Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2000, Page 16
16
17
+
FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 2000 FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 2000
Sport
Sport
Bland í noka
Falur Harðarson lék sinn fyrsta leik
með sínu nýja liði, Honka, i finnsku
A-deildinni í körfubolta í fyrrakvöld.
Falur fékk rétt að finna smjörþefinn
af leik liðsins, lék átta mínútur og
klikkaði á báðum þriggja stiga skot-
um sinum á þeim tíma. Honka vann,
98-77, heimasigur á Piiloset og
tryggði enn frekar stöðu sína á toppi
deildarinnnar.
Coventry varð sneggra en önnur
ensk úrvalsdeildarlið til að næla sér i
Belgann unga, Cedric Roussell, frá
Gent en taliö er að Roussell hafl skrif-
að undir fimm ára samning. Hann
kostar Coventry allt upp í 140 milljón-
ir króna en helmingur kaupverðsins
er háður leikjum Roussell með
Coventry.
Hið árlega þorrablót KR verður
haldið laugardaginn 22. janúar næst-
komandi í Frostaskjóli. Veislustjóri
er Guðlaugur Þór Þórðarson borg-
arfulltrúi og ræðumaður kvöldsins
er Lúðvik Bergvinsson alþingis-
maóur. Hin fræga KR-hljómsveit
leikur fyrir dansi en húsið verður
opnað klukkan 19.00.
Jón Arnar Magnússon verður á
meðal keppenda á meistaramótinu í
fjölþraut sem fram fer í Baldurshaga
og Laugardalshöll um helgina.
Keppni hefst klukkan 10.30 á laugar-
daginn og 12 á sunnudaginn.
Stórmót SH i sundi verður haldið í
Sundhöll Hafnarijarðar um helgina.
Að þessu sinni er umgjörð mótsins
meö öðru sniði, með meiri áherslu á
að likjast stórum alþjóölegum mótum
sem haldin eru víðs vegar um heim-
inn. Með þessu móti vill SH að sund-
menn okkar öðlist reynslu i að keppa
í undanrásum og úrslitum í sömu
grein sama dag.
-ÓÓJ/GH
Riðlarnir í
deildabikar
Eftirtalin lið leika saman i riðlum
deildabikarsins i knattspyrnu - A-
riðill: Haukar, Leiftur, Léttir, Dal-
vík, Viðir, Fylkir. B-riðill: Þróttur
R., Sindri, Víkingur R., Huginn/Hött-
ur, Grindavík, Afturelding. C-riðill:
FH, KS, Njarðvík, TindastóU, KR,
Fram. D-riðill: SkaUagrímur, Selfoss,
Stjarnan, Fjölnir, ÍA, KÍB. E-riðill:
Hamar/Ægir, Þór, Ak., Breiðablik,
KA, Valur, HK. F-riðiU: Keflavík,
KFS, Leiknir, R., ÍBV, Bruni, ÍR. 1
kvennaflokki: A-riðiU: Þór/KA, ÍBV,
Breiöablik, Stjaman, Grindavík. B-
riðiU: ÍA, KR, Valur, FH, RKV.
-ÓÓJ
New Jersey-Detroit .....122-120
Marbury 34, Van Horn 28, Gill 12 -
Laettner 28, Stackhouse 28, HiU 23.
Chariotte-Philadelphia . .109-100
Coleman 23, Jones 23, Wesley 15 -
Iverson 35, HiU 17, Lynch 16.
Milwaukee-Seattle........96-104
Robinson 21, CasseU 19, Thomas 14 -
Baker 31, Payton 22, Patterson 16.
Houston-Denver..........122-115
Anderson 26, Francis 22, Mobley 17 -
McDyess 40, Van Exel 31, Mercer 22.
Vancouver-Utah............89-94
Harrington 22, Bibby 22, Dickerson 17
- Malone 32, Russel 25, Eisley 9.
Sacramento-Orlando . .. .111-103
Stojakovic 17, Divac 17, Funderburke
15 - Maggette 18, Armstrong 16.
Keflavík í
sjöunda sæti
- eftir sigur Grindavíkur í Keflavík, 78-88
Keflavík tapaði sinum þriðja leik í
röð þegar Grindvíkingar, með Brenton
Birmingham í broddi fylkingar, komu
i heimsókn og sigruðu, 78-88. Svo
virðist sem Keflavíkurhraðlestin fræga
sé farin að ryðga allverulega og þarfn-
ist lagfæringar sem allra fyrst. Með
þessum sigri styrktu Grindvíkingar
stöðu sína í toppbaráttunni en Kefla-
vík er komið í 7. sæti sem er eitthvað
nýtt á þeim bænum.
