Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2000, Síða 8
8
FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 2000
Útlönd
Ömmur Elians
ætla ekki til
Bandaríkjanna
ömmur kúbska drengsins
Elians Gonzalez, sem bjargaöist í
nóvember undan strönd
Bandaríkjanna er bátur með
móöur hans og ööru ílóttafólki frá
Kúbu sökk, sögðu í morgun aö
þær myndu ekki fara til
Bandaríkjanna að sinni þrátt
fyrir að þeim hefði verið veitt
vegabréfsáritun.
Ömmumar, Raquel Rodriguez
og Mariela Quintana, áttu í gær
fund með Joan Brown Campbell
sem er aðalritari þjóðarkirkju-
ráðsins í Bandaríkjunum.
Campbell flaug til Kúbu í gær til
að reyna að fá ömmur Elians með
sér til Bandaríkjanna. Ömmurnar
ætla ekki að fara fyrr en þær hafa
fengið vissu fyrir því að Elian
snúi með þeim heim.
Spænsk yfirvöld
áfrýja ekki í
máli Pinochets
Spænska stjómin tilkynnti í
gær að hún hygðist ekki taka þátt
í að áfrýja ákvörðun breskra yfir-
valda um að veita Augusto Pin-
ochet, fyrrverandi einræðisherra
Chile, frelsi.
Abul Matutes, utanríkisráð-
herra Spánar, sagði að stjóm sín
hefði náð samkomulagi við yfir-
völd í Chile um að ekkert yrði
gert sem skaöað gæti samskipti
ríkjanna.
Tiikynningin kom degi eftir að
spænski dómarinn Baltasar
Garzon hafði farið fram á að
stjórnin í Madrid áfrýjaöi strax
yrði ákvörðun tekin um að sleppa
Pinochet.
Breska læknafélagið sagði í
morgun að í raun væri hægt að
gera skýrsluna um heilsufar Pin-
ochets, sem yfirvöld í Bretlandi
hafa neitað aö birta, opinbera. í
bréfi til breska blaðsins Times
sagði formaður læknafélagsins að
að trúnaður milli sjúklinga og
læknis væri ekki alger. Hægt
væri aö rjúfa hann fyrir rétti.
Kristilegir íhuga málshöfðun á hendur Kohl:
Fjármálastjóri
CDU hengdi sig
Flokkur kristilegra demókrata
(CDU) i Þýskalandi íhugar að höfða
mál á hendur Helmut Kohl, fyrrum
kanslara, tO að þvinga hann til að
greina frá hverjir lögðu fé í leyni-
sjóðina sem eru á góðri leið með að
eyðileggja flokkinn.
Vandi kristilegra jókst enn í gær
þegar fregnir bárust af því að Wolf-
gang Húllen, 49 ára gamall fjár-
málastjóri þingflokks CDU, hefði
hengt sig á heimili sínu í Berlín.
Lögreglan sagði að sjálfsmorðsbréf
sem hann skildi eftir hefði leitt til
þess að hafin væri rannsókn á
fjársvikum. Húllen var kvæntur og
tveggja barna faðir.
Þungamiðja hneykslisins innan
Kristilega demókrataflokksins er
játning Kohls í síðasta mánuði að
hann hefði veitt viðtöku um sjötíu
milljónum króna, í trássi við lög
Lögregla stendur vörö í blokkinni
þar sem starfsmaöur CDU bjó.
um fjármögnun stjómmálaflokka,
sem settar voru á leynireikninga.
Kohl hefur neitað að greina frá því
hverjir gáfu féð.
Leiðtogar CDU sögðu að sjálfs-
morð Húllens heföi verið af per-
sónulegum ástæðum og kæmi
hneykslismálinu ekkert við. Sjón-
varpsstöðin ZDF sagði hins vegar
að í sjálfsmorðsbréflnu væru orð
sem skilja mætti sem svo að Húl-
len tengdist misnotkim á flokks-
sjóðum.
Fréttaskýrendur sögðu að sjálfs-
morð Húllens væri aðeins til að
auka á vanda flokksins þótt það
tengdist ekki fjármálahneykslinu.
Wolfgang Scháuble, formaður
CDU, sem sjálfur hefur viðurkennt
að hafa tekið við fé, bað þýska
þingið afsökunar á fjármála-
sukkinu.
Indónesískt barn leitar aö brotamálmi í húsagaröi á eyjunni Lombok. í bak-
sýn má sjá bíl sem var brenndur í óeiröunum sem hafa geisaö á eyjunni síö-
ustu daga. Heldur var þó farið aö róast þar í morgun.
