Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2000, Page 2
2
FÖSTUDAGUR2
Fréttir
Stuttar fréti
Jórunn Sörensen fékk streptókokka í blóðið og þeir höfðu af henni nýru og tær:
Heppin að halda
fótum og höndum
- lifði með naumindum og bíður eftir nýju nýra
„Þetta er nú ekkert merkilegt
því fólk er alltaf aö veikjast og
slasast," segir Jórunn Sörensen
kennari, sem fékk streptókokka-
sýkingu í blóðið og fárveiktist
þannig að lífi hennar varð aðeins
bjargað með heppni, baráttu
læknaliðs og vegna hennar eigin
hreysti.
„Ég var dálítið slöpp einn dag-
inn og varö alltaf veikari og veik-
ari þar til ég var skyndilega við
dauðans dyr. Það var fyrir tilviljun
og heppni að það var hringt í
lækni og hann sendi mig beint upp
á Landsspítala," segir Jónmn en
hún veiktist i mars 1998.
Jórunn var sett á geysisterkan
bakteríudrepandi lyfjakúr og í önd-
unarvél þar sem henni var haldið
sofandi í hálfan mánuð. Ásamt
hjúkrunarfólkinu barðist hún tví-
sýnni baráttu fyrir lífi sínu næstu
sólarhringana og átökin soguðu úr
henni allan mátt. Fjölskyldan
fylgdist skelfd með framvindunni.
Tveggja sólarhringa
maraþonhlaup
Álagið á líkama Jórunnar var óg-
urlegt.
„Ég tók allt út sem ég átti í heilsu-
bankanum. Dóttur minni var sagt
að fyrstu tvo sólarhringana hefði
hjartað í mér hamast eins og ég
væri í maraþonhlaupi og næstu sól-
arhringana eins og í fjallgöngu. En
hjartað þoldi þetta því þó ég sé orð-
in miðaldra kona var ég mjög
hraust enda geysilega mikil útivist-
armanneskja; var alltaf hlaupandi,
hjólandi og gangandi á fjöll," segir
Jórunn sem er farin að hjóla lítil-
lega að nýju. „En hitt er fariö og
kemur ekki meir. Það er afgreitt
tímabil í lífinu að ganga í óbyggðum
með bakpokann,“ segir hún.
Miklar skemmdir urðu á líkama
Jórunnar vegna blóðskorts á meðan
ráðið var niðurlögum bakteríunnar.
Lifrin og nýrun hættu að starfa og hún
missti framan af átta tám. „Ég var í
raun mjög heppin að halda fótum og
höndum," segir hún. En þegar mest
kreppti að lét hjartað heilann ganga
fyrir um blóðstreymi og Jórunn var
enn á sínum stað þegar hún var vakin.
Jórunn Sörensen. „Þótt maöur þurfi
aö gefa sér tíma til aö syrgja þaö
sem maöur missir þarf maöur aö
halda áfram því nýja lífi sem maður
hefur fengiö.“
Ólýsanlega sárt
„Ég var mjög heppin að halda
vitinu en það vissi engin hvemig
ég yrði þegar ég væri vakin; hvaða
mamma yrði það sem birtist og
hvaða eiginkona? En ég þekkti alla
strax og þá voru allir mjög fegnir
að sjá að það var eitthvaö eftir af
mér,“ segir Jórunn.
Jórunn var áfram í hálfan mán-
uð í öndunarvélinni eftir að hún
var vakin en fór þá á almenna
deild þar sem hún var í tvo mán-
uði að safna kröftum. „Ég var á
morflni í margar vikur því fætum-
ir voru svo skemmdir að það var
ólýsanlega sárt,“ rifjar hún upp.
Eftir þrjá mánuði yfirgaf Jórunn
Landspítalann en hún heimsækir
nýmadeildina enn reglulega enda
em bæði ným hennar ónýt en lifr-
in jafnaði sig hins vegar. Hún er
því á biðlista eftir nýju nýra. „Ég
geng alltaf með boðtæki og bíð eft-
ir kallinu," segir hún bjartsýn.
Frábært starfslið
Jórunn er kennari hjá Náms-
flokkunum og víðar og fór að
vinna um leið og hún gat staðið í
fætuma eftir veikindin. „Ég verö
ævinlega þakklát skólastjóra
Námsflokkanna að lofa mér að
koma strax aftur. Vinnan hjálpar
manni mikiö að verða maður sjálf-
ur og að halda höfði. Þótt maður
þurfi að gefa sér tíma til aö syrgja
það sem maður missir þarf maður
að halda áfram því nýja lífi sem
maður hefur fengið,“ segir hún.
