Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2000, Qupperneq 54

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2000, Qupperneq 54
LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 2000 JU"V 62 Qfmæli________________ Hjálmar Finnsson Hjálmar Finnsson, fyrrv. forstjóri Áburðarverksmiðjunnar, Vestur- brún 38, Reykjavík, er áttatíu og fimm ára í dag. Starfsferill Hjálmar fæddist að Hvilft i Ön- undarfirði og ólst þar upp í for- eldrahúsum. Hann kynntist þar ungur að árum öllum almennum störfum til sjávar og sveita. Hjálmar lauk stúdentsprófi frá MA 1938, viðskiptafræðiprófi frá HÍ með fyrsta útskriftarhópnum 1941 og er nú sá eini eftirlifandi úr þeim hópi, stundaði síðan framhaldsnám í fyrirtækjastjórnun við University of Southern California í Los Angeles 1941-42. Að námi loknu stofnaði Hjálmar eigið viðskiptafyrirtæki í New York 1942, var umboðsmaður íslenskra verslunar- og iðnfyrirtækja við inn- kaupastarfsemi í Bandaríkjunum 1942^8, var framkvæmdastjóri út- flutningsfyrirtækis i New York 1945-48 og umboðsmaður Loftleiða hf. í Bandaríkjunum við öflun var- anlegs lendingarleyfls o.fl. 1947-48. Hjálmar var framkvæmdastjóri Loftleiða hf. í Reykjavík 1949-52 og framkvæmdastjóri Áburðarverk- smiðjunnar í Gufunesi 1952-85. Hjálmar sat i flugráði íslands 1952-55, í samninganefnd um flug- leyfl til Evrópulanda 1950, var for- maður Félags viðskiptafræðinga 1957, í stjóm Lífeyrissjóðs starfs- manna Áburðarverksmiðjunnar 1961-85, í stjórn Lífeyrissjóðs verk- stjóra 1965-75 og forseti Rotaryklúbbs Reykjavík-Austurbæ 1968. Hann hefur skrifað greinar um ýmis málefni í dagblöð og tímarit. Hjálmar er riddari hinn- ar íslensku fálkaorðu. Fjölskylda Hjálmar kvæntist 6.11. 1943 Doris Finns- son, f. Walker, 7.11.1920, d. 8.12. 1992, húsfreyju og hjúkrunarfræðingi. Foreldrar hennar voru Hamilton Howard Wal- ker, f. 1875, d. 4.11. 1920, framkvæmdastjóri í Whitinsville í Massa- chussetts í Bandaríkjun- um, og k.h., Mabelle Clare Walker, f. Kenney, 16.5. 1886, d. í mars 1968, framkvæmdastjóri og húsfreyja. Böm Hjáhnars og Doris: Finnur Tómas Finnsson, f. 4.10. 1944, d. 3.5. 1967, atvinnuflugmaður; Edward Finnsson, f. 2.7. 1947, atvinnuflug- maður hjá Flugleiðum, búsettur í Reykjavík og á hann flögur börn, Helgu Fanney, f. 6.7. 1971, Maríu, f. 16.2. 1974, Hjálmar, f. 16.4. 1975, og Tómas, f. 21.4. 1978, en kona Ed- wards er Ema Norðdahl, BA i ís- lensku; Katherine, f. 14.8. 1950, verslunarstjóri í Georgiu í Banda- ríkjunum, og em synir hennar Ant- on, f. 24.11. 1969, og Joseph, f. 9.3. 1973, en Katherine er gift Ronald Clinton Smart, rafeindafræðingi og deildarstjóra hjá Lockhead flugvéla- verksmiðjunum. Langafabörn Hjálmars eru átta. Systkini Hjálmars: Sveinbjöm, f. 21.7.1911, d. 1.4.1993, hagfræðingur og kennari í Reykjavík; Ragnheið- ur, f. 25.6. 