Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1999, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1999, Blaðsíða 13
JÍ-J"V FÖSTUDAGUR 10. DESEMBER 1999 13 Sönn jólabók Nýlega barst mér í hendur bókin Þrá aldanna eftir Ellen G. White sem fæddist árið 1827 en lést 1915. Á bókarkápu segir að hún hafi verið afkastamikiU rithöfundur og hefur Þrá aldanna verið þýdd á fjölda tungumála og gef- in út í þrem millj- ónum eintaka. Bókin er um líf og starf Jesú frá Nasaret, skrifuð af einstakri næmni og virðingu fyrir viðfangsefninu, djúpu innsæi og yflrgripsmikilli þekkingu á sögu Gyðinga og helg- um textum þeirra, staðháttum í Palestínu og þýðingu lögmálsins fyrir samtíma Jesú, kjörum fólks og skynjun á tilvistarspumingum þess. Óhætt er að fullyrða að Ellen G. White sé í fremstu röð kvenguð- fræðinga sögunnar ef ekki sú allra fremsta. Ég hef ekki lesið bækur hennar á frummálinu, ensku, en texti þessarar bókar er mjög læsi- legur. Hann hefur fagra hrynjandi, mikinn orðaforða og ljóðrænan stíl. Helst mætti likja honum við litfögur málverk í raunsæisstil sem birta okkur myndir af lífi og starfi merk- ustu persónu mannkynssögunnar, Jesú Krists. Bókmenntir Öm Bárður Jónsson Bókin skiptist í 87 kaila og er hver þeirra byggður á einni eða fleiri ritningargreinum. Viðfangs- efnið er hjálpræðissagan, sú áætlun Guðs að koma villuráfandi mann- kyni til hjálpar og bjarga því um ei- lífð alla. Þekking höfundar á spá- dómum Gamla testamentisins, sam- hengi sögu Gyöinga, frásögum Nýja testamentisins og hvemig hún flétt- ar þetta allt í heildstæða sögu með svo hreinum og samfelldum stíl vek- ur undrun og aðdáim. Ætla má að þetta séu að stofni til prédikanir sem raðað er saman í tímaröð svo úr verður samfelld saga um aðdrag- anda komu Krists, fæðingu hans, líf og starf, krossdauða, upprisu og upp- stigningu. Bókin er listavel þýdd af Gissuri Ó. Erlingssyni, orð- færi klassískt og hvergi að finna að ljóðrænn textinn missi flug. Nú kann að vera að guðfræð- ingur sem þekkir orðfæri trúarrita sé ekki dómbær að öllu á textann og það hvemig hann kemur öðrum fyr- ir sjónir. En textinn er fagur. Hann er á „himnesku" eins og ég leyfi mér að kalla það. Bogi Arnar Finn- bogason las próförk og Þórhalls Guttormssonar, íslenskufræðings, kennara míns í Versló forðum, er getið á titilblaði. Einvala lið sem skilað hefur frábæru verki. Aftast í bókinni er ítarleg atriðisorðaskrá og skrá yfir ritningarvers sem gerir bókina að uppsláttarriti sem gagn- ast öllum vel sem vilja skoða útlegg- ingu ákveðinna texta Biblíunnar við fræðistörf, undirbúning prédik- ana eða sjálfum sér til uppbygging- ar. Þetta er tilvalin bók handa þeim sem vilja skilja kristindóminn og sjá hjálpræðissöguna í samhengi, bók sem ég vildi gjaman heyra ein- hverja konu lesa upp í útvarpi á aldamótaárinu því boðskapurinn í Þrá aldanna mætir brýnni þörf þjóðarinnar og í reynd allra þjóða. Þrá aldanna er jólabók í orðsins fyllstu merkingu. Ellen G. White Þrá aldanna. Meistarinn frá Nasaret Gissur Ó. Erlingsson þýddi Skin og skúrir Villa, söguhetja Við enda regn- bogans, er 9 ára prakkari. Hún býr í Reykjavík hjá pabba sínum, tví- burabróður og eldri systur. Pabbinn er mikið að heiman í söluferðum og mamma hennar er á sjúkrahúsi. Binna frænka sér um heimilið á meðan. Villa og Anna Magga, vinkona hennar, bralla ým- islegt saman og ekki allt eftir vilja og óskum hinna fullorðnu. Strax í upphafi sögunnar er Villa í stórum vanda þar sem hún er föst uppi á húsþaki heima hjá sér. Hún kemst ekki niður því enginn er heima og hún þorir ekki að fara þá leið sem hún fór upp. Loksins þegar nágrannamir hafa uppgötvað hana, hímandi á þakinu í