Enginn veit hvemig Jórunn fékk
streptókokka í blóðrásina en slíkt
er mjög sjaldgæft.
„Ég var ekki með hálsbólgu
þannig að það var ekki vitað
hvemig ég smitaðist. Það gæti hafa
verið í gegn um rispu á fmgri.
Þetta er eins og hvert annað slys,
en ég vann í happdrættinu; ég lifði
af. Ég er trúlaus og hef verið spurð
hvort það hafi ekki breyst en það
breyttist auðvitað ekkert. Minn
bati er fyrst og fremst að þakka
frábæru starfsliöi á Landspítalan-
um og þeim vísindum og tækni og
mannlegri umhyggju sem það býr
yfír,“ segir Jórunn. -GAR
Foreldrar barna í Tónlistarskóla Garöabæjar gengu af fundi bæjarstjórnar í gær þegar Ijóst var aö ákvöröun um ráðn-
ingu Agnesar Löve stæöi. Foreldrarnir púuöu á bæjarstjórnarmenn þegar þeir luku máli sínu. DV-mynd Pjetur
Bæjarstjórn Garðabæjar stendur við ákvörðun um ráðningu Agnesar Löve:
Púað á bæjarstjórnarmenn
- geymt en ekki gleymt, það koma kosningar eftir tvö ár, segir Kristín S. Kvaran
„Þeir líta svo á að málinu sé lokið og
sögðust vona að nú fengist friður um
þetta. Þetta er hins vegar geymt en
ekki gleymt, það koma kosningar eftir
tvö ár og ég er viss um að fólk verði
ekki búiö að gleyma þessu,“ segir
Kristín S. Kvaran, talsmaður hóps for-
eldra bama í tónlistarskólanum í
Garðabæ sem mótmælt hefur ráðn-
ingu Agnesar Löve í starf skólastjóra.
Bæjarstjóm Garðabæjar fundaöi um
málið í gær og var niðurstaða hennar
sú að Agnes gegndi áfram starfmu.
Foreldrar fjölmenntu á fundinn og
vora ósáttir með málsmeðferðina. M.a.
var púað á bæjarstjórnarmenn og
þurfti fúndarstjóri að biðja fólk að
sýna stillingu, ellegar yrði salurinn
rýmdur. Þegar umfjöllun um málið
var lokið gengu foreldramir af fúndi.
„Það var engin niðurstaða því þeir
tóku þetta ekkert fyrir. Þeir ætla sér
greinilega algerlega að valta yfir það
að þessar undirskriftir bárust og ætla
ekki að taka neitt tillit til þess. Þeir
fiölluðu um fúndargerðir bæjarstjóm-
ar, bæjarráðs og skólanefndar og
minntust ekki einu orði á undirskrift-
irnar og ekki að foreldrum hefði verið
send þessi gamla fréttatilkynning sem
svar við undirskriftunum," segir Krist-
ín en foreldramir höfðu safnað 190
undirskriftum í Garðabæ tU að mót-
mæla ráðningunni.
Náöi ekki aö skapa sér rétt orö-
spor á 16 ára starfsferli
Einar Sveinbjömsson bæjarfuUtrúi
tók tU máls og benti á hvort deUur
þessar gæfu ekki tUefni tU að íhuga
einkavæðingu skólans. Fannst foreldr-
um sem Einar hefði gert í því að drepa
málinu á dreif. Erling Ásgeirsson, for-
seti bæjarstjómar, benti í máli sinu á
að skipaður hefði verið viðræðuhópur
um mat á umsækjendum i stöðuna.
Niðurstaða hópsins var að valið yrði
mUli þriggja einstaklinga, þ. á m.
Smára Ólasonar yfirkennara og Agnes-
ar Löve. Erling sagði að Smári ætti að
baki farsælan 16 ára starfsferU hjá
skólanum en hefði þó á þeim tima ekki
skapað sér það orðspor að hann ætti
stöðuna skUda. Smári hefði þó haft for-
skot á aðra umsækjendur í að kynna
sig. Hann benti á að bæjarstjóm hefði
samþykkt ráðnmgu Agnesar sam-
hljóða og væri það m.a. vegna þess orð-
spors sem hún hefði skapað sér sem
skólastjóri tónlistarskólans á Hvols-
veUi.
