Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2000, Síða 6
6
LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 2000
útlönd
stuttar fréttir
■
Nasisti áfram í steini
Jonni Hansen, leiðtoga
| danskra nasista, hefur verið gert
, að sitja tvær vikur til viðbótar í
I varðhaldi. Hann er ákærður fyr-
ir drápstilraun í kjölfar þess að
hann ók inn í mannþröng við
höfuðstöðvar nasista fyrir jól.
I
Úthverfarottan Clinton
Bill Clinton fékk að reyna í vik-
unni hvemig það er að vera út-
hverfabúi þegar
hann fór frá
nýju heimili
sínu skammt
frá New York
inn til stórborg-
arinnar, Veður
kom í veg fyrir
að hann gæti
tekið forsetaþyrluna svo hann
þurfti að fara í bíl, eins og svo
margir. Bíll forsetans þurfti þó
ekki að bíða á rauðu ljósi né
greiða vegartolla.
Innflytjendur fá meira
Framlag það sem innflytjendur
í Danmörku fá til að auðvelda
þeim aðlögunina að dönsku sam-
félagi hækkar um næstu mánaöa-
mót.
Báðar hendur græddar a
Stór fjölþjóðlegur hópur skurð-
lækna græddi tvær hendur og
neðri hluta framhandleggs á einn
og sama manninn á sjúkrahúsi í
Lyon í Frakklandi á fimmtudag.
Slíkt hafði ekki verið gert áður.
Síminn í lag
Viðgerð er svo gott sem lokið á
öllum símalínunum sem slitnuðu
í óveðrinu í Frakklandi í desem-
ber. Að sögn franska landsímans
kemst símasamband víðast hvar
aftur á um helgina.
Útsölurnar byrja
Vetrarútsölumar í Frakklandi
hefjast víðast hvar í dag, laugar-
dag. Er það aðeins seinna en
venjulega og gert til að skaða
| ekki jólaverslunina.
Vilja friðarstefnu
Frönsk stjómvöld hafa hvatt
til þess að leiðtogar ríkjanna í
kring um vötnin miklu í Afríku
komi saman til að ræða leiðir til
að binda enda á átök á svæðinu.
Bosníu-Króatar sekir
Stríðsglæpadómstóll Samein-
uðu þjóðanna vegna fyrrum
Júgóslavíu fann fimm Bosniu-
Króata seka um glæpi gegn
mannkyninu í gær. Mennirnir
voru ákærðir fyrir fjöldamorð í
þorpi í miðhluta Bosníu í apríl
1993. Einn maöur var sýknaður.
Afríka gegn alnæmi
Stjómvöld í Suður-Afríku
hvöttu öll Afríkulönd til að sam-
eina krafta sína í baráttunni
gegn alnæmi og sjá til þess að
baráttan gegn sjúkdóminum
verði áfram forgangsverkefni
meðal þjóöa heims.
Kohl kallaður fyrir
Helmut Kohl, fyrmm Þýska-
landskanslari, hefúr fengið form-
lega kvaðningu
fyrir þingnefnd
sem senn hefur
rannsókn á fjár-
málahneyksli
sem Kohl er við-
riðinn. Kanslar-
inn fyrrverandi
hefur viður-
kennt að hafa
þegið ólögmætar peningagjafir
fyrir flokk sinn og geymt á leyni-
reikningum. Rannsaka á hvort
Kohl hafi einhvem tíma selt
greiða á 16 ára valdaferli. Eftir-
maður Kohls i forystu flokksins er
líka í vondum málum.
Pabbi vill fá Elian
Faðir Elians Gonzales, litla
kúbverska drengsins sem var
bjargað úr sjávarháska, sagöi við
bandariska sjónvarpsstöð í gær
að hann vildi fá son sinn aftur
heim til Kúbu.
Spænski rannsóknardómarinn gefst ekki upp:
Vill Pinochet
í aðra skoðun
Spænski rannsóknardómarinn
Baltasar Garzon fór fram á það í
gær að læknar á hans vegum fengju
að skoða Augusto Pinochet, fyrrum
einræðisherra í Chile, áður en
bresk stjómvöld taka ákvörðun um
hvort hann verður látinn laus úr
stofufangelsi.
