Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2000, Side 12
12
LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 2000 J3"V
%!önd______________________________________
^ Frá KGB til Kremlar:
Ovissa um stefnu
fyrrverandi njósnara
Við valdaránstilraun kommún-
ista í Sovétríkjunum í ágúst 1991
reis fyrrverandi njósnari upp gegn
fyrrverandi yfirmanni sínum. Vla-
dimir Pútín, ofursti í sovésku leyni-
þjónustunni, neitaði að hlýða yfir-
manni sínum hjá KGB til 15 ára,
Vladimir Krjutsjkov.
Krjutsjkov var heilinn á bak við
valdaránið sem hópur nánustu sam-
starfsmanna Michails Gorbatsjovs
framdi. Tilgangurinn var að bjarga
Sovétríkjunum frá upplausn og
koma á lögum og reglu eins og í
gamla daga þegar flokkurinn ákvað
allt frá litnum á salemispappír til
innihalds sjónvarpsfrétta.
Njósnari KGB
Pútín hafði nýlega snúið heim frá
margra ára dvöl i Austur-Þýska-
landi þar sem hann var njósnari
sovésku leyniþjónustunnar, KGB.
Þar hafði hann gegnt mikilvægu
hlutverki í síðustu stóru aðgerðum
KGB, reynt að komast yfir nýjungar
í vestrænni tækni og koma í veg
fyrir ósigur Sovétríkjanna í kalda
stríðinu.
Þegar Pútín kom frá A-Þýska-
landi gerðist hann ráðgjafi í utan-
ríkispólítik hjá fyrrverandi kennara
sínum í lagadeildinni í Leningrad-
háskólanum, Anatolí Sobtsjak, sem
var orðinn borgarstjóri St. Péturs-
borgar. Hann var ein af stjörnunum
í umbótastefnu Sovétrikjanna í lok
níunda áratugarins og upphafi þess
tíunda.
Sobtsjak barðist ásamt Borís
Jeltsín hart gegn valdaráninu sem
lauk með hmni kommúnismans og
Sovétríkjanna. Samkvæmt Sobtsjak
vék Pútín ekki frá hlið hans þessa
daga. Pútín notaði tengsl sín í KGB
til þess að miðla milli valdaráns-
mannanna í Moskvu og borgar-
stjómarinnar í St. Pétursborg. Það
hafði í fór með sér að herinn ók
ekki inn í bæinn og það kom heldur
ekki til neinna óeirða í St. Péturs-
borg eins og i Moskvu.
Sobtsjak sagði nýlega í viðtali við
bandaríska blaðið New York Times
að hann hefði ásamt Pútín verið
vitni að tveimur valdaránum, 1991
og 1993. Hann vissi því hvemig
Pútín hefði brugðist við.
Sterkt vald nauösynlegt
„Hann er hugrakkur maður sem
hægt er að treysta. Hann er með lýð-
ræðislegar hugmyndir um framtíð
landsins en hann skilur vel að land
ragnarök séu í nánd. Hann minnir á
að þjóðin þurfi að sýna einingu,
þjóðemiskennd og fórnfýsi. Á milli
jóla og nýárs sendi hann frá sér
hugleiðingu þar sem sagði að í
fyrsta sinn í 200 til 300 ár væri
hætta á að Rússar yrðu að annars
flokks eða þriðja flokks þjóð. Nauð-
syn væri að efla kraft þjóðarinnar á
öllum sviðum. Hann benti á að í
Rússlandi hefði sterkt ríki alltaf
verið trygging fyrir lögum og reglu
og orkulind allra breytinga.
Ráögjafi í glæpaborg
í málum sem ekki hljóma jafn-
kröftuglega, en sem skipta Rússa
jafnmiklu máli, fer Pútín varlegar í
sakirnar. Það á fyrst og fremst um
efnahagsmál. Hann talar með al-
mennum orðum um að efla útflutn-
ingsiðnaðinn og fjárfesta á heima-
markaði. Þeir sem vilja fá nánari
útskýringar hlusta enn árangurs-
laust.
Þegar Pútín haföi verið skipaður
forsætisráðherra í ágúst síðastliðn-
um spurði fréttamaður hann um
hæfni hans í efnahagsmálum. Pútín
svaraði móðgaður að hann hefði
borið ábyrgð á efnahagnum i einni
af stærstu borgum Evrópu. Hann
átti þá við ráðgjafastarf sitt hjá
Anatolí Sobtsjak sem þá var orðinn
borgarstjóri í St. Pétursborg. En
Sobtsjak var bolað frá vegna gruns
um spillingu og var um skeið land-
flótta. Reyndar er St. Pétursborg al-
ræmd, meira að segja í Rússlandi,
sem glæpaborg. Pútín hefur ekki
aftur heyrst vísa til þessa ráðgjafa-
starfs síns þegar hann hefur verið
spurður um efnahagsmál. Þar með
er þó ekki sagt að hann geti ékki
fengið til liðs viö sig góða efnahags-
ráðgjafa.
Reynir aö mýkja ímyndina
Enn sem komið er hafa dapurleg-
ar fréttir af vigvellinum í Tsjetsjen-
íu ekki dregið úr vinsældum Pútíns
sem reynt hefur að mýkja ímynd
sína að undanfómu. Hann hefur
greint frá því hversu hrærður hann
varð þegar Jeltsín hafði tekið
ákvörðun um að segja af sér. Pútín
hefur einnig lagt til að virðisauka-
skattur á matvælum verði lækkað-
ur og að húsdýr njóti aukinnar
vemdar.
