Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2000, Page 4
4
LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 2000 I !lV
fréttir
Réttarhöld í máli ákæruvaldsins gegn fatafellum og fyrrverandi Þórscafémönnum:
E-töflusendandi kemur
sem vitni frá Hollandi
Fjórir sakbomingar, þar af tvær
fatafellur, önnur hollensk en hin eist-
nesk, fyrrverandi framkvæmdastjóri
Þórscafés og fyrrverandi dyravörður
sama staðar hafa mætt fyrir fjölskip-
aðan þriggja manna dóm héraðsdóms
þar sem fólkið gerði grein fyrir af-
stöðu sinni til ákæru á hendur þeim
sem ríkissaksóknari hefur nýlega
gefíð út vegna máls sem varðar inn-
flutning á 976 e-töflum.
Hollenska fatafellan neitar sök að
hluta, fyrrverandi framkvæmdastjóri
neitar allri sök, dyravörðurinn fyrr-
verandi neitar sök að mestu leyti og
sömuleiðis eistneska konan sem er
tvítug og er í farbanni.
Sú hollenska í langri gæslu
Hollenska fatafellan, sem er 23
ára, mætti í fylgd fangavarða enda
hefur hún setið í gæsluvarðhaldi
frá því í sumar. Hún er ákærð fyr-
ir að hafa útvegaö töflurnar frá
Hollandi. Þær bárust hingað til
lands í pósti þann 7. júlí. Maður
sem sendi henni efnin mun koma
frá Hollandi og mæta fyrir dóminn
sem vitni í byrjun febrúar. Kon-
unni er gefið að sök að hafa sent
100 þúsund krónur í hollenskum
gyllinum til Hollands til kaupa á
flkniefnunum. Hún er jafnframt
ákærð fyrir að hafa látið senda
efnin á heimili feðga í Breiðholti -
á heimilisfang sem dyravörðurinn
átti að hafa látið henni í té.
Dyravörðurinn fyrrverandi,
sem sat í gæsluvarðhaldi vegna
málsins langt fram eftir hausti
áður en honum var sleppt, er
ákærður fyrir að hafa fengið ann-
an feðganna til að samþykkja að
pakkinn yrði sendur þangaö og
23 ára hollensk fatafella er borin
þyngstum sökum í málinu.
boðið greiðslu fyrir. Þá er hann
ákærður fyrir að hafa farið með
þeirri hollensku upp í Breiðholt til
að kynna henni aðstæður við
Níu milljarð-
ar I áfengi
Sala áfengis hjá ÁTVR jókst
um nær 8 prósent í fyrra mælt
í vínandamagni, að því er seg-
ir á Veigum.is. Sala léttvina
jókst mest, um rúm 17 pró-
sent, en sala bjórs jókst um
ríflega 11 prósent. Lítils háttar
aukning varö í sterkum
drykkjum en samdráttur i
sölu á millisterku áfengi nam
hins vegar tæpum 9 prósent-
um.
Salan í verslunum ÁTVR
var upp á 8,8 milljarða króna í
fyrra. Heildarsalan nam 11,6
milljón lítrum eða sem svarar
979 þúsund alkóhóllítrum.
Langmest sala var í Heiðrúnu
á Krókhálsi, 1,4 milljarðar
króna eða rúmlega 16 prósent
allrar sölu ÁTVR.
-GAR
Tvítugri eistneskri fatafellu er gefið að sök að hafa náð í e-töflurnar á heimili í Breiðholtinu og afhent þær hollensku
fatafeliunni. Hún ræðir hér við Ellen Ingvadóttur dómtúlk sem aðstoöar hana við aö skilja það sem fram fer í réttar-
höldunum. DV-myndir E.ÓI.
heimilið áður en pakkinn var af-
hentur.
Hollensku fatafellunni er síðan
gefið að sök að hafa farið ásamt
eistnesku fatafellunni á heimili
feðganna þar sem sú eistneska fór
inn, sótti pakkann sem innihélt e-
töflurnar og afhenti hann þeirri
hollensku.