Brenton Birmingham setti fyrstu
körfu leiksins handan 3ja stiga línunn-
ar og gaf tóninn um hvað koma skyldi.
Brenton og Bjarni Magnússon fóru
saman á kostum í fyrri hálfleik og
skoruðu 36 stig af 39 stigum gestanna
en Jason Smith sá til þess að munur-
inn var ekki meiri en 6 stig í hálfleik
og vann hann vel. Það var svo Jason
sem átti upphafsmínútur seinni hálf-
leiks og kom Keflavik yfír með góðum
sóknartilburðum en þá var komið aft-
ur að Brenton Birmingham sem skor-
aði nánast að vild og sýndi hvers
vegna hann er kóngurinn í deildinni.
Hann kom Grindavík 9 stigum yfir upp
á sitt einsdæmi en var farinn að þreyt-
ast í lok leiksins og heimamenn náðu
að jafna, 78-78. Lengra komust Kefl-
víkingar ekki og Grindavík skoraði
síðustu 10 stig leiksins.
Grindvíkingar fara vel af stað eftir
jólafriið og var þetta þriðji sigur þeirra
í jafnmörgum leikjum. Brenton
Birmingham var í miklu stuði og skor-
aði 48 stig og hafði lítið fyrir því.
Hann lét varnarmenn Keflavíkur ekki
pirra sig, eins og gerðist í Eggjabikarn-
um, heldur sýndi ailar sínar sparihlið-
ar. Bjami Magnússon var mjög góður
í fyrri hálfleik og Ermolinskij kom
með mikilvæga hjálp í seinni hluta síð-
ari hálfleiks. Hjá Keflavík var Jason
Smith góður en athygli vakti hversu
lítið hann fékk boltann síðustu 10
mínútur leiksins. Fannar Ólafsson
barðist vel að vanda en aðrir leikmenn
liðsins verða að setja lóð á vogarskál-
arnar ef liðið ætlar sér stóra hluti í
vetur. Einhvern neista vantar í liðið
og það er eins og menn hafi ekki gam-
an af því að spila körfubolta. -BG
Stórt tap Stóla
- gegn Hamri. Tómas gekk frá Þór
Hamarsmenn frá Hvergerði gerðu
góða ferð á Krókinn og sigruðu, 68-83.
Tindastólsliðið var óþekkjanlegt frá
því fyrr í vetur. Ekki bætti úr skák að
tveir af bestum mönnum liðsins
meiddust i gær, Kristinn Friðriksson i
fyrri hálfleiknum og Sene Hendriksen
snemma i fyrri hálfleik. Kristinn togn-
aði á fingri og Sune á ökkla.
Hjá Tindastóli voru Svavar og
Shawn bestir en eins og fleiri í Tinda-
stólsliðinu hafa þeir báðir verið að
leika betur í vetur. Hjá Hamri var
Brendan Titon allt í öllu, sérstaklega í
fyrri hálfleiknum þegar hann skoraði
26 stig.
Tómas Hoiton frábær og
innbyrti sigurinn gegn Þór
Tómas Holton átti hreint frábæran
leik með Skallagrimi sem vann nauman
sigur á Þór frá Akureyri, 101-96.
Tómas var allt í öllu hjá
Skallagrimi, skoraði 35 stig og átti 9
stoðsendingar. Þórsarar náðu að
minnka muninn í eitt stig þegar
nokkrar sekúndur voru eftir en Tómas
innbyrti sigurinn fyir sína menn með
3ja stiga körfu og víti að auki. „Þetta
var fjórði sigur okkar í röð og nú
verðum við að halda áfram á sömu
braut,“ sagði Tómas eftir leikinn.
KR-sigur á Skaganum
KR-ingar unnu auðveldan sigur á ÍA
á Akranesi. Það sérstaka við leik ÍA og
KR í gærkvöld var að dómaramir voru
afspyrnuslakir og skildu menn oft ekki
hvað verið var að dæma á. Bestir í
liði heimamanna voru þeir Reid
Beckett og Ægir Hrafn Jónsson en hjá
KR-ingum bar mest á Ólafi Ormssyni.