Ekki er talið útilokað að kjósa
verði um Pútín og kommúnistaleið-
togann Gennadí Zjúgahov í annarri
umferð rússnesku kosninganna.
Þykir víst að þá fari Pútín með sig-
ur af hólmi hafi Tsjetsjeníustríðið
ekki fellt hann áður.
Byggt á Reuter, JyHands-Posten
og Dagens Nyheter.
Nýtur mikilla vinsælda
Hörð afstaða Pútíns í Tsjetsjeníu-
stríðinu hefur aflað honum mikilla
vinsælda. Eins og staðan er nú er
talið að Pútin muni sigra í forseta-
kosningunum í mars. Samkvæmt
fylgiskönnun, sem gerð var um síð-
ustu helgi, nýtur Pútín fylgis 55 pró-
senta þeirra sem ætla að ganga að
kjörborðinu.
Vladimir Pútín og eiginkona hans, Ljudmila, í heimsókn hjá rússneskum
hermönnum í Tsjetsjeníu á nýársdag. Símamynd Reuter
Pókerandlit starfandi forseta Rússlands, Vladimirs Pútíns, veldur óróa hjá ýmsum í Eystrasaltslöndunum. Óttast
þeir ummæli hans um nauösyn á sterku ríki. Hér gengur Pútín úr kjörklefa í þingkosningum í Rússlandi í desember
síöastliönum. Símamynd Reuter
eins og Rússland þarfnast sterks
valds. Án sliks valds mun Rússland
liðast sundur,“ sagði Sobtsjak.
Ekki eru nema fimm mánuðir
frá þvi að Pútín gegndi embætti sem
ekki bar mikið á. Hann var yfirmað-
ur öryggismála hjá Borís Jeltsín
sem hafði tekið eftir dugnaði og
framtakssemi hans í Kreml. Pútín
hafði verið kallaður til Kremlar af
Anatolí Tsjúbaís, manninum sem
afhenti fjármálafurstum eins og
Borís Berezovskí sjóði Sovétríkj-
anna. I Kreml fékk Pútín starf hjá
Pavel Borodín, skriffinninum sem
oftast hefur verið nefndur í tengsl-
Þar sem vinsældir Pútíns byggj-
ast að mestu á afstöðu hans í
Tsjetsjeníudeilunni þótti eðlilegt að
hann hæfi nýja árið með heimsókn
til rússneskra hermanna í Tsjetsjen-
íu. Heimsókn hans var send beint
út í rússneska sjónvarpinu. Hann
þakkaði hermönnunum fyrir skerf
þeirra, úthlutaði gjöfum og bætti
við að þeir væru í stríði til að koma
í veg fyrir upplausn rússneska rík-
isins. Þetta var í fyrsta sinn sem
Pútín tjáði sig svo skorinort um til-
gang stríðsins. Áður hafði verið
lögð áhersla á að barátta gegn
hryðjuverkum væri aðalmarkmiðið
með sókn rússneskra hermanna
gegn uppreisnarmönnum
Tsjetsjena.
Þegar Pútín talar til fólksins
myndast oft stemning eins og
um við spillingarmálin sem skóku
Kreml í fyrra.
Jeltsín gerði Pútín að forsætis-
ráðherra í ágúst síðastliðnum. Nú
er hann orðinn valdamesti maður
Rússlands eftir að Jeltsín sagði af
sér á gamlársdag og hann er búinn
að reka Borodín, manninn sem réði
hann fyrst til starfa í Kreml. Borod-
ín var ráðgjafi Jeltsíns og hafði um-
sjón með fasteignum Kremlar. Sam-
kvæmt rússneskum fjölmiðlum tók
Borodin við mútum af svissneska
fyrirtækinu Mabetex gegn samningi
um endurnýjun bygginga í Kreml.
Hluti fjárins var sagður hafa lent í
vasa Jeltsíns og dætra hans.
Pútín hafði lýst því yfir að hann
ætlaði að berjast gegn spiUingu. Og
hann hefur látið til skarar skríða.
En enn ríkir þó mikil óvissa um
hvernig hann muni stjórna verði
hann kjörinn forseti Rússlands í
mars næstkomandi.
Erlent
Ijós
INNANHÚSS- 111
ARKITEKTÚR
/ frítíma yðarmeð bréfaskriftum
Engrar sérstakrar undirbúningsmenntunar er krafist til
þátttöku. Spennandi atvinna eða aðeins til eigin nota.
Námskeiðið er m.a. um húsgögn og húsgagnaröðun, liti,
lýsingu, list. Þar tilheyrir listiðnaður, gamall og nýr stíll,
blóm, skipulagning, nýtísku eldhús, gólflagnir,
veggklæðningar, vefnaðarvara. Þar tilheyrir gólfteppi,
húsgagnaefni og gluggatjöld ásamt hagsýni o.fi.
Ég óska, án skuldbindingar, að fá sendan bækling yðar
um INNANHÚSS-ARKITEKT-NÁMSKEIÐ
Nafn..............................
Heimilisfang.....................
Akademisk Brevskole A/S
Jyllandsvej 15 ■ Postboks 234
2000 Frederiksberg • Kobenhavn ■ Danmark