Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2000, Page 10
10
LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2000 JjV
ýtlönd
Hægriöfgamaöurinn og Evrópuskelfirinn Jörg Haider kominn til valda í Austurríki:
Dálæti á nasismanum
með móðurmjólkinni
Jörg Haider lét sig ekki muna um aö gefa bangsanum Kenny að éta þegar hann, það er Haider, haföi greitt atkvæði
í fyikiskosningunum í Karnten í mars á síöasta ári. Haider var þá kjörinn fylkisstjóri í annað sinn.
Hætt er við að falskur tónn sé
kominn í valsana í Vínarborg. Þar
er nú sestur að kjötkötlunum mað-
ur sem hefur skotið lýðræðissinn-
um í Evrópu meiri skelk í bringu en
nokkur annar um langt skeið. Jörg
Haider heitir hann, fimmtugur, sól-
brúnn og sætur og íþróttamanns-
lega vaxinn héraðsstjóri í Kamten
og leiðtogi Frelsisflokks Austurrík-
is.
Thomas Klestil Austurríkisforseti
sá sér ekki annað fært á fimmtudag
en að fallast á stjórnarsamtarf
Frelsisflokksins, sem er lengst til
hægri í austurrískum stjórnmálum,
og hins íhaldssama Þjóðarflokks.
Honum var þó ekki hlátur í hug.
Daginn áður hafði hann lýst Haider
og öðrum framámönnum Frelsis-
flokksins sem óhæfum til að gegna
opinberum embættum. Og ekki
hugnaðist honum heldur Wolfgang
Schússel, formaður Þjóðarflokksins
og nýr Austurríkiskanslari, fyrir
makk hans með Haider.
Kanslari næst
Jörg Haider tekur sjálfur ekki
sæti í stjórn Schússels að þessu
sinni. Því er hins vegar haldið fram
að hann stefni að því að verða
kanslari eftir næstu kosningar,
náttúrulega háð þvi að flokki hans
vegni jafnvel, ef ekki betur, og í
kosningunum í október síðastliðn-
um. Þá fékk Frelsisflokkurinn, sem
hefur andstöðu við erlenda innflytj-
endur ofarlega á stefnuskránni,
næstflest atkvæði. Jafnaðarmanna-
flokkurinn, sem hefur verið við
völd í Austurríki í áratugi, fékk
flest atkvæði.
Haider fæddist í bænum Bad
Gösem fyrir réttum fimmtíu árum.
Adolf Hitler og kónar hans voru í
hávegum hafðir á æskuheimili
Jörgs litla, enda foreldrarnir báðir,
Dorothea og Robert, báðir virkir fé-
lagar í samtökum nasista.
Þau voru þegar gengin til liðs við
hreyflngu þeirra fyrir innlimun
Austurríkis í þýska ríkið þann 12.
mars 1938. Robert hafði gengið í
Hitlersæskuna þegar hann var
fimmtán ára.
Jörg lagði stund á lögfræði í há-
skóla og lauk doktorsprófi í grein-
inni árið 1973. Hann var þá ekki
nema tuttugu og þriggja ára. Sex ár-
um síðar var hann kjörinn á austur-
ríska þingið og var þar yngstur
þingmanna.
Valdarániö 1986
Haider varð leiðtogi Frelsis-
flokksins í eins konar valdaráni ár-
ið 1986. Á þessum sama tíma varð
Kurt Waldheim, fyrrum aðalfram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna,
forseti Austurríkis, þrátt fyrir upp-
ljóstranir um veru hans í her
Hitlers. Frelsisflokkurinn naut að-
eins stuðnings fimm prósenta kjós-
enda þegar Haider tók við honum.
Þrettán árum síðar er fylgið komið
í 27 prósent.
í upphafi stjórnmálaferils síns að-
hylltist Haider eins konar sam-
þýska stefnu
hluta Frelsis-
flokksins sem
taldi að Aust-
urríki væri
lítið annað en
eins konar
mistök sög-
unnar. Hann
hefur síðan
snúið baki
við hugsjón-
inni um nýja
innlimun þar sem hún naut ekki
nógu mikils fylgis meðal almenn-
ings.
Dálæti á Hitler og nasistum
Jörg Haider hefur látið sér um
munn fara ýmis ummæli sem hafa
verið túlkuð sem dálæti á Adolf
Hitler og stefnu hans. í októbermán-
uði 1990 flutti hann ávarp á fundi
fyrrum hermanna úr heimsstyrjöld-
inni síðari í bænum Ulrichsberg,
sem vitað er að margir fyrrum liðs-
foringjar úr SS-sveitum Hitlers
sækja, og sagði meðal annars: „Her-
menn okkar voru ekki glæpamenn.
Þeir voru í mesta lagi fórnarlömb."
Árið eftir fór Haider lofsamlegum
orðum um atvinnustefnu Hitlers-
stjómarinnar á héraðsþinginu í
Kámten þar sem hann var fylkis-
stjóri. Orð hans ollu miklu írafári,
hann sagði að þau
hefðu verið misskilin
og hann harmaði síð-
an að hafa látið þau út
úr sér. Engu að síður
neyddist hann í kjöl-
farið til að segja af sér
fylkisstjóraembættinu.