Ég neita alfariö sakargiftum
Fyrrverandi framkvæmdastjóri
Þórscafés, sem var sleppt úr
gæsluvarðhaldi í sumar, eftir að
hafa verið sviptur frelsi I 22 daga,
neitar allri sök í málinu nú sem
fyrr. Fram að þessu var reyndar
ekki reiknað með að hann yrði
ákærður í málinu. Hann hefur
haldið því fram að hann hyggist
Óttar Sveinsson
fara í skaðabótamál við ríkið
vegna hins rúmlega þriggja vikna
gæsluvarðhalds i sumar. Ríkissák-
sóknari ákærir hann engu að síð-
ur fyrir að hafa átt frumkvæði að
því að hafa fengið hollensku fata-
felluna til að útvega fíkniefnin og
senda þau hingað.
„Ég neita alfarið sakargiftum í
ákærunni,“ sagði maðurinn sem
seldi rekstur Þórscafés eftir að
hann hafði setið í gæsluvarðhald-
inu.
Dyravörðurinn fyrrverandi neit-
ar að hafa boðið húsráðendum í
Breiðholti greiðslu og tók skýrt
fram að hann hefði ekki mátt vita
að umræddur pakki hefði inni-
haldið flkniefni. Hann neitar jafh-
framt að hafa ætlað að auðgast á
aðild sinni að málinu.
Aðalmeðferð í réttarhöldunum
hefst að morgni 1. febrúar. Þá
munu sakborningarnir fjórir
svara til saka. Túlkar aðstoða fata-
fellurnar við að skilja það sem
fram fer í réttarsalnum.
Páll Skúlason vegna Háskólans í Reykjavík:
Brot
„Ég harma sérstaklega að ekkert
samráð var haft við okkur hér í Há-
skólanum vegna þessarar nafngiftar
en við fréttum af henni fyrst í gær.
Það er sterkur hefðarréttur fyrir
nafni Háskólans og þetta er brot á
honum. Við munum leita réttar okkar
með öllum tiltækum ráðum,“ sagði
Páll Skúlason, rektor Háskóla íslands,
eftir að nýtt nafn Viðskiptaháskólans,
Háskólinn í Reykjavík, hafði verið af-
hjúpað í gær.
Háskólaráð var kallað saman til
skyndifundar vegna nafngiftarinnar
og þar var einróma samþykkt ályktun
þar sem henni er mótmælt harðlega.
Þar segir: „Háskóli íslands er staðsett-
ur í Reykjavik og hefur oft verið
nefndur „Háskóli íslands í Reykjavík"
eða einfaldlega „Háskólinn í Reykja-
vík“, m.a. til aðgreiningar frá Háskól-
anum á Akureyri. Erlendis hefur Há-
skóli íslands um áratugaskeið iðulega
verið kallaður „University in Reykja-
á hefðarrétti
Guðfinna S. Bjarnadóttir, rektor Við-
skiptaháskólans, afhjúpar hér hið
nýja nafn skólans, Háskólinn í
Reykjavík. Á fundi meö nemendum
skólans sagði Guðfinna að gamla
nafnið hefði ekki þótt lýsa starfsemi
hans nægilega vel. DV-mynd
vik“ eða „University of Reykjavik". Af
þessum ástæömn blasir við nafnarugl-
ingur sem mun valda misskilningi og
óhagræði og skaða Háskóla íslands og
Viðskiptaháskólann í Reykjavík hér-
lendis sem erlendis."
Skorar Háskóli Islands eindregið á
stjóm Viðskiptaháskólans í Reykjavík
að endurskoða þetta áform sitt og
velja nafn sem lýsir starfsemi skólans.
Páll sagðist hafa haft samband við
rektor Viðskiptaháskólans en það
hefði verið of seint. Þá hefði hann
rætt við menntamálaráðherra sem að
sögn Páls hafði áhyggjur af þessu
máli. Lögfræðingar Háskólans sátu á
fundi vegna málsins þegar blaðið fór 1
prentun. Stúdentaráð Háskólans og
Vaka, félag lýðræðislegra stúdenta,
tóku undir mótmæli rektors.
