Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2000, Side 4
4
FIMMTUDAGUR 2. MARS 2000
Fréttir
I>V
Stóra fíkniefnamáliö:
20 kærðir á 2000 síðum
- til ríkissaksóknara í dag
„Rannsókn er lokið og nú erum
við að vinna að endanlegum frá-
gangi skjala. Ég geri ráð fyrir að
senda málið til ríkissaksóknara í
fyrramálið," sagði Egill Stephen-
sen, saksóknari lögreglustjóra-
embættisins, í gær um stóra fikni-
efnamálið og hillir því undir að
hægt verði að gefa út ákærur á
hendur nímenningunum sem setið
hafa á Litla-Hrauni svo mánuðum
skiptir auk annarra sem gengið
hafa lausir en tengjast engu að síð-
ur málinu. „Þetta eru níu hnaus-
þykkar möppur og
mér telst til að blað-
siðumar séu ekki
undir 2000 talsins,"
sagði Egill Stephen-
sen.
í umræddum
skjalabunka koma
fyrir nöfn rúmlega
20 manna sem
viðriðnir em stóra
fíkniefnamálið á
einn eða annan Með níu hnausþykkar
hátt og geta þeir allir átt von á mars en
ákæru. í þann hóp
bætast svo 9 aðrir ein-
staklingar sem voru til
rannsóknar hjá efna-
hagsbrotadeild ríkis-
lögreglustjóra í tengsl-
um við stóra fikniefna-
málið.
Gæsluvarðhalds-
úrskurðurinn yfir ní-
menningunum sem
setið hafa á Litla-
Hrauni rennur út 15.
ranglega var frá þvi
greint i DV í gær aö dagsetningin
væri 6. mars. Þær upplýsingar
komu frá Kristjáni Stefánssyni
hæstaréttarlögmanni, verjanda
eins sakbomingsins, sem ruglaöist
á dögum.
Kolbrún Sævarsdóttir, hjá emb-
ætti ríkissaksóknara, fær möpp-
urnar níu til meðferðar strax í dag
ef að líkum lætur og byrjar þá að
lesa síðumar 2000 sem eru afrakst-
ur einhverrar mestu rannsóknar í
fikniefnamáli sem fram hefur far-
ið hér á landi. -EIR
Pólfararnir óhræddir þrátt fyrir ítrekaðar árásir ísbjarna á norðurskautinu:
Með fallbyssu í farteskinu
- en segjast ekki á leið á ísbjarnarveiðar
„Jú, spennan er í hámarki,“
sagði Haraldur Öm Ólafsson áður
en hann flaug úr landi í gær ásamt
félaga sínum, Ingþóri Bjamasyni,
til Halifax, en það er fyrsti áfangi
þeirra á leið á norðurpólinn.
Eins og DV skýrði frá í gær
þurftu tveir norskir göngumenn á
leið á norðurpólinn að bægja frá ís-
birni fyrir nokkrum dögum og nú
hafa borist fregnir af tveimur
sænskum pólforum sem felldu einn
ísbjöm og stökktu öðrum á flótta í
fyrradag. Báðir þessir leiðangrar
lögðu upp frá Síberíu en íslending-
amir hefja sína göngu frá Kanada
10. mars nk., eins og reyndar leið-
angur tveggja Svía. Fyrir utan
þessa fjóra leiðangra ætlar dönsk
kona að freista gæfunnar á ísnum
ein sins liðs.
„Það er mikið af ísbjörnum núna,
sérstaklega Siberíumegin," segir
Haraldur Öm sem er hvergi bang-
inn. „Við gætum þurft að mæta ís-
björnum og munum gera það ef til
þess kemur. En við erum vel undir-
búnir og ekki smeykir og trúum að
þetta muni allt ganga eitt hundrað
prósent," segir hann.
Láta ekkl hræðsluna ná
tökum á sér
Að sögn Haraldar Amar hafa þeir
Ingþór meðferðis eina haglabyssu
með svokölluðum slögg-skotum.
„Kúlan er mjög þung svo að byssan
er mjög kröftug - hálfgerð fallbyssa.
Á'Stuttu færi er hún jafnvel mun
öflugri en riffill en það þýðir að við
DV-MYND PJETUR.
Pólfararnir kveöja.
