Dagblaðið Vísir - DV

Dagfesting
  • fyrri mánaðurinjanuar 2000næsti mánaðurin
    mifrlesu
    272829303112
    3456789
    10111213141516
    17181920212223
    24252627282930
    31123456

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2000, Síða 52

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2000, Síða 52
» matgæðingur vikunnar LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 2000 JjV Nýkaup t'a\ tU'lll /i‘l s/i Iriliiliw byi’ Hrísgrjón með portobello- og kastaníusveppum Fyrir 4' 2 stk. portobello-sveppir 250 g kastaníusveppir 2 stk. hvítlauksrif, söxuð (stór) 6 msk. steinselja, söxuð 100 g smjör 2 dl kjúklingasoð (vatn og Knorr-teningur) salt og svartur pipar úr kvöm Steikt hrísgrjón 250 g basmati hrísgrjón 4 msk. ólífuolía 1 stk. laukur 6 dl kjúklingasoð 2 dl rjómi salt og svartur pipar úr kvöm Bræðið smjörið, bætið söxuð- um hvítlauk og steinselju saman við. Leggið sveppina i eldfast mót og hellið smjörinu yfir. Kryddið með salti og pipar. Hellið kjúklingasoðinu yfir. Ofnbakið við 200° C í 15-20 mínútur. Ausið yfir sveppina á 5 mín. fresti. Steikt hrísgrjón Léttsteikið hrísgrjónin og saxaðan lauk í olíu, brúnið ekki. Bætið soði og rjóma saman við og sjóðið undir loki við vægan hita í 20 mín. Hrærið í með sleif af og til. Skiptið hrísgrjónunum á diska, leggið portobello-sveppina ofan á grjónin en kastaníusvepp- Créme Caramel Fyrir 6 200 g sykur 1/2 1 mjólk 100 g sykur 4 stk. egg 2 stk. eggjarauður vanilludropar Brúniö 200 g af sykri á lítilli pönnu - gætiö þess að brenna hann ekki. Hellið síðan í botn á 6 „timbala“ formum eða soufflé- skálum (einnig má notast við kaffibolla). Sjóðið mjólkina með vanilludropunum og sykri). | Kælið svolítið. Blandið eggjum og eggjarauðum saman í skál með sleif, ekki þeyta. Hrærið volgri mjólkurblöndunni varlega saman við með sleif. Hellið í skál- amar og lokið með álpappír. Ger- ið lítið gat á álpappírinn með prjóni. Setjið skálamar í djúpa ofnskúffu með svo miklu heitu vatni að fljóti upp á miðjar skál- arnar. Bakið í 40-50 mínútur við 130 C, kælið. Skerið með fram búðingnum með mjóum hníf og hvolfið á diska. Hollráð Gott er að bera fram ferska ávexti og jafnvel þeyttan rjóma með. Oftast er rétturinn samt borinn fram einn og sér. Uppskriftirnar eru fengnar frá Nýkaupi þar sem allt hráefni í þær fæst. Nykaup l’iii s<’/// frisUi’ih iiin /*)// Heimagerðar kjötbollur í muffinsformum og beikonsósa: Kartöflur með rjómaostafyllingu - og Ijúffengur bananaeftirréttur, að hætti Sæmundar Runólfssonar Matgæðingur vikunnar að þessu sinni er Sæmundur Run- ólfsson og eins og sjá má hér að neðan er hann með mikla fjöl- breytni í matargerð og eru þess- ir réttir alveg sérlega góðir. „Kjötbollurnar eru settar í muffinsform og það sem gerir þær sérstaklega góðar er að þær eru bakaðar og engin feiti er notuð við gerð þeirra. Sesam- fræin gera þær stökkar og það er algjört lostæti. Beikonsósan fer ofsalega vel við þennan rétt. Kartöflurétturinn er ákaflega góður og er tilvalið er að setja hann inn í ofninn í seinna skipt- ið með kjötbollunum," sagði Sæ- mundur og bætti svo við: „Ban- anarétturinn hefur verið uppá- hald okkar hjónanna í yfir 20 ár, við fengum hann í New Orleans og hefur hann verið hjá okkur reglulega síðan, ég skora á alla aö prófa hann því hann er al- gjört sælgæti." Uppskriftirnar eru fengnar frá Nýkaupi þar sem alft hráefni i þær fæst. Heimaaerðar kjöt- bollur, bakaðar í muffinsformum 1 egg 3/4 bolli mjólk 1/2 bolli brauðrasp 1/4 bolli smátt skorinn lauk- ur 11/2 tsk. salt 1/2 tsk. pipar 600 g hakk, svína-, nauta- eða blandað saman 1/4 bolli