Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2000, Side 6
6
FIMMTUDAGUR 2. MARS 2000
Fréttir
DV
Yfirlögregluþjónn og sýslumaður í Kópavogi gripu til aðgerða gegn lögreglumanni:
Fékk áminningu fyrir
gamansöm skilaboð
- stefndi sýslumanni fyrir dóm til ógildingar en „sá sig tilneyddan“ að hætta við
Lögreglumaður á höfuðborgar-
svæðinu hefur séð sig tilneyddan til
að draga til baka stefnu á hendur
sýslumanninum í Kópavogi sem
lögð hafði verið fram í héraösdómi
til ógildingar áminningu sem hann
hafði hlotið í starfi. í gögnum máls-
ins kemur fram að viðkomandi sjái
sig tilneyddan til að draga stefnuna
til baka „vegna eigin hagsmuna og
annarra“.
Stefnan var lögð fram í kjölfar
þess að lögreglumanninum var veitt
áminning sem hann og mjög margir
félagar hans í lögreglunni álíta mjög
harkaleg viðbrögð við saklausu
gamni - gamansömum skilaboðum
á miða sem ekki beindust gegn yfír-
lögregluþjóninum og áttu allra síst
að berast honum úr einkaskúffu
annars lögreglumanns.
Það var sýslumaðurinn í Kópa-
vogi, Þorleifur Pálsson, sem veitti
lögreglumanninum áminninguna
eftir að yfirlögregluþjónninn hafði
gert honum grein fyrir umræddum
miðasendingum.
Fékk lánaðar buxur
Málavextir eru þeir að yfirlög-
regluþjónninn hafði lánað einum í
lögregluliðinu í Kópavogi hlífðar-
buxur. Þegar þeim var skilað sendi
lögregluþjónninn eigandanum bux-
urnar með því að leggja þær á borð
hjá varðstjóra með þakkarskilaboð-
um á miða. Félagi lögreglumanns-
ins, sem síðar var áminntur, lagði
þá annan miða i skúffu þess sem
fékk buxur yfirlögregluþjónsins lán-
aðar, með gamansömum skilaboð-
um um buxnalániö, undirritað með
eins konar gælunafni yfirlögreglu-
þjónsins.
Miðinn var skilinn eftir í merktri
einkaskúffu lántakandans.
Ekki liggur fyrir hvemig yfirlög-
regluþjónninn komst síðan i mið-
ann. Hann kallaöi sendanda miðans
á sinn fund, ungan lögregluþjón og
nema langt kominn í laganámi, og
tjáði honum að hann myndi ekki
óska frekar eftir nærveru unga
mannsins í starfi hjá lögreglunni í
Kópavogi. Sýslumaður veitti honum
síðan áminningu. Hvarf maðurinn
Biskupsmessa á Heklutindi:
Svarað með
eimyrju úr neðra
- höfum litlar áhyggjur, segir prófastur
I tilefni kristnihátíðar á þessu ári
var fyrirhugað að fara í piiagríms-
göngu og halda messu á Heklutindi
)ann 20. ágúst í sumar. Þar átti
biskup íslands,
hr. Karl Sigur-
bjömsson, að
messa en við-
brögð úr neðra
hafa nú sett mál-
ið í biðstöðu.
Að sögn Hall-
dóru J. Þorvarð-
ardóttur, prófasts
í Rangárvallapró-
fastsdæmi, þá
var búið að
skipuleggja
göngu á Heklu og
messu í sumar.
„Gosið í Heklu vekur okkur þó til
umhugsunar en við erum bara róleg
og bíðum og sjáum hvað setur þeg-
ar gosi lýkur. Biskupi hafði þótt
þetta vera skemmtileg hugmynd og
er til í slaginn ef af þessu verður.
Við höfðum hugsað okkur að vera í
samvinnu með Tööugjaldanefnd
Rangárvallarsýslu sem er með sum-
arskemmtun á þeim tíma er gömlu
Hr. Karl
Sigurbjörnsson
biskup:
Honum þykir
hugmyndin góö.
töðugjöldin voru
gjaman haldin.
Þetta er orðin
mikil héraðshá-
tíð í sýslunni.
