Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1999, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1999, Síða 11
FÖSTUDAGUR 10. DESEMBER 1999 11 Utlönd Flugmaöurinn tilkynnti vandræöi meö áttavitann: Átta fórust með Pipervél I Svíþjóð dv Stuttar fcéttir Óttast valdarán Yfirmenn hersins í Paragvæ skip- uðu i gær öllum hermönnum að halda kyrru fyrir í herstöðvum í kjölfar ffegna um að herforinginn Lino Oviedo hefði snúið aftur til landsins. Óttast yflrmenn hersins að Oviedo reyni valdarán. Bush sigurviss George W. Bush, ríkisstjóri í Texas og væntanlegt forsetaefni repúblikana í Bandaríkjunum á næsta ári, sagði i gær að góður rík- isstjóri myndi ávailt hafa betur en góður öldunga- deildarþingmaður. Þar vísar hann til helsta keppinaut- ar síns um útnefninguna, Johns McCains frá Arizona, sem hefur sótt mjög að honum að undanförnu. Læknar í gíslingu Tveir félagar í samtökunum Læknar án landamæra eru gíslar uppreisnarmanna i Sierra Leono. Læknarnir eru í reglulegu sam- bandi við svæðisskrifstofu sína. Ný rannsókn Saksóknari í Paris samþykkti í gær nýja rannsókn á meintri spill- ingu Dominiques Strauss-Kahn, fyrrverandi fjármálaráðherra Frakklands. Nýja rannsóknin bein- ist að skjölum sem hann afhenti yf- irvöldum vegna fyrri rannsóknar. Strauss-Kahn var sakaðtn- um að hafa þegið greiðslu frá tryggingafé- lagi námsmanna fyrir störf sem hann innti ekki af henti. Herþyrlu saknað Bandarískrar herþyrlu með 18 manns var í gær saknað. Talið er að hún hafi hrapað í Kyrrahaf undan strönd San Diego. Handtökur í Key West Lögreglan í Key West í Flórída hefur handtekið yfir 50 manns vegna fíkniefnasölu og smygls. Hald var lagt á skotvopn, reiðufé og fikni- efni. Foreldrum stefnt Saksóknari í Michigan í Banda- ríkjunum hefur stefnt 30 foreldrum vegna skróps bama þeirra frá skóla. Skólayfirvöld höfðu kallað foreldr- ana á sinn fund en þeir mættu ekki. Komi foreldrarnir ekki fyrir rétt eiga þeir á hættu að verða hand- teknir. Um er að ræða foreldra barna sem skrópað hafa að minnsta kosti 119 af 180 skóladögum í fyrra. Dalai Lama hrósar Nyrup Fulltrúi Dalai Lama í Evrópu, Migyur Doijee, hrósar Poul Nyrup Rasmussen, for- sætisráðherra Danmerkur, fyrir að hunsa Kína og samþykkja fúnd með tíbeska leið- toganum. Segir fúlltrúinn ákvörð- un Nyrups ljós í myrkrinu fyrir Tí- betbúa. Brovina í fangelsi Dómstólll í Nis í Serbíu dæmdi í gær kósovo-albanska mannréttinda- frömuðinn, lækninn og Ijóöskáldið Flora Brovina í tólf ára fangelsi fyrir hryðjuverkastarfsemi. Brovina var sökuð um að hafa starfað með sam- tökum sem ætluð að fremja hryðju- verk i sjálfstæðisbaráttu Kosovo. Flugvöllur opinn á ný Flugvöllurinn í Podgorica, höfuð- borg Svartfjallalands, hefur verið opnaður á ný og er aftur undir stjóm þarlendra. Júgóslavneskir hermenn lokuðu vellinum í nokkr- ar klukkustundir í gær og þykir það sýna stirð samskipti Svartfellinga viö Serba sem mynda með þeim sambandsríki Júgóslavíu. Blair í buffinu Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, mun taka kjötstríðið við Frakkland upp á leiðtogafundi Evr- ópusambandsins sem er að hefjast í helsinki. Frakkar neita enn að flytja inn ensk nautakjöt. Átta manns létu lífið þegar tveggja hreyfla Piper PA31 