sesamfræ beikon Allt sett í hrærivélarskál, hakkið síðast. Deigið er síðan sett í muffinsform og þétt vel. Beikonbiti settur ofan í hvert form. Bakað í ofni v/200‘ C í 30-35 mín. Þessi uppskrift passar í ca 12 muffinsform/einn bakka. Beikonsósa Steikiö nokkrar beikon- sneiðar í potti, takið beikonið upp úr og bætið svolitlu af smjöri út í feitina. Tveir súpu- teningar, sósujafnari, salt og pipar er sett út í og síðan mjólk eða rjómi og sósan bök- uð upp. Reykt laxarós með eggjakremi og agúrkumauki Fyrir 6 18 stk. stórar sneiðar reyktur lax 5 stk. harðsoðin egg 110 g dill smurostur (litO dós) 50 g smjör salt og pipar Agúrkumauk 3 stk. egaahvítur, saxaðar 1 dl söxuð agúrka 1/2 dl kotasæla 2 msk. AB-mjólk eða jógúrt Maukið eggjarauður, ost og smjör í matvinnsluvél. Kryddi með salti og pipar. Leggið laxa- sneiðamar saman, 3 stk. í hverja „rós“. Smyrjið eggjakreminu ofan á og rúOiö saman. Þá verður lax- inn eins og rós aö ofan. Setjið á disk og kælið. Berið fram með agúrkumauki og ristuöu brauði. Agúrkiunaukið Blandið öUu saman. Bragðbæt- iö með aromati ef vill. „Bananarétturinn hefur verið uppáhald okkar hjónanna f yfir 20 ár, viö fengum hann f New Orleans og hefur hann verið hjá okkur reglulega sfðan, ég skora á alla að prófa hann því hann er algjört sælgæti", sagöi matgæðingur vikunnar, Sæmundur Runólfsson. Tvíbakaðar kartöflur m/rjómaostafyllingu 6 stórar bökunarkartöflur 100 g rjómaostur 1 dl rjómi season all krydd Bakið kartöflurnar þangað til hægt er að taka innan úr þeim, ca 30 mín. v/180" C. Skerið þunnan hatt ofan af kartöflunum og takið innan úr þeim og setjið í hrærivél- arskál, ásamt rjómaosti, rjóma og season all kryddi. Hrært vel saman. Maukið sett aftur í kartöflumar og bakað í ofni í ca 20-30 mín. v/180° C eða þangað tU gegnumheitt. Bananaeftirréttur fyrir 4 (Bananas Foster frá New Or- leans) 4 msk. dökkur púðursykur 2 msk. smjör 1/4 tsk. kaniU 2 þroskaðir bananar - brytjaðir 11/2 msk. bananalíkjör 1 1/2 msk. ljóst romm VanUluís Smjörið er brætt á pönnu og púð- ursykur settur saman við og hitað. Bananasneiðar settar út í og kanU stráð yfir. Hitinn er hækkaður og rommi og bananalíkjör hellt yfir. Kveikt er í víninu og látið loga út. (Ekki nauðsynlegt.) VaniUuísinn þarf að vera tUbúinn í skálum. HeUt er yfir ísinn og afgangurinn af sós- unni settur i skál. Rjómatoppur ef vUl. Borið fram strax. Ég skora á Sigrúnu, sem rekur veitingastaðinn á Skútustöðum við Mývatn. Hún er snillingur í matargerð. Reyktar svína- kótelettur með piparrótarmeðlæti Fyrir 4 800-1000 g svínakótelettur, reyktar 3 msk. matarolía Piparrótarmeðlæti 18-20 stk. perlulaukur 2 stk. epli, græn 250 g spergilkál (fryst) 2-3 msk. piparrót (maukuð í pakka) 2 dl kjúklingasoð (vatn og 1/2 Knorr-teningur) 4 dl rjómi 1 msk. sinnep, sætt 2 msk. sósujafnari salt og pipar 2-3 msk. matarolía Annað meölæti 200 g pasta Reyktu svínakóteletturnar steiktar í 6-8 mín. í heitri olí- unni, snúið reglulega við. Setjið ofan á piparrótarmeðlætið. Piparrótarmeðlæti Skerið perlulauk í tvennt og eplin i teninga. Brúnið laukinn í olíu, bætið eplateningunum út í og síðan spergilkáli, piparrótarm- auki og kjúklingasoði. Látið sjóða, setjið rjómann saman við sinnepið. Þykkið með maisena- mjöli eða sósujafnara, sjóðið áfram í 1-2 mínútur. Bragðbætið með salti og pipar ef vill. Annað meðlæti Sjóðið pasta skv. leiöbeining- um á pakka.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar: 12. tölublað - Helgarblað (15.01.2000)
https://timarit.is/issue/199167

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.

12. tölublað - Helgarblað (15.01.2000)

Gongd: