Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2000, Page 22
LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2000 JjV
22 ; sskamál
í vikunni fyrir jólin 1995 óku 1200
hvítir Mercedes-vörubílar um þjóð-
vegi Englands. Lögreglan hafði hug
á að góma einn þeirra vegna gruns
um að ung, frönsk stúlka hefði farið
í sína hinstu ökuferö með bílnum.
Grunur lögreglunnar reyndist rétt-
ur. Á meðan lögreglan leitaði í
marga daga að Celine Figard lá hún
falin aftast í stýrishúsi vörubíls
morðingjans.
Reyndar hafði
lögreglan stöðvað
morðingjann og bíl
hans 14 sinnum
sama daginn án
þess að hún yrði
vör við neitt grunsamlegt. Hann
haföi gabbað lögregluna með því að
raka af sér skeggið.
Morðinginn hafði rekist á fómar-
lamb sitt á veitingastað við þjóöveg
í Cheveley í suðurhluta Englands.
Þar hafði Celine reynt að komast á
puttanum til Southampton þvert of-
an í fyrirmæli foreldra sinna. En
hin fallega, dökkhærða stúlka ætl-
aði að spara sér fé og reyndi því að
húkka sér far.
Celine ætlaði að vera um jólin hjá
frænku sinni í Englandi. Hún hafði
ætlað sér að komast þangað á putt-
anum. En foreldrar hennar komu
með málamiðlun. Þeir stungu upp á
að hún æki að heiman frá Frakk-
landi með kunningja fjölskyldunn-
ar, Guy Maillot, til London. Þangað
ætlaöi hann með rafbúnað.
Hinsta ferð Celine
Celine hélt að heiman 18. desem-
ber og lofaði að hringja heim um
leið og þau Maillot væri komin á
áfangastað. Þegar þau voru komin
til Englands um Ermarsundsgöngin
Celine var 19
ára þegar hún
hitti moröingia
fékk Celine far með frænda sínum,
Roger Bouvier, sem ætlaði áfram í
átt að Southampton. Ákveðið var að
Bouvier léti Celine út viö þjóðveg-
inn þaðan sem hún ætlaði að
hringja í frænku sína. Frænkan
hafði ráðgert að sækja Celine á bíl.
Ekki náðist samband við frænkuna
og Bouvier varð að halda ferð sinni
áfram og skilja Celine eina eftir.
Celine sagði við hann að hún ætlaöi
að reyna að komast á puttanum það
sem eftir væri ieiðartnnar. Það
- myndi örugglega ganga. Bouvier sá
hana stíga upp í hvítan Mercedes-
vörubíl. Við stýrið sat rauðskeggj-
aður maður. Þetta var í síðasta sinn
sem Celine Figard sást á lífi.
Þegar hún kom ekki til Sout-
hampton hringdi frænkan í foreldra
Celine og þvi næst í lögregluna. Leit
var hafin um allt England og faðir
Celine, Bernard Figard, kom til
landsins. Hann kom fram í sjón-
varpi í Bretlandi og sagði: „Celine,
ef þú sérð okkur og heyrir til okkar
hafðu þá samband."
Rakaði af sár skeggið
En Morgan hafði vakið áhuga lög-
reglunnar. Ánæstu þremur vikum
stöðvaði lögreglan hann reglulega
viö alla vegatálma embættisins í
suðurhluta Englands. Lögreglan
hafði hins vegar engar haldbærar
sannanir gegn Morgan. Hina fyrstu
fékk lögreglan þó þann 17. febrúar.
Þá greindi kunningi Morgans lög-
reglunni frá því að Morgan hefði
verið með rautt skegg. Það hefði
hann hins vegar rakað af sér strax
eftir jólin.
Lögreglan hafði samband við eig-
inkonu Morgans, Glyndu, sem staö-
festi að maður hennar hefði rakað
af sér skeggið þegar fjölmiðlar fóru
að segja frá rauðskeggjuðum vöru-
bUstjóra i tengslum við hvarf
frönsku stúlkunnar. Glynda
greindi einnig frá þvi að
maður hennar hefði verið
áherandi slæmur á taugum
öll jólin. Hann hefði þó ekki
vUjað greina frá ástæðu líð-
an sinnar.
