Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2000, Síða 4
4
FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 2000
Fréttir
Línur að skýrast varðandi fulltrúaval á landsfund Samfylkingar:
Jóhanna utangarðs
- fulltrúar fara með atkvæði í hlutfalli við fjölda félaga
Laganefnd þeirra flokka sem
standa að Samfylkingunni er sam-
kvæmt heimildum DV búin að ná
sátt um með hvaða hætti fuiltrúar
verða valdir á landsfund Samfylk-
ingar sem haldinn verður í Reykja-
vík, um mánaðamótin mars apríl.
Ekki er formlega búið að sam-
þykkja fyrirkomuiagið en einhug-
ur rikir um það. Meðal þeirra sem
eiga sæti í laganefndinni eru þau
Margrét Frímannsdóttir, formaður
Alþýðubandalagsins, og Sighvatur
Björgvinsson, formaður Alþýðu-
flokksins.
Félög Alþýðubandalagsins, Al-
þýðuflokksins, Kvennalistans og
Samfylkingar munu kjósa fulltrúa
á landsfundinn. Þeir fulltrúar sem
þannig verða kjömir fara með at-
T'
Jóhanna Sig- Margrét Frí-
uröardóttir. mannsdóttir.
kvæði i hlutfalli við félagaijölda.
Þannig mun fulltrúi sem mætir
einn fyrir hönd 100 félagsmanna
fara með 100 atkvæði. Landsfund-
urinn verður opinn öllum sem
vilja ganga I hinn nýja flokk en
einstaklingur sem kemur inn af
götunni fer að-
eins með eitt at-
kvæði. Allar fé-
lagaskrár verða
samkeyrðar til að
útiloka að ein-
staklingar, sem
eiga aðild að
fleiri en einu fé-
lagi, geti nýtt
Sighvatur sinn atkvæðisrétt
Björgvinsson. oftar en einu. Það
sjónarmið er ráð-
andi að landsbyggðin hafi sama
vægi og höfuðborgarsvæöið og
ekki verði hægt að smala inn á
landsfundinn.
í þessu felst að möguleikar Jó-
hönnu Sigurðardóttur til að ná for-
mannsembætti verða litlir sem
engir. Hún hefur stuðning fólks
sem er á jaðri flokkanna og talið er
útilokað að það fólk þyrpist á
landsfund. Jóhanna sagði við DV á
dögunum að hún spyrði um leik-
reglur. í þvi fólst að hún vildi að
fulltrúalýðræði réði og hver einn
færi með eitt atkvæði. Hún hefur
barist fyrir þessu máli af þeim
ástæðum að hún hefur ekkert bak-
land innan flokkanna og Þjóðvaki
ræður engu félagi. Samkvæmt
þessu fyrirkomulagi er Jóhanna
utangarðs i formannsslagnum. Bú-
ist er við að Guðmundur Ámi Stef-
ánsson og össur Skarphéðinsson
berjist um formannsstólinn. Hvor-
ugur þeirra hefur þó gefið út opin-
berlega að þeir sækist eftir for-
mannsembættinu. -rt
250 manna stórfrumsýningarveisla um borð í elsta varðskipi okkar í kvöld:
Byggt yfir Þor, 49 ara,
á síöustu 2 vikum
- angandi þilfarstimbur á öllu framskipinu skyndilega komið undir þak
Arnar Sigurðsson, eigandi fyrmm
varðskipsins Þórs, sem nú heitir
Thor og liggur í Hafnarfjarðarhöfn,
hefur látið byggja snarlega yfir nán-
ast allt framskipið - á aðeins tveimur
vikum - alveg frá svokölluðum for-
kanti og fram í stafn.
í rauninni allt út af einni veislu,
eða hvað?
„Jú, Stöð 2 ætlar að frumsýna Síð-
asti valsinn um landhelgisstríðið
einmitt hér um borð,“ sagði Amar.
Fyrst sögðu þeir mér að gestalistinn
væri 80 manns sem var í góðu lagi.