rigningunni, er henni bjargað af ------------------- slökkviliði borgar- innar. Nágrann- amir skjóta yflr hana skjólshúsi og þar eignast hún nýja vini þau, Ara og Skvísu tíkina hans. Villa lendir í ýmsum ævintýr- um með vinum sínum og fljótfærni hennar kemur henni sjálfri og fleir- um stundum í bobba. Höfundur á gott með að segja sögu og texti bókarinnar rennur létt og leikandi út í gegn. Léttleikinn er raunar helsta einkenni bókarinnar. Mikið er um kímni, og ævintýri Bókmenntir Oddný Árnadóttir Villu og prakkarastrik kalla stund- um fram bros á varir lesanda. En þessi áhersla höfundar á léttleikann veldur því að hún missir tök á dramatískum hluta sögunnar og ___________ stóra vandamálið hverfur bara eins og hendi væri veifað. Persónusköpun sögunnar ber öll ein- kenni afþreyingar- sagna. Aðeins yfir- borðið er kannað en aldrei kafað djúpt. Það kveður svo rammt að þessu að höfundur gleymir sér stundum og færir vit- undarmiðjuna frá söguhetjunni. „Hún virtist vera búin að gleyma ógöngunum sem var nýbúið að bjarga henni úr.“ Engin innri átök eiga sér stað þrátt fyrir alvarleg veikindi móðurinnar, sem hægt hefði verið að gera meiri mat úr. --------------- Sagan er greini- lega skrifuð sem afþreying krydduð siðaboðskap og sem slík stendur hún undir vænt- ingum. Hún er skemmtileg af- lestrar en skilur ekki mikið eftir hjá lesanda. Myndskreytingar Ólafs eru skýr- ar og einfaldar og koma alveg á rétt- um stöðum. Helga Möller Við enda regnbogans Ólafur Pétursson myndskreytir Fróði hf 1999 LAU 0 5 0 0 0 m Traðarkot Hverfisgötu 20, gegnt Þjóðleikhúsinu Bílastæðasjóður Vesturiand: Hljómsýn, Akranesi. Kf. Borgfirðinga, Borgarnesi. Blómsturvellir, Hellissandi. Guðni Hallgrímsson, Gmndarfirði. Ásubúð, Búðardal. VestflrAln Geirseyrarbúðin, Patreksfirði. Pokahomið, Tálknafirði. Straumur, (safirði. Rafverk, Bolungarvtk. Norðuriand: Kf. Steinqrímsfjarðai; Hólmavík. Kf. V-Hún., a, Sportmyndir, Blönduósl. Skagfirðingabúð, Sauöárkróki. Elektro co. ehf., Dalvfk. Radionaust, Akureyri. Nýja Filmuhúsið, Akureyri. öryggi, Húsavík. Urð, lafirðinga, Vopnafirði. Sveinn Guðmundsson, Egilsstöðum. Verslunin Vík, Neskaupstað. Kf. Stöðfirðinga. Kf. Fáskrúðsfirðinga, Faskrúðsfirði. KASK Djúpavogi. kur, Vík. Mosfell, Hellu. Arvirkinn, Selfossl. Rás, Þorlákshöfn. Geisli, Vestmannaeyjum. Foto, Vestmannaeyjum. Brimnes, Vestmannaeyjum. Reykjanes: Ljósbogii Jólapakkaleikur Fyrsta spurning af sex. Nefndu tvö vörumerki sem Bræðurnir Ormsson selja? A. AEG og Nikon. B. Pioneer og Olympus. C. Sharp og Nintendo. Svörin og svarseðiilinn er að finna i Jólablaði heimiiisins, útgefið af Bræðrunum Ormsson sem dreift var með DV síðastliðinn fimmtudag. Þegar þú hefur svarað öllum spurningunum skaltu klippa svarseðilinn út, fylla hann út og senda hann eða koma með til okkar i Lágmúla 8 eða til umboðsmanna um land allt. Skilafrestur rennur út á hádegi á aðfangadag jóla. Þrjátíu glæsilegir vinningar! 1. Pioneer hljómtækjasamstæða NS9 69.900 kr. Z. AEG þvottavél VV 1030 59.900 kr. 3. Olympus C-830 stafræn myndauél 49.900 kr. 4. AEG uppþuottavél 6280 59.900 kr. 5. SHARP helmaþiósamstæða 671 39.900 kr. 6. Pioneer DVD-spilari 525 39.900 kr. 7. Bosch hleösluborvél 14.900 kr. 8. Nikon myndavél Zoom 400 18.400 kr. iíjjg 9. AEG Vantpyrino ryksuga 9.900 kr. 10.-14. Nintendo 64 leikjatölva 8.900 kr. 1 S3®' 5.-19. Game Boy Color leikjatölva 6.900 kr. 20.-30. Nintendo Mini Classic leikir 990 kr. Vertu með í jólapakkaleiknum, ~ heildarverðmæti w vinninga er um 500.000 kr. vohtiiii'lal dg þjÐHUs] Vampyrlno ryksuga 1.300 W Lengjanlegt sogrör Fimmfalt filterakerfi Þrir fylgihlufjrt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.