1913, fyrrv. skólastjóri í Reykjavík; Sigriður, f. 17.1. 1918, hjúkrunarfræðingur í Virginíu í Bandaríkjunum; Jakob, f. 30.7.1919, d. 1.7.1941, lyflafræðinemi í Reykja- vík; Sveinn, f. 23.11. 1920, d. 7.6. 1993, lögmað- ur og framkvæmdastjóri í Reykjavík; Jóhann, f. 23.11. 1920, d. 2.6. 1973, tannlæknir í Reykjavík; María, f. 18.8. 1922, BA í hjúkrunarfræði í Reykjavík; Málfríður, f. 22.11. 1923, hjúkrunar- fræðingur í Reykjavík; Kristín Fenger, f. 30.10. 1925, d. 14.12. 1998, sjúkraþjálfari í Reykja- vík; Gunnlaugur, f. 11.5. 1928, fyrrv. alþm., kenn- ari og bóndi. Fósturbróðir Hjálmars er Leifur Guðjónsson, f. 23.12. 1935, fyrrv. fulltrúi hjá Dagsbrún, búsett- ur í Reykjavík. Foreldrar Hjálmars voru Finnur Finnsson, f. 29.12. 1876, d. 14.8. 1956, bóndi á Hvilft i Önundarfirði, og k.h., Guðlaug Jakobína Sveinsdótt- ir, f. 28.2. 1885, d. 20.2. 1981, hús- freyja á Hvilft. Ætt Finnur var sonur Finns, b. á Hvilft, Magnússonar, b. á Hvilft, bróður Ásgeirs, alþm. á Þingeyrum, föður Jóns, skálds á Þingeyrum, og afa Ásgeirs, rithöfundar frá Gott- orp. Annar bróðir Magnúsar var Torfi, alþm. á Kleifum. Þriðji bróðir Magnúsar var Guðmundur, b. á Kleifum. Systir Magnúsar var Ragn- heiður, móðir Guðlaugar, ömmu Torfa Ásgeirssonar hagfræðings og Torfa rikissáttasemjara og Snorra skálds, Hjartarsona. Magnús var sonur Einars, dbrm. í Kollaflarðar- nesi, Jónssonar, b. í Miðdalsgröf í Steingrímsfirði, Brynjólfssonar, á Heydalsá, Guðmundssonar, af ætt Einars í Heydölum. Móðir Magnús- ar var Þórdís Guðmundsdóttir, smiðs að Seljum, Torfasonar. Móðir Finns yngra á Hvilft var Sigríður Þórarinsdóttir, b. á Vöðl- um, Jónssonar, b. í Unaðsdal. Guðlaug Jakobína var dóttir Sveins, b. og skipstjóra á Hvilft, bróður Rósinkranz, föður Guðlaugs Þjóðleikhússtjóra og Júlíusar, kaup- félagsstjóra á Flateyri. Annar bróð- ir Sveins var Páll, faðir Skúla á Laxalóni, föður Sveins, forstjóra Hrafnistu. Þriðji bróðir Sveins var Bergur, afi Konráðs Adolfssonar skólastjóra. Systir Sveins var Guð- finna, amma Kjartans Kjartansson- ar, fyrrv. framkvæmdastjóra flár- málasviðs SÍS. Önnur systir Sveins var Kristín, amma Kristjáns Ragn- arssonar í LÍÚ. Sveinn var sonur Rósinkranz, b. í Tröð, Kjartansson- ar, b. i Tröð, Ólafssonar. Móðir Guðlaugar Jakobínu var Sigríður, systir Jóhanns Lúthers, prófasts í Hólmum, afa Einars Odds Krisjánssonar alþm. og Hrafns Tul- iniusar læknis. Jóhann var einnig faðir Torfa, fyrrv. bæjarfógeta í Vestmannaeyjum, föður Kristjáns, dómara í Vestmannaeyjum. Sigríður var dóttir Sveinbjörns, b. í Skáleyjum, bróður Sigríðar „stórráðu“. Sveinbjöm var sonur Magnúscir, b. í Skáleyjum og að Hvallátrum, Einarssonar, bróður Eyjólfs eyjajarls. Móðir Sigriðar var María Jónsdóttir, systir Sesselju, móður