Við höfum ein-
skorðað okkur
við að tengja þá
atburði sem við
erum með varð-
andi kristnihátíð-
ina við aðrar
uppákomur í hér-
aðinu. Við kristn-
ir menn lítum Heklugöngu og
messu þar sem hápunktinn í töðu-
gjöldunum.“
- Þið hafið ekki áhyggjur af því
að fréttir af messunni hafi orsakað
gosið?
„Nei, við höfum litlar áhyggjur af
því. Við emm svo sterk í trúnni
þama undir Heklurótum," sagði
Halldóra og telur að Hekla gamla
hafi bara verið að ræskja sig frekar
en annað liggi þar að baki. Hún seg-
ir þó að ekki verði flanað að neinu
varöandi messuhald á Heklutindi í
sumar.
-HKr.
Halldóra J.
Þorvaröardóttir:
„ Viö höfum litlar
áhyggjur. “
Hekla:
Svarar fyrirhuguöu messuhaldi meö eldi og eimyrju.
þá til starfa hjá öðru lögregluemb-
ætti en fannst viðbrögð yfirmanna
sinna afar harkaleg i ljósi þess að
hér var einungis um innanhússgrín
að ræða.
Jónas Magnússon, formaður
Landssambands lögreglumanna,
sagði við DV að sér fyndist of langt
gengið að hafa áminnt lögreglu-
manninn.
„Mér finnst að hægt sé að leysa
úr ógætilegum aulahúmor með til-
tali gagnvart viðkomandi," sagði
Jónas.
Þorleifur Pálsson sýslumaður
sagði við DV að sín afstaða lægi fyr-
ir i þessu máli. „Að öðru leyti vil ég
ekki tjá mig,“ sagði Þorleifur.
Hafði einhver í hótunum?
Lögmaður Landssambandsins
lagði fram stefnu á hendur sýslu-
manninum í Kópavogi í desember
þar sem hann krafðist þess að
áminningin á hendur lögreglu-
manninum yrði ógild. Var ríkislög-
manni þá gefinn frestur til að skila
greinargerð.
Þegar næsta þinghald fór fram
fyrir héraðsdómi, þann 10. febrúar
síðastliðinn, voru lögð fram gögn
um að lögreglumaöurinn ungi
drægi stefnuna til baka. Uppgefin
ástæða var sú að stefnandinn „sæi
sig tilneyddan" vegna sjálfs sín og
hagsmuna annarra.
Lögreglumaðurinn sagði við DV í
gær að hann vildi ekki ræða málið
frekar - að minnsta kosti ekki að
svo stöddu. Lögreglufélag Kópavogs
samþykkti stuðningsyfirlýsingu við
lögreglumanninn skömmu eftir að
áminningin var veitt.
Óskar Sigurpálsson, sem lét ný-
lega af störfum sem formaður Lög-
reglufélags Kópavogs, sagði eftirfar-
andi við DV vegna málsins: „Ég er
mjög ósammála því að veita þessum
lögreglumanni áminningu. Brotið
var ekki þess eðlis að tilefni hafi
verið til slíks. Óskar hætti störfum
hjá lögreglunni í Kópavogi um ára-
mótin.
-Ótt
DV-MYND GVA
Eldgosiö í rénum.
Mikiö hefur dregiö úr goskraftinum í Heklu frá því í upphafi gossins. Á þriöju-
dag var þó tignarlegt aö sjá hamfarirnar.
Leirubakki í Landsveit:
Dýrin skynjuðu að
gos var í vændum
DV, Árborg:
„Hryggurinn á Heklu liggur við
manni hér, en við höfum ekki séð
mikið til fjallsins en þetta hefur ver-
ið rosalega flott í tvo tima á hverri
nóttu. Eldglæringamar hafa þá stað-
ið upp úr fjallinu," sagði Ásta Begga
á Leirubakka í Landsveit, við DV.
Leirubakki er tíu kílómetra frá
Heklu og Ásta Begga var farin að
sjá til gosstöðvanna um hálfsjö á
laugardag. Lítil aska hefur fallið á
Leirubakka frá Heklugosinu. Ásta
Begga var ekki vör við neinar hreyf-
ingar á undan gosinu en hún segir
að skepnur hafi sýnt merki um að
eitthvað væri í vændum.
„Viö vorum með reiðnámskeið
hérna á Leirubakka og ég tók eftir
því að dýrin voru einhvern veginn
öðru vísi en þau áttu að sér að vera
nokkru áður en gosið hófst. Hund-
amir eru búnir að haga sér ööruvísi
en venjulega. Og það voru þeir fam-
ir að gera áður en gosið hófst. Við
Ásta Begga á Leirubakka.
