Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2000, Síða 13
FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 2000
13
Viðskipti
DV
Þetta helst: Viðskipti á VÞÍ 1.452 m.kr. ... Þar af 567 m.kr með hlutabréf ... Mest með bréf í Eimskip, 73 m.kr. og
Baugs, 68 m.kr. ... Stálsmiðjan hækkaði um 13% ... Opin kerfi hækkuðu um 10,1% ... Fiskiðjusamlag Húsavíkur lækkaði
um 7,7% ... KEA lækkaði um 6% ... Landsbankinn um 2,3% ... Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,7% og er nú 1.663 stig ...
Hlutabréfaeign ÍS-15
um 7,4 milljarðar
15 verðmætustu eignarhlutar ÍS-15
Félag Eignarblutur Virdi Félag Eignaitilutur Virði
DeCode genetics 2,1% 2.100 SÍF 5,5% 326
ÚA 12,4% 871 Samherji 2,1% 253
Flugleiðir 6,9% 732 Skeljungur 5,4% 302
Olíufélagið 6,4% 618 Þormóður rammi/Sæberg 2,1% 164
Marel 6,2% 643 Baugur 0,6% 81
Tryggingamiðstöðin 4,2% 401 Pharmaco 2,1% 66
Sjóvá-Almennar 2,2% 369 Opin kerfi 0,8% 42
Atlanta 14,2% 351 Samtals 15 stærstu 7.319
Verðmæti hlutabréfa i eigu Fjár-
festmgarsjóðs Búnaðarbankans hf.,
ÍS-15, hefur aukist um rúman miilj-
arð króna frá septemberlokum.
Þetta kom fram í Viðskiptablaðinu
á miðvikudaginn. Þar munar lang-
mest um hækkun gengis bréfa
DeCode genetics i lok síðasta árs.
Hlutdeildarskírteini í ÍS-15 hafa ver-
ið skráð á Verðbréfaþing íslands
undir nafni sjóðdeildarinnar Búnað-
arbankinn - íslensk hlutabréf (ÍS-
15). Það að ÍS-15 skuli ekki vera
skráður hefur hingað til takmarkað
möguleika einstakra fagfjárfesta á
að kaupa hlut í sjóðnum.
ÍS-15 hefur sérhæft sig í að eign-
ast hlut í fáum en stórum félögum
og hefur náð góðri ávöxtun. Heildar-
verðmæti hlutabréfa í eigu sjóðsins
er nú um 7,4 milljarðar króna en
hann er stærsti hlutabréfasjóður
hérlendis sem öllum er heimilt að
fjárfesta í. Sökum stærðar sinnar og
áherslu á félög hefur ÍS-15 iðulega
eignast stóran hlut í þeim félögum
sem sjóðurinn fjárfestir i. Þannig hef-
ur sjóðnum stundum verið, af keppi-
nautum, líkt við skuttogara í baðkari
þar sem fátt sé um fjárfestingarkosti
fyrir sjóð af þessari stærð hér á landi.
Meðal athyglisverðra eignarhluta
sjóðsins má nefna 2,1% hiut í DeCode,
14,2% hlut í Flugfélaginu Atlanta og
12,4% hlut í Útgerðarfélagi Akureyr-
inga ef tekið er mið af eignarhlut
sjóðsins í lok september.
Komiö til móts við lífeyris-
sjóði
Valgeir Geirsson, hjá Búnaðar-
bankanum Verðbréf, sagði í sam-
tali við Viðskiptablaðið að engin
breyting yrði gerð á fjárfestingar-
stefnu sjóðsins með skráningu
hlutdeildarskírteina og áfram
mundi hann höfða til stærri fjár-
festa. Þannig er að lágmarki hægt
að kaupa hlut fyrir tvær milljónir
króna í lS-15 og á því verður engin
breyting. Hjá Valgeiri kom fram að
með skráningu hlutdeildarskír-
teina á Verðbréfaþing getur ÍS-15
hins vegar komið til móts við þær
reglur sem gilda um fjárfestingar
lífeyrissjóða og segist hann búast
við auknum áhuga þeirra í kjölfar-
ið.
Atlanta metið á
2,5 milljarða
Heildarverðmæti hlutabréfa í
flugfélaginu Atlanta hf. er tæplega
2,5 milljarðar króna, sé tekið mið af
bókfærðum eignarhlut Fjárfesting-
arsjóðs Búnaðarbankans ÍS-15 í lok
september síðastliðins. Þetta kom
fram í Viðskiptablaðinu sem kom út
í gærmorgun. Verðmæti Atlanta er
því um fjórðungur af markaðsverð-
mæti Flugleiða hf. á Verðbréfa-
þingi. ÍS-15 á 14,2% hlut og er hann
færður til bókar á 351 milljón
króna. Atlanta er hvorki skráð á
Verðbréfaþing íslands né hefur fyr-
irtækið auðkenni á Opna tilboðs-
markaðnum. Stefnt er að skráningu
Atlanta á Verðbréfaþing íslands á
þessu ári eða í byrjun þess næsta.
Nasdaq
setur met
Bandariska Nasdaq-hlutabréfa-
vísitalan hækkaði um 0,5% í
fyrradag og setti þar með enn eitt
metið með hæsta lokagildi sem
vísitalan hefur tekið ,eða 4.151,40
stig. Dow Jones-hlutabréfavísital-
an lækkaði aftur á móti um 0,6%
og var lokagildið 11.489,36 stig.
Þegar DV fór í prentun í gær
höfðu ekki borist tölur fyrir gær-
daginn.
ístel og Símvirkinn sameinast
- stærsta einkarekna símkerfa- og símstöövafyrirtæki landsins
Símafyrirtækin ístel hf. og Sím-
virkinn - Símtæki ehf. hafa samein-
ast. Nýja fyrirtækinu hefur verið val-
ið nafnið Svar hf. Það verður stærsta
einkarekna símkerfa- og sim-
stöðvafyrirtæki landsins. Auk núver-
andi hluthafa í ístel og Símvirkjanum
eru hluthafar í Svari hf. Tæknival hf.,
Rúnar Sigurðsson og Fjárfestingar-
banki atvinnulífsins hf.
Fram kemur í tilkynningu frá fé-
lögunum að ör tækniþróun á sviði
upplýsinga-, síma- og samskiptatækni
var hvatinn að sameiningu fyrirtækj-
anna, auk hagkvæmnissjónarmiða.
„Skilin milli stafrænnar símatækni
og tölvusamskiptatækni verða sífellt
óskýrari því tölvan og síminn eru að
renna saman. Þetta mætti kalla eins
konar samruna hljóðs- og gagnaflutn-
inga. Drifkrafturinn í þessari þróun
er Internetið og hinn svokallaði IP-
samskiptastaðall. Fyrirséð er að ný
tölvuvædd símtækni tekur við af hin-
um hefðbundna sima og því hyggst
Svar hf. bjóða viðskiptavinum upp á
nýjustu samskiptakerfm á markaðn-
um hverju sinni. Nýja tæknin býður
upp á margfaldan hraða og fleiri
möguleika," segir í fréttatilkynningu
frá Svari hf.
Svar hf. sérhæfir sig í innflutningi,
ráðgjöf, sölu og þjónustu á ISDN-sam-
skiptabúnaði fyrir fyrirtæki, stofnan-
ir og heimili. Fyrirtækið hefur um-
boð fyrir leiðandi framleiðendur á
þessu sviði, s.s. bandaríska framleið-
andann Harris, LG í Suður-Kóreu
(GoldStar) og japönsku fyrirtækin
Nitsuko og Panasonic.
Markaðshlutdeild fyrirtækjanna
tveggja var áætluð í lok síðasta árs
um 35% á höfuðborgarsvæðinu og um
25% á landsvísu. Samanlögð velta fyr-
irtækjanna var um 250 milljónir
króna. Starfsmenn eru 25.
Höfuðstöðvar Svars hf. verða í nýju
húsnæði að Bæjarlind 14-16 í Kópa-
vogi og stefnt er að flutningi í byrjun
í mars. Innan skamms verður opnað
á Akureyri fyrsta landsbyggðarútibú-
ið. Þar verður verslun, verkstæði og
þjónustudeild. Svar hf. á Akureyri
mun annast sölu, uppsetningu og
þjónustu fyrir símbúnað. Stefnt er að
opnun fleiri útibúa Svars hf.
Framkvæmdastjóri Svars hf. er
Stefán A. Stefánsson, Haukur Hauks-
son er framkvæmdastjóri söludeildar
og Sigvaldi Kaldalóns framkvæmda-
stjóri þjónustudeildar. Framkvæmda-
stjóri Svars hf. á Akureyri er Jónas
Sigþór Sigfússon. Formaður stjómar
Svars hf. er Rúnar Sigurðsson og
meðstjórnendur þeir Reynir Guðjóns-
son og Haukur Hauksson.
Takmarkaðri afhendingu á
afgangsorku til stóriðju hætt
Landsvirkjun tilkynnti í gær við-
skiptavinum sínum að frá og með
nk. mánudegi yrði takmörkun á af-
hendingu afgangsorku til stóriðju
aflétt. Verðþrepshækkun á ótryggðu
rafmagni til almenningsveitna verð-
ur afnumin frá sama tíma.
Takmörkun á afhendingu af-
gangsorku í vetur nam einungis um
fjórðungi skerðinganna í fyrravet-
ur, að því er fram kemur í frétt frá
Landsvirkjun. Engar skerðingar
voru á ótryggðu rafmagni til al-
menningsveitna og viðskiptavina
þeirra nú í vetur. Takmörkuð af-
hending á afgangsorku og ótryggðu
Starfsmenn Landsvirkjunar að verki.
rafmagni undanfama vetur hefur
verið innan þeirra marka sem sölu-
skilmálar kveöa á um.
I frétt Landsvirkjunar kemur
fram að milt veður
undanfarið og gott
rennsli í ám hefur
leitt til þess að
vatnsbúskapur raf-
orkukerfisins er nú
orðinn betri en ver-
ið hefur undanfarin
misseri. Þess má
einnig geta að
seinni vél Sultar-
tangavirkjunar
verður komin í rekstur í lok janúar
eins og stefnt var að en það eykur
verulega framleiðslugetu raforku-
kerfisins.
WAP-símar á Netiö
íslandsbanki tók í fyrradag
fyrsta skrefið i nýrri vídd á Netinu
með því að opna aðgang WAP-síma
að Netbankanum. WAP-símar era
nýjasta tegund GSM-sima sem hafa
aðgang að þessari nýju vídd. Þessi
nýja tækni byggist á svokölluðum
WAP-staðli en hann gerir notend-
um kleift að nálgast gögn og þjón-
ustu á Netinu. WAP-tæknin er
tæknibylting sem mim gjörbreyta
notkun Netsins að margra mati á
næstu mánuðum og árum og er án
efa sú tækni sem notuð verður.
Víst er að landslag og notkunar-
gildi Netsins hefur breyst og tekið
miklum framfórum með þessari
tæknibyltingu.
Aösóknarmet á Englana?
Mikil að-
sókn hefur
verið á nýj-
ustu kvik-
mynd Frið-
riks Þórs
Friðriksson-
ar, Engla al-
heimsins, og
frá því hún var frumsýnd á nýárs-
dag hafa meira en 40.000 kvik-
myndahúsagestir barið hana aug-
um.
Viðskiptablaðið greindi frá því
að kvikmyndasamsteypan væri nú
með 40 myndir í framleiðslu
Byggingarvísitalan hækkar
um 0,8%
Vísitala byggingarkostnaðar,
miðað við miðjan janúar, hækkaði
um 0,8% frá fyrra mánuði og er nú
238,6 stig. Fram kemur i frétt frá
Hagstofúnni að hækkun vísitöl-
unnar síðastliðna þrjá mánuði
samsvari 2,9% hækkun á ári. Síð-
astliðna tólf mánuði hækkaði bygg-
ingarvísitalan um 1,5%.
Skjalaskópar
í miklu úrvttli
Bresk
hágæðavara
Verð frá kr. 16.808
H. Ólafsson og Bernhöft ehf.
Kaplahrauni 1,220 HafnarfirSi
Sími 555 6600, fax 555 6606,
netfang hob@hob.is