Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2000, Síða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2000, Síða 31
ljV LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2000 I Nýr Lundúnapassi fyrir ferðamenn Ferða- menn sem heimsækja London geta nú fest kaup á nýju afsláttar- korti. Kort- ið, sem kall- : ast London Pass, veitir ótakmark- ' aðan að- gang i neð- anjarðar- lestir og I' strætis- vagna borgarinnar og aðgang að yfir 40 söfhum, kvikmyndahús- um og listagalleríum. Hægt er að kaupa Lundúnapasann fyrir einn dag og kostar hann þá 29 pund. Þriggja daga kort kostar 67 Ipund og sex daga kort 118 pund. Enn frekari afsláttur er veittur bömum. Dagpassinn getur sparað fólki allt að 320 pundum; það er ef fólki tekst að heimsækja öll söfn- Ein á einum degi en það hlýtur að teljast fremur ólíklegt. Meðal áhugaverðra staða sem passinn gildir á er Alexander Fleming Laboratory safnið þar sem pen- isilínið var fundið upp, heimili Charles Darwins í Bromley, Gu- ards-safnið í Buckingham og Saatchi-safnið í Primrose Hill. Þá getur fólk notað passann í skoðunarferðir um The Tower of London og Greenwich við Thames-ána. Að lokum er vert að minnast á hjólreiðaferðir og þrjár reglulegar skoðunarferðir um borgina auk gönguferðar á vegum Stepping Out Walks. Það er því af nógu að taka þegar Lundúnapassinn er annars veg- ar og áhugasamir geta kynnt sér hann betur á slóðinni www.londonpass.com á Netinu. Indíánar í París Stærsta listsýning á verkum amerískra indiána frá öndverðu f stendur nú yfir í Paris. Á sýning- h unni, sem er að finna í Mona Bismarck Foundation, gefur að líta yfir 120 muni frá því snemma á þessari öld og þeirri f nítjándu. Meðal merkra muna má nefna aldagamla körfu sem er skreytt yfir 80 þúsund sauma- / sporum og þrátt fyrir leit hafa engin mistök fundist á hand- '?í verkinu. Það tók eitt ár að búa f; körfuna til og þykir líklegt að I hún seldist á ekki minna en eina milljón dollara væri hún fól. Nudd og slökun hafnað Einn af stórtækari eigendum vændishúsa í Amsterdam, Theo Heuft, hefur ítrekað reynt að fá leyfi til að opna „slökunarstofu" á Schiphol-flugvelli. Flugvallar- yfirvöld vilja hins vegar ekki gefa Heuft starfsleyfi og segja starfsemi hans í Amsterdam Iekki samrýmast stefnu flugvall- arins. Þetta þykir vændiskóngin- um undarlegt í ljósi þess að á flugvellinum er til dæmis rekið f spilaviti. Það sem vakir fyrir Heuft er að opna útibú í anda i þeirra staða sem hann rekur og kallar Yab Yum. Hugmyndin er að bjóða þreyttum flugfarþegum upp á nudd og ljúffengar veiting- ar, á aðra þjónustu hefur ekki ■5 verið minnst. Heuft hefur nú höfðað mál á hendur Schiphol og Imun líklega vitna til nýrra laga í Hollandi sem fela í sér að rekst- ur pútnahúsa er nú löglegur í landinu. (ferðir Kjötkveðjuhátíð í Feneyjum: Dulúðin heillar ferðamenn B Menningarmiðstöðin Gerðu berg Sunnudagur. 6. febrúar Styrkir til úrbóta í umhverfismálum Á þessu ári mun Ferðamálaráð íslands úthluta styrkjum til úrbóta í umhverfismálum á ferðamannastöðum á Suðurlandi, Vesturlandi og Vestfjörðum ^ Úthlutað verður til framkvæmda á vegum einstaklinga, fyrirtækja, félagasamtaka og sveitarfélaga sem stuðla að verndun náttúrunnar jafnframt bættum aðbúnaði ferðamanna. ^ Kostnaðaráætlun þarf að fylgja með umsókn, svo og önnur skilgreining á verkinu. ^ Nauðsyntegt er að einn aðili sé ábyrgur fyrir verkinu. Gert er ráð fyrir að umsækjendur leggi fram fjármagn. efni og vinnu til verkefnisins. ^ Verkefnin stangist ekki á við gildandi skipulag og séu unnin í samráði við sveitarfélög. ^ Styrkir verða ekki greiddir út fyrr en framkvæmdum og úttekt á þeim er lokið. ^ Styrkþegum gefst kostur á ráðgjöf hjá