Haraldur Örn Ólafsson og Ingþór Bjarnason kvöddu fjölskyldur sínar og vini í
gær og eru þeir ekki væntanlegir til baka fyrr en um miöjan maí.
getum aðeins skotið á stuttu færi,
enda erum við ekki á veiðum held-
ur bara að verja okkur í neyð.“
Tveir ísbirnir veittust sameigin-
lega að sænsku göngugörpunum en
það mun vera fátítt aö ísbimir séu
saman um slikar árásir. „Það bend-
ir til þess að það sé mikið af ísbjöm-
um einmitt þessa stundina," segir
Haraldur Örn. Hann segir það ekki
koma á óvart að hinir norrænu
frændur okkar hafi hitt ísbimi fyr-
ir enda séu mestu líkurnar á að
rekast á þá fyrstu tvær vikur göng-
unnar þar sem birnirnir haldi sig
nálægt fastalandinu þar sem mest
æti sé að finna. „Reyndar hefur það
gerst að menn hafa þurft að verja
sig og skjóta ísbirni alveg norður
undir pólnum. Þannig er maður
aldrei óhultur og verður alltaf að
vera á varðbergi," segir hann en
þvertekur enn fyrir að viðurkenna
nokkurn ótta:
„Maður verður að hugsa jákvætt
og ganga óhikað áfram. Ef maður
léti hræðsluna ná tökum á sér væri
stutt í að gefast upp,“ segir pólfar-
inn og fullvissar síðan blaðamann
um að ijölskyldur þeirra tveggja séu
rólegar yfir tíðindunum af ísbjöm-
unum. „Þær vita auðvitað að þarna
er hætta á ferðum og það veldur
áhyggjum en það er líka á það líta
að við förum ekki Síberíumegin
heldur Kanadamegin og þar eru
mun minni líkur á að viö þurfum að
standa í stórræðum,“ segir Harald-
ur Örn Haraldsson hughreystandi.
-GAR
Loönuveiöarnar:
Lítil von aö kvótinn náist.
Loðnuvertíð:
Kapphlaup
viö tímann
DV, Akureyri:
Loðnuveiðin er enn mjög góð, en
loðnan er á mikilli ferð vestur með
Suðurlandi, og var aðalgangan sem
mest hefur verið veitt úr um miðjan
dag í gær nálægt Vestmannaeyjum
og þar vestur af. Loðnan gengur fyr-
ir Reykjanes, inn á Faxaflóa og að
Snæfellsnesi áður en hún hrygnir
þar og drepst.
Samkvæmt upplýsingum frá Sam-
tökum Fiskimjölsframleiðenda í
gær nam heildarveiðin á vertíðinni
570 þúsund tonnum. Þar af hafa 487
þúsund tonn veiðst frá áramótum,
en aðeins 83 þúsund tonn á sumar-
og haustvertíð, á tímilinu júlí til
desember á síðasta ári. Otgefinn
kvóti er um 890 þúsund tonn, og því
eftir að veiða um 320 þúsund tonn
sem næst aldrei að taka. Ef tíð verð-
ur góð og vel veiðist er hægt að
reikna með að hægt verði að veiða í
mesta lagi um 200 þúsund tonn til
viðbótar en vertíðinni lýkur á bil-
inu 15.-25. mars.
í gær hafði mestri loðnu verið
landað á Eskifirði eða 60.653 tonn-
um, en næstu löndunarstaðir voru
Seyðisfjöröur með 53.463 tonn, Nes-
kaupsstaður 52.166 tonn og Vest-
mannaeyjar 50.688 tonn. -gk
Byggingarnefnd :
Háhýsi aðal-
verktaka viö
Sóltún
- sjö hæða blokkir
með 50 íbúðum
Borgarráð hefur samþykkt fyrir-
ætlanir Islenskra aðalverktaka um
að byggja tvær sjö hæða íbúða-
blokkir í Reykjavík, við Sóltún
númer 5 og númer 7. Húsunum á að
fylgja sameiginleg bílageymsla fyrir
49 bíla. Samtals eiga húsin að vera
um sex þúsund fermetrar.
