Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2000, Blaðsíða 25
FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 2000
25
Myndasögur
pj
(Ö
N
!h
(Ö
E-*
w
tQ
cö
!h
f—H
r—H
Ö)
Jh
w
w
•iH
o
T5
:0
cn
!h
%
'Cð
J
Ö>
O
cö
w
kiH
Fréttir
Fyrirtæki treg aö fara aö lögum um skil á ársreikningum:
Ormar á gulli
Enn eiga um 2.000 félög og fyrir-
tæki eftir að skila ársreikningum
fyrir árið 1998 tO félagaskrár ríkis-
skattstjóra og var þeim sent ítrek-
unarbréf í síöustu viku. Algjör loka-
frestur á skilum var 31. ágúst en frá
því lögin um þessi skil voru sett fyr-
ir nokkrum árum hafa langflest fyr-
irtækin ekki skilað fyrr en eftir dúk
og disk og tilheyrandi athugasemdir
yfirvalda.
Hjá ríkisskattstjóra mun nú vera
til skoðunar hvemig bæta megi úr
þessu ástandi þannig að tryggja
megi að þeir sem fara að lögum
standi jafnfætis öðrum í þessum
efnum. Samkvæmt lögunum á al-
menningur frjálsan aðgang að árs-
reikningunum sem berast félaga-
skrá og hafa mörg fyrirtæki því
dregið fætuma með að senda inn
þau gögn sem þeim bera að gera.
Skilaskyld félög eru nú talin um
10.800 talsins og hafði rétt rúmlega
helmingur þeirra sent inn ársreikn-
ing 18. nóvember sl. en þá var sent
út fyrsta áminningarbréfið til
þeirra sem ekki höfðu skilað. -GAR
Umhverfisvinir hægja á sér:
Hafa safnað
40.000 undir-
skriftum
- ætla að hætta um næstu mánaðamót
Umhverfisvinir hafa nú safnað
rúmlega 40.000 undirskriftum með
kröfu þess efnis að Fljótsdalsvirkj-
un fari i umhverfismat, að
sögn Ólafs F. Magnússonar,
eins forsvarsmanna söfnun-
arinnar.
Ólafur sagði að ákvörðun
um lok söfnunarinnar yrði
trúlega tekin um eða eftir
næstu helgi. Ljóst væri að
hætt yrði að safna undir-
skriftum um næstu mánaða-
mót.
„Það hefur ekki verið eins
virk söfnun í gangi síðustu
vikumar eins og hún var fyrir jól,“
sagði Ólafur. „Nú er verið að gefa
fólki tíma til að ljúka þessu og
senda listana inn. Skrifstofan verð-
ur opin virka daga út mánuðinn kl.
16-19.“
Umhverfisvinir munu afhenda
stjórnvöldum undirskrift-
imar. Ólafur sagði að með-
an málefni varðandi Fljóts-
dalsvirkjun væru ekki
komin á hreint yrðu Um-
hverfísvinir virkir þátttak-
endur í þeirri þörfu um-
ræðu sem væri í gangi.
Þótt harka stjórnvalda í
málinu væri með ólíkind-
um kvaðst hann alls ekki
vera búinn að gefa upp
vonina um að hægt væri
að finna skynsamlega lausn á því.
Ólafur sagði hins vegar óvíst að
Umhverfisvinir væru komnir tO að
vera um alla framtíð. -JSS
Ólafur F.
Magnússon.
oW mil/i him/,
Smáauglýslngar
550 5000
Áskrifendur fá
10°/c
aukaafslátt af
smáauglýsingum DV
Snyrtilegt, áreiðanlegt og drífandi starfsfólk,
18 ára eða eldra, vantar til starfa viS tiltekt
og þrif á Stjörnutorgi, Kringlunni,
virka daga, frá kl. 10.30-17.00 og frá 11.00-17.30.
Enn fremur vantar ábyraa og áreiðanlega
vaktstjóra, 23 ára eSa eldri, tvö kvöld í viku
og aðra hverja helgi.
Upplýsingar veitir
Linda S. GísladóHir rekstrarstjóri
í síma 864 3756 eSa á staðnum.