Gætum átt eitthvaö uppi í
erminni
„Það sem meira er og hefur komið
fram er að skólinn er byggður fyrir
lánsfé og borgaður niður með skóla-
gjöldunum. Vissulega greiða þeir
kennurunum laun en spumingin er
hver á skólann?" segir Kristin S. Kvar-
an. „Eiga ekki foreldramir skólann því
þeir borga skólagjöldin og borga þar
með niður lánin á skólanum. Það er
þetta sem fólk er reiöast út af, að það
skuli ekki einu sinni vera tekið tUlit tU
okkar áskorana."
Erling Ásgeirsson, formaður bæjar-
ráðs, sagði á fúndinum að nú þegar
hefði tekist góð samvinna mUh Agnes-
ar Löve og annarra kennara, nemenda
og foreldra. Telur þú að þetta sé rétt?
„Það hlógu nú allir að þessu. Ég veit
ekkert um það en hins vegar fór ég
sjálf tU Agnesar, bauð hana velkomna
og sagði henni að þetta snerist i raun
ekkert um hana persónulega. Þetta
snýst um vinnuaðferðir bæjarstjómar.
En auðvitað hlýtur að vera erfitt að
starfa undir þessum kringumstæðum,"
Er málinu lokið af ykkar hálfú?
„Það er ekki ljóst ennþá því við
eigum eftir að funda en við gætum
átt eitthvað uppi í erminni," segir
Kristín. -hdm
Húökic
Gríðarleg fiölgun
húðkrabbatilfeUum I
hann nú algengasta
meins meðal beggjs
greindi frá.
Einar sveit
Hreppsnefnd
Dalabyggðar hefur
ráðið Einar
Mathiesen sem nýj-
an sveitarstjóra.
Einar tekur við
starfinu af Stefáni
Jónssyni sem sagði
upp fyrir áramót. Ei
tekið tU starfa.
Einelti á vinr
í nýlegri könnun,
entar gerðu fyrir BA
fræði við Háskóla 1
kom fram að á Island
takenda sig hafa orð:
vinnustað. Stöð 2 sag
Dæmdar
Hæstiréttur dæm<
frystUiúsið hf. á ísai
greiða iðnaðarmann
vinnuslyss sem han
hann hnaut um togvi
aranum Bessa Is vc
frystUiúsið hf. er dæ
stefnanda tæplega
vaxta. Dagur greindi
Stórfelld sl
ToUa- og lögregl
saka nú stórfeUd skat
ingi bUa frá Þýskalaj
bUanna skráði kaup
landi og lækkaði þar
gjöld bUanna.
Vegur um Va
Sturla Böövars-
son samgönguráð-
herra hefur staðfest
að nýr vegur yfir
SnæfeUsnes verði
lagður um Vatna-
heiði. Stefnt er að út-
boði í mars og að
vegurinn verði tUbún
Engin skatt;
Þjóðin í heUd fék
skattalækkun um 4 pi
3 áram því raunlæk
marka hefur greitt up
ina. Þetta segir hagfr
bætir við að þvert á
lækkun breytingu á
tekjulægri í óhag. Stö
Góðaraðs
Að mati norsks sí
staddur er hér á land
við flak E1 GrUlo á bi
ar ákjósanlegar og i
kostnaður við að losa
inu, um 2400 lítra, '
áður var haldið. RÚV
Bregða 50
í drögum að nýjui
ingi er gott beitUand
bændur geti fengið fi
Þá er rætt um að b<
bændum fyrir að br<
með næsta hausti. Stc
70 án ati
Nær 70 manns eru <
Ólafsfiröi eftir að fisk\
Axels varð gjaldþrota:
Forseti bæjarstjómar,
asdóttir, segir að ekkei
hvað varðar nýja aðiia
í Ólafsfirði. Dagur sagi
Miklabraut I
í samantekt Sjóvár
borgarfúUtrúa Sjái
kemur fram að Miklat
vft er hættulegasti stai
Jóhann Páll á ai
Eins og fram kom
hér í gær hefur Jó-
hann PáU Valdi-
marsson sagt upp
starfi sinu sem út-
gáfústjóri Forlagsins
hf. og forstöðumað-
ur sölu- og markaðs-
sviðs Máls og mennim
nú tekið við starfi frat
Genealogia Islandorui
jafnframt útgáfúsfióri
gefa mun út bækur
markaði. Ranglega va
gær aö hann myndi sta
vébanda Forlagsins; þ:
í eigu Máls og mennin