Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2000, Side 10
10
Utlönd
FIMMTUDAGUR 2. MARS 2000
a>v
Pinochet
frjáls á ný
Jack Straw, innanríkisráðherra
Bretlands, tilkynnti í morgun að
Augusto Pinochet, fyrrverandi ein-
ræðisherra Chile, yrði ekki fram-
seldur til Spánar. Lögmaður fómar-
lamba stjórnar Pinochet tilkynnti
hins vegar í gær að hann myndi
reyna að áfrýja slíkum úrskurði.
Mótmælendur söfnuðust snemma
í morgun fyrir utan sveitasetrið þar
sem Augusto Pinochet, fyrrverandi
einræðisherra Chile, er í stofufang-
elsi. Óttuðust andstæðingar einræð-
isherrans að hann yrði látinn laus
innan nokkurra klukkustunda.
Jack Straw, innanrikisráðherra
Bretlands, hafði þegar greint frá því
að hann hallaðist að því að veita
Pinochet ferðafrelsi vegna heilsu-
brests og hafna þar með kröfum
fjögurra Evrópuríkja um að hann
verði látinn koma fyrir rétt vegna
mannréttindabrota.
Herflugvél frá Chile, sem hefur
beðið á herflugvelli vestan við
London til að flytja einræðisherr-
ann fyrrverandi heim, hóf sig á loft
snemma í morgun. Talsmaður
breska varnarmálaráðuneytisins
neitaði að tjá sig um hvert vélin
kynni að hafa flogið. Fjölmiðlar
giskuðu á að vélin hefði eimmgis
farið í reynsluflug og myndi lenda
skjótt aftur á herflugvellinum.
Breskir fjölmiðlar voru í morgun
í litlum vafa um hver niðurstaðan
yrði og birtu svohljóðandi fyrir-
sagnir: Pinochet reiðubúinn að
fljúga heim í dag.
Frönsk yfirvöld minntu bresku
stjórnina á það í gær að þau biðu
enn eftir ákvörðun um beiðni sína
um að Pinochet yrði látinn ganga
undir læknisrannsókn á ný.
John McCain fær hlýjar móttökur í sjónvarpssal
Öldungadeildarþingmaöurinn John McCain fékk hlýjar móttökur í sjónvarpssal
vestur í Kaliforníu í gær þar sem hann tók þátt í smá gamansemi. Annars
baöst McCain afsökunar í gær á niörandi ummælum sínum um tvo leiötoga
íhaldssamra kristinna repúblikana. Hann sagöi þá illa innrætta.
Tveir drepnir og 3
særðir í skotárás
Blökkumaður sem sagði ná-
granna sínum að hann ætlaði að
skjóta aðeins hvita menn lét verða
af því í Wilkinsburg, nærri Pitts-
burgh í Bandaríkjunum, í gær og
skaut tvo hvíta menn til bana. Þrír
aðrir hlutu sár. Byssumaðurinn
gafst upp fyrir lögreglu skömmu
síðar.
Morðin í Wilkinsburg voru fram-
in aðeins degi eftir að sex ára dreng-
ur myrti skólasystur sína í Michig-
an. Bill Clinton Bandarikjaforseti
sagði að voðaverkin sýndu svo ekki
væri um villst að þörf væri á hert-
ari reglum um byssueign.
Hinn grunaði byrjaði á því að
drepa viðgerðarmann eftir rifrildi
um viðgerð á hurð á heimili hans.
Hann kveikti síðan í húsi sínu og
gekk til nærliggjandi verslanasam-
stæðu með 22 kalíbera byssu og hníf
að vopni. Þar skaut maðurinn á þrjá
menn á McDonalds og á þann fjórða
á Burger King. Að því búnu gekk
skotmaðurinn inn í skrifstofubygg-
ingu þar sem hann tók nokkra gísla.
Hann gafst loks upp fyrir lögreglu
þegar samningamönnum tókst að
koma vitinú fyrir hann.
h