flugvél hrapaði stuttu eftir flugtak vun há- degi í gær utan við Sundsvall í Svi- þjóð. Vélin var á leið til Gautaborg- ar. Um borð í vélinni var flugmaður og sjö farþegar, starfsmenn fyrir- tækisins Markpoints. Að sögn tals- manns sænsku flugmnferðarstjóm- arinnar hafði flugmaðurinn til- kynnt um vandræði með áttavitann rétt áður en vélin fórst. „Vélin fór 1 loftið 2 mínútum yfir klukkan ellefu og átta mínútum sið- ar var tilkynnt að eitthvað væri að Bandaríska alríkislögreglan FBI fordæmdi í gær njósnir Rússa í Bandaríkjunum eftir að rússneskur stjórnarerindreki var staðinn að njósnum. Diplómatinn hafði komið fýrir hlerunarbúnaði í fundarher- bergi í bandaríska utanríkisráðu- neytinu þar sem fundir háttsettra embættismanna eru haldnir. Ekki er ljóst hvort einhverjir viðkvæmir fundir hafi verið hleraðir. Rússan- um var vísað úr landi og fær hann tíu daga til að hafa sig á brott. Stjómvöld í Washington sögðu það ekki breyta því að þau vildu viðhalda góðum samskiptum við stjómarherrana í Moskvu. „Stefna okkar í garð Rússa hefur áttavitanum. Síðan hvarf vélin af radarskjám," greindi Lars Rohme frá. Flak vélarinnar, sem var í eigu Twin Air flugfélagsins, fannst í skóglendi í um 10 kílómetra fjar- lægð frá flugvellinum í Sundsvall. Vegna skóglendis, snjókomu og myrkurs gekk björgunarmönnum illa í gær við störf sin á slysstaðn- um. Ekki var heldur hægt að aka á bílum alla leið að slysstaðnum vegna þess hversu hæðótt er á þess- um slóðum. Að sögn sænsku flugumferðar- ekkert breyst,“ sagði Mike Hammer, talsmaður öryggisráðs Hvita hússins. „Hagsmunir okkar fara víða saman og við ætlum að halda áfram að sinna þeim.“ Neil Gallagher, aðstoðarforstjóri þjóðaröryggisdeildar FBI, sagði at- vik þetta sýna að Rússar héldu uppi miklum njósnum í Bandaríkjunum. Bandarískir embættismenn neit- uðu að handtaka Rússans á mið- vikudag væri svar við brottrekstri bandarísks stjómarerindreka frá Moskvu í síðustu viku. Sá var grip- inn glóðvolgur við njósnir. Gallagher sagði að bandarískir gagnnjósnarar hefðu veitt Rússan- um athygli þar sem hann var á stjómarinnar hafði Twin Air ekki leyfi til þess að fljúga í atvinnu- skyni. Samt sem áður flugu starfs- menn Markpoints oft með flugfélag- inu. Flugmaður Piper-vélarinnar starfaði sem ráðgjafi hjá Markpoint. Hafi flugfélagið fengiö greitt fyrir að fljúga með starfsmennina er um svarta peninga að ræða. Þá kann að vera erfitt fyrir ættingja hinna látnu að krefjast bóta, aö því er sænska blaðið Aftonbladet heldur fram. Flugvöllurinn við Sundsvall var opnaður aftur síðdegis i gær. gangi við utanríkisráðuneytið í sumar. Farið var að fylgjast nánar með Rússanum. Hann mætti í hverri viku að utanríkisráðuneyt- inu og fór í gönguferðir um nálægar götur. Bandaríkjamennimir álykt- uðu að maðurinn væri að njósna og við leit í utanríkisráðuneytinu fannst senditæki fyrir nokkrum mánuðum. Rússinn var svo handtekinn á miðvikudag þegar hann var að stilla móttökutæki sín. Senditækið sem notað var við njósnirnar var afar fullkomið. Það var virkt þegar Rúss- inn var gómaður. Bandarískir embættismenn segj- ast ekki hissa á njósnunum. Prestur ákærður fyrir áreitni við dætur sínar Prestur í litlu samfélagi í suðvesturhluta Noregs var í