Clinton hvetur
Arafat og Barak
til málamiðlana
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
hitti Yasser Arafat, forseta Palest-
ínumanna, í Hvíta húsinu í gær og
hvatti við það tækifæri bæði Palest-
ínumenn og ísraela til að sýna
sveigjanleika í friðarsamningunum.
„í ferli sem þessu eru erfiðar
málamiðlanir óhjákvæmilegar,"
sagði Clinton við upphaf fundarins
með Arafat á forsetaskrifstofunni.
Og bætti við að enginn gæti fengið
allt sem hann vildi.
Arafat, sem hefur látið í ljós
gremju sína yfir hversu hægt geng-
ur í lokaviðræðunum viö Israel,
sagðist gera sér grein fyrir að ekki
yrði auðvelt að semja um frið.
Kona fæddi
óvænt barn úti á
götu í Grikklandi
Fjörutíu og átta ára gömul kona
vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið
þegar hún fæddi allt í einu barn úti
á miðri götu í bænum Volos í
Grikklandi á þriðjudagskvöld. Kon-
an hafði fengið magaverk skömmu
áður en bamiö kom í heiminn. Hún
hafði ekki hugmynd um að hún
væri ófrísk.
Sjónarvottar sögðu að ekki hefði
heyrst múkk í barninu eitt augna-
blik en síöan hefði það farið að
gráta. Bamið var vafið inn í dag-
blöð og peysu og flutt á spítala.
Stuttar fréttir i>v
Fjöldamorð í Istanbul
Tyrkneska lögreglan leitaði í
gær fjöldamorðingja í bæði
Ankara og Istanbul eftir að 10 lík
fundust í Istanbul á miövikudag-
inn. Talið er að heittrúaðir
múslímar beri ábyrgð á morðun-
um.
Arkan jarðsettur
Þúsundir voru viöstaddar útfor
serbneska stríðsherrans Arkans í
gær. Arkan var
skotinn til bana
á laugardaginn
í anddyri hót-
els í Belgrad.
Stjómarand-
stæðingar full-
yrða að einhver
opinber emb-
ættismaður hafi fyrirskipað
morðið þar sem Arkan hafi verið
of valdamikill og vitað of mikið.
Washington á kafi í snjó
Loka varð skólum í Was-
hington í gær vegna mikillar snjó-
komu. Röskun varð á flugi og öðr-
um samgöngum.
Sprengt í Madríd
Tvær sprengjur sprungu í
Madríd, höfuðborg Spánar, í
morgun. Einn maður lést í fyrri
sprengingunni. Talið er að
aðskilnaöarsamtök Baska beri
ábyrgðina.
Blair ræðst á fjölmiðla
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, mun í ræðu í dag gagn-
rýna fjölmiðla sem undanfarnar
tvær vikur hafa ráöist á stjórn
hans. Mun Blair halda því fram
að stjómin standi við öll loforð
sín.
12 ára moröingi
12 ára drengur í suðvesturhluta
Englands var í gær ákærður fyrir
morð á 6 mánaða bróður sínum.
Engin merki bilunar
Sérfræðingar, sem rannsakað
hafa brakið úr Boeing 767 flugvél-
inni sem hrapaði í Atlantshaf í
október síðastliðnum, hafa ekki
séð nein merki bilunar í vélinni.
Fékk aftur fyrir hjartað
Bill Bradley, sem varð að taka
sér hlé í desember frá baráttu
sinni fyrir því
að verða forseta-
efni demókrata
vegna hjartslátt-
artruflana, sagði
í gær að hann
hefði fjórum
sinnum fengið
sama kvilla síð-
an þá. Bradley ætlar hins vegar
ekki að breyta áætlunum um
kosningafundi.
Konur í valdastöður
Nýr forseti Chile, Ricardo
Lagos, ætlar að hafa konur við
hlið sér við stjórn landsins. Lagos
hyggst kynna nýja ráðherra 5.
febrúar næstkomandi.
Vfeiður þú
einnaf 16
heppnum?
Tippaðu á enska boltann
og þú getur veríð á leiðinni
á stórleiki í London
Dregið verður úr öllum seldum röðum
naestu 3 vikur og fá 16 heppnir tippara ferð
til Englands að sjá stórliðin
Chelsea - Wimbledon og Arsenal - Liverpool
berjast um boltann.
1 X2.IS