-GAR
1 Veðriö í kvöld rf’éjAt Ur' 1 Jslílívjj '
REYKJAVIK AKUREYRI
-4T Sólariag í kvöld 18.50 18.38
4s* _ ,f4 /® ' v- Y X •••:••.• !» Sólarupprás á morgun 8.27 8.12
Sífidegisflóö 16.48 21.21
Árdegisflófi á morgun 5.10 09.43
i Skýringar á veðurtáknum
fs \ r ^VINDÁTT 10%_HITI -10° #
ijT o» ^T IÍ2 ‘, 04 % * \ VINDSTYRKUR i metrum á sekúndu ^FROST HEIOSKÝRT
UÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKYJAO SKÝJAÐ ALSKÝJAD
Lægir og léttir til Lægir hægt og bítandi í dag. Léttir til vestan- RIGNING SKÚRiR SLYDDA SNJÓKOMA
og sunnanlands undir kvöld, en áfram él noröaustan- og austanlands. Noröan 8-13 m/s í nótt, en 5-8 á morgun. Frostlaust í • 4y 'j -\r =
fyrstu meö suöausturströndinni, en annars ÉUAGANGUR ÞRUMU- SKAF- P0KA
frost 1 til 7 stig, kaldast inn til landsins. VEÐUR RENNINGUR
'i/Mi&Ö íl JJJ-ÞJ'i'flJJ
Ófært á Hellisheiði
Mjög slæmt veöur og ófært er á
Hellisheiði og í Þrengslum og meö
suöurströndinni til Víkur í Mýrdal. Sama
er aö segja um færö í Borgarfirði og
undir Hafnarfjalli. Ekkert er hægt aö
huga aö mokstri eins og er. Fært er um
Reykjanesbraut til Keflavíkur, en hálka
og skafrenningur. Þá er fært um
Vesturlandsveg upp á Kjalarnes, en
hvassviðri og skafrenningur.
GREIÐFÆRT
HÁLT
□ SNJÓR
■ PÆFINGUR
HÁLKUBLETTIR KPUNGFÆRT
| FLUGHÁLT ÓFÆRT
.mWkOMjliairiSfHVi
Norðanátt um mest allt land Él veröa noröanlands en víöast
úrkomulaust syðra. Frost um 3 stig syöra en allt að 8 stigum fyrir norðan.
Á miðhálendinu má búast viö 12 stiga frosti.
j Vlndur: J
\ 8-13 m /J
Hiti O til-2 '
Þykknar upp meö s- og sv-
átt, 8-13 m/s. Snjókoma
efia slydda sunnan- og
vestanlands en hægara og
úrkomuRtlfi á Norfiurtandl.
Oregur úr frostl.
Sjurmuð.
Vindur: V
8—13 m/s J
Hiti 2° til 6° * *'" '
Suölægar áttlr um land
allt. Slydda efia rlgnlng um
sunnan- og vestanvert
landslns en þurrt afi mestu
á Norfiausturlandl. Hltl 2
tll 6 stlg.
JMíí
Vindur: V . (
8-13 nv% J J
Hiti 3° til 5°
Gert er ráfi fyrlr sufilægum
áttum og tlltölulega hlýju
vefiri.
AKUREYRI Snjókoma -3
BERGSSTAÐIR Alskýjaö -2
BOLUNGARVÍK Snjðkoma 0
EGILSSTAÐIR •4
KIRKJUBÆJARKL. Alskýjaö 1
KEFLAVÍK Snjókoma -1
RAUFARHÖFN Alskýjaö 3
REYKJAVÍK Úrkoma 0
STÓRHÖFÐI Slydda 1
BERGEN Snjóél 2
HELSINKI Alskýjaö 1
KAUPMANNAHÖFN Léttskýjaö 1
OSLÓ Léttskýjaö 0
STOKKHÓLMUR Snjókoma 0
ÞÓRSHÖFN Slydda 0
ÞRÁNDHEIMUR Snjóél 0
ALGARVE Heiöskírt 10
AMSTERDAM Heiöskirt 13
BARCELONA Heiöskírt 7
BERLÍN Léttskýjaö 2
CHICAGO Léttskýjaö 2
DUBLIN Rigning 5
HAUFAX Alskýjaö 0
FRANKFURT Skúr 0
HAMBORG Snjóél 1
JAN MAYEN Skafrenningur -6
LONDON Skýjað 3
LÚXEMBORG Snjóél -1
MALLORCA Hálfskýjaö 7
MONTREAL Þoka 4
NARSSARSSUAQ Heiöskírt -15
NEW YORK
ORLANDO Heiöskírt 15
PARÍS Heiöskírt 1
VÍN Rigning 3
WASHINGTON
WINNIPEG Léttskýjaö -3