Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2000, Side 56
Bæjarlind 18 - 200 Kopavogi
sími 564 2100
Netfang: midjan@mmedia.is
SYLVANIA
Veðrið á sunnudag: Veðrið á mánudag:
Léttskýjað norðaustanlands Kólnar um allt land
Á sunnudag verður suðvestanátt, 10-15 m/s og slydduél sunnan og
vestan til en léttskýjað á Norðausturlandi.
Hiti verður á bilinu 0 til 3 stig.
Á mánudag verður suðvestanátt, 8-13 m/s og él sunnan og vestan til en
léttskýjað á Norðausturlandi.
Frost verður á bilinu 0 til 5 stig.
Veðrið í dag er á bls. 57.
pleitur matur í hádeg/no
á góðu verði.
Sunnudagur
^’2(3
r* o_
•T*
V
Mánudagur
ISUZU
159 hestöfl
Sjálfskiptur
Fékk á sig
brotsjó
Andvari frá Vestmannaeyjum kom
til hafnar í Reykjavík í fyrradag eftir
að hafa fengið á sig brotsjó á leiðinni
á Flæmska hattinn siðastliðinn
þriðjudag. Að sögn Bjöms Þórs skip-
stjóra urðu nokkrar skemmdir, brú
skipsins skekktist, gluggi brotnaði og
sjór flæddi inn í brú. Var skipið sam-
bandslaust þannig að skipverjar
sendu neyðarskeyti en siglingatæki
voru að mestu í lagi. Skipverjar voru
þó aldrei í hættu. -hdm
Unnið var aö viögeröum á Andvara
frá Vestmannaeyjum en skipið fékk
á sig brotsjó á þriöjudag á leiöinni á
flæmska hattinn. DV-mynd S
Bíll féll 44 metra
niður Óshlíð
Bíll ók út af við Óshlíð í svokall-
aðri Seljadalsófæru á ísafirði
seinnipartinn í dag. Samkvæmt lög-
reglunni á ísafirði lenti bíllinn á
ískrapi á veginum með þeim afleið-
ingum að ökumaður missti stjóm á
bílnum og féll hann 44 metra niður
hlíðina. Þrír voru í bílnum, en
meiddust ekki. Tveir lögreglumenn
eru á staðnum og bíða þess að draga
bílinn upp. -ja
Án belta í Kópavogi
Nærri þrír af hverjum tíu reynd-
ust án bílbelta í könnun sem Lög-
reglan í Kópavogi gerði í gær. Alls
vora nærri 800 bílar athugaðir en
enginn var þó sektaður. Lögreglan
hyggst hins vegar taka á þessu
ástandi, sem hún lýsir sem sorg-
legu, á næstunni. -GAR
Nítján hross köfnuöu þegar eldur kom upp í hesthúsi á félagssvæöi Haröar í Mosfellsbæ í gær. Myndin var tekin þegar unn-
iö var að því aö taka þau út úr hesthúsinu og koma þeim á pall vörubifreiöar. 5 hestar eru meö reykeitrun. Hafin er fjársöfnun
til styrktar Elíasi Þórhallssyni, eiganda hestanna, en þeir voru ótryggöir. Sjá nánar á bls. 2. DV-mynd Hilmar Þór
Skipaður hefúr verið sérstakur til-
sjónarmaður með fóðran hrossa að
Ánastöðum í Hraunhreppi á Mýrum.
Ekki þótti ástæða til frekari aðgerða
eftir athugun á ástandi hrossanna í
gær. Þá fóm um landareignina héraðs-
dýralæknir, ráðunautur Búnaðarsam-
bands Borgarfjarðar, sveitarstjóri,
forðagæslumaður, eigandi jarðarinnar
o.fl. Þeir töldu hrossin og tóku ákvörð-
un um ráðstafanir í framhaldi af því.
Eigandi jarðarinnar hefur verið
með allmörg hross í hagagöngu í vet-
ur. Fyrir nokkm kom upp að fóðrun
og ástand þeirra væri ekki nógu gott.