Herdísar og Ólínu Andrés- dætra og systir Sigríðar, móður Bjöms Jónssonar ráðherra, föður Sveins Bjömssonar forseta. Hjálmar verður að heiman á af- mælisdaginn að leika sér við lang- afabömin. Hjálmar Finnsson. Sveinn Erlendsson Sveinn Erlendsson, lögreglumað- ur í Reykjavik, Blikastíg 2, Bessa- staðahreppi, verður fertugur á þriðjudaginn. Starfsferill Sveinn fæddist í Reykjavík en ólst upp í Bessastaðahreppi. Hann lauk gagnfræðaprófi frá Garðaskóla 1975, verslunarprófi frá Fjölbrauta- skóla Garðabæjar 1978, stundaði nám við Fjölbrautaskólann í Ár- múla 1979-82, lauk fyrri önn Lög- regluskólans 1984 og seinni önn 1985, tók inntökupróf með nýliðum norsku sérsveitarinnar í Ósló á veg- um Lögregluskólans í Ósló 1987, stundaði framhaldsnámskeið í Ósló sama ár og hefur sótt ýmis nám- skeið á vegum Lögregluskóla ríkis- ins, sérsveitar og Slökkviliðs Reykjavíkur. Sveinn hóf störf í lögreglunni í Reykjavík 1983 og starfaði þar í al- mennri deild. Hann starfaði í sér- sveit lögreglunnar í Reykjavík 1987-96 og hefur starfaði í umferðar- deild frá 1997. Fjölskylda Eiginkona Sveins er Soffla Sæ- mundsdóttir, f. 25.5. 1965, myndlist- armaður. Hún er dóttir Sæmundar Jónssonar, f. 11.11. 1924, banka- manns í Reykjavík, og k.h., Svanfríðar Ingvars- dóttur, f. 6.1. 1927, skrif- stofustjóra. Sonur Sveins og Sofflu er Erlendur, f. 6.5. 1988, nemi. Systur Sveins eru Þor- gerður Erlendsdóttir, f. 16.11. 1954, héraðsdómari í Reykjavík; Júlíana Brynja Erlendsdóttir, f. 17.2. 1956, kennari í Reykjavík; Hugborg Pálmina, f. 11.4. 1968, leikskólasérkennari í Reykjavík. Foreldrar Sveins: Er- lendur Sveinsson, f. 6.8. 1932, aðalvarð- stjóri og yfirþingvörð- ur í Reykjavík, og f.k.h., Guðfríður Stef- ánsdóttir, f. 27.9. 1932, d. 1998, húsmóðir. Sveinn og Soffla bjóða vinum, ættingj- um og samstarfs- mönnum að gleðjast með sér í sal Lög- reglufélags Reykjavík- ur að Brautarholti 30 laugardaginn 15.1. milli kl. 18.00 og 20.00. Sveinn Erlendsson. Ingibjörg Lára Ingibjörg Lára Krist- insdóttir húsmóðir, Sól- vallagötu 46e, Keflavík, varð fertug i gær. Starfsferill Ingibjörg fæddist á ísafirði og ólst þar upp. Hún var i bamaskóla á ísafirði og siðan í Gagn- fræðaskóla ísaflarðar. Ingibjörg starfaði við hraðfrystihúsið Noröur- tangann á ísafirði frá flórtán ára aldri. Hún flutti til Keflavíkur 1979 og hefur átt þar heima síðan. í Keflavík hefur Ingibjörg starfað utan heimilis, m.a. við humarvinnslu hjá HF í Keflavík, við loðnu- vinnslu hjá Suðumesj- um hf. Þá starfaði hún í Bakkavör í Keflavík en starfar nú við Flug- eldhúsið á Keflavikur- flugvelli, hjá Flugleið- um. Fjölskylda Eiginmaður Ingi- bjargar er Edvardo Useda Correa, f. 21.11. 