Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2000, Qupperneq 32
1*
FRETTASKOTI0
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ
FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 2000
Slökkvilið kallað til:
llla lyktandi
selsmagaleki
frá Hafró
Forstjóri Rannsóknastofnunar
flskiðnaðarins hefur óskað eftir að
fá i hendur skýrslu um leka sem átti
sér stað i fyrra-
kvöld þegar illa
lyktandi vatn
rann frá Hafró
niður í hús-
næði RF.
Ástæða lekans
var sú að starfs-
maður Hafró
var að skola
innan úr selsmögum og sjóða
kjamma (svo hægt sé að ná tönnum
úr fyrir aldursgreiningu) þegar nið-
urfallslögn stíflaðist. Flóði vatnið
upp i gegnum svokallaða
stingskápsvaska á þriðju hæðinni.
(Þar eru m.a. mötuneyti og rann-
sóknarstofur. Óskað var eftir aðstoð
slökkviliðs til að soga upp vatnið og
illa lyktandi gumsið sem fylgdi inn-
an úr selunum.
Starfsmenn í húsinu voru fram á
nótt að ganga frá þannig að fólk gat
mætt til vinnu i gærmorgun. -Ótt
Hver vill verða
leikhússtjóri?
í Helgarblaði DV á morgun verður
fjallað um þá valdabaráttu sem nú á
sér stað bak við tjöldin í Borgarleik-
húsinu. Staða leikhússtjóra hefúr ver-
ið auglýst og níu umsóknir liggja fýrir.
Er staða Þórhildar Þorleifsdóttur, nú-
verandi leikhússtjóra, nægilega styrk?
Hveijir sækja um starflð á móti henni
og er búið að semja um málið bak við
tjöldin? Allt þetta kemur í ljós í Helg-
arblaði DV á morgun.
Einnig er fjallað um The Mile High
Club sem margir þekkja af afspum og
sumir eru félagar í, rætt við Svanhildi
Konráðsdóttur og Pál Jónsson og horft
á Djöflana eftir Dostojevskí skömmu
fýrir frumsýningu.
í LÉK UM HANN
V^ÁSTARELPUR?
Á jólanótt áriö 1986 stóö Jón Snæbjörnsson, til vinstri á myndinni, í sparifötunum einum í 13 klukkustundir, í sjó upp
í hné, í lekum gúmbáti fyrir noröan heimskautsbaug. Hann var þá yfirstýrimaður á Suöurlandinu sem sökk snögg-
lega þessa nótt. Skipsfélagar Jóns voru sumir látnir úr vosbúö viö hliöina á honum í gúmbátnum. 5 komust af úr
slysinu en talið er aö flotgailar heföu komiö í veg fyrir aö 6 félagar þeirra færust. Jón, sem rekur nú fyrirtækiö Geiri
hf., ákvaö aö gefa Slysavarnaskóla sjómanna nýjan flotgalla í gær sem hann afhenti um borö í Sæbjörgu. Meö Jóni
heldur Hilmar Snorrason skólastjóri á Eiríki Aöalsteinssyni vélstjóra sem klæðist nýja gallanum.“Þetta mun koma
að góöum notum fyrir skólann," sagöi Hilmar. DV-mynd Hilmar Þór
Mörg hundruð Durex-Gold-smokkar innkallaðir:
Durex-smokkur
brennir mann
- til rannsóknar á óháðri rannsóknarstofu í Englandi
„Okkur barst kvörtun í nóvem-
ber og tveim dögum síðar var yfir-
maður gæðaeftirlits Durex-
smokkafyrirtækisins kominn hing-
að til lands. Við höfum reynt allt
sem við getum til að fá botn í mál-
ið og unnið það i fullu samráði við
Hollustuvernd ríksins," sagði
Gunnar Kjartansson, fram-
kvæmdastjóri innflutningsfyrir-
tækisins Hermes sem flytur inn
Durex-smokkana. „Smokkurinn
sem kvartað var yfir var sendur til
óháðrar rannsóknarstofu í
Englandi í desember og þar hafa
menn enn sem komið er ekki ftmd-
ið nein þau efni sem skýrt geta
kvörtun mannsins sem notaði
smokkinn,“ sagði Gunnar Kjart-
ansson sem vildi ekki að öðru leyti
tjá sig um hvemig smokkurinn
skaðaði þann sem kvartaði. Sam-
kvæmt heimildum DV mun maður-
inn hafa brennst á kynfærum og í
klofi eftir notkun smokksins og
hefur rannsóknin ytra meðal ann-
ars beinst að því að finna þau að-
skotaefni sem slíku gætu valdið.