Morgan með ólundarsvip á
ákærubekknum á meðan
saksóknarinn rakti ákæruatriðin.
Saksóknarinn sagði glæpinn
framdan með köldu blóði.
Hann lýsti því hvemig Morgan
hefði ekið um með lík fómarlambs
síns á meðan hann hefði velt því
fyrir sér hvemig hann gæti losað
sig við það. Á meðan hann hélt upp
á jólin með fjölskyldu sinni lá hin
myrta í vörubU hans á stæðinu
fyrir utan.
Það var ekki fyrr en snemma
morguns 29. desember sem Morgan
hafði lagt Celine á afskekkta
bflastæðið þar sem hún fannst fimm
klukkustundum síðar.
Á fjórða degi réttarhaldanna var
Morgan enn brattur og öraggur meö
sjálfan sig. Hann fullyrti að hann
Lögreglan setti upp vegatálma
um allan suöurhluta Englands
Nakið lík á afskekktu
bílastæði
En Celine hafði ekki samband og
leitinni að henni var haldið áfram.
Tveimur dögum eftir að faðir henn-
ar hafði komið fram í sjónvarpi
fannst nakið lik hennar á afskekktu
bílastæði í um 150 kflómetra fjar-
lægð frá þeim staö þar sem hún
hvarf. Henni hafði verið misþyrmt
og nauðgað. Að lokum hafði hún
verið kyrkt. Ekkert hafði verið gert
til að reyna að fela líkið.
Leitin að morðingjanum var nú
hert og lögreglan stöðvaði alla hvíta
Mercedes-bíla Englands sem vora
1200 talsins.
Einn af þeim fyrstu sem voru yf-
irheyrðir var Stuart Morgan sem
starfaði sjálfstætt. En hann gat
sannfært lögregluna um að hann
hefði ekki verið nálægt Cheveley á
þeim tíma sem Celine hvarf.
Þann 21. janúar 1996, daginn sem
Celine var jarðsett í heimabæ sín-
um, fylgdu þúsundir bæjarbúa
henni til grafar. Þann sama dag var
Morgan yfirheyrður á ný. Aftur
neitaði hann því að hafa nokkra vit-
neskju um franska
stúlku sem reynt hefði
að fá far. Hann harð-
neitaði einnig að
gangast undir DNA-
rannsókn eða afhenda
lögreglunni ferðayfirlit bílsins.
Hann hafði fullan rétt til þess þar
sem hann hafði ekki verið handtek-
inn.
BcDMngjbri^
rihnnolbr
mwmé
Faðir Celine,
Bernard Figard
Blóðug dýna úti í skúr
Nú vissi Glynda hver ástæðan
var. Daginn eftir, þegar Morgan
hafði verið handtekinn, fann lög-
reglan bréf og myndir úr eigu
Celine í bílskúr hans. Lögreglan
fann einnig dýnu úr stýrishúsi bíls
Morgans úti í skúr. Á dýnunni voru
blettir með blóði Celine. Roger Bou-
vier gat bent á
Morgan sem mann-
inn sem hafði tekið
Celine upp í bfl sinn
við veitingastaðinn
á þjóðveginum.
VlfS rptfp»'V>ölHir» í
hefði ekki myrt stúlkuna. Hún hefði
gefið sig á tal við hann af fúsum og
ftjálsum vilja. Hann hefði síðan
hleypt henni úr bflnum nálægt
ákvörðunarstað hennar. Hann hefði
hins vegar verið gripinn hræðslu
við fréttina um hvarf stúlkunnar.
Blóðið á dýnunni væri úr
starfsbróður hans sem hefði skorið
sig á fingri.
Það tók kviödómendur skemmri
tíma en 2 klukkustundir að komast
að þeirri niðurstööu að Morgan
segði ósatt. Hann var síðan dæmdur
í lífstíðarfangelsi.
í kjölfar þessa máls ákvað
lögreglan að yfirheyra Morgan
vegna fleiri óupplýstra hvarfa
ungra stúlkna. í ljós hafði komið að
Morgan hafði lifað tvöföldu lífi.
Hann átti eiginkonu i Dorset í
suðurhluta Englands og kærastu í
Yorkshire. Hvorag kvennanna vissi
um hina.