gær ákærður fyrir grófa kynferðislega áreitni gegn þremur dætrum sínum. Saksóknarinn í Haakon Meyer fullyrti að presturinn ætti yfir höfði sér 21 árs fangelsi. Presturinn var settur í gæsluvarðhald fyrir rúmu ári en honum var sleppt átta vikum seinna. Presturinn vísar sakargiftum á bug. f blaðaviðtali kveðst hann feginn réttarhöldunum sem fram undan em. Presturinn kveðst ekki vera hræddur vegna ákærunnar. Presturinn fullyrðir að hann geti sannað að allar þrjár dætur hans séu hreinar meyjar. Þar með geti hann hrakið upplýsingar saksóknarans um að hann hafi haft samfarir við eina dætra sinna. UPPBOÐ Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á skrifstofu embættisins að Skógarhlíð 6, Reykjavík, sem hér segir: Dagur II, skipaskráningamúmer 2128, prammi 740,88 brt. og bor, skráningamr. RB-0002, þingl. eig. íslandsbanki hf., höfúðst. 500, og tal. eigandi Magnús Th. S. Blöndahl ehf., gerðarbeiðendur Islands- banki hf., höfúðst. 500, og Sjóvá-Al- mennar tryggmgar hf., þriðjudaginn 14. desember 1999 kl. 11.00. SÝSLUMAÐURINN f REYKJAVÍK UPPBOÐ Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálf- um sem hér segir: Hellusund 6a, Reykjavík, þingl. eig. Vil- hjálmur Knudsen, gerðarbeiðendur fjár- málaráðuneyti, Ríkisútvarpið og Toll- stjóraskrifstofa, þriðjudaginn 14. desem- ber 1999, kl. 13.30. Hverfisgata 108, 3ja herb. íbúð á 2. hæð, eystri íbúð í N-hlið, merkt 0203, Reykja- vík, þingl. eig. Auður Þorkelsdóttir, gað- artieiðandi Borgarbyggð, þriðjudaginn 14. desember 1999, kl. 14.00. SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK UPPBOÐ Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Skógarhlíð 6, Reykjavík, sem hér segir á eftir- farandi eignum: Beykihlíð 21, efri hæð, rishæð og bílskúr, Reykjavík, þingl. eig. Bjami Ingólfsson, gerðarbeiðandi Sparisjóður Hafnarfjarðar, þriðjudaginn 14. desember 1999, kl. 10.00.__________________________ Drápuhlíð 20, 2ja herb. kjallaraíbúð, Reykjavík, þingl. eig. Benedikt Guð- mundsson og Ingibjörg Sigurðardóttir, gerðarbeiðandi Tryggingamiðstöðin hf., þriðjudaginn 14. desember 1999, kl. 10.00.__________________________ Grettisgata 64, 37,2 fm íbúð á 1. hæð ásamt geymslu 0003 m.m., 100,2 fm verslun á 1. hæð, geymslur 0002,0005 og 0006 m.m., 36,6 fm verslunarrými á 1. hæð, skúr 0104 og geymsla 0004 m.m., Reykjavík, þingl eig. Ernar Guð- jónss./Guðm. Már Ást ehf., getðarbeiðend- ur Sparisjóður Rvíkur og nágrennis, útibú, og Tollstjóraembættið, þriðjudaginn 14. desember 1999, kl. 10.00. Hraunbær 68, 3. hæð t.v„ Reykjavík, þingl. eig. Gunnar Sternn Þórsson og Guðbjörg Kristín Pálsdóttir, gerðarbeið- endur Glitnir hf. og Tollstjóraskrifstofa, þriðjudaginn 14. desember 1999, kl. 10.00.__________________________ SÝSLUMAÐURINN f REYKJAVÍK Karl Bretaprins er ekki árennilegur með þessi furöulegu gleraugu á nefinu. Gleraugun gera prinsinum, og öðrum sem þau setja á sig, kleift að sjá formgerð sameinda á tölvuskjá. Prinsinn fékk að viröa þetta fyrir sér í rannsóknar- miðstöð 1 miðborg London þar sem hann tók formlega í notkun nýja rannsóknarstofu fyrir krabbamein. Rússi staöinn aö njósnum hjá Albright: Hlerunartæki komið fyrir í fundarherbergi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.