Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1999, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1999, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 10. DESEMBER 1999 Fréttir Stuttar fréttir i>v Bátur sem notaður er til björgunar ekki skoðaður í tæp þrjú ár: Slysavarnaskip án haffærisskírteinis - bréfaskriftir Siglingastofnunar árangurslausar Dæmi eru um að björgunarskip hins foma Slysavamafélags íslands hafi verið árum saman án haffæris- skírteinis en samt lagt á hafið til að- stoðar. Þannig hefur slysavamabát- urinn Ásgeir M., sem skráður er frá Seltjamamesi, ekki verið skoðaður síðan í mars 1997 eða hátt í þrjú ár. Þór frá Vestmannaeyjum hefur ekki haft haffærisskírteini siðan í júní í sumar. Samkvæmt heimildum DV hafa bátar þessir eigi að síður hald- ið áfram starfi sínu í þágu sæfar- enda þar sem þeir koma ýmist til aðstoðar eða bjargar af ýmsu tilefni. Heimildarmenn DV segja hneyksli að þeir sem fremstir eiga að standa i slysavömum skuli ekki sinna þeirri lagaskyldu sinni að láta skoða bátana. Skoðun skipa er fyrst og fremst gerð til að tryggja að ör- Sala ríkis- bankannaí næstu viku Framkvæmdanefnd um einka- væðingu hefur gengið frá hvemig fyrirkomulag verður á sölu ríkisins á 15% hlut í Landsbankanum og Búnaðarbanka. Sama fyrirkomulag verður við sölu hlutabréfa í báðum bönkunum. Almenningi verður boð- ið aö kaupa allt að 10% hlutafjár með áskrift en óskað verður eftir tiboðum í hin fimm prósentin. Sal- an fer fram frá 15. desember til klukkan 16 á föstudaginn 17. desem- ber. Einstaklingum býðst að kaupa allt að 270.000 króna hlut í Lands- bankanum á genginu 3,8 en 250.000 króna hlut í Búnaöarbanka á geng- inu 4,1. Ef of margir skrá sig í al- menna sölu eins og líklegt má telj- ast skerðast hæstu hlutamir fyrst og svo koll af kolli. í tilboðshlutan- um er lágmarksfjárhæð 270.000 krónur að nafnverði í Landsbankan- um og hámarksfjárhæð 55 milljónir króna en samsvarandi tölur fyrir Búnaöarbankann era 250.000 laegst og hámarkið er 35 milljónir króna. Ríkisskattstjóri hefur staðfest að kaup á hlutabréfum í bönkunum veitir rétt til skattaafsláttar. -hdm yggisbún- aðurinn sé í lagi. DVfékk staðfest hjá Til- kynninga- skyldu ís- lenskra skipa að báðir bát- amir hafa verið á sjó undanfar- ið. Þannig var Þór með út- runnið haffæris- skirteini á ferð í Reykjavík þann 21. nóvember sl. Ásgeir M., sem er miklu minni bátur, var síðast á sjó þann 19. nóv- ember. Á síðasta ári urðu bréfa- skriftir vegna Siglingastofnunar ríkisins og Slysavamafélags íslands þar sem Siglingastofnun krafðist þess að bátar félagsins færu í lög- bundna skoðun. Þessu var ekki sinnt en Siglingastofnun hefur að- eins með að gera skoðun bátanna og eftirlit. Það er hlutverk Landhelgis- gæslunnar að færa þau skip til hafn- ar sem ekki hafa fullgilt haffæris- skírteini. Heimildir DV herma að fiskiskip án haffærisskírteinis séu umsvifalaust rekin í land ef til þeirra næst. Svo er að sjá að um- rædd slysavamaskip hafi sloppið undan hrammi Landhelgisgæslunn- ar. Kristján Jónsson, yfirmaður Gæsluframkvæmda, sagðist í sam- tali við DV ekki hafa heyrt af um- ræddum bátum. Hann segir reglur Gæslunnar skýrar hvað varðar skip sem ekki séu með pappíra í lagi. „Ef skip án haffærisskírteinis verður á okkar vegi er venjan að vísa þeim umsvifalaust til hafnar. Sé um það að ræða að einhver skip séu á miðunum án tilskilinna leyfa geri ég ráð fyrir að þau hafi ekki orðið á vegi okkar,“ sagði Kristján. Bátarnir era nú undir hatti hins sameinaða Slysavamáfélagsins Landsbjargar. Öm Guðmundsson, skrifstofustjóri félagsins, sagði við DV að hann myndi strax láta skoða þetta mál og hvernig stæði á því að bátamir væra ekki með löglegt haf- færisskírteini. -rt Elja, einbeiting og ekki síst sönggleöi skin úr andliti Stefáns Hilmarssonar þar sem hann syngur fyrir troöfullum sal Bíóhaliarinnar í gærkvöldi. Vel heppnaöir tónleikar Sálarinnar hans Jóns míns hittu í mark og saiurinn steinlá. Þeir Sálarbræöur veröa í spjalli á Visir.is klukkan 16 í dag og í þaö spjall er öllum boöiö. DV-mynd Teitur Allt upp í loft í Flugskóla íslands: Nemendur íhuga málsókn Það hriktir í innviðum Flug- skóla íslands eftir fjöldafall nem- enda i einkaflugmannsprófi skól- ans en þar féllu 44 af 58 sem þreyttu prófið. Lengra komnir nemendur íhuga nú málsókn gegn skólanum vegna tafa sem orðið hafa á kennslu og prófum vegna atvinnuflugmannsréttinda þar sem skólinn hefur ekki enn hlotið viðurkenningu evrópskra flug- stjómaryfirvalda, JAA. „Stjómendur skólans leggja upp með ákveðið kerfi sem á að út- skrifa atvinnuflugmenn en breyta því svo í miðju kafi þannig aö við sitjum eftir réttindalausir með skuldaklafa á bakinu því þetta er dýrt nám,“ sagði einn nemenda sem íhugar málaferli gegn skólan- um ásamt nokkrum félögum sín- - þrýst á um breytingar á yfirstjórn um sem svipað er ástatt fyrir. | „Foreldrar okk- , ar og skyld- menni eru í ^ ábyrgðum á vegna lána sem við höfum tekið til að ljúka flug- náminu sem virðist síðan vera tómt rugl,“ sagði nemandinn sem ekki vill láta nafns síns getið af ótta viö hefndar- aðgerðir skóla- stjómenda. „Við. höfum fengið skilaboð frá þeim þess Frétt pmwil wu \ rHUWIUHi JUJUltííl Ánægjulegt aö þesslr menn fál ekkl aö fljúga efnis að flug- félögunum verði til- kynnt um aðgerðir okkar; við séum vand- ræða- gemlingar sem ekki borgi sig að hafa í vinnu.“ Sam- kvæmt heimildum DV er stefnt að því að gera DV af málefnum Flugskóla íslands frá í gær. gagngerar breytingar á yfirstjóm Flugskóla íslands, sem er í eigu rikisins að stærstum hluta og svo Flugleiða, Atlanta og tveggja smærri flugskóla. Fer þar fremst- ur Arngrímur Jónsson, eigandi Atlanta, sem finnst tími til kom- inn að fá inn í stjómina menn sem hafa vit á flugi. Stjómarformaður Flugskóla íslands er Halldór Krist- jánsson, skrifstofustjóri í sam- gönguráðuneytinu: „Það er svona álíka gáfulegt að vera með ráðuneytismann þarna í stjómarformennsku eins og að gera Ómar Ragnarsson að for- stjóra íslenskrar erfðagreiningar," sagði einn nemenda í Flugskóla ís- lands - einn fárra sem náðu próf- inu á dögunum. -EIR 7,9 milljaröar Niðurstaða fjáraukalaga er að fjárlög ársins hækka um 7,9 milljarða króna. Jón Kristjáns- son, formaður íjárlaganeíhdar, sagði að þetta væri mun meira en búist hefði ver- ið við. Til heilbrigðisgeirans fara 3,4 milljarðar af þessari upphæð. Taki fullt tillit Bæjarráð Seyðisfjarðar hefur samþykkti áskorun til iðnaðar- og umhverfisnefnda Alþingis um að taka fúllt tillit til þeirra jákvæðu áhrifa sem Fljótsdalsvirkjun, sam- hliða uppbyggingu stóriðju á Reyð- arfirði, muni hafa á íbúa-, atvinnu- og efnahagsþróun i fjórðungnum. RÚV sagði frá. Kæröu meiríhluta Bæjarfúlltrúar Samfylkingarinn- ar í Hafharfirði hafa kært meiri- hluta bæjarstjómar Sjálfstæðis- flokks og Framsóknarflokks til fé- lagsmálaráðuneytisins. Dagur segir þá krefjast þess að ráðuneytið ógildi fjárhagsáætlun bæjarins fyrir árið 2000 sem samþykkt hefur verið. Samið til 2ja ára Hglstu kröfur Rafiðnaðarsam- bandsins í komandi kjarasamningum eru að samið verði til tveggja ára. Upphafshækkun launa verði 8% og laun hækki svo um 4% 1. janúar árið 2001 og aftur um 4% 1. janúar 2002. Frí nettenging Landsbankinn og Landssíminn tilkynntu í dag að þeir hygðust í sameiningu bjóða ókeypis netteng- ingu frá og með deginum í dag. Tengingin verður virk fyrir áramót. Rýmrí heimildir fjármálaráð- herra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp sem rýmkar heimildir lífeyrissjóðanna til fjárfestinga - í skuldabréfum, hlutabréfum, er- lendum gjaldmiðlum og óskráðum verðbréfum. Mbl. sagði frá. Vill upplýsingar Umboðsmaður bama hefur sent skóla Johns Casablancas og Eskimo Models fyrirspum um hve margai' stúlkur hafi dvalið erlendis á vegum þessara skrifstofa síðustu Ðmm árin. Er þetta í framhaldi sýningar á heim- ildarmynd fiá BBC, Bak við tjöldin í tískuheiminum. Banna hópuppsagnir Geir H. Haarde fjármálaráöherra mælti fyrir frumvarpi til laga á Al- þingi á miðvikudagskvöld um breyt- ingu á lögum um kjarasamninga op- inberra starfsmanna sem felur í sér bann við hópuppsögnum opinberra starfsmanna á meðan kjarasamning- ar eru í gildi. Mbl. sagði frá. Heldur utan Háskólaprófessorinn, sem Hæsti- réttur sýknaði af ákæru um alvarleg kynferðisbrot gagnvart dóttur sinni, heldur næstu daga til útlanda en hann hefur komist að samkomulagi við Háskólann um sérverkefixi. Vilja samráðshóp Samtök at- vinnulífsins kalla eftir samráðshópi við verkalýðsfor- ystu og stjóm- völd til að afstýra slysi í efnahags- lifmu. Edda Rós Karlsdóttir, hag- fræðingur ASÍ, segir að opinberir starfsmenn hafi gengið á undan og verkafólk vænti þess að fa sömu leið- réttingu á launum sinum og aðrir hafi fengið. RÚV greindi frá. Endurskoðandi ábyrgur Hæstiréttur hefúr dæmt endur- skoðunarfyrirtækið Pricewater- house Coopers og löggiltan endur- skoðanda til að greiða Nathan og 01- sen hf. 4 milljónir króna í bætur og þannig snúið dómi héraðsdóms. Starfsmaður Nathan og Olsen dró sér rúmlega 32 milljónir króna úr sjóðum fýrirtækisins. -hlh

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.