Eigendur þeirra hafa verið að sækja
þau undanfama daga. Sjálfúr á eigandi
jarðarinnar 25 hross. Að sögn Gunnars
Gauta Gunnarssonar héraðsdýralækn-
is þurfa fimm þeirra aðhlynningu. Þau
verða tekin á sérstaka gjöf. „Annars
era hrossin í þokkalegu standi, að vísu
aflögð, en okkur fannst ekki ástæða til
frekari aðgerða,“sagði Gunnar Gauti.
„Eigandinn er ekki heylaus, en hefúr
ekki verið með nógu gott hey. í sam-
ráði við sveitarstjóm verður honum
útvegað betra hey. Forðagæslumaður
mun síðan verða umsjónarmaður með
fóðrun hrossanna." -JSS
Kaupa 10% fyrir 1.500 milljónir í Samherja:
- og Samherjafrændur styrkja stööu sína
Fjárfestingarfélög Bónusfeðga
hafa keypt 9,66% hlut í Samheija og
Fjörður ehf., fjárfestingarfélag aðal-
eigenda Samherja, bræðrasonanna
Þorsteins Más Baldvinssonar og
Kristjáns Vilhelmssonar, hefur
keypt 2,91%. Bréfln voru hluti
21,6% hlutar í félaginu sem Kaup-
þing keypti af Þorsteini VilheLms-
syni á um 3.150 milljónir króna.
Kaupþing á enn um 8% í Sam-
herja en mun hafa í hyggju að halda
að sér höndum með frekari sölu á
bréfunum.
Bónusfeðgar hafa greitt um ná-
lægt 1.500 milljónum króna fyrir
þau 9,66% sem þeir keyptu í gær og
Samheijafrændur hafa væntanlega
greitt nálægt 450
milljónum fyrir
sinn hlut. „Við
erum alveg sáttir
við það. Það er
það verð sem
markaðurinn
býður,“ segir
Kristján Vil-
helmsson en ekki
náðist í Jón Ás-
geir Jóhannes-
son, sem stýrir fjárfestingarfélögum
Bónusfeðganna. Kristján hins vegar
fagnar nýjum meðeiganda: „Mér líst
ágætlega á þá og hlakka til að vinna
með nýjum aðilum.“
Að meðtöldum þeim 6% sem
Fjörður á nú í fé-
laginu ráða Sam-
heijafrændumir
tveir nú yflr um
43% í fyrirtæk-
inu.
Jón Asgeir
Jóhannesson.
Kristján
Vilhelmsson.
Gengiö lækk-
aði í gær
Kristján segir
bréfln hafa verið
góðan fjárfestingarkost. „En auðvit-
að em þetta skilaboð um það lika að
við eram að styrkja stöðu okkar í
fyrirtækinu," segir hann.
„Það er vont að missa góða menn
en það kemur alltaf maður í manns
stað. Til lengri tíma tel ég að það
ætti ekki að skipta sköpum," segir
Kristján um brotthvarf Þorsteins
bróður hans frá Samheija. Hann
vill ekkert segja um ástæður þess að
Þorsteinn valdi að yfirgefa fyrirtæk-
ið. „Það er hann sem hættir og það
er hann sem verður að segja til um
það ef hann vill meina að það séu
einhverjar sérstakar ástæður aðrar
en að skipta um umhverfi," segir
Kristján aðeins.
Gengi bréfa Samherja lækkaði
nokkuð á Verðbréfaþingi í gær og
var 10,2 í lok dags en Þorsteinn Vil-
helmsson seldi bréf á þriðjudag á
genginu 10,6.
-GAR
i
Bonusfeðgar i utgerö t
é
FÆR MAÐUR FA
AFSLÁTT AF ÝSUNNI?
LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2000
Ánastaðir á Mýrum:
Úttektá
ástandi hrossa
-tilsjónarmaður skipaður
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
] fréttaskot, sem birtist eöa er notaö t DV,
j greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
| í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
i er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
j sólarhringinn.
1550 5555