.d. að Friðrik Sophus-
son, forstjóri Lands-
virkjunar, og Guð-
mundur Gunnars-
son, formaður Raf-
iðnaðarsambandsins
og pabbi Bjarkar,
væru bræðrasynir.
Á ættfræðisíðu DV
á þriðjudag var
grein um Ólaf Örn
Haraldsson, al-
þingismann og ákafan náttúru-
vemdarsinna úr Framsókn. Þar kom
fram að systir Ólafs Arnar er Þrúður
Guðrún, framkvæmdastjóri Félags
íslenskra náttúrufræðinga. Eigin-
maður Þrúðar er Þórður Friðjóns-
son, þjóöhagsstofnunarstjóri, formað-
ur undirbúnings- og samræmingar-
nefndar 1 viðræðunum við norska ál-
risann Norsk Hydro...
Steypt og malbikað
Þeir sem lýsa íþróttakappleikjum
láta stundum undarlegustu hluti út
úr sér eða, eins og Valtýr Björn
Valtýsson sagði réttilega þegar
hann lenti í torfær-
um meðan hann
lýsti leik Lazio og
Chelsea í Evrópu-
keppninni á
þriðjudagskvöld:
„Nú er ég heldur
betur farinn aö
malbika - kom-
inn alla leið til
Húsavíkur." Tölvu-
póstur hefur undanfarið gengið
milli manna með nokkrum gull-
kornum úr kistu þeirra sem lýsa
íþróttakappleikjum í sjónvarpi. Hér
fara nokkur: .leiknum verður
sjónvarpað i sjónvarpinu ... hann
sprettur úr skónum ... hafa Lakers
nú fengið nýjan nýliða ... og áhorf-
endur baula á leikinn ... KR-ingar
eiga hornspymu á mjög hættuleg-
um stað ... fyrrverandi sonur þjáif-
arans er á leið í annað félag ... þeir
eru með bandarískan Ameríkana ...
það er hellingur af fullt af fólki og
Weah skallaði hann með höfðinu..."
Kröftug barnamessa
Séra Gunnar Bjömsson, Holts-
prestur í Önundarfirði, hélt sem
kunnugt er barnamessu á Flateyri
fyrir skemmstu. Messan vakti at-
hygli, ekki síst fyrir
þær sakir að prestur-
inn varð að fá leyfi
biskups til að halda
hana þar sem hann
er ekki þjónandi
sóknarprestur sem
stendur. Tæpur
tugur bama mætti
til messunnar og
fékk kristilega upp-
fræðslu. Presturinn lá ekki á liði sínu
því fyrst fór hann með 6 bænir með
börnunum. Síðan voru þau látin
syngja 17 sálma. Að þvi búnu las
presturinn þeim langa sögu. Loks var
fullorðnum boðið upp á kaffi en böm-
unum djús. Djúsboðinu fylgdu til-
mæli til barnanna um að nú skyldu
þau fara að lita og gera verkefni...
í sama liði?
Nú hefur Jón Steinar Gunn-
laugsson, þekktur lögmaður, verið
kærður fyrir Lögmannafélagi ís-
lands. Þó kæran sé í sjálfu sér ekki
aðhlátursefni varð
hún engu að síður
tilefni stríðni af
hálfu þeirra sem
spila með honum
fótbolta i hádeginu.
Þeir gárungar
minnhi á að Jón
Steinar hefði farið
fyrir liði lögmanna'
sem spilaði einu sinni á ári við fang-
ana á Litla Hrauni. Ef framhald yrði
á kærum og klögumálum gegn hon-
um gæti svo farið að hann þyrfti að
skipta um lið...
Umsjón: Haukur L. Hauksson
Netfang: sandkorn @Ef. is