I umræðum á aust-
urríska þinginu árið
1995 talaði Haider um
refsibúðir nasista-
stjórnarinnar og gaf
þar með í skyn að þeir sem sendir
voru í fangabúðimar hefðu gerst
sekir um glæpi. Síðar sagðist hann
hafa ætlað að segja „fangabúðir."
Enn lét Haider út úr sér vafasöm
ummæli í september 1995. Og enn
var það í ræðu á fundi fyrrum her-
manna úr stríðinu, þar á meðal
manna úr Waffen SS-sveitunum:
„Það er enn til ærlegt fólk sem
stendur við sannfæringu slna, þrátt
fyrir mikla andstöðu, og hefur verið
sannfæringu sinni trútt til þessa
dags.“
Tómur misskilningur
Mánuði eftir kosningarnar í
fyrrahaust, þegar Frelsisflokkurinn
var orðinn næststærsti flokkur
Austurrlkis, sá Haider ástæðu til að
biðjast afsökunar á fyrri ummælum
sfnum. Margir efast þó um heilindi
hans og stimpla hann bara sem
tækifærissinna.
„Ég hef í gegn um tíðina viðhaft.
orð um nasismann sem voru vissu-
lega særandi og þess eðlis að hægt
var að misskilja þau. Mér þykir
þetta afar leitt. í fyrsta lagi af því að
ég tel að ég hafi sært tilfinningar
fólks sem var sjálft fómarlömb nas-
ismans eða þá að ættingjar þess
voru það. í öðru lagi af því að þess-
ar yfirlýsingar vora ekki í takt við
þau gildi umburðarlyndis og mann-
úðar sem liggja til grundvallar
stjómmálastarfi mínu,“ sagði
Haider í nóvember 1999.
Hann sagðist enn fremur vel
skilja að austurríkisr gyðingar
hefðu nokkrar áhyggjur af vel-
gengni hans. Hann fullvissaði þá
um að þeir hefðu ekkert að óttast.
Lýöræðiö í góðum höndum
„Glæpir helfararinnar voru svo
einstakir að austurrískir stjórn-
málamenn verða að taka þennan
ótta alvarlega. Hvar sem við í Frels-
isflokknum erum í ábyrgðarstöðum
þarf enginn að pakka niður í ferða-
töskur sínar og enginn þarf að yfir-
gefa heimili sitt. Frelsi og lýðræði
eru í góðum höndum þar sem við í
Frelsisflokknum berum ábyrgð,“
sagði Haider enn fremur.
Hvað um það. Frelsisflokkurinn
er engu að síður sá flokkur í Aust-
urríki sem fyrrum nasistar sóttu í
eftir heimsstyrjöldina síðari.
írski samfélagsfræðingurinn Mel-
anie Sully, sem kennir við diplómat-
ísku akademíuna í Vínarborg, segir
að hvorki megi líka Haider við Ad-
olf Hitler eða franska hægriöfga-
manninn og útlendingahatarann
Jean-Marie Le Pen. Hún hefur með-
al annars skrifað bók um Haider og
velgengni hans í austurrískum
stjórnmálum.
„Á síðustu þremur til fjórum
mánuðum hefur allt orðið vitlaust.
Evrópusambandið getur ekki komið
fram við Austurríki eins og þróun-
arland og hamást á því bara af því
að manni líkar ekki pólitísk stefna
þess. Þetta er virkt lýðræðisríki og
maður verður að dæma nýju ríkis-
stjórnina á verkum hennar. Hin
Evrópulöndin verða að hætt aö
dæma Austurríki á grundvelli for-
dóma,“ segir Melanie Sully.
Sully segir að Haider sé hreint
enginn Hitler og heldur ekki neinn
Le Pen.
„Frelsisflokkurinn er ekki endur-
skoðunarflokkur. Hann neitar ekki
tilvist Auschwitz eins og nýnasista-
flokkarnir gera. Haider harmar
glæpi nasismans en hann trúir ekki
á sameiginlega sekt,“ segir Sully.
Helmingaskiptakerfiö
Ein helsta ástæðan fyrir vel-
gengni Haiders, sem fáir utan Aust-
urríkis þekkja til, er svokallað
Proporz-kerfi, sem er ekki ósvipað
íslenska helmingaskiptakerfinu.
Jafnaðarmenn og Þjóðarflokkurinn,
sá hinn sami og nú ver fyrir ríkis-
stjórn Austurríkis, hafa skipt með
sér öllum valdastöðum í samfélag-
inu í áratugi Erfitt hefur reynst að
fá stöður í ríkisfyrirtækjum og
bönkmn og skólum án rétt flokks-
skírteinis. Óánægjan með kerfið var
vatn á myllu Haiders og hvergi jafn-
mikil og í Kamten.
Byggt á Polltiken, Reuters, Le
Monde, Jyllands-Posten, Dagens
Nyheter, o.fl.
Wolfgang Schiissel, leiötogi Þjóðarflokksins, og Jörg Haider, foringi Frelsis-
flokksins, ræða við fréttamenn eftir að þeir höfðu komið sér saman um
stjórnarmyndun. Þeir létu hávær mótmæli víðs vegar að úr heiminum og
hótanir um einangrun ekkert á sig fá.
Jörg Haider renndi sér fimlega niður snæviþaktar skíðabrekkurnar heima í
Kárnten á fimmtugsafmælinu sínu um daginn.
Erlent frétta-
Ijós
---------------