1961, verkamaöur. Hann er sonur Ingibjörg Lára Kristinsdóttir. Kristinsdóttir Bemabe Correa og Josefinu Useda frá Columbíu. Synir Ingibjargar og Birgis Sveinssonar, fyrrv. eiginmanns hennar, eru Kristinn Friðbjöm Birgisson, f. 14.4. 1982, starfsmaður hjá Nesafli í Njarðvík; Sveinn Fri- mann Ágúst Birgisson, f. 9.5. 1985, nemi; Guðmundur Gestur Birgis- son, f. 16.3. 1988, nemi. Sonur Ingibjargar og Edvardos er Edvard Ámi Correa, f. 3.8. 1993, nemi. Systkini Ingibjargar eru Ásgeir Haraldur Kristinsson, f. 16.12. 1958, sjómaður, búsettur í Grimsby á Englandi en kona hans er Julie Kristinsson og er sonur þeirra Li- am; Ásta Guðríður Kristinsdóttir, f. 30.5. 1961, húsmóðir, búsett á Þing- eyri en maður hennar er Friðbert Jón Kristjánsson bóndi og eru böm þeirra Hulda Hrönn, Lína Þóra, Guðrún Ásta og Haukur Jón; Krist- inn Þór Kristinsson, f. 30.5. 1962, sendibílstjóri, búsettur í Reykjavík en kona hans er Hafrún Ebba Gests- dóttir og em böm hans Nína Ósk, Auður Björg, Sindri Freyr og Helgi Þór. Foreldrar Ingibjargar eru Krist- inn Friðbjöm Ásgeirsson, f. 15.11. 1932, fyrrv. lögregluþjónn á ísafirði, nú búsettur í Keflavík, og k.h., Lína Þóra Gestsdóttir, f. 9.8. 1937, hús- móðir og fyrrv. fiskverkakona og starfsmaður hjá Flugleiðum. Til hamingju með afmælið 15. janúar 80 ára Brynjólfur Jónsson, Borg, Króksflarðamesi. 75 ara Anna Eyjólfsdóttir, Merkigerði 12, Akranesi. Guðrún Ingibrektsdóttir, Strandgötu 9, Hvammstanga. Guðrún Þorbjörg Stefánsdóttir, Víðilundi 14c, Akureyri. 70 ára Anna Ambjörg Frímannsdóttir, Lækjasmára 2, Kópavogi. Eigin- maður hennar er Guðmundur Magnússon. Þau taka á móti gestum I Gullsmára 13 á afmæl- isdaginn frá kl. 15.30-18.30. Margrét Þorvaldsdóttir, Skarðshlíð 31f, Akureyri. 60 ára Anna Dóra Harðardóttir, Austurbergi 6, Reykjavík. Eiginmaður hennar er Hjörleifur Einarsson. Þau taka á móti gestum í safn- aðarheimili Fella- og Hólakirkju á afmælisdaginn milli kl, 15.00 og 18.00. Ingimar Guðmundsson, Álftamýri 14, Reykjavík. 50 ára__________________ Ásgeir Sveinsson, Melabraut 23, Hafnarfirði. Einar Steingrímsson, Granaskjóli 31, Reykjavík. Guðmann Ingjaldsson, Mosarima 29, Reykjavík. Gunnþóra Amdís Skaftadóttir, Hörpulundi 2, Garðabæ. Hallgrímur Halldórsson, Keilusíðu le, Akureyri. Hálfdán Ingólfsson, Móholti 9, ísafirði. Símon Grétarsson, Hjalladæl 2, Eyrarbakka. Svandís Ámadóttir, Miðtúni 16, Reykjavik. 40 ára Guðríður Björg Guðmundsdóttir, Fossgerði, Egilsstöðum. Hörður Svavarsson, Eskihlíð lOa, Reykjavík. Kristín Jakobína Pálsdóttir, Bylgjubyggð 63, Ólafsfirði. Kristjana Sólborg Ámadóttir, Túnbrekku-9, Ólafsvík. Nanna Aðalheiður Þórðardóttir, Brautarholti 16, Ólafsvík. Óskar Sesar Reykdalsson, Þrastarima 4, Selfossi. Stefanía Huld Guðmundsdóttir, Þiljuvöllum 32, Neskaupstað. - 960 síður á ári - íróðleikur og skemmtun semlifirmánuðumog árumsaman
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.