Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1999, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1999, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 10. DESEMBER 1999 Spurningin Á aö bjóöa fiskveiöikvótann upp á opnu uppboöi? Eggert Hákonarson sjómaður: Á uppboðsmörkuðum fæst hæsta verð. Já, ekki spuming. Katrín Ýr Óskarsdóttir: Mér gæti ekki verið meira sama. Ásgrímur Már Friðriksson nemi: Ég hef ekkert um málið að segja. Bryndís Gunnarsdóttir nemi: Já, þetta er eign þjóðarinnar. Guðbjöm Óskarsson: Mér er alveg sama. Lesendur Vændi hérlend is og erlendis Árið 1963 kom upp mál í Bretlandi þar sem Christine Keeler, 17 ára vændis- kona, stóö í sambandi viö ráöherra á sama tíma og hún átti í sambandi viö starfsmann sovéska sendiráðsins. „Þetta dæmi segir sína sögu því menn úr öllum stéttum leita á náöir vændiskvenna." Skarphéðinn Einarsson skrifar: Nú ætlar allt um koll að keyra vegna svonefndra súlustaða í höfuð- borginni og ná- grannabæjum. Á þessum stöðum má sjá ungar stúlkur dansa naktar á sviöi og róla sér á súlu legir kroppar sem létta íslenskum karlpeningi lífið. Sjáifur hef ég oft komið á einn þessara staða ásamt vini mínum sem er fæddur fyrir strið og man því tímana tvenna. Okkur hefur fundist gaman að líta þama inn og ekki trúi ég að vændi sé mikið i boði þar. En þegar rætt er um vændi, sem er vist elsta atvinnugrein heims, er ljóst að mörg hneykslismál hafa komið upp í hinum vestræna heimi í tengslum við það. Eitt mál er mér minnisstætt í þessu samhengi en árið 1963 kom upp mál í Bretlandi þar sem 17 ára vændiskona, Christine Keeler, stóð í sambandi við ráðherra er hafði aðgang að gögnum er snertu landvamir og málefni NATO. Það sem verra var þó var aö hún þjónaði einnig Rússa sem var hemaðarráögjafi við sendi- ráð Sovétríkjanna í London. Um tíma var talið að hún hefði hugsan- lega selt Rússum mikilvægar upp- lýsingar um NATO en viö málaferli reyndist svo ekki vera. Hinn 65 ára ráðherra sem átti sína fjölskyldu var settur út í kuldann. Þetta dæmi segir sina sögu þvf menn úr öllum stéttum leita á náðir vændiskvenna. Trúlega hefur vændi tíðkast lengi á íslandi í formi lúxus fylgdarkvenna. En hvað þess- ar erlendu súlustúlkur varðar þá tel ég að leyfa eigi þessa starfsemi utan við miðborgina og undir meira eft- irliti. í þeim borgum sem ég hef komiö tii erlendis blómstra þessir staðir og er talið að þeir haldi niðri kynferöisglæpum, gæti svo veriö hér? Oscar Wilde sagði að eina leið- in til að sigrast á freistingunum væri að falla fyrir þeim, eða byrjaði freistingin ekki í aldingarðinum Eden þegar Eva gaf Adam eplið? Skatturinn tók jólapeningana Sonja B. Haralds rithöfundur skrifar: Að hugsa sér! Við fengum rúm- lega 15.000 krónur í desemberupp- bót, jólapeninga okkar til að geta keypt jólamatinn og annað fyrir hátíðina. Af hverju grátum við þá? Af þvi að 10.500 krónur tók skatturinn jafnóðum af okkur, svo eftir eru litlar 4.500 krónur í jólahaldið. Fyrir öryrkja eins og mig, sem hefur aldrei nóga pen- inga, er með þessu verið að eyði- leggja jólin. Það virðist sama hversu oft skrifað er um bág kjör öryrkja, ekkert gerist. Áratugum saman hafa öryrkjar barist árangurs- lausri baráttu og þannig verður það áreiðanlega lengi enn. En hvers vegna? Það er vegna þess að þeir sem ráða í þessu gósenlandi hafa meira en nóg af öllu og þeim virðist þess vegna skitsama hvemig öryrkjar, ein- stæðir foreldrar og eldri borgarar lifa af í þessu landi við Norður- pólinn. Það er einfaldlega guð- leysi sem veldur þessu, náunga- kærleikurinn er orð sem þessir háu herrar þekkja ekki. Frjálst er nú fjallasal Matthildur sendi ljóð og skrif: Ég komst yfir skemmtilegt ljóö sem DV ætti kannski að birta fyr- ir lesendur sína. Það mun vera eftir prestinn góða, séra Öm Bárð Jónsson, sem skrifaði smásögu um „fjallasaT eða fjallasölu, sem fór eitthvað í taugamar á helsta ráðamanni þjóðarinnar. Ljóðið er sungið við lagið, Fijálst er í fjalla- sal, og hljóðar svo: Frjálst er nú fjallasal fjölbreytt er hæðaval, helst skal nú hagvöxtinn mæra. Hátt tónar tröllakór talar af viti sljór. Viðemin fogru viil særa. Háttvirt á hálendi trölla er handbendi, alþingi. Heiðum og hörgum vill sökkv’ í djúpan sæ sólblómum kast’ á glæ. Gæsimar flýja með görgum. Ári ályktana pappírs- hersins lýkur - ekkert