Ferðamálaráði vegna undirbúnings og framkvæmda. ^ Nánari upplýsingar veitir umhverfisfulltrúi í s. 461 2915. Umsóknum ber að skila á eyðublöðum sem fást á skrifstofu Ferðamálaráðs og þurfa þær að berast fyrir 10. mars 2000. Ferðamálaráð íslands Strandgötu 29 • 600 Akureyri d w Gott útsýni er til allra átta úr Lundúnaauganu sem staðsett er við Thames- ána spölkorn frá þinghúsinu. Símamynd Reuter Lundúnaaugað: Loks á fulla ferð Nýja Parísarhjólið í London, sem innfæddir kalla Lundúnaaugað og er víst stærsta hjól heims, tók loks að snúast í vikunni eftir mánað- arseinkun. Það tók tvö þúsund manns marga mánuði að smíða og setja hjóliö upp. Hjólið átti að verða skrautfjöður í hátíðarhöldunum um síðustu áramót en hætt var við að setja hjólið af stað þá vegna bilunar sem fannst í bremsubúnaði. Vonir standa til að Lundúnaaug- að eigi eftir að njóta vinsælda með- al ferðamanna enda í boði afspymu- gott útsýni yfir ána Thames og mið- borgina. Þá ætti veður ekki að hafa hamlandi áhrif því farþegar standa meðan á ferðinni stendur í einni af 32 glerkúlum hjólsins. Gert er ráð fyrir að Lundúnaaug- að verði komið á fulla keyrslu í byrjun næsta mánaðar og á þá að geta flutt 15 þúsund manns á dag. Vinsældir hjólsins eiga þó alveg eft- ir að koma í ljós en búist er við að minnsta kosti þremur milljónum gesta á þessu fyrsta ári. Þá er gert ráð fyrir að Lundúnaaugað verði að minnsta kosti í fimm ár á þessum stað en eftir það er líklegt að það verði flutt annað. kl. 15.00 INGVELDUR ÝR endurtekur sönggjörning á sýningunni þetta vil ég sjá * kl. 20.00 LJÓÐATÓNLEIKAR Einsöngslög Sveinbjörns Sveinbjömssonar í flutningi Signýjar Sæmundsdóttur, Bergþórs Pálssonar og Jónasar Ingimundarsonar. Aðgangseyrir kr. 1000,- Askrifendur aukaafslátt af smáauglýsingum DV o\\t milH him/n* Smáauglýsingar 550 5000 Hin árlega kjötkveðjuhátið í Feneyjum hefst þann 29. þessa mánaðar og stendur í viku. Hátíð- in laðar ávallt að sér þúsundir ferðamanna sem vilja upplifa magnaða stemningu á staðnum sem sumir kalla þann rómantís- kasta á jarðríki. Kjötkveðjuhátíðin slagar oftast hátt í aðsókn yfir sumartímann og flest hótel eru að verða fullbókuð. Kjötkveöjuhátíðin í Feneyjum byggist á fornri hefð, en hún var fyrst haldin snemma á 17. öld. Þá stóðu hátíöarhöldin jafnan í tvo mánuði; hófust á öðrum degi jóla og stóðu fram yfir öskudag. Vin- sældir hátíðarinnar tók að þverra þegar leið á 19. öldina samhliða hnignun borgarinnar. Hátíðin var ekki svipur hjá sjón og minnstu munaði að henni yrði endanlega kastað fyrir róða í seinni heims- styrjöldinni. Svo fór þó ekki en fram til ársins 1979 þótti lítill brag- ur á henni. Þá tóku aðkomumenn í Feneyjum upp á því að endurvekja hina fomu hátíð og síðan hafa vin- sældir hennar farið vaxandi með hverju árinu. Grímuklæddir borgarbúar og ferðamenn eru á hverju strái á meðan á hátíðinni stendur en það það þótti mikill kostur i öndverðu og var þá sagt að aðeins á hátíð- inni gætu menn af háum og lágum stigum talast við á jafnræðisgrund- velli. Skrautlegir grímubúningar og reglulegar flugeldasýn- ingar sveipa borgina mik- illi dulúð sem heillar ferða- menn. Borg- arbúar eru hins vegar ekki allir jafnhrifnir af þungum straumi ferðamanna á hátíðina og æ fleiri flýja beinlíns heimili sín á þessum árs- Þaö styttist óðum í kjötkveðjuhátíðina í Feneyjum. Það má búast við aö feröamenn skipti þúsundum sem flykkist til borgarinnar í þeim tilgangi aö berja augum hiö stórkost- lega sjónarspii hátíöarinnar. Kjötkveöjuhátíöin í Feneyjum bygg ist á fornri hefö. tíma. Á Netinu er hægt að lesa um hátíðina á slóðinni http://www.camivalofven- ice.com/uk/.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.