Er sá möguleiki einnig til skoðun-
ar að um skemmdarverk gagnvart
Durex-verksmiðjunum geti verið
að ræða.
Smokkurinn sem hér um ræðir
er af gerðinni Durex-Gold og er ný
lína hjá fyrirtækinu. Strax og
kvörtunin harst var öll sendingin
sem komin var i dreifingu innköll-
uð að kröfu Hollustuvemdar ríkis-
ins og skipt fyrir aðra og nýrri.
„Hér var ekki-um mjög mikið
magn að ræða; innan við þúsund
smokka. Yfirmaður gæðaeftirlits-
ins hjá Durex skoðaði stóran hluta
sendingarinnar og heimsótti út-
sölustaði þar sem hann grandskoð-
aði smokkana án þess að finna
nokkuð athugavert. Þetta er i
fyrsta skipti í 40 ár sem eitthvað
kemur upp á hjá okkur varðandi
Durex-smokkana. Enginn veit
hvað hefur gerst,“ sagði Gunnar
Kjartansson.
„Þetta mál var og er í skoðun hjá
okkur en niðurstaða liggur ekki
fyrir,“ sagði Sigurbjörg Gísladótt-
ir, forstöðumaður eiturefnasviðs
Hollustuvemdar ríksins. „í svona
tilvikum grípum við til aðgerða í
öryggisskyni og það var gert.“
-EIR
Skotárás í Keflavík:
Skotið á
strætisvagn
Fimmtán ára drengur er grunaður
um að hafa skotið af loftbyssu á stræt-
isvagn í Miðgarði í Keflavík í fýrradag.
Skotið kom í rúðu á annarri framhurð
vagnsins og kurlaði hana, en engan í
vagninum sakaði.
Þó hefði getað farið verr, því
skólakrakkar sátu í vagninum rétt þar
fýrir aftan sem kúlan kom í rúðuna og
skildi eftir sig gat í henni. Að sögn lög-
reglu í Keflavík em kúlur úr loftbyss-
um hættulegar, en þegar umrætt atvik
átti sér stað hafði hópur ungra drengja
verið að leika sér með loftbyssu og
skotið á strætisvagninn var eitt þeirra
sem þeir hleyptu af. -gk
Kópavogur:
Stefnuljós
ekki notuð
„þetta er vítavert athæfi og auk þess
sýnir það tillitsleysi og tefúr alla aðra
umferð," segir varðstjóri hjá Kópa-
vogslögreglunni en þar var í gær kann-
að hvemig stefhuljósanotkun öku-
manna í hringtorgi var háttað.
Alls var fylgst með 104 bifreiðum
sem fóm um hringtorg og ökumenn 73
þeirra gáfu ekki til kynna með stefnu-
ljósum hvenær þeir hygðust yfirgefa
hringtorgið. Þá vom 185 bifreiðar
stöðvaðar í sérstöku umferðarátaki og
búnaður þeirra skoðaður. Reyndist allt
í lagi hjá 173 þeirra sem verður að telj-
ast þokkalegur árangur. -gk
Óvissa um
stækkun álvers
Frestun hefur þegar orðið á fyrir-
hugaðri stækkun álvers Norðuráls í
Hvalfirði vegna þess að fjármögnun
er enn ekki í höfn. Áformað var að
fjármögnun lyki um síðustu áramót
en það tókst ekki. Stækkun álvers-
ins úr 60 þúsund tonna ársfram-
leiðslu í 90 þúsund tonn átti að
ljúka á fyrrihluta næsta árs en nú
er ljóst að einhver frestun verður.
Takist fjármögnun verður frestunin
samt einhverjir mánuðir, sam-
kvæmt heimildum DV. -rt
Þorri byrjaður
Þorrinn er gengmn í garð og hon-
um fylgja kræsingar sem verka eins
og ljós í myrk-
um janúar-
mánuði.
Þjóðleg-
m- siður
i mat og
mannfagnaði,
sem á sér ekki hliðstæðu um víða
veröld, lyftir geði guma á meðan sól
hækkar lítillega á lofti þann tíma er
þorrinn varir. -EIR
brother P-touch 9200PC
Prentaðu merkimiða beint úr tölvunni
Samhæft Windows
95, 98 og NT4.0
360 dpi prentun
1 til 27 mm letur
Strikamerki
Rafport
Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443
Veffang: www.if.ls/rafport