gerðist í málum aldraðra, enda bjóst enginn við neinu Margrét Hansen, aögerðahópi aldraðra, skrifar: Senn er ár aldraðra á enda og þar með eru margar ráðstefnur að baki, svo og ótölulegur aragrúi af álykt- unum frá pappírshemum, en gamla fólkið varð ekki fyrir neinum von- brigðum, heldur ekki öryrkjar eða aðrir láglaunahópar. Þetta fólk átti sér hvort eð var enga von um nokkrar betrumbætur á kjörum sín- um. Ég á f fórum mínum gamla úr- klippu úr DV, frá 12. febrúar 1994, grein eftir Hauk heitinn Helgason ritstjóra, sem ber heitið: Afnám þrí- sköttunar. Það vill svo til að þeir þrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins, sem stóðu að þingsályktunartillögu um þetta efni, þau Sólveig Péturs- dóttir, Guðmundur Hallvarðsson og Vilhjálmur Egilsson, em öll á nú- verandi þingi. Þess vegna vil ég spyija þau hvort þau hafi nokkur áform um að bæta úr á þessu ári aldraðra. Ég á einnig í fórum mínum aðra úrklippu úr DV, hún er frá 12. sept- ember 1995, eftir Jónas Kristjánsson ritstjóra; Þjófar á þingi. Einnig þessi grein er um skattamál. Ég vil hvetja aldraða, öryrkja og alla lág- launahópa til að verða sér úti um þessa hressilegu fhnm ára gömlu ádrepu, sem á vissulega rétt á að birtast enn og aftur. Hemja skal hagsveiflur hífa upp munngeiflur brosa mót mengunarskýjum. Hlust’ ei á almenning en fyrir smápening selja skal álfursta þýjum. Göngugatan kann aö vera í hættu. Skilorðsbundnir dómar eru hrein rökleysa Ingvar skrifar: Oft gerist það að menn eru dæmdir skilorðsbundnum dómi, að öllu leyti eða að hluta, sem merkir að menn þurfa ekki að taka út dóminn ef þeir brjóta ekkert af sér meðan dómurinn (skilorðið) gildir. Þetta má segja að sé í lagi ef hinn dæmdi er við fulla andlega heilsu og getur gert sér grein fyrir réttu og röngu, löglegu og ólöglegu. Hins vegar hafa dómar oft fall- ið þannig að kolruglaðir og veru- leikafirrtir menn, jafnvel fíklar, eru dæmdir skilorðsbundnum dómi en það er hrein rökleysa. Þess- ir menn geta á engan hátt gert grein- allan afnum IKHI íi: ncl Réttargæslan á Sogni, þar sem á til dæmis vera geölæknir, viröist lítiö vera notuö. armun á réttu og röngu sem er for- senda þess aö menn bókstaflega skilji eðli skilorðs. Mönnum þessum er sleppt lausum á almenning - á skilorði - og losnar ríkið þá við að ala þá í tugthúsi. En þeir eru vita- skuld jafnruglaðir og áður, jafn- hættulegir og áður. Réttargæslan á Sogni, þar sem á til dæmis aö vera geðlæknir, virðist lftið vera notuð. Með þessu móti er dómskerfíö ekki sú vöm almennings sem það á að vera, kolrugluðum mönnum er sleppt lausum og öryggis al- mennings ekki gætt. Stundum er ekki gripið í taumana nógu snemma þótt full ástæða sé til og er síðasti hörmulegi atburður ljósasta dæmi þess. Nýleg ummæli hins veikburða dómsmálaráðherra á Alþingi gengu helst út á það að dópið væri orðið svo dýrt að aðferðir dópistanna væm orðnar hrotta- fengnari en áður. Þeir byggju við svo mikla dýrtíð, ekki orð um ° aukna vöm fyrir almenning nema að einhver nefnd væri að störfum! Þegar svona ástand er ríkjandi í þjóðfélaginu ættu dómarar að sjá sóma sinn í því og skilja þá ábyrgð sína að dæma ekki kolruglaða og veruleikafírrta menn í skilorð sem þeir hafa engin tök á að skilja eða uppfylla en em þar með settir á göt- una og heija á saklaust fólk alveg eins og áður með hroðalegum afleið- ingum. Slíkir dómar em hrein rök- leysa. Verjum göngu- götuna Reykvíkingur skrifar: Með tilvísun til þess að Akur- eyringar em að sletta sér fram í flugvallarmál Reykvíkinga leyfist mér að skipta mér af göngugöt- unni þeirra, og það í fullri vin- semd. Ég sá í Degi nýlega að kaupmenn við göngugötuna hafa áhyggjur af samkeppni sem þeir fá í nýjú „molli“ í gömlu Sam- bandsverksmiðjunum. Formaður Kaupmannafélags Akureyrar virðist þeirrar skoðun- ar að eigi kaupmenn í gamla mið- bænum að eiga möguleika skuli bæjaryfirvöld opna aftur göngu- götuna, Hafiiarstræti. Þetta er fáránleg hugmynd. Göngugata Akureyringa er til fyr- irmyndar og ffiðsæll og skemmti- legur staður í bænum þeirra sem ég heimsæki alltaf þegar ég er á Akureyri. Göngugatan er sú eina sinnar tegundar á íslandi og vel heppnuð framkvæmd. Baéjarstjóm Akureyrar ætti aö skella skollaeyrum við þessum þrýstingi lafhræddra kaupmanna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.