Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1999, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1999, Page 16
16 FÖSTUDAGUR 10. DESEMBER 1999 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjómarformaöur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ÓU BJÖRN KÁRASON Aðstoðarritstjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON Ritstjóm, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI11, 105 RVÍK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimaslða: http://www.skyrr.is/dv/ Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjðlmiðlunar: http://www.visir.is Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerö: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1950 kr. m. vsk. Lausasöluverð 180 kr. m. vsk., Helgarblaö 250 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fýrir myndbirtingar af þeim. Alvarlegur lóðaskortur Þaö er tilfinnanlegur skortur á byggingarlóðum á höf- uöborgarsvæðinu. Ástandið er misjafnt eftir sveitarfélög- um á svæðinu en alvarlegasti skorturinn er í langstærsta sveitarfélaginu, Reykjavík. Fólksíjölgun á landinu á sér einkum stað á höfuðborgarsvæðinu. Hvort sem mönnum líkar það betur eða verr hefur straumur fólks legið til þessa hluta landsins. Við því verður að bregðast af meiri einurð og með samhæfðari hætti en gert hefur verið. Undanfarin ár hefur Kópavogur tekið við stórum hluta íbúafjölgunarinnar á höfuðborgarsvæðinu. íbúum bæjar- ins hefur flölgað um mörg þúsund á stuttum tíma. Þar var enda boðið upp á kjörlendi, byggingarsvæði á miðju höfuðborgarsvæðinu. í Kópavogi hafa þannig byggst á skömmum tíma Kópavogs- og Leirdalur þar sem risið hafa Smára- og Lindahverfi og nú síðast Salahverfi. Nú er svo komið að úhlutun og uppbygging Salahverfis er langt komin og byggð Kópavogs því að færast að Vatns- enda. Þau hverfi sem þama hafa risið eru sitt hvorum megin við stóran verslunar- og þjónustukjarna sem er að rísa miUi Smára- og Lindahverfanna. Hafnarfjörður býður fljótlega á næsta ári 175 lóðir fyr- ir einbýlis-, par- og raðhús. Þar er um að ræða annan áfanga í Áslandi. Búist er við mikilli ásókn í lóðirnar en í fyrstu úthlutun sóttu helmingi fleiri um einbýlishúsa- lóðir en fengu. í Mosfellsbæ er þess að vænta að byggð rísi í Blikastaðalandi á næstu árum, á mjög góðum stað milli Reykjavíkur og núverandi byggðar Mosfellsbæjar. í Garðabæ er þess og beðið að land byggist á Amames- landi, í suður frá Kópavogi. Þörfin er, eins og gefúr að skilja, langmest í Reykjavík. Hún sést best á þeim tilboðum sem bámst í byggingar- rétt á lóðum í nýju íbúðahverfi í Grafarholti. Samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg bámst 475 umsóknir um 21 einbýlishúsalóð sem úthlutað var. Þá bámst 533 tilboð í byggingarrétt 111 íbúða í fjölbýlishúsum, 32 íbúða í raðhúsum, 12 íbúða í keðjuhúsum og 28 íbúða í tvíbýlishúsum. Ástandið í Reykjavík sýnir augljóslega að borgaryfir- völd hafa farið sér of hægt í skipulagningu nýrra bygg- ingarsvæða. Umsóknimar sýna lóðaskortinn. Fyrir utan venjubundna fólksfölgun á svæðinu hefur fólksstraumur af landsbyggðinni verið stöðugur. Svo er að sjá að borg- aryffrvöld hafi treyst á að nágrannasveitarfélög, einkum Kópavogur, tækju við stórum hluta fiölgunarinar. Nú, þegar ný Kópavogsbyggð tekur að færast fjær ströndinni, eykst þrýstingurinn á Reykjavík. Þéttbýlið byggist með fram ströndinni. Þar eiga Mos- fellsbær og einkum Reykjavík möguleika í norður. Byggð mun síðan augljóslega þróast með fram ströndinni sunn- an Hafnarfjarðar. íbúar sem nú búa á höfuðborgarsvæð- inu, eða þeir sem þangað vilja flytjast, gera þær sjálf- sögðu kröfúr til sveitarfélaganna að séð verði fyrir nægu framboði byggingarlands. Þar reynir mest á Reykjavík sem, í krafti stærðar, ber höfuð og herðar yffr önnur sveitarfélög. Um leið verða þessi samgrónu sveitarfélög að sam- ræma gerðir sínar betur. Þegar er talsverð samvinna í samgöngu- og skipulagsmálum en fráleitt næg. Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, lýsir lóðaskortinum í borginni sem neyð. Sé framboðið nægilegt þurfa einstaklingar og fyrirtæki ekki að slást um lóðirnar á þreföldu lágmarksverði útboðs, líkt og gerðist í Grafarholtinu. Jónas Haraldsson Þegar þeir dagar eru taldir sem hagfræðileg og efnahagsleg rök ráða i einu og öllu hvað tekur þá við? Það er ekki erfitt að svara þessu með það sem á undan er skrifað í huga (sjá fyrri grein). Tuttugasta og fyrsta öldin verður ár umhverfisins. Hvort sem við viljum eða ekki. Raunsæismaöur morgundagsins verður tilneyddur að réttlæta gerðir sínar með tillti til umhverfisvemdar og sjáifbærr- ar þróunar. Vandamálin á nýrri öld „Árhundrað umhverfisins". Hljómar kannski í fyrstu eins og Víða um heim sýnir fólk álit sitt á hinum ýmsu málefnunum, til dæmis hagkerfi og vistkerfi heimsins. Hér mótmæla Bandaríkjamenn í Seattle á dögunum. A markaöstorg- um viöskiptanna Kjallarínn Hafdís Björg Hjálmarsdóttir umhverfishagfræöingur göngu að setja lög og reglugerðir um t.d. los- un spilliefna og leyfi- legt magn af útstreymi loftmengunar. Nei, við komum til með að átta okkur á því að það er þörf á róttækum breytingum í hugsunar- hætti og starfsháttum. Við þurfum að læra að bera virðingu fyrir náttúrunni og ekki gleyma því að þrátt fyr- ir alla tækni nútímans er öll næring sprottin úr mold jarðar og heimt úr hafdjúpunum. Öll hráefni til bygginga og framleiðslu eru numin úr jörðu. Orkan „Hungur er sem sagt merki þess aö hafa engan kaupmátt, eins og þaö heitir á viöskiptamáli en ekki endilega merki þess aö þaö skorti matvæli. Og hagkerfí heimsins í daggerir ekki ráö fyr- ir miklum kaupmætti hjá þeim milijónum sem svelta.“ fallegt fyrirheit eða loforð. Meint er þó allt annað og það er nefnilega grimmi- legur veruleikinn sem óhjákvæmilega hefur áhrif á líf okkar og menningu ef rányrkjunni á auðæfum jarðar verður haldið áfram. Og þar sem breytingar á þróun taka sinn tíma og eru yfirleitt þungar í vöfum er ekki ósennilegt að óbreytt ástand hald- ist næstu einn til tvo áratugi. Þess vegna einkennist byrjun tuttugustu og fyrstu aldar af vandamálum sem tengjast ofnotkun náttúruauðlinda, spillingu gæða jarðar og eyðilegg- ingu náttúru af mannavöldum. Við komum til með að gera okkur grein fyrir því að við erum í þann mund að kippa grund- vellinum undan velferö okkar, jafnvel tilveru, ef ekki verður far- ið að með gát og breyting verður á. Þetta hefur í för með sér að öll pólitísk svið í þjóðfélaginu, t.d.ut- anrikispólitík, þróunar- og rann- sóknarsvið og öll tæknivæðing veröa að taka tillit til umhverfis- ins og þeirra vandamála þar að lútandi sem við eigum við að etja. Þetta hefur áhrif á menntun, rétt- arfar, jafnvel trúmál, hagfræði- kerfi þjóöa (já, líka hagfræðina) og menningu. Þessi breyting frá ár- hundraði hagfræðinnar inn í ár- hundrað umhverfisins verður ekki alltaf auðveld en hún er óum- flýjanleg. Allt kemur frá Móöur Jörö Við náum ekki fram nauðsyn- legum breytingum með þvi ein- sem við notum svo ríflega af er einnig numin úr jörðu eða unnin á annan hátt með því að beisla orku vatnsfalla, jarðhita eða sólar. Nátt- úruauðlindimar eru ekki óendan- legar og tilheyra engri einni kyn- slóð. Það þurfa allir að gera sér ljóst. Við höfum aðeins afnot af þeim og okkur ber að skila þeim í eins góðu ástandi ef ekki betra til næstu kynslóðar. Á markaðstorgum viðskiptanna skiptir aöeins þaö máli sem mögu- legir kaupendur og seljendur hafa áhuga á. í heiminum í dag, þar sem milljónir manna, kvenna og bama svelta, er einn sekkur af hirsi eða hrísgrjónum minna virði heldrn- en ein lítil dós af kavíar. Sá sem þénar vel hefur frekar áhuga á kavíar heldur en hirsi eða hris- grjónum. Sá sem ekki einu sinni getur