Keith Wasselk náði sér ekki alveg á
strik og var greinilega eitthvað meidd-
ur á fæti.
ísland berst um þriðja sætið
DV, Króatíu:
Evrópumótinu í handknattleik voru gerð góð skil í króatíska sjónvarp-
inu í gærkvöld en viðtöl voru við þjálfara og fyrirliða liðanna 12 sem
leika í keppninni.
í A-riðlinum, sem spilaður er í Zabgreb, voru menn sammála um að
Króatar og Spánverjar mundu bítast um tvö efstu sætin og slagurinn um
þriöja sætið komi til með aö standa á milli Frakka og Þjóðverja.
í B-riðlinum, sem leikinn er í Rijeka, voru menn sammála um að Sví-
ar og Rússar kæmust örugglega í undanúrslit keppninnar og lentu i
tveimur efstu sætunum. Mönnum fannst hins vegar mjög erfitt að spá
fyrir um hvaða þjóð næði þriðja sætinu í riðlinum en þeir sögðu að bar-
áttan myndi standa á milli Dana, Slóvena og íslendinga.
DV, Króatíu:
Króatar og Rússar áttust við í æf-
ingaleik í fyrrakvöld í Zagreb. Króat-
ar sigruðu í leiknum, 27-22, eftir að
hafa leitt hann allan tímann. Rússar
hafa því átt við erfiðleika að stríða i
undirbúningnum og hafa meiðsli
leikmanna átt þar stóran þátt. Max-
imov, þjálfari liösins, hefur haft af
þessu töluverðar áhyggjur en segist
vona að liöið verði tilbúið í slaginn
þegar flautað verður til leiks í dag en
þá mæta Rússar liði Dana.
Guðmundur Hrafnkelsson, markvörður:
Það styttist í
sigur okkar
Guðmundur Hrafnkelsson.
Fram er komin hugmynd þess efnis
að fækka keppnisliðum meistaraflokka
innan Reykjavíkurfélaganna úr ellefu í
fjögur.
Hugmyndin er komin frá Snorra
Hjaltasyni, borgarfulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins, og í beinu framhaldi af um-
ræðum um sívaxandi kostnað við
iþróttasvæði félaganna í Reykjavík sem
að margra mati er orðinn alltof hár.
„Ég tel mun skynsamlegra að byggja
upp mjög góða framtíðaraðstöðu á fjór-
um félagssvæðum í Reykjavík en að
gera þetta á mjög löngum tíma á mun
fleiri svæðum. Þetta myndi spara
Reykjavíkurborg gríðarlega mikla pen-
inga og einnig ætti þetta að auka til
muna möguleika íþróttafélaga í Reykja-
vik á að ná í allra fremstu röð í sem
flestum íþróttagreinum," sagði Snorri í
samtali við DV.
Hugmynd Snorra er róttæk en nær
einungis til meistaraflokksliöa félag-
anna. „Ég hef til dæmis bent á þann
möguleika að Valur myndi flytja starf-
semi sína upp í Grafarvog, KR og
Grótta yrðu áfram í samstarfi á Sel-
tjamamesi, Fram myndi flytja sig í
Laugardalinn og sameinast þar Þrótti
og Ármanni og í Breiðholtinu myndu
Víkingur, ÍR og Leiknir sameina krafta
sína og jafnvel Fylkir. Þetta er einungis
hugmynd en ég tel afar nauðsynlegt að
menn fari að ræða þessi mál af mikilli
alvöru og það sem ailra fyrst. Rétt er að
ítreka að barna- og unglingastarf yrði
áfram í gömlu félögunum og þau
myndu þar halda upprunalegum
nöfnum sínum,“ sagði Snorri ennfrem-
ur.
Eins og áður sagði er þessi róttæka
hugmynd um sameiningu félaga komin
fram í framhaldi af þeirri staðreynd að
kostnaður við byggingu íþróttamann-
virkja í höfuðborginni er gríðaiTegur í
fyrirsjáanlegri framtíð. Á fundi ÍBR á
dögunum lagði Snorri fram bókun um
samnýtingu íþróttamannvirkja og fékk
hún góðar viðtökur.
Samkvæmt heimildum DV eru menn
í hinum ýmsu félögum mjög fylgjandi
sameiningu félaga.