-Dýrin uröu óróleg áöur en gosiö
hófst.
héldum fyrst að það væri vegna
þess að það væri svo mikill umgang-
ur héma og því gerðum við okkur
ekki grein fyrir að gos væri í vænd-
um,“ sagði Ásta Begga . -NH
■K' Urnsjón:
Haukur L. Hauksson
netfang: sandkom@ff.is
Gaui á fiskiríi
Sagan segir að
Guðjón Þórðarson,
fyrmm landsliðs-
þjálfari, hafi löngum
reynt að temja sér
að tala gott íslenskt
mál eins og góðum
: piltum sæmir sem
aldir eru upp við
gott atlæti í ís-
lensku sjávarplássi. Þannig tóku
margir eftir því í sjónvarpslýsing-
um að Guðjón talaði gjaman í
málsháttum eða notaði orðatiltæki.
Þjálfarinn hélt svo utan til Stoke í
nóvember þar sem hann fæst við
það verkefni að koma Stoke upp i
efri deildir. Fréttamenn ytra tóku
fljótt eftir því að islenski þjálfarinn
sló um sig með orðatiltækjum og
málsháttum. Sagan segir að Guðjón
hafi orðið svo ákafur í að íslenska
Bretana með orðspeki sinni að
hann hefði einu sinni sagt: „They
fish who row“ eða þeir fiska sem
róa. Þótti þá einhverjum nóg um
og var farið í að útvega Guðjóni
bók yfir breska málshætti og orða-
tiltæki...
Þefvísi
Og aðeins un
Heklugos. Frétta-
stofa RÚV sendi
stóran hóp vaskra
fréttahauka á stað-
inn og Broddi
Broddason, sem
var i essinu sínu
þennan dag, tók
viðtöl við þá nær
strax og þeir voru komnir upp fyrir
Ártúnsbrekku. Einn fréttamann-
anna var staddur á Kambabrún og
ræddi við Brodda. Sá hann hvorki
né heyrði til gossins en sagði að
megna brennisteinslykt legði fyrir
vit sér. Mönnum eystra þótti athygl-
isvert hve fréttanef RÚV var næmt
því á sama tíma var áttin austan-
stæð á Hekluslóðum og allt sem úr
henni kom lagði í aðra átt en að
fréttamanninum. Þess má hins veg-
ar geta að eitt mesta hverasvæði
landsins er neðan við Kamba...
Of sveitó
Tvö ár eru enn i
borgarstjómarkosn-
r_§ 3 ingar en margur
jfll sjálfstæðismaðurinn
er þó þegar farinn
að huga að þeim. Er
þá sérstaklega verið
að horfa til forystu-
fólks í framvarða-
sveit flokksins í
borginni með borgarstjóraefni í
huga. Inga Jóna Þórðardóttir hef-
ur verið talsmaður minnihlutans
þetta kjörtimabil og borgarstjóra-
efni í hugum margra. Þaö pirrar
hins vegar ófáa að Inga Jóna sé sí
og æ kölluð oddviti. Finnst sumum
rótgrónum malarbúum að oddviti .
sé helst til dreifbýlisleg nafnbót fyr-
ir leiðtoga flokksins í borginni;
henni megi helst líkja við hrepp-
stjóra. Slíkar nafnbætur séu flokkn-
um ekki til framdráttar í baráttu
þar sem markmiðið er endurheimt
borgarinnar úr klóm R-listans...
Handavinna
Tvöþúsundvand
inn var á allra
vörum fyrir ára-
mótin og mikill
viðbúnaður þar
sem Haukur
Ingibergsson fór
fremstur í flokki.
Ekkert gerðist þó
og vegna vask-
legrar framgöngu Hauks fékk hann
viðumefndið tvöþúsundkallinn.
Álíka ótti var bundinn hlaupárs-
degi, 29. febrúar, þó minna væri
um hann rætt og menn ekki hlaup-
ið til eins og fyrir áramót. Fátt
gerðist sem telja mætti til tíðinda
en þó fréttist að afgreiðslukerfi
Póstsins hefði ekki reiknaö með
hlaupári. Voru starfsmenn því „á
hlaupum" við að færa 29. febrúar
handvirkt inn á nótur viðskipta-
vina...