En þegar þeir sögðu mér að
gestunum hefði fjölgað upp í 250
manns ákvað ég að byggja yfir
héma,“ sagði Amar svefnlítill í gær,
rétt um sólarhring áður en allt átti að
vera tilbúið fyrir frumsýningarveisl-
una í kvöld.
Þegar komið er um borð í skipið
riQast gamlir tímar upp - angan af
gömlum þilfarsborðum, landhelgis-
klippur, margar ljósmyndir á veggj-
Ofurölvi þjóf-
ur í ham
DV, Akureyri:
Maður um tvitugt, sem braust inn í
veitingastaðinn Kaffi Akureyri að-
faranótt mánudags, lét ekki þar við
sitja þegar að honum var komið.
Maðurinn braust inn um glugga á
bakhlið hússins og var búinn að bera
út á annan tug bjórkassa og annað
eins af áfengisflöskum þegar styggð
kom að honum og hann lagði á flótta.
Hann lagði leið sína niður á Gler-
áreyri þar sem hann fann bil meö
lykli í og stal honum. Því næst hafði
hann samband við kunningja sinn og
að lokum fóru þeir á stolna bílnum
upp í Hlíöarfjall þar sem bílnum var
ekið inn í skafl. Áður en bíllinn var
yfirgefmn var eldur kveiktur í pappír
og hann settur logandi í sæti bílsins,
greinilega í þeim tilgangi að kveikja í
bílnum en það tókst þó ekki.
Rannsóknarlögreglan handtók 8
manns vegna þessa máls á mánudeg-
inum og játaði maðurinn eftir yfir-
heyrslur á þriðjudag og bar við mik-
illi ölvun. í tengslum við málið komu
upp fjögur tilfelli þar sem um ölvun-
arakstur var að ræða og flkniefna-
neyslu.
-gk
myndinni ásamt starfsmönnum, hefur látiö byggja snarlega yfir nánast allt fram-
DV-mynd Hilmar Þór
Arnar Sigurösson, lengst til hægri á
skipiö - á aöeins tveimur vikum.
um af viðureignum „okkar manna"
við sjómenn á breskum herskipum og
margt fleira. Þó að skipið sé mjög
komið til ára sinna - smíðað árið 1951
í Álaborg í Danmörku og því hálfrar
aldar gamalt á næsta ári - er ekki
hægt að segja annað en að snyrtilegt
sé um borð, enda rak Landhelgisgæsl-
an skipið ávallt með þeim hætti og
vel var gengið um þegar Slysavarna-
skóli sjómanna tók við áður en einka-
aðilar tóku við því.
Amar segir að gamlir Gæslumenn,
s.s. Hermann Sigurðsson, fyrrum
varðskipsmaður og þyrluflugmaður,
og Jón Páll Ásgeirsson, stýrimaður á
Óðni, og fleiri hafi nýlega gefið skip-
inu ómetanlegt myndefni.
„Við ætlum að varðveita sögu
skipsins," sagði Amar Sigurðsson.
-Ótt
Kampavínsbörnin tengd smáglæpum:
„Mafíósar" til barna-
verndarnefndar
- misnotuðu sér yngri börn
„Þetta mál er til rannsóknar ásamt
öðrum málum sem því tengjast í Mos-
fellsbæ en það er ekki tímabært að tjá
sig neitt um það,“ segir Karl Steinar
Valsson aðstoðaryfirlögregluþjónn
um mál barnanna í Mosfellsbæ sem
drukku kampavín i limósínu á Þor-
láksmessu.
Lögreglunni hefur ekki borist form-
leg kæra vegna kampavínsbarnanna.
„Mál þeirra tengist í raun aðeins
þeim málum sem hafa verið til skoð-
unar í Mosfellsbæ síðan í desember,"
segir Karl Steinar. Þau mál tengjast
öll ýmsum smáafbrotuni og óknyttum
bama og unglinga í bænum. For-
sprökkum unglinganna hefur verið
lýst sem mafíósum með misnota sér
yngri böm í auðgunarskyni.