Það er mat margra að íþróttafélögin í
Reykjavík séu alltof mörg miðað við
fjölda íbúa og kostnaður borgarinnar
því mun meiri en hann þyrfti að vera.
„Félögin í Reykjavík eiga alls staðar að
vera í fremstu röð og sameining er leið-
in til að ná því markmiöi," sagði
Snorri. -SK
Staffan Olson hefur oft fengið það óþvegið í landsleikjum Svía enda einn skæðasti leikmaður heimsmeistaranna. íslensku
leikmennirnir verða að taka hart á „Faxa“ í dag ef möguleiki á að vera á sigri gegn Svíum. Reuter
Snorri Hjaltason hefur
lagt fram athyglisverðar
hugmyndir um samein-
ingu fþróttafélaga.
Bland í noka
Flögur félög
í Reykjavík?
Eg hef alltaf borið mikla
virðingu fyrir íslendingum
- segir Staffan „Faxi“ Olsson. ísland gegn Svíum í dag
DV, Króatíu:
Svíarnir eru mættir til Evrópumótsins í handknattleik
með sitt allra besta lið og markmið þeirra er að verja Evr-
óputitilinn sem þeir unnu á síðasta móti á Ítalíu fyrir tveim-
ur árum. í sænska liðinu er valinn maður i hverju rúmu og
langstærsti hluti liðsins hefur leikið saman í hátt í tíu ár.
Einn í þessum hópi er Staffan Olsson sem oft hefur reynst
okkur íslendingum óþægur ljár í þúfu.
„Ég hef alltaf borið mikla virðingu fyrir íslenska landslið-
inu í handknattleik. Liðsmenn þess hafa leikið lengi saman
og það er til alls líklegt á góðum degi. Við gerum okkur fulla
grein fyrir því að leikurinn við íslendinga verður mjög erf-
iður og við verðum að halda vöku okkar allan tímann," sagði
Steffan Olsson við DV.
- Minnist þú þess að hafa tapað einhvern timann fyrir
íslendingum?
„Já, það man ég, en það eru nokkur ár síðan. Ég veit að
það er markmið hjá íslendingum að binda enda á þessa sögu.
íslendingar eru með gott lið í dag og þeir munu eflaust berj-
ast til síðasta blóðdropa gegn okkur.“
- Nú hafa litlar breytingar orðið á sœnska liðinu á síó-
ustu árum. Er engin þreyta komin i mannskapinn?
„Ég ætla rétt að vona að svo sé ekki. Sænskir fjölmiðlar
eru oft að kyrja á þessu en þegar kemur á daginn stendm lið-
ið sig yfirleitt vel þegar á hólminn er komið. Fjölmiðlar
benda á að við séum orðnir gamlir en við stöndum okkur í
stykkinu ennþá.“
- Telur þú það kost að mœta íslandi í fyrsta leik móts-
ins?
„Það skiptir miklu máli að byrja mót af þessu tagi vel. Ég
tel það engu máli skipta hvort við mætum Islendingum i
fyrsta leik eða á síðari stigum þess. Allir byrjunarleikir eru
erfiðir. Við erum hingað komnir til að verja titilinn,“ sagði
Staffan Olsson.
-JKS
Maximov kallaði á dögunum inn í
landsliöið Eduard Moskalenko sem
leikur meö Stjömunni i Garðabæ.
Hann segir þaö betri kost að fá leik-
mann úr íslensku deildinni heldur en
úr neöri deildum i Þýskalandi.
Danir hafa sterku liói á aö skipa í
dag og ríkir bjartsýni um gott gengi
liðsins hér á Evrópumótinu. Þeir
hafa verið að yngja upp liðið á síö-
ustu misserum með ágætum árangri.
Leif Mikkelsen, sem verið hefur með
liðið í þrjú ár, segir aö það geti bragö-
ið til beggja vona en telur sína menn
þó tilbúna í slaginn. Rússaleikurinn
verði hins vegar mjög erfiður.
Verslunarkeðjan 10-11 auglýsir
starfsemi sína á gólfi íþróttahallar-
innar hér í Rijeka ásamt
nokkrum öðrum aöilum, innlendum
sem erlendum. Þetta vakti óneitan-
lega athygli islendinganna þegar þeir
komu til hallarinnar í gær þegar ver-
ið var aö leggja auglýsingamar á gólf-
ið.