Garzon gagnrýndi harðlega um-
deilda ákvörðun Jacks Straws, inn-
anríkisráðherra Bretlands, um að
halda leyndri niðurstöðu rannsókn-
ar breskra lækna á Pinochet. Lækn-
amir úrskurðuðu að einræðisherr-
ann fyrrverandi væri of lasburða til
að koma fyrir rétt. Spænski dómar-
inn fór fram á það við spænsk
stjómvöld að þau sendu skriftega
beiðni hans til breska innanríkis-
ráðherrans.
Garzon sagði einnig að hann og
Spænski rannsóknardómarinn
Baltasar Garzon vill fá Pinochet.
hópur spænskra rannsóknarmanna
ættu að fá að ræða við Pinochet
augliti til auglitis. Framsalsbeiðni
Garzons varð til þess að Pinochet
var handtekinn í London í október
1998 og hefur hann verið í stofufang-
elsi þar síðan. Garzon vill rétta yfir
Pinochet fyrir glæpi sem hann
framdi í stjómartíð sinni á árunum
1973 til 1990.
Mannréttindasamtökin Amnesty
International, sem gagnrýndu Straw
harðlega fyrir leynimakkið með
læknaskýrsluna, lýstu yfír ánægju
sinni yfir að Garzon skyldi reyna að
fá Pinochet skoðaðan öðru sinni.
Jack Straw hefur gefið Spánverjum
og öðram frest til þriðjudags til að
mótmæla ákvörðun hans áður en
ákveðið verður hvort Pinochet verð-
ur leyft að fara frjáls ferða sinna.
Þessari litlu stúlku í Quito, höfuöborg Ekvadors, hefur sennilega fundist laganna veröir ógnarstórir þar sem þeir
gættu aðaltorgs borgarinnar í gær. Mikill viðbúnaöur er í Quito vegna fyrirhugaðra mótmælaaðgeröa þar í dag vegna
þeirrar ákvörðunar forsetans um daginn að tengja efnahagslíf landsins Bandaríkjadollar.
Rússar opna aftur landamæri Tsjetsjeníu:
Fara hús úr húsi í leit
að uppreisnarmönnum
Rússneskir hermenn fóm hús úr
húsi i Tsjetsjeníu í gær í leit að upp-
reisnarmönnum til að koma í veg
fyrir að þeir gætu truflað framsókn
rússneska hersins.
Svo virtist sem rússnesk stjóm-
völd hefðu afnumið bann við því að
karlar á aldrinum 10 til 60 ára úr
röðum flóttamanna fengju að fara
yfir landamæri Tsjetsjeníu inn í ná-
grannalýðveldið Ingúsjetiu. Flótta-
mannastofnun Sameinuðu þjóðanna
og yfirvöld í Ingúsjetiu höfðu mót-
mælt lokun landamæranna. Fréttir
af ástandi mála við landamærin
vom þó misvísandi í gærkvöld.
Innanríkisráðuneyti Rússlands
greindi frá því að áttatíu menn úr
sveitum þess hefðu fallið í átökum
Stúlka á leið aftur heim til Tsjetsjen-
íu kíkir út um rútuglugga.
við uppreisnarmenn frá nýársdegi.
Fréttir Interfax fréttastofunnar um
að 33 hermenn hefðu fallið á mið-
vikudag og fimmtudag vom bomar
til baka.
Fréttastofan RIA sagði í gær að
skilríki hundmða Tsjetsjena hefðu
verið skoðuð í rassíunni í gær og að
tugir hefðu verið handteknir.
Stjómvöld í Moskvu stefna að þvi
að ljúka hemaði sínum í Tsejtsjeníu
fyrir forsetakosningamar iRúss-
landi 26. mars. Stríðsreksturinn hef-
ur ekki haft áhrif á undirbúning
kosninganna. Búast má þó við því
að vinsældir Vladímírs Pútíns, for-
sætisráðherra og starfandi forseta,
muni dala til muna fari hemaður-
inn að ganga illa.
