Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2000, Qupperneq 11
FIMMTUDAGUR 2. MARS 2000
11
Utlönd
Drengurinn hélt að skotárásin væri bara eins og í sjónvarpinu:
NATO hafnar tillögu SÞ
Áætlun Sameinuöu þjóðanna,
SÞ, um aö sameina stríðandi borg-
arhluta Mitrovica í Kosovo verður
að engu vegna þess að gæsluliðar
NATO þora ekki að fara fótgang-
andi í eftirlitsferðir. Þetta kom
fram í breska blaðinu Guardian.
Afganar fá hæli
Átta Afgönum hefur verið veitt
hæli í Bretlandi í kjölfar flugráns-
ins fyrir nokkrum vikum. Um er
að ræða tvo karlkyns gísla, eigin-
konu annars þeirra og fimm börn.
árás Rússa
Forseti Tsjetsjen-
íu, Aslan Mask-
hadov, og þrir leið-
togar uppreisnar-
manna lifðu af árás
Rússa á síðasta vígi
þeirra í vikunni.
Rússar ætla að
biðja alþjóðalög-
regluna Interpol um aðstoð við að
handtaka Maskhadov. Að sögn
Rússa eru leiðtogarnir á stöðugri
hreyfingu og staldri hvergi við leng-
ur en í 1 dag.
Norðmenn hata fisk
1 milljón Norðmanna er ekki
hrifln af fiski. Þeir sem síst eru
hrifnir af fiski eru ungir karlar og
böm. Þrátt fyrir það borða þrír af
hverjum fjórum Norðmönnu gjam-
an fisk.
Skyndileit hjá múslímum
Breska lögreglan gerði á þriðju-
daginn skyndileit á þremur stöð-
um hjá múslímum í Birmingham
vegna hryðjuverka erlendis. Hald
var lagt á mikið fé og rafbúnað.
Rannsaka mögulegt smit
Bresk heilbrigðisyfirvöld kanna
nú hvort lítil stúlka hafi smitast af
Creutzfeldt-Jakobs-veikinni af
móður sinni.
Sór embættiseið
Finnar fengu í
gær nýjan forseta er
Tarja Halonen sór
embættiseið og tók
við af Martti Ahti-
saari. Halonen, sem
er fyrrverandi utan-
ríkisráðherra Finn-
lands, kvaðst ætla að
verða forseti alls landsins. Hátíða-
höldin vegna eiðtökunnar stóðu yf-
ir í nokkrar klukkustundir.
Olíupeningar til íraka
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
ákvað í gær að taka mætti peninga
úr sjóði með olíutekjum Iraka til
þess að fjármagna ferð íraskra
pílagríma til Mekka.
írar gegn Sellafield
írsk yfirvöld tilkynntu í gær að
þau kynnu að grípa til lagalegra
aðgerða til þess að reyna að fá
Sellafleld-kjamorkuverinu lokað.
Klámstjörnur mótmæla
Klámstjömur hafa tekið undir
mótmæli stjórnmálamanna vegna
þátttöku Frelsisflokksins í stjórn
Austurríkis. Hafa þær afþakka boð
á hið fræga óperuball í Vín.
Pútín á bás með Stalín
Þekktir mann-
réttindafrömuðir
í Rússlandi segja
stjóm Vladimirs
Pútins, starfandi
forseta Rúss-
lands, nýja út-
gáfu af stalín-
isma. Þessa for-
dæmingu mátti
lesa í enskri útgáfu blaðsins
Moscow Times í gær. Meðal þeirra
sem rituðu nafn sitt undir yfirlýs-
inguna var ekkja Andrejs Sak-
harovs, Jelena Bonner.
Tugir létust í lestarslysi
Að minnsta kosti 35 létust þegar
farþegalest rakst á aftanívagn með
50 verkamönnum í Marokkó í gær.
Verkamennimir voru á leið til
grænmetistínslu.
Lifðu af
Bjó I eiturlyfjagreni með
hlöðnum byssum um allt
Sex ára drengurinn frá Michigan
sem skaut bekkjarsystur sina og
jafnöldru, Kaylu Rolland, til bana í
fyrradag bjó i eiturlyfjagreni þar
sem hlaðnar byssur voru fyrir
hunda og manna fótum. Á heimil-
inu fóru fram lífleg viðskipti með
eiturlyf þar sem greitt var fyrir með
stolnum skotvopnum.
Lögreglan handtók í gær tvo
karla sem bjuggu í húsinu og dóm-
stóll í Michigan úrskurðaði móður
drengsins eiturlyfjafikil sem væri
ekki hæf til að annast bamið.
Drengnum var komið fyrir hjá
frænku. Faðir hans situr í fangelsi
fyrir að brjóta skilorð vegna ákæru
um að rjúfa friðhelgi heimilisins.
Að sögn lögreglunnar virðist sem
drengurinn líti á morðið eins og
hverja aðra skothríð i sjónvarpi.
Drengnum hefur að minnsta kosti
þrisvar sinnum verið vikið úr
skóla, þar af einu sinni fyrir að
stinga skólafélaga sinn með blýanti.
Skotárásin í Michigan
íbúar St Morris í Michigan leggja blóm að dyrum Buell-grunnskólans þar sem
sex ára drengur skaut skólasystur sína ogjafnöldru til bana á þriðjudag.