í borginni Rijeka, þar sem fyrstu
þrír leikir islenska liðsins verða, búa
um 350 þúsund manns. Þetta er hafn-
arborg og um höfnina fara mestallir
futningar til landsins. Hér er íþrótta-
áhugi mikill og borgin státar af fé-
lagsliðum í efstu deildum í flestum
flokkaíþróttum.
-JKS
DV, Króatía:
Guðmundur Hrafnkels-
son mun eflaust byrja að
verja íslenska markið sem
mætir Evrópu- og heims-
meisturum Svia i borginni
Rijeka í Króatíu í dag.
Guðmundur sagðist eftir
æflngu liðsins í gær eiga
von á erfiðum leik en það
væri góður hugur í hópn-
um og allir staðráðnir í því
að gera sitt besta.
„Við erum ekki komnir
að endanlegri niðurstöðu
hvernig við stillum þess-
um leik upp en Þorbjörn
Jensson mun eflaust gefa
okkur línurnar á fundi
sem haldinn verður um
hádegið í dag,“ sagði Guð-
mundur Hrafnkelsson við
DV.
- Nú hafa Svíarnir
reynst okkur mjög erfiðir
í gegnum tiðina heldur
þú að það hvíli á mönn-
um?
„Já, auðvitað hugsa
menn til þess að það er
langt síðan að við unnum
Svía. Við megum hins veg-
ar ekki hugsa þannig, eins
og margir segja: eftir því
sem ósigarnir verða tleiri
styttist í sigur. Við vona að
það sé komið að þeirri
stund í dag.
Ef við náum að stilla
saman liðið og ná okkar
besta leik eru alveg örugg-
lega möguleikar til þess að
leggja Svía að velli. í síð-
ustu leikjum höfum við
staðið uppi í hárinu á þeim
en alltaf gefið eftir þegar
liðið hefur á leikinn. Núna
er bara spuming að halda
út einn leik á móti þeim.“
- Stendur þetta ekki og
fellur með markvörsl-
unni og vörninni?
„Það gerir það alltaf
eins og dæmin sanna.
Varnarleikurinn hefur
verið sterkasti hlekkur
liðsins og þá fylgir mark-
varslan með. Við eigum á
að skipa fullt af góðum ein-
staklingum í þessu liði.
Við verðum bara að
þjappa okkur saman og
stefna að þvi að gera okkar
besta. Mér líst vel á þetta
því væntingarnar eru ekki
miklar og ég held að það sé
bara ágætt. -JKS
Tobbi neitaði æfingunni
DV, Króatíu:
Eins og komið hefur fram í fréttum fékk íslenska liðið ekki að æfa í keppnishöllinni fyrir fyrsta leikinn gegn
Svíum i dag og eru forsvarsmenn islenska liðsins allt annaö en ánægðir með það.
Svíamir fengu að æfa í höllinni. „Okkur var boðið upp á að æfa í fyrramálið (í morgun) í höllinni en það
gekk engan veginn upp og ég afþakkaði boðið. Það er löng rútuferð frá hótelinu okkar í keppnishöllina og ég
taldi því betra að við stilltum saman strengina og færum saman í góðan göngutúr í fyrramálið (í morgun),“ sagði
Þorbjöm Jensson landsliðsþjáifari. -SK/-JKS
Styrktarleikur fyrir Herdísi á sunnudag í Ásgarði:
Hátíð fyrir Herdísi
Herdís Sigurbergsdóttir, handknattleikskona úr Stjörnunni, varð
fyrir alvarlegum og langvinnum meiðslum á hásin í landsleik fyrir
rúmu einu ári og hefur enn ekki náð sér. Á sunnudaginn hefur verið
skipulögð fjölskylduhátíð í Garðabæ henni til styrktar.
Herdís fékk engar tryggingarbætur og nú bíður hennar dýr aðgerð í
Þýskalandi og er þessi leikur hugsaður sem ijáröflun fyrir hana.
Það er líka hægt að styrkja Herdísi með því að leggja inn á reikning
140-26-250 í nafni hennar í Landsbankanum í Hafnarfirði.
Á sunnudaginn leikur íslenska kvennalandsliðið við úrvalslið valið af
Herdísi þar sem bestu handknattleikskonur etja kappi saman en auk þess eru
skemmtiatriði fyrir leik og í hálfleik og boðið verður upp á kaffi og súkkulaði.
