Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1999, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1999, Blaðsíða 28
40 FÖSTUDAGUR 10. DESEMBER 1999 Gefum okkur Öllum betri framtíð m w Ert þú aflögufær? Sviðsljós Þurfti dáleiðslu til að geta sungið Geri Halliwell var lengi döpur eft- ir viöskilnaðinn við Kryddpiumar. En eins og margir aðrir meðal þotu- liðsins hresstist hún við meðferð hjá hinum fræga dávaldi Paul Mc- Kenna. Geri var í svokallaðri sjálfs- traustsmeðferð hjá McKenna áður en hún gaf út fyrstu sólóskífuna sína. Samkvæmt frásögn breska blaðsins Sunday Times var Geri alveg að fara á taugum við tilhugs- unina um að koma fram eftir við- skilnaðinn við hinar Kryddpíumar. Orðrómur er á kreiki um aö Mc- Kenna hafi sagt eftirfarandi við Geri: „Þú getur sungið, þú getur sungiö, þú getur sungið." En vinir Geri Halliwells segja þetta ekki rétt eftir haft. Að sögn vinanna lét McKenna Geri slappa af á stómm sófa áður en hann sagöi: „Þegar þú vaknar úr þessari dáleiðslu veröur þú hress og fuil hvatningar. Hvatningin verður sterkari og sterkari þar til þú hefur öðlast alit það sjálfstraust sem þú þarft til að ná markmiðum þínum.“ Sunday Times hefur þetta eftir vini Geri sem jafnframt fullyrðir að hún hafi vaknað úr dáleiðslunni full af lífsgleði og sjáifstrausti. Geri er sögð leita enn til dávalds- ins áður en hún kemur fram við stór tækifæri. Og ekki ber á öðru en að meðferð McKenna hafi borið ár- angur. Þegar MTV-tónlistar- verðlaunin vom afhent vsu- Geri Halliwell í gamla góða Kryddpíu- stuðinu. Ísíðasta mánuði sigraði hún Emmu Bunton í keppninni um efsta sætið á listanum yfir vinsæl- ustu smáskífumar i Bretlandi. Reyndar segja illar tungur að Geri hafi reynt að vekja á sér at- hygli með því að vera í sambandi við plötusnúðinn Chris Evans um skeið. Hann hafi einnig þurft á athygli að halda vegna minnkandi vinsælda. Sambandið hafi því verið beggja hagur. BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVÍK • SlMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219 Auglýsing um breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík Einarsnes 60-64A í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með auglýst til kynningar tillaga að breyttu deiliskipulagi við Einarsnes hvað varðar lóðirnar nr. 60, 60A, 62, 62A, 64 og 64A við Einarsnes. Lóðir 60A og 62A sameinast, lóð 64 skiptist og aðkomuleiðir breytast. Tillagan liggur framm í sal Borgarskipulags- og Byggingarfulltrúa, Borgartúni 3,1. hæð, virka daga kl. 10:00 - 16:00 frá 10 des. 1999 til 14. janúar 2000. Ábendingum og athugasemdum skal skila skriflega til Borgarskipulags eigi síðar en 28. janúar 2000. Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna innan tilskilins frests, teljast samþykkja hana. kr. 65.900,- TILB0Ð Hvíldarstdll íirtaui kr. 39.900,- Sí>umúla 28 - 108 Reykjavík - Simi 568 0606 Jennifer Lopez tók sig vel út þegar hún söng á Billboard-tónlistarverölauna- hátiöinni í Las Vegas í vikunni. Símamynd Reuter Brooke eins og kakkalakki Leikkonan Brooke Shields verð- ur ef til vill bráðum að hætta að leika í sjónvarpsmyndaflokknum um Susan. Hvað eftir annað hefur þurft að breyta útsendingartíma þáttanna sem voru ákaflega vinsæl- ir þegar þeir hófu göngu sína fyrir þremur árum. Að undanfómu hefur hins vegar áhorfendum fækkað og eftir könnun á áhorfi í haust lét sjónvarpsstöðin NBC þáttaröðina hvíla sig. Tökur eru hafnar að nýju en þeim lýkur i mars og eftir það er allt óráðið. „Ég er eins og kakkalakki. Það er ekki hægt að losna við mig. Enn hefur enginn sagt okkur að hætta,“ segir Shields. Hún kveðst ekki hafa áhyggjur af atvinnuleysi. Hún þurfi ekki lengur að vera áhyggjufuÚ. Madonna mjög vonsvikin Söngkonan Madonna hafði hlakkað til að leika á sviði í London. Hún hafði þegið hlutverk í leikriti Douglas Carters Beanes en nú hefur hann hætt við. Um var að ræða satíru og og átti Madonna að leika fina konu frá New York í leiknum. Söngkonan, sem er búin að kaupa sér hús í London, hafði vonast til að slá í gegn eins og kvikmyndaleikkon- an Nicole Kidman gerði i fyrra í The Blue Room. Að sögn framleið- andans Ripley-Duggans er Madonna vonsvikin mjög. Uppskrift Sophiu aðhamingju Leikkonan Sophia Loren, sem hefur skrifað tvær matreiðslu- bækur, veit hver uppskriftin er að fjölskylduhamingju. „Að sitja saman viö matarborðið, að hlæja saman og gráta saman. Það er þáttur í ástinni að elda mat,“ seg- ir Sophia. Hún er þeirrar skoðun- ar að foreldrar eigi að fylgjast bet- ur með bömunum og þá einnig matarvenjum þeirra. Sophia var á dögunum í Mílanó að kynna nýju bókina sína með ítölskum upp- skriftum. Var nær dáin af stórum skammti Síðastliðið sumar tók Liza Minnelli of stóran skammt af fikniefhum og var nær dáin. Hún fannst meðvitundarlaus í eigin ælu og var strax send í meðferð. Stuttu áður höfðu birst myndir af söngkonunni, sem er orðin 54 ára, og á þeim sást að hún hafði fitnað talsvert og elst. Það kom því Bandaríkjamönnum á óvart á dög- unum að sjá Lizu í góðu formi á sýningunni Minnelli on Minnelli á Broadway í New York. Á sýning- unni, sem er hylling til föður Minnelli, leikstjórans Vincents, hæðist söngkonan að sjálfri sér og fikniefnamisnotkun sinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.