Cherie Blair er
miður sín vegna
óléttufyrirsagna
Cherie Blair, eiginkona Tonys
j Blairs, forsætisráðherra Bret-
| lands, lýsti í gær yfir vanþóknun á
| fréttum þess efnis að hún ætlaði að
láta taka bamið sem hún gengur
Ímeð með keisaraskurði.
Frjósemissérfræðingurinn Win-
ston lávarður,
góðvinur Blair-
Íhjónanna, virðist
hafa misst það út
úr sér í viðtali við
tímaritið New
Statesman. Hann
Ibar síðar til baka
að hann hefði
ljóstrað upp um
fyrirætlanir Cherie, enda hefði
hann enga vitneskju um fyrirætl-
anir hennar varðandi fæðinguna.
„Hún var mjög miður sín yflr
þessu og sagði að þetta væri al-
i ; rangt,“ sagði talsmaður Blairs.
Tímaritið stendur við fréttina
og blaðamaðurinn segist hafa upp-
;; töku af samtalinu við lávarðinn.
Cherie, sem er 45 ára, á von á sér
; í maí.
Enn jafnræði
með Halonen
og Esko Aho
Þau Tarja Halonen, utanríkis-
T ráðherra Finnlands, og Esko
s Aho, leiðtogi miðflokksins, njóta
| enn ámóta mikils fylgis fyrir fbr-
I setakosningamar á morgun.
Samkvæmt skoðanakönnun
sem birtist i gær ætluðu 38 pró-
I sent að greiða Halonen atkvæði
sitt, sex stigum meira en fyrir
- rúmri viku, en stuðningurinn við
Aho var áfram 37 prósent.
Ekki er búist við að neinn
frambjóðendanna fái meira en
fimmtíu prósent á spnnudag.
: Kjósa verður því öðru sinni milli
| þeirra tveggja efstu þann 6. febr-
úar. Ef þau Halonen og Aho etja
kappi þá mun Aho fara með sig-
ur af hólmi, fá 51 prósent at-
kvæða, að því er fram kom í
I könnuninni.
Kanar telja kon-
1 ur ekkl jafnhæf-
ar sem forseta
Flestir Bandaríkjamenn segj-
| ast taka vel í þá hugmynd að
Ekona gegni embætti forseta
landsins. Þeir eiga þó ekki von á
að greiða konu atkvæði sitt í for-
setakosningum á næstu 10 árum.
SÞetta kemur fram í könnun
sem kynnt var á fimmtudag.
Sextíu og þtjú prósent að-
spurðra telja að þau eigi ekki að
lifa þann dag að sjá konu í Hvita
húsinu. Þriðjungur telur konur,
r vegna eiginleika þeirra, aftur á
Imóti ekki jafnhæfar til að gegna
embættinu.
!! Liðlega helmingur aðspurðra
sagði aðspurður að karli mundi
vegna betur við að leiða landið í
gegn um erfiðleikatíma. Aðeins
tólf prósent töldu að kona myndi
standa sig betur.
Munir frátíma
víkinga á írlandi
Fomleifafræðingar á írlandi
vita ekki sitt rjúkandi ráð eftir
að fjöldi muna frá víkingatíman-
um fannst í helli í sunnanverðu
landinu. Meðal munanna sem
fundust eru peningar, stangir úr
bronsi og silfri og keilulaga hlut-
ir úr silfurvír.
„Ekkert þessu líkt hefur sést
nokkurs staðar. Þetta á engan
sinn líka,“ sagði Andrew Halpin
við írska þjóðminjasafnið.
„Við teljum að þetta geti verið
skraut á föt eða eitthvað til að
festa skikkjur en við erum ekki
vissir," sagði hann. Vitað er að
víkingar voru í hellinum.
Halpin sagði að munirnir
hefðu sennilega verið geymdir í
hellinum í neyðartilviki.