Stefán Ólafsson, forstöðumaður Fé-
lagsvísindastofnunar, sagði að ef þetta
hefði gerst i viðskiptum kæmi sterk-
lega til greina að tídka nýtt nafn Við-
skiptaháskólans sem yfirtöku á fyrir-
tækja- eða vörumerki.
-hlh
Fúll veðurfræðingur
Veðurfræðingurinn og umhverf-
issinninn Einar Sveinbjömsson
fór mikinn á vefsíðu sinni og SUF,
Maddömunni, á dögunum. Greini-
legt var að Einar var pirraður á
því að DV sagði fyrst
fjölmiðla frá því að
; flokksbróðir hans,
Finnur Ingólfs-
son, væri á leið í
Seðlabankann.
„...Gengu blaða-
mennimir EIR og
rt svo langt í
fréttaöflun sinni
að þeir röskuðu
I jólahaldi fjölmargra manna í
;stjómmálum... Þeim DV-mönnum
er ekkert heilagt..." .“ Vísaði veð-
urfræðingurinn þar til þess að
rætt var við nokkra einstaklinga
að kveldi annars í jólum af því
snautlega tilefni að varaformaöur
flokksins var að hætta og á hröð-
um flótta úr stjómmálum...
Allt er þá þrennt er
INú hefur Árvakur, útgáfufélag
Morgunblaðsins, tekið höndum
saman við Skjá einn og er þetta í
þriðja skiptið sem Árvakur gerir
tilraun td að hasla sér völl á sjón-
F varpsmarkaðinum.
Fram til þessa hafa
j tilraunirnar verið
árangurslausar og
kostnaðarsamar.
I Fyrst var það ís-
fihn ásamt fleir-
um, og það fyrir-
tæki rúllaði
glæsilega á haus-
inn án þess að
hafa nokkurn tíma komist á loft.
Önnur tilraunin var Stöð 3 og eftir
imikla þrautagöngu var Árvakri og
: öðrum hluthöfum bjargað inn í ís-
(lenska útvarpsfélagið. Nú er sem
isagt komið að Skjá einum...
'
Varnartilburðir
Þeir sem til þekkja eru ekki
sammála um ástæður þess að
: Morgunblaðið reynir enn á ný við
ljósvakana. Sumir benda á tilvist-
arkreppu en aðrir benda á að
þessi leikur Mogga-
manna sé aðeins
varnarleikur til að
koma í veg fyrir yf-
irtöku á Árvakri.
Ólafur Ragnars-
son, forstjóri
Vöku-Helgafells,
fór mikinn í fjöl-
miðlum fyrir
skömmu og tal-
aði digurbarkalega um sókn fyrir-
tækisins inn á íjölmiðlamarkað-
inn. Ekki var annað að skilja á
forstjóranum en að Árvakur yrði
tekinn yfir innan skamms og þá
kviknuðu viðvörunarbjöllur í
Moggahúsinu. Með því að þenja
jfyrirtækið út i ljósvaka er talið
auðveldara að verjast yfirtöku...
Umrót
Og enn um Sjónvarpið. Hreyf-
ingar hafa verið á fréttastofúnni.
Þröstur Helgason er farinn á
reykjavik.is, veffyrirtæki sonar
Jóns Ólafssonar, og Ámi Þórður
Jónsson til al-
mannatengslafyrir-
tækisins Athygli.
Þá mun Ólafur
Sigurðsson vera
að fara I þriggja
mánaða orlof. Og
ekki nóg með
það. Helgi E.
Helgason tók
við starfi þingfréttaritara
haust af Þresti en mun ekki hafa
fundið sig í því verkefni. Hann
mun hafa sagt sig frá verkinu og er
því enginn þingfréttamaður hjá
RÚV eins og er. En því verður
I áreiöanlega reddað áður en þingið
kemur saman í febrúar...
Umsjón: Haukur L. Hauksson
og Reynir Traustason
Netfang: sandkom @ff. is