Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2000, Side 21
DV LAU GARDAGUR 15. JANÚAR 2000
21
og eftir miðjan aldur einkum og sér
í lagi um miðjuna. Þetta verður til
þess að limurinn sekkur smátt og
smátt í spiklag. Sæmilegur fituþófi
neðst á kviðnum og á lífbeini getur
stytt liminn um allt að þrjá sentí-
metra. Farðu í megrun og hættu að
mæla tippið á þér.
Það hæair á fitubrennsl-
unni (della)
Það hægir ögn á efnaskiptum
mannsins með aldrinum en áhrif-
anna gætir ekkert sérstaklega á
miðjum aldri. Ástæða þess að marg-
ir karlmenn fitna um miðjan aldur
er einfaldlega sú að þeir hreyfa sig
mun minna en áður en gófla í sig
sama magni af hitaeiningum og
áður. Það þýðir ekkert að kenna
hægari fitubrennslu um skvapið.
Það verður bara að borða minna
eða hreyfa sig meira. Helst hvort
tveggja.
Fæturnir á þár stækka
(staðreynd)
Þótt ótrúlegt megi virðast er það
vísindaleg staðreynd að fætur
manns halda áfram að vaxa á lengd
og breidd út ævina. Þetta verður oft
ljóst á miðjum aldri þegar menn
átta sig á því að þeir þurfa númeri
stærri skó en áður. Orsakirnar eru
einkum þær að það slaknar á vöðv-
um og liðböndum og fóturinn hrein-
lega flest út undan þunga og álagi. Á
aldrinum milli tvitugs og fimmtugs
geta fæturnir því stækkað um heilt
númer. Þetta er auðvitað misjafnt
eftir þvi hve menn eru þungir og
hve mikiö þeir nota fæturna.
Lyktarskynið minnkar
(staðreynd)
Á aldrinum milli 40 og 60 ára
minnkar lyktarskynið um allt að
10% og eftir 60 ára dregur enn hrað-
ar úr því. Rannsóknir hafa leitt í
ljós að þeir sem missa lyktarskynið
mikið með aldrinum eiga yfirleitt í
erfiðleikum i kynlífi. Þeir ná hon-
um ekki upp sem sýnir hve lyktar-
skynið er mikilvægt í kynlífínu. Það
er erfitt að koma i veg fyrir að lykt-
arskynið dofni en það má halda því
í þjálfun með því að vera sífellt að
lykta af hlutum og einnig með því
að reykja ekki en lyktarskyn er eitt
af mörgu sem reykingar hafa afar
slæm áhrif á. Reykingar hafa einnig
slæm áhrif á kynlíflð og er þvl
þama augljós tvöföld ástæða til að
reykja ekki.
Kynlífið versnar (della)
Flestir vísindamenn eru sammála
um að áhyggjur karlmanna af
versnandi og minnkandi kynlífi
þegar miðjum aldri er náð séu
Oflug vörn
í vetrarkulda
Éh
náitúrulega!
eilsuhúsið
Skólavörðustíg, Kringlunni & Smáratorgi
meira eða minna ástæðulausar. Hitt
er svo annaö mál að hér snýst mál-
ið um magn og gæði. Víst er það rétt
að snerpan í bólinu minnkar eftir
fertugt en þegar það gerist þá er það
betra en áður. Það er vegna þess að
flestir karlmenn eru betri elskhugar
á miðjum aldri en þeir voru um tví-
tugt. Þetta er hæfileiki sem rétt er
að leggja rækt við því konur lifa
lengur en karlar og eftir því sem
karlmenn eldast eykst úrvalið af
konum.
Þú svitnar meira (stað-
reynd)
Hæfileiki líkamans til að kæla sig
minnkar lítið eitt með miðjum aldri
og þess vegna er líklegt að flestir
karlmenn svitni meira á miðjum
aldri en þeir gerðu áður. Þetta er
ekki endilega merki um að þeir
þurfi að leggja meira á sig við lík-
amsrækt heldur sætta sig við þetta
sem eðlilegan hlut.