Miðinn kostar 1000 krónur og gildir einnig sem happdrættismiði. -ÓÓJ
Herdís Sigur-
bergsdóttir
Keflavík (33) 78 - Grindavík (39) 88
4-3, 10-10, 13-12, 13-25, 23-27, 31-34, (33-39), 42^1, 49-46, 51-52, 58-58, 63-62, 65-72,
70-76, 71
(0
Jason Smith 31
Fannar Ólafsson 12
Hjörtur Harðarson 10
Gunnar Einarsson 9
Magnús Gunnarsson 8
Halldór Karlsson 4
Elentinus Margeirss. 4
78, 78-88.
Fráköst: Kefiavík 28,
Grindavik 31.
3ja stiga: Keflavík 5/14,
Grindavík 10/21.
Dómarar (1-10): Leifur
Garðarsson og Kristinn
Albertsson, 8.
Gæði leiks (1-10): 6.
Brenton Birmham 48
Bjami Magnússon 18
A. Ermolinskij 10
Guölaugur Eyjólfsson 7
Dagur Þórisson 3
Pétur Guðmundsson 2
Víti: Keflavík 4/8,
Grindavík 8/11.
Áhorfendur: Um 300.
Tindastóli (42) 69 - Hamar (51) 83
w
Svavar Birgisson 22
Shawn Mayers 16
FTiðrik Hreinsson 9
ísak Einarsson 6
Flemming Stie 5
Sune Hendriksen 3
Lárus Dagur Pálsson 3
Gunnl. Erlendsson 3
Kristinn Friðriksson 2
Fráköst: Tindastóll 27,
Hamar 28.
3ja stiga: Tindastóll 4/18,
Hamar 12/15.
Dómarar (1-10):
Sigmundur Herbertsson og
Eggert Aðalsteinsson, 8.
Gϗi leiks (1-10): 7.
Víti: Tindastóil 19/29,
Hamar 6/12.
Áhorfendur:280.
Brendan Titon 37
Hjalti Pálsson 16
Pétur Ingvarsson 12
Skarphéðinn Ingason 9
Ómar Sigmarsson 6
Óli Barðdal 3
Skallagrímur (51) 101 - Þór, Ak. (53) 96
7-6, 16-19, 25-27, 31-33, 38-39, (51-53), 57-58, 69-66, 77-72, 86-86, 97-96, 101-96.
Tómas Holton 35
Torrey John 16
Hlynur Bæringsson 15
Birgir Mikaelsson 10
Ari Gunnarsson 9
Sigmar Egilsson 9
Haiþór Gunnarsson 5
Finnur Jónsson 2
Fráköst: Skallagrímur 20,
Þór 32.
3ja stiga: Skallagrímur
8/21, Þór 8/23.
Dómarar (1-10): Helgi
Bragason og Einar
Einarsson, 8.
Gϗi leiks (1-10): 9.
Viti: Skallagrímur 23/28,
Þór 16/23.
Áhorfendur: 280.
Maurice Spillers 26
Hafsteinn Lúðviksson
18
Konráö Óskarsson 16
Óðinn Ásgeirsson 12
Sigurður Sigurðsson 10
Einar Aðalsteinsson 7
Magnús Helgason 5
Hermann Hermannsson
ÍA (31) 59 - KR (37) 71
1-10, 16-14, 29-28, (31-37), 33-44, 38-53, 47-65, 56-69, 59-71.
Reid Beekett 16
Ægir H. Jónsson 14
Brynjar K. Sigurðsson 12
Brynjar Sigurðsson 11
Chris Horrocks 4
Erlendur Ottesen 2
Fráköst: ÍA 29, KR 38.
3ja stiga: ÍA 7/20, KR 6/17.
Dómarar (1-10): Rúnar
Gíslason og Kristján
Möller, 4.
Gœði leiks (1-10): 6.
Víti: ÍA 8/15, KR 16/21.
Áhorfendur: 90..
Ólafur Ormsson 23
Keith Wassel 18
Jesper Sörensen 8
Steinar Kaldal 6
Hjalti Kristinsson 5
Guðm. Magnússon 5
Snorri Jónsson 2
Jakob Sigurðarson 2
Ólafur Ægisson 2
Maður leiksins: Brenton Birmingham, Grindavík. 1 B ■ Maður leiksins: Brendan Titon, Hamri.
Maður leiksins: Tómas Holton, Skallagrími. ■ B ■ Maður leiksins: Ólafur Jón Ormsson, KR.
+