Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2000, Page 6
6
FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 2000
Fréttir
Nemendur Sjávarútvegsháskólans í Tromse 1 kurteisisheimsókn:
Akureyringar móðga
námsmenn frá Noregi
- en gáfu pitsu, segir nemandi. Fyrirvaralítil heimsókn, segir deildarstjóri
27 nemendur Sjávarútvegsháskólans í Tromsö hafa átt góða daga á íslandi. Þeim hefur víðast verið tekið með kost-
um og kynjum. Hér eru nemarnir ásamt prófessor sínum að skoða Faxamarkað. DV-mynd Hilmar Þór
„Okkur hefur verið tekið með
kostum og kynjum í heimsókninni
en þó með einni undantekningu.
Deildarstjóri sjávarútvegsdeildar
Háskólans á Akureyri sagði í ávarpi
að hann vildi ekkert samstarf við
skólann. Fólki brá vegna þessa“ seg-
ir Guðmundur Ragnarsson, einn 27
nemenda við Sjávarútvegsháskól-
ann í Tromso sem dvalið hafa ásamt
prófessor sinum, Ragnari Olsen, hér
á landi undanfarna daga. Nemend-
urnir er útskriftarhópur skólans og
ferðin til íslands er farin til að
kynnast íslenskum sjávarútvegi.
Guðmundur, sem er einn fjögurra
íslenskra nemenda, segir félaga sína
vonsvikna vegna þessa og undrandi.
Yfirlýsing deildarstjórans hafi verið
móðgandi.
„Skilaboöin frá deildarstjóranum
voru þau að skólinn okkar stæði
skólanum á Akureyri að baki. Það
er auðvitað skrýtið þar sem okkar
skóli hefur gríðarlega gott orð á sér
hér á landi sem víða um heim,“ seg-
ir Guðmundur og segir skólann í
Tromso hafa svo gott orð á sér aö
grípa hafi þurft til fjöldatakmark-
ana.
Hann segist undrandi á höfnun
deildarstjórans þar sem vaninn
væri í vináttuheimsóknum á borð
við þessa að menn undirrituðu
plagg sem væri eins konar viljayfír-
lýsing um vináttusamband. Ekkert
byggi að baki nema kurteisin ein.
„Útskriftamemendur fóru til
Kína í fyrra þar sem gerðar voru
slíkar viljayfirlýsingar við fjóra
skóla. Mönnum er brugðið og fólk
veit ekki alveg hvaðan á það stend-
ur veðrið. Það verður þó að segjast
eins og er að Akureyringar tóku að
ööm leyti vel á móti hópnum og
buðu m.a. upp á pitsu,“ segir Guö-
mundur.
Aufúsugestir
Hann segir að burtséð frá Akur-
eyraruppákomunni hafi heimsókn-
in tekist frábærlega vel þá 10 daga
sem hún stóð.
„Við vorum alls staðar aufúsu-
gestir. Heimsótt voru fjölmörg fyrir-
tæki og fólk er á einu máli um að
ferðin hafi verið lærdómsrík," segir
Guðmundur sem hélt ásamt félög-
um sínum af landi brott í morgun.
Jón Þórðarson, deildarstjóri sjáv-
arútvegsdeildar Háskólans á Akur-
eyri, sem sjálfur er útskrifaður frá
Tromso, sagði að hópurinn hefði
birst fyrirvaralítið.
„Ég sagði þeim að það væri engin
samvinna milli skólanna. Þeir voru
ekki einu sinni búnir að boða komu
sína hingað og ég vissi ekki af þeim
fyrr en tveimur tímum áður en þeir
birtust. Mér fannst við bara taka
nokkuö vel á móti þeim. Hópurinn
var búinn að vera hér á landi í viku
en hafði ekkert samband hingað,"
segir Jón sem segist hafa sagt þeim
muninn á deildunum 1 Noregi og á
íslandi án þess að leggja mat á
hann.
Hann sagðist ekkert hafa heyrt
minnst á ósk um samstarfsyfirlýs-
ingu.
„Við höfum verið að senda nem-
endur til Noregs og fá þá aftur. Það
hefur ekki fyrr né síðar komið
beiðni til okkar um að taka við
nemendur þeirra; hvorki fyrr né
síðar. Ég hef aldrei fengið bréf frá
þeim um eitt eða neitt,“ segir Jón.
Aðspurður um það hvort hann.
hafi ekki áhyggjur af því að móðga
frændur vora Norðmenn sagði hann
málið vera kostulegt og hafi þeir
móðgast sé það þeirra mál.
„Það er ágætt,“ sagði Jón. -rt
DV-mynd ÞÖK
Stal heitum potti meö öllu:
Þjófurinn er
smekkmaður
- segir eigandinn
Heitum potti með öllu nema
vatni var stolið í Hafnarfirði í
fyrrinótt. Brotist var inn í fyrir-
tækið Trefjar hf., sem framleiðir
pottana, sendibíl bakkað inn í
verksmiðjusal og hann lestaður
með öllu sem þarf í heitan pott:
pottinum sjálfum, dælum og
þrýstibúnaði fyrir nudd, smíðaefni
og handverkfærum til smíðanna.
