Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2000, Page 19
FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 2000
19
Hætti samstarfi
við Whitney
Söngkonan Whitney Houston
átti að verða baðfatadrottning
ársins hjá tískuhúsinu Panos
Emporio. En af ótta við aö söng-
konan myndi lenda í hneykslis-
málum vegna fikniefna hætti for-
stjóri tískuhússins við að kaupa
þjónustu Whitney. Nú varpar
hann öndinni léttar í kjölfar
fregna um að 15 grömm af
maríjúana hafi fundist í tösku
söngkonunnar á Hawaii. „Það
hefði ekki veriö gaman að lesa
fyrirsagnir um að Panosfyrirsæt-
an væri bak við lás og slá,“ segir
forstjórinn. Líkur eru þó á að
Whitney sleppi við ákæru þar
sem yfirvöld á Hawaii leiti ekki
upp íbúa meginlandsins vegna
smáglæpa.
Giftir sig líklega
heima í Wales
Líklegt þykir að leikkonan
Catherine Zeta-Jones og
kvikmyndaleikarinn Michael
Douglas láti pússa sig saman í
Wales á heimaslóðum Catherine,
að því er breska vikuritið Now
greinir frá. Samkvæmt frásögn
blaðsins mun athöfnin fara fram í
kirkju nálægt Swansea, heimabæ
gráflkjunnar. Catherine hefur
áhyggjur af því að amma hennar,
sem er 84 ára, komist ekki í
brúðkaupið verði það haldið
annars staðar. Brúðkaupið á að
fara fram á sameiginlegum
afmælisdegi Catherine og
Michaels, 25. september.
Arnold og Sly
saman á tjaldið
Vöðvabúntin Amold
Schwarzenegger og Sylvester
Stallone hafa aldrei verið saman á
hvíta tjaldinu en íhuga nú að
prófa það. Samkvæmt frásögn
Hollywood Reporter hittust leik-
aramir nýlega til að ræða mögu-
leika á samvinnu. Væntanlega
yrði rnn hasarmynd að ræða því
báðir hafa þeir ofnæmi fyrir róm-
antík.
Sviðsljós
É
náttúrulefea!
halsuhúsið
Skólavörðustíg, Kringlunni & Smáratorgi
Barbra Streisand
leið á tónleikum
Söngkonan Barbra Streisand
hefur haldið síðustu tónleika sína.
Hún er leið á að skoppa og hoppa
um sviðið eins og táningur. Fullt
hús var er Streisand söng á
tónleikum á gamlárskvöld í Las
Vegas. Það voru síðustu
tónleikamir hennar.
„Mér þykir ekki gaman að koma
fram. Þetta er eins og aö vera í
fegurðarsamkeppni að þeytast um á
sviðinu. Ég er eiginlega mjög
feimin," segir söngkonan í viðtali
við TV Guide. Stundum hefur hún
verið svo taugaóstyrk að henni
hefur orðið óglatt.
Jackson sameinast
bræðrum
sínum á ný
Jacksonbræður eru nú að búa
sig undir að sigra heiminn enn
einu sinni með nýjum diskódiski.
Og í þetta sinn lítur
út fyrir að litli
bróðir þeirra, Mich-
ael Jackson, taki
þátt í ævintýrinu.
Samkvæmt
frásögn Jam Music
hefur Michael áhuga
á að vera með á sameiningardiskn-
um. Hann á að hafa lýst því yfir við
ýmis tækifæri að hann sé tilbúinn
að vera með að þessu sinni.
Talsmaður plötuútgáfunnar
Modem Records segir að dymar
standi opnar fyrir Michael
Jackson.
„Hann er með samning við Sony
og þess vegna fáum við hann ekki
yfir til okkar. En eftir því sem ég
veit hefur hann áhuga á að vera
með á plötunni."
120 töfllisr
immMom
: ■
0] Electrolux
• Ryksuga
• 1600W
• Inndraganleg snúra
• Fylgihlutageymsla
• Ofnæmissía
• Mjög hljóðlát
Guccitískuhúsið:
Yves Saint-Laurent sýndi þessa gagnsæju blússu og svarta pils á
tískuvikunni í París. Símamynd Reuter
vegna Týsons
Þegar Kryddpían Mel B, eða Mel
G, ætlaði að gera innkaup hjá tisku-
húsinu Gucci í London nú i vikunni
kom hún að lokuðum dyrum.
Ástcéða þess að dyrunum hafði ver-
ið lokað var sú að hnefaleikakapp-
inn Mike Tyson var innandyra.
Eins og margar aðrar verslanir
frægra hönnuða í London lokar
Gucci einnig dyrunum þegar stór
stjama stígur inn fyrir til að skoða
vaminginn og versla. Það var auð-
vitað einnig gert þegar Mike Tyson
fékk löngun til þess að gramsa í
vamingnum.
Þegar Mel B kom akandi í silfur-
gráa Benzinum sínum að tískuhús-
inu átti hún ekki von á öðru en
góðri stundu því eins og margar
aðrar konur veitt hún fátt skemmti-
legra en að skoða fallegan fatnað.
En Kryddpíunni, sem er fastur við-
skiptavinur Gucciverslunarinnar,
var alls ekki hleypt inn. Ef marka
má frásagnir erlendra blaða vom
það öryggisverðir Mikes Tysons
sem vísuðu henni á brott.
Mel B var ekki sátt við aö vera ekki
hleypt inn í Gucciverslunina.
Símamynd Reuter
Frammi fyrir hópi ljósmyndara,
fréttamanna og aðdáenda hnefa-
leikakappans varð Mel B að sætta
sig við að vera ekki nógu stór
stjarna til þess aö komast inn í
dýrðina.
Samkvæmt frásögn blaðsins The
Mirror benti Kryddpían á sjálfa sig
og spurði verðina hvort þeir vissu
ekki hver hún væri. En verðimir,
sem stóðu á bak við luktar dyrnar,
ypptu bara öxlum.
Sjónarvottar sögðu að Mel B heföi
verið öskureið. Hún hafl hins vegar
tekið sönsum og yfirgefið svæðið án
þess að efna til frekara rifrildis.
í fréttatilkynningu harmar Gucci-
verslunin atvikið og segir að auðvit-
að hefði verslunin opnað dyr sínar
fyrir Kryddpíunni hefðu starfsmenn
tískuhússins vitað að hún hefði
staðið við dymar.
Ekki fylgdi sögunni hvort Mel B
hefur geð í sér til að gera innkaup
þama í framtíðinni. Sé hún
sæmilega skapheit má gera ráð
fyrir að hún bíði svolítið með það.
Michael Fox
hættir vegna
Parkinsonveiki
Michael J. Fox hefur nú til-
kynnt að hann ætli að hætta leik
í sjónvarpsmyndaflokknum Spin
City vegna Parkinsonveikinnar
sem hrjáir hann.
Michael, sem er 38 ára, fann
fyrir veikindunum þegar árið
1991. Það var þó ekki fyrr en í árs-
lok 1997 sem hann greindi frá því
hvað amaði að honum.
„Með þögninni reyndi ég að
vinna mig út úr þessu,“ greindi
Michael síðan frá. „Stundum eru
handleggimir á mér og úlnliðim-
ir svo stifir að ég get ekki einu
sinni notað fjarstýringuna á sjón-
varpið," sagði leikarinn nýlega í
viðtali.
zsrwa
HÚSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is
á heima
Mel B lokuð úti
*
1
Y