borgað sekk af hrísgrjónum, hann sveltur. Hungur er sem sagt merki þess að hafa engan kaupmátt, eins og það heitir á viðskiptamáli en ekki endilega merki þess að það skorti matvæli. Og hagkerfi heimsins í dag gerir ekki ráð fyrir miklum kaupmætti hjá þeim milljónum sem svelta. Það má líkja stöðu náttúrunnar við stöðu fátækling- anna. Markaðsöflin gefa náttúr- unni ekkert verð. Hún kostar ekk- ert! Þegar veriö er að fella einn ferkilómetra af skógi í Brasilíu (hér eru þaö enn og aftur skamm- tíma gróðasjónarmið sem ráða ríkjum) þá getur vel verið að sjald- gæfri fiðrildistegund eða plöntu- tegund verði útrýmt. Mjög frægt og sjaldgæft frímerki (bláa Mauritius) kostar jafnvel margar milljónir á frjálsum mark- aði. Fiðrildistegund hefur aftur á móti ekkert markaðsverð. Mjög falleg fiðrildistegund (Osterluzeifalter) er útdauð í Þýskalandi. Líklega hefur enginn íjaOað um það að ráði á sínum tíma, hvorki á viðskiptasíðum dagblaðanna né í nokkru vísinda- tímariti. Þegar eitt af þessum sjaldgæfu og fáséðu frímerkjum skiptir um eiganda ætlar allt um koll að keyra, slík eru blaðaskrif- in. Ætli það yrði ekki uppi fótur og fit ef eitt af þessum „verð- mætu“ sneplum yrði eldi að bráð? Útrýmd plöntu- og dýrategund kemur aldrei aftur en frímerki er hægt að prenta aftur!! Dagar hinna „einföldu" hag- fræðilegu gilda og markmiða eru taldir. Ég reikna ekki með því að allsráðandi áhrifa hagfræðilegs gildismats eins og við þekkjum það viða í dag komi til með að gæta langt fram eftir næstu öld. Því fyrr sem okkur verða þessar staðreyndir ljósar og því fyrr sem við tökumst á við vandann sem svo vissulega er óumflýjanlegur og snertir okkur öll þeim mun auð- veldari og greiðari verður leiðin inn í nýtt árhundrað, árhundrað umhverfisins. Hafdís Björg Hjálmarsdóttir Skoðanir annarra Sýndarmennska ríkisstjórnarinnar „Dæmalaus afgreiösla meirihluta iönaðamefndar á beiðni um að fulltrúar fyrirtækisins Norsk Hydro verði kallaðir á fund nefndarinnar hlýtur að vekja spumingar um hvort meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks á Alþingi hafi nokkum skilning á grundvallarreglum lýðræðisins. Afgreiðsla tillög- unnar afhjúpar enn á ný sýndarmennsku ríkis- stjómarinnar og þá dapurlegu staðreynd að aldrei stóö til að ræða um framkvæmdir við Fljótsdals- virkjun á málefnalegan hátt á Alþingi íslendinga." Þórunn Sveinbjarnardóttir, alþingiskona Samfylk- ingarinnar, í Morgunblaðinu i gær. Falsaður málflutningur „Dagskrárgerðar- og fréttamenn telja sig vera písl- arvotta þegar gerð er athugasemd við efnistök þeirra í viðkvæmum málum og telja sig verða fyrir aðkasti vegna þess að þeir þurfi að vera „boðberar illra tíð- inda“. Þeir koma málflutningi sínum hins vegar stundum á þann veg, viljandi eða óviljandi að hann verður hlutdrægur, ef ekki í máli þá myndum nema hvorutveggja sé. Oft hafa t.d. verið sýndar myndir af Hafrahvammagljúfri þegar verið er að fjalla um Eyjabakkana þó tugir kílómetra séu milli þessara svæða. Hafrahvammagljúfur munu ekki fara undir vatn þegar virkjað verður við Eyjabakka né þegar virkjað verður við Kárahnjúka, sama hversu oft því er haldið fram.“ Benedikt Vilhjálmsson rafeindavirkjameistari í Degi í gær. Pólitískur sýndarveruleikí „Ef Alþingi tæki þá ákvörðun að fara með Fljóts- dalsvirkjun í lögformlegt umhverfismat mundi auð- vitað gefast tækifæri til að kanna nánar allt það sem á skortir í skýrslu Landsvirkjunar. Því miður verð- ur það ekki gert. Stjómarmeirihlutinn er staöráðinn í að hleypa Landsvirkjun á Eyjabakka. Þess vegna var umhverfisnefnd Alþingis knúin til að afgreiða þetta viðamikla mál á örfáum dögum. Niöurstaða nefndarinnar skiptir heldur engu máli fyrir fram- haldið - er aðeins hluti af pólitískum sýndarveru- leika. Elias Snæland Jónsson, ritstjóri Dags, í leiðara í gær.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.