„Þjófurinn hlýtur aö vera
smekkmaður vegna þess að hann
valdi dýrasta og fallegasta pottinn,
nýja útgáfu af skeifulaga potti með
hornbaðkari. Það eru fáir slíkir til
hér á landi,“ sagði Auðunn Ósk-
Drukkna Flugleiðafólkið:
arsson, framkvæmdastjóri Trefja
hf. „Þetta er tjón upp á 700 þúsund
krónur og alveg ljóst að þjófurinn
hefur þekkt hér til og vitað hvað
hann þurfti til að fá góðan pott í
garðinn. Skeifupottarnir eru sjald-
gæfir og aðeins örfáir til í landinu.
Ég vara fólk því við þjófum á
sendibíl sem segjast eiga einstak-
lega fallegan, skeifulaga pott með
öllu tilheyrandi til sölu á hag-
stæðu verði,“ sagði Auðunn Ósk-
arsson. -EIR
Auöunn Óskarsson á innbrotsstaö.
Bílaleiga
AVIS mælir með Opel
S:568-8888 ^
DugguvogurlO - 104Reykjavik
Ekki rekið af barnum
„Starfsfólkinu var ekki sagt upp.
Við fórum gaumgæfilega ofan í
málið og þegar allt lá ljóst fyrir var
tekin ákvörðun um að aðhafast
ekki frekar. Fólkið er enn við störf
hér í veitingadeildinni," sagði Jón
Sigurðsson, forstöðumaður veit-
ingadeildar Flugleiða í Leifsstöð,
um málefni nokkurra starfsmanna
defidarinnar sem hleyptu öllu í loft
upp með drykkjulátum í Baltimor-
eflugi félagsins skömmu fyrir jól.
Þótti atvikið óþægilegt með tilliti
til þess að meðal farþega var hóp-
ur bandarískra ferðamálafrömuða
sem voru á heimleið eftir heim-
sókn hjá Flugleiðum hér á landi.
' Drukkna Flugleiðafólkið: M
Enn á barnum
Drukknu FlugleiðastarfMnmn-
imir sem hleyptu ðliu í loft upp
með drykkjuUtum 1 BaMmoro-
ílugi félagslns á dögunum eru enn
\1ö stðrf i bamum l Hugstbð Lelfs
Eírikssonar.
„Þetto var starfsflMk veltlnga-
deiidar nugleiöa hér l Uiftstöð og
fólkiö «• viö störf þar til annað
veröur ákveölö, “ sagöl Gunnar Ól
»en, stöóvamjórl Flugieiöa I
Koflavflc.
Starfkmenn veMngadeUdarinn
ar flugu tU BaMmore á afsláttar-I
miðum vinnuvcitanda sins enl
mbwtu stiórn á drykkiu slnni ál
miörl leið yfir hafiö. Atvikiö varl
sérlega óheppiíegt fyrir Fluglelðlrl
þvl i satna flugi voru bandflriskir 1
Iterðflmálafrömuðir i heimlelð eft- '
Ir vel heppnaöa kynnlsferö i.___
hftfuöstóðvar Fluglelða I Heykja-I
vUt. Uröu þelr ekki hvaö slst lyrir ]
barðbm á drykkíuUtum nugleiöa-
starfsmannanna.
eirJ
Frétt DV frá því um miöjan desember.
„Hávaðinn sem aðrir farþeg-
ar kvörtuðu yfir átti ekki
upptök sín hjá starfsfólki
okkar, eftir því sem best
verður séð. Þama komu aðr-
ir að,“ sagöi Jón Sigurðsson.
Farþegar í umræddu
Baltimoreflugi, sem kvört-
uðu yfir drykkjulátunum,
hafa samkvæmt heimildum
DV fengið sent afsökunar-
bréf frá Flugleiðum þar sem
umrætt atvik er harmað.
Starfsmennimir eru hins
vegar enn á bamum - að
vinna.
-EIR
Myndarlegur Terrano II árg. 2000
á 38 tommu dekkjum - til sýnis
um helgina meö ýmsum fleiri
geröum Terrano II.
Terrano-sýn-
ing hjá IH
um helgina
Nú um helgina frumsýnir.
Ingvar Helgason hf. nýjan og
glæsilegan Nissan Terrano II.
Bíllinn verður sýndur bæði
breyttur og óbreyttur. Nissan
verksmiðjurnar hafa lagt mikla
áherslu á kynningu á þessum
nýja bil og buðu m.a. 60 blaða-
mönnum víðvegar frá Evrópu
hingað til lands s.l. haust til að
reynsluaka honum við hinar
erfiðustu og fjölbreyttustu að-
stæður.
Breytingarnar eru einkum
fólgnar í nýjum framenda, nýju
grilli og margspegla framljós-
um. Þá eru allar gerðir nú með
ABS-hemlakerfi og loftpúða fyr-
ir ökumann og farþega. Mæla-
borð og innréttingin bílsins
hefur fengið nýtt og léttara yfir-
bragð. Á s.l. ári bauðst Terrano
II fyrst með sjáifskiptingu og
hlaut það góöar viðtökur. Þrátt
fyrir endurbætur á bílnum og
meiri staöalbúnað er verðið
nánast óbreytt frá fyrri árgerð.
Terrano II jeppinn er boðinn
3ja eða 5 dyra, með 2,41 bensín-
vél eöa 2,7 1 TDI.