„Þetta eru nær allt saman ósakhæf-
ir einstaklingar og því em málin leyst
í samvinnu við bamavemdaryfirvöld
á staðnum," segir Karl Steinar.
Gert er ráð fyrir að rannsókn lög-
reglunnar ljúki á næstu dögum.
-GAR
Karl Steinar Valsson: „Þetta eru nær
allt saman ósakhæfir einstaklingar."
sandkorn
í fótspor Bítlanna
Umhverflsvinir hafa verið hálf-
umkomulausir og raddlitlir und-
anfarnar vikur. Ástæðan er sú að
talsmaður og framkvæmdastjóri
landssöfnunar þeirra, Jakob Frí-
mann Magnússon,
hélt vígreifur af
landi brott í byrjun
janúar. Hann hélt
alla leið til Ind-
lands þar sem
hann hefur haldið
til síðan. Mikil
leynd hvílir yfir
þessu ferðalagi
Kobba. Þó er vit-
að að með honum í ferð era
breskir aðilar og mun tilgangur-
inn vera að skoða indverskan
markað í óþekktum tilgangi. Þá
þykir ekki ósennilegt að Jakob sé
að feta í fótspor Bítlanna og iðka
slökun eftir harðvítuga baráttu
við eyðileggingaröfl hér á landi.
Til þess ku ekkert betur fallið en
indverskt jóga ...
Bryndís eftirsótt
Mikil gerjun er nú meðal sam-
fylkingarfólks sem þráir áhrif og
völd. Alþingismaðurinn Lúðvík
Bergvinsson hefur gefið undir
fótinn með það í sjónvarpi að
mikill þrýstingur sé
á hann að verða
formaður með
Bryndísi
Hlöðversdóttur
sér við hlið sem
varaformann.
Stuðningur við
Lúðvík stendur
þó djúpt og fáir
vilja vera stimpl-
aðir opinberlega í raðir hans. Svo
sem lýst var í Sandkorni er Ein-
ar Karl Haraldsson stuðnings-
maður Bryndísar Hlöðversdótt-
ur og hann mun gjarnan vilja sjá
hana í forystuhlutverki á vegum
hennar. Skoðun Einars Karls
mun þó vera sú að Össur Skarp-
héðinsson sé öflugasti talsmaður
Samfylkingarinnar um þessar
mundir og Bryndís ætti að gefa
sjálfri sér það tækfæri að láta
hann leiða sig inn í nýja öld ...
Grasrótarmaður
Þeir eru margir sem láta sér
annt um umhverfið. Sigurður G.
Tómasson var mikill grasrótar-
maður meöan hann hlustaði á
társtokkna alþýöu landsins í
Þjóðarsálinni á Rás
2. Þegar rætur Sig-
urðar í Efstaleiti
slitnuðu og hann
flosnaði upp flutti
hann sig neðar í
Fossvoginn í
betra skjól en
hann er nú fram-
kvæmdastjóri
Skógræktarfélags
Reykjavíkur. Þannig má segja að
Sigurður sé aldrei langt frá gras-
rótinni enda jarðfræðingur og
íslenskufræðingur að mennt...
Þráðbeint niður
Stuðningsmönnum Samfylking-
arinnar er síður en svo hlátur í
huga þegar niðurstöður skoðana-
kannana eru birtar, enda um mik-
ið fýlgishrun að ræða. Andstæð-
ingarnir kætast mjög__jrfir
mislukkaðri samfylk^
ingu sem þeir vilj:
meina að ætti að/
nefnast sundrung.
Pálmi Jónssonl
á Sauðárkróki bjól
til eftirfarandi vísu
eftir síðustu skoð-
anakönnun um fylgi
stjómmálaflokkanna.
Aldrei rœtist allra trú
ýmsum þykir midur
að Samfylkingin sœkir nú
svona þráðbeint niður.
Umsjón Reynir Traustason
Netfang: sandkorn @ff. is