Þegar lögreglan hætti að spyrja
drenginn um morðið, sem skaut
skelk í bringu allra Bandaríkja-
manna vegna ungs aldurs skot-
mannsins og fómarlambsins, fór
hann bara að teikna.
Lögreglan segir að pilturinn hafi
fundið byssuna undir ábreiðum í
húsinu þar sem hann bjó, eiturlyfja-
greni þar sem hann hefur haldið til
eftir að faðir hans fór í fangelsi og
móðir hans var rekin úr íbúð sinni.
Við húsleit seint á þriðjudag
fundust eiturlyf og stolin hlaðin
haglabyssa, að sögn Arthurs Busch
saksóknara. Neysla og sala krakks
fór fram í húsinu.
Kayla litla Rolland er yngsta fórn-
arlambið í þeim skotárásum sem
hafa verið gerðar í bandarískum
skólum síðustu misserin. Alvarleg-
asta árásin var gerð í Columbine-
framhaldsskólanum i Kólóradó í
fyrra þar sem tveir piltar drápu tólf
skólafélaga sína og tvo kennara.
Grænfriöungar láta í sér heyra
Lögreglan í Chicago býr sig undir að leysa upp mótmæli nokkurra félaga í samtökum grænfriðunga fyrir utan aöal-
stöðvar olíufélagsins BP Amoco. Grænfriöungar klæddust sumir ísbjarnarbúningum til að leggja áherslu á kröfur sinar
um að ekki verði borað eftir olíu í viðkvæmri náttúru noröurheimskautsins.
Flýöi flóðiö og fæddi
barnið sitt uppi í tré
Rosita Pedro fæddist í gær í
trjákrónu þar sem móðir hennar
hafði leitað skjóls á sunnudaginn
vegna flóðanna í Mósambík.
Móðirin, Sofia Pedro, sem er 26 ára,
var aðframkomin af þreytu þegar
björgunarmenn í þyrlu frá S-Afríku
komu auga á hana í trénu á
flóðasvæðinu. „Við komum auga á
hana á síðustu stundu. Ég var
látinn síga niður í tréð og hjálpaði
henni við fæðingu bamsins,“ sagði
björgunarmaðurinn sem kom
móðurinni til aðstoðar. „Þvínæst
hífðum við móður og bam upp i
þyrluna. Þeim líður báðum vel,“
bætti hann við.
Tæplega klukkustund eftir
björgunina vom Sofia og Rosita
búnar að fá læknishjálp og hvildust
á þurru landi. Þær voru meðal
hinna heppnu sem bjargað var í
Barátta upp á líf og dauöa.
Björgunarmaöur með Rositu litlu
sem fæddist í trjákrónu í Mósambík.
gær í Mósambík.
Embættismenn í Mósambík segja
að enn séu 100 þúsund manns í
trjám, á húsþökum og meira að
segja i háspennumöstrum þar sem
þeir hafa beðið dögum saman eftir
mat, björgun eða dauðanum.
Forseti Mósambík, Joaquim
Chissano, sagði í gær að um ein
milljón manna heföi hrakist frá
heimilum sínum vegna flóðanna.
Forsetinn lagði áherslu á að
ástandið með fram Limpopoánni
væri aö versna.
„Það er einungis hægt að bjarga
fólki í trjám og á húsþökum með
þyrlum," sagði forsetinn.
Mörgum þeirra, sem hefur verið
bjargað, hefur verið komið fyrir í
bráðabirgðabúðum. En ástandið þar
er einnig hörmulegt vegna skorts á
matvælum, lyfjum og hreinu vatni.
Rússneski fánlnn í Grozní.
Rússneskir hermenn standa við
rússneska fánann eftir hreinsun-
araðgerðir í Grozní.
Rússar hundelta
uppreisnarmenn
Rússneskar hersveitir segjast
vera að elta uppi það sem eftir er
af liði uppreisnarmanna í
Tsjetsjeníu og þær hlakka til þess
dags þegar stríðið í lýðveldinu
verður ekkert meira en ósköp
venjulegar lögregluaðgerðir.
ígor ívanov, utanríkisráðherra
Rússlands, má eiga von á frekari
mótmælum við hernaðarbrölt
Rússa í Tsjetsjeníu þegar hann
hittir utanríkisráðherra Evrópu-
sambandsins og Madeleine Al-
bright, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, á fundi i Lissabon í dag.
Fregnir herma að farið veröi að
flytja hermenn heim á næstunni.
Helmut Kohl.
Safnar fé til að greiða sektir kristi-
legra demókrata vegna leynireikn-
ingasukksins við fjármögnun
flokksstarfsins á valdatíma hans.
Lagst á Kohl um
að hætta á þingi
Enn syrtir í álinn fyrir Helmut
Kohl, fyrrum Þýskalandskanslara.
Flokksbræður hans, leiðtogar kristi-
legra demókrata, eru nú famir að
hvetja hann til að segja af sér þing-
mennsku vegna leynireikninga-
hneykslisins.
Þýskir fjölmiðlar hafa greint frá
því að Kohl hafl safnað rúmum 200
milljónum króna frá kunningjum úr
viðskiptalífinu til að létta á fjármál-
um flokksins sem var sektaður í síð-
asta mánuði vegna fjármálahneyksl-
isins á valdatíma Kohls.