Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2000, Side 9
FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 2000
9
DV
Útlönd
Hillary ætlar
að skilja við
Hillary Rodham Clinton, forseta-
frú Bandaríkjanna, hefur gert kunn-
ugt að hún ætli að vera við hlið eig-
inmanns sins, Bills Clintons; eftir
að kjörtímabili hans lýkur. Það
virðist því ekki ætla að verða af
skilnaðinum sem margir höfðu gert
ráð fyrir.
í viðtali við bandarísku sjón-
varpsstöðina WKBW ræddi Hiilary
um ást sína á eiginmanninum.
„Við höfum varið löngum tima
saman og upplifað margt saman
samtímis því sem okkur er báðum
annt um fjölskylduna," sagði for-
setafrúin.
Hillary stóð viö hlið eiginmanns
síns eins og klettur þegar upp komst
að hann hafði átt í kynferðislegu
sambandi við Monicu Lewinsky,
fyrrverandi lærling í Hvíta húsinu.
í kjölfar uppljóstrananna og
hneykslisins sem fylgdi velti allur
heimurinn því fyrir sér hvort for-
setafrú Bandaríkjanna myndi yfir-
Hillary var hjá Bill í Washington í gær og horföi á hann ástaraugum.
gefa eiginmann sinn eða ekki. Hún
þykir hafa staðist álagið með mikl-
um sóma og hlotið fyrir samúð og
virðingu um allan heim.
Hillary og Bill keyptu sér nýlega
hús í úthverfi New York-borgar.
Forsetafrúin keppir að því að hljóta
sæti öldungadeildarþingmanns fyr-
ir New York og hefur hún þegar haf-
ið kosningabaráttu sína. Hillary er
þegar flutt inn í húsið en Bill verð-
ur áfram í Hvíta húsinu í Was-
hington þar til kjörtímabilinu lýk-
ur. Þau verða því fjarbýlisfólk um
skeið en forsetinn kveðst þó líta á
húsið í New York sem nýtt heimili
þeirra hjóna. Bandaríkjaforseti hef-
ur þegar gist i húsinu hjá eiginkonu
sinni. Þegar það fréttist að Hillary
ætlaði að dvelja löngum stundum í
New York var talið fullvíst að hún
væri að undirbúa skilnað við
eiginmanninn en nú hefur hún sem
sé vísað slíkum orðrómi á bug.
Pútín reynir að
verja stríðsbrölt
Vladímír Pútín, starfandi for-
seti Rússlands, hittir Joschka
Fischer, utanríkisráðherra Þýska-
lands, að máli í dag austur í
Moskvu. Á þeim fundi ætlar
Pútín að reyna að verja stríðs-
rekstur Rússa í Tsjetsjeníu þar
sem andstaða uppreisnarmanna
múslíma fer sífellt harðnandi.
Rússneskir íjölmiðlar eru farn-
ir að gagnrýna stríðsreksturinn,
rétt eins og vestrænir fjölmiðlar.
Til þessa hafa þeir stutt dyggilega
við bakið á Pútín sem er aðal-
hvatamaður árásarstefnu Rússa
og hefur fyrir vikið notiö mikilla
vinsælda almennings.
Hart var barist í Grozni, höfuð-
borg Tsjetsjeníu, í gær og boðar
ekki gott um framhaldið.
ísraelsforseti í vanda:
Ólöglegar peninga-
gjafir rannsakaðar
Dómsmálayfirvöld í ísrael hafa
fyrirskipað lögreglurannsókn á
staðhæfingum um að Ezer Weizm-
an, forseti ísraels, hafi þegið ólög-
legar háar peningagjafir frá frönsk-
um auðkýfingi og góðkunningja sín-
um.
„Enginn vafi leikur á að forsetinn
er saklaus, flekklaus," sagði lögmað-
urinn Yaacov Weinroth á fjörugum
blaðamannafundi sem sýndur var í
beinni útsendingu í ísraelska sjón-
varpinu. „Forsetinn hefur ekki í
hyggju að segja af sér.“
Weizman hefur viðurkennt aö
hafa þegið sem svarar rúmum fjórt-
án milljónum króna að gjöf frá þess-
um vini sínum, Edouard Saroussi, á
meðan hann var þingmaður og ráð-
herra á árabilinu 1988 til 1993.
Forsetinn, sem er gamall orr-
ustuflugmaður, segist ekki hafa bor-
ið nein skylda til að gera grein fyr-
ir peningunum. Hann ætlar að verja
sig með kjafti og klóm og hreinsa
nafn sitt.
Barak forsætisráðherra sagði í yf-
irlýsingu að þetta væri erfitt fyrir
alla, einkum þó þá sem þekktu for-
setann og mætu störf hans.
Jacques Chirac Frakklandsforseti gefur sjófuglum, sem bjargað var af
olíumenguðum ströndum á Bretagneskaga, fisk. Frakklandsforseti hefur
heitið þvf að hvetja til að sett verði alþjóðleg lög sem neyöa þá er valda
skaöa vegna olíuleka, eins og varð þegar skipiö Erika sökk í desember
síðastliðnum, til að greiöa hærri bætur. Sfmamynd Reuter
Tæknifræðingar framtiðarinnar
finna heildarlausnir...
T ^ Y
f* ''
ptm fr
rSs *
wm
En fyrst hittast þeir á kynningarfundi á Islandi
Hugsaðu um sjálfa(n) þig og framtíðina og fáðu upplysingar um
tæknifræðinám í Syddansk Universitet í Sonderborg
1 Islenskur tæknifræðinemi við
skólann veitir þér upplýsingar
um námið.
1 Komdu og ræddu við íslending
sem lærði í Sonderborg og
vinnur nú á íslandi.
Allir velkomnir. Nánari tíma-
setning fyrir fúndina í skólunum
fast í viðkomandi skóla.
Mánudag 24. janúar
Borgarholtsskóla
Iðnskólinn i Rcykjavík
I’riðjildag 25. janúar
Vélskóli Islands
Fjölbrautarskólinn Brciðholti
Miðvikudag 26. janúar
Menntaskólinn við Hamrahlíð
Tækniskóli Islands
Miðvikud. 26. janúar kl. 20:
Hótel Sögu, Reykjavík
Syddansk Universitet
Ingenioruddannelserne
Grundtvigs Allé 150
DK-6400 Sonderborg
Tlf. +45 65 50 16 34
e-mail: ba@ingsdb.sdu.dk
www.sdu.dk
Tæknifræði
útflutningur
- Sameinar tungumál, vidskipta/
markaðsfræði og tækni
Tæknifræði rekstur
- Sameinar viðskiptafræði,
stjórnun og tækni
Tæknifræði
hönnun/þróun
- Rafmagnstæknifræði
(veikstraumur)
- Rafmagnstæknifræði
(hugbúnadur)
- Véltæknifræði ("Mekatrónik”)
Tæknifræði
mastersnám
- Samhæfð tölvutækni rafeinda
og eðlisfræði, kallast á dönsku
"Mekatrónik”
Syddansk
Námsbærinn Sonderborg
býður upp á fjölbreytta mögu-
leika á menningu og annarri
afþreyingu
Kollegiernes Kontor (Skrifstofa
Stúdentagarðanna) aðstoðar
við öflun húsnæðis
í Sonderborg eru búsettir Is-
lendingar, sem eru við nám og
störf og á þeirra vegum er starf-
rækt íslendingafélag
Þér er velkomið að hringja í
Nönnu Pétursdóttir formann
íslendingafélagsins í síma
+45 74 43 33 75
e-mail: nannapet@postl.tele.dk
Lídð á heimasíðu íslendingafélag-
sins:
www. sb. sdu .dk/'isfor/
Uníversitet