Þú finnur minna bragð
(staðreynd)
Þetta er nátengt því sem áður var
sagt um lyktarskynið en lykt og
bragð eru nátengd fyrirbæri. Menn
finna minna bragð af því þeir finna
minni lykt. Af einhverjum ástæðum
eykst löngun karlmanna í sætindi
og saltari mat eftir því sem miður
aldur færist yfir. Þetta á sinn þátt í
hinni illræmdu holdasöfnun karl-
manna á miðjum aldri.
Við þessu er ekkert að gera nema
tyggja matinn miklu betur og auka
þar með líkumar á maður finni al-
mennilega bragðið af honum. Það
verður einnig til þess að þér finnst
þú fyrr vera saddur og borðar þar af
leiðandi minna. Þetta á ekki að vera
vandamál ef þú ert enn með þínar
eigin tennur sem við skulum reikna
með.
Þú sefur ekki eins vel
(staðreynd)
Flestir þekkja þá eftirlæt-
iskvörtun roskins fólks að það sofi
aldrei væran blund. Þetta á við
nokkur rök að styðjast því svefninn
verður léttari með aldrinum og
þessarar þróunar gætir þegar á
miðjum aldri. Bestu ráðin við svefn-
leysi er að fara alltaf að sofa á sama
tíma, fara í heitt bað skömmu fyrir
svefninn og forðast kaffi, te og alkó-
hól eða þungar máltíðir stuttu áður
en gengið er til hvílu. Margir slaka
vel á eftir fjörugt kynlif og það er
þvi afbragðs svefnmeðal í sjálfu sér.
Þú ferð að nöldra (stað-
reynd)
Með hækkandi aldri fækkar því
sem við höfum gaman af og því
fjölgeur sem fer í taugarnar á okkur.
Þetta er staðreynd. Við verðum
ábyrgari og íhaldssamari og hrædd-
ari við breytingar. Einhver verður
að stoppa á rauðu ljósi og það erum
við sem gerum það meðan þessir
ábyrgðarlausu unglingar vaða
áfram í blindni. Þaö hugarástand að
hata nútímann og allt sem honum
fylgir er afar algengt meðal mið-
aldra karlmanna en gengur oft yfir
og mestu nöldurseggir verða oft um-
burðarlynd gamalmenni. Þá eru ein-
hverjir komnir í hlutverk nöldur-
seggjanna í staðinn svo við getum
huggað okkur við að hafa haft rétt
fyrir okkur allan tímann.
-PÁÁ
Allt þetta 09 margt fleira á tilboðsverði!
GRUNDIG myndbandstæki JPffjW 29" GRUNDIG11
Verð 14.900 Wm Verð 89.!
REYUAVmD: Hagkaup, Smáratorgi. Heimskringlan. Krinolunni. Tónhoro. Kópavogi. VISTURLAND: Hljómsýn. Akranesi. Kauplélag Borgfirðinga. Borgarnesi. BlómstuiYellir, Hellissandi. Guðni Hallgrimssoa Gnindadirði.VfSITIBBIfl: Rafbúð Jnnasar Þórs. Patrekslirði. Póllinn. Isafirði. NORBURLAND: Kf Steingrimsfjarðar. Hólraavík.]
U V Húnvetninga. Hvaramstanga. IT Húnvetninga. Blönduósi. Skagfirðingabúð. Sauðárkróki. Húsasmiðjan. Dalvik. Ijósgjafinn, Akureyri. íiyggi Húsavik. Urð, Raularhötn. ADSfURLAND: U Héraðsbúa. Egilsstöðum.Verslunin Vík. Neskaupsstað. Kauptún. Vopnafrrði. II Vopnfirðinga.Vopnafirði. Lf Héraðsbúa. Seyðislirði.fumbræður. Seyðistirði.
tf fáskrúðsfjarðar. Fáskrúðslirði. KASK. Djúpavogi. KASK. Hðfn Hornafirði. SUOURLAND: Rafmagnsverkslæði KR. Hvnlsvelli. Mosfell. Hellu. lA, Selfossi. Rás. Máksböln. Brimnes. Vestmannaeyjum. RfYKJANES: Rafbnrg. Grindavík. Raflagnavinnust. Sig. Ingvarssonar. Garði. Rafmstfi. Hafnarfirði.
"Tv'l
1.
/ 191
■ 1 f l . wm. -, ■■ r-.A
ÆBSS > k
M jj