Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2000, Side 13
FIMMTUDAGUR 2. MARS 2000
13
Góð ráð við kaup:
Snjóbrettin eru vin
sæl fermingargjöf
Snjóbretti hafa náð ótrúlegum
vinsældum hérlendis á stuttum
tíma. Sennilega eru þau ófá, ferm-
ingarbörnin í ár, sem óska eftir
snjóbretti í fermingargjöf.
Nú er svo komið að hátt í helm-
ingur þeirra sem sækja skíðasvæði
fyrir lítil böm upp í 193 sm bretti
fyrir hávaxið fólk.
Ódýrustu brettin eru úr frauð-
plasti en fæstum þykja þau full-
nægjandi til léngdar. Trébretti
henta flestum brettaiðkendum til
frambúðar en þeir sem hyggja á
m ' í i
Sennilega eru þau ófá, fermingarbörnin í ár, sem óska eftir snjóbretti í
fermingargjöf.
víðs vegar um land brunar niður
hlíðarnar á skíðabrettum í stað
skíða.
Skynsamlegast er að leigja bretti
fyrst í stað til að kanna hvað hent-
ar hverjum og einum og hvert
áhugasviðið er. Séu kaup hins veg-
ar ákveðin er fyrsta skrefið að vigta
viðkomandi því lengd brettisins fer
að verulegu leyti eftir líkamsþyngd
en einnig þarf að taka hæð, skó-
stærð og reynslu viðkomandi með í
reikninginn. Upp á endann á brett-
ið yfirleitt að ná að höku eða upp að
kinn notandans. Á markaði hér er
hægt að fá allt frá 95 sm brettum
keppni í snjóbrettalistinni þurfa
e.t.v. að fjárfesta í dýrustu gerðun-
um af brettunum sem eru úr blöndu
viðar og annarra efna.
Aukabúnaður
mikilvægur
Hægt er að fá bretti á verðbilinu
13-40 þúsund en algengt er að ódýr
bretti kosti á bilinu 16-25 þúsund
eins og sést í grafinu hér á síðunni.
Brettin eru frá mörgum fyrirtækj-
um og því er rétt að meta hvert
bretti út af fyrir sig áður en nokkuð
Snjóbretti hafa náö ótrú-
legum vinsældum hér-
lendis á undanförnum
árum og nú er svo
komiö að hátt í helm-
ingur þeirra sem
sækja skíðasvæöi
víös vegar um land er
á snjóbrettum.
er keypt þar sem gæði þeirra geta
verið mismunandi.
Skór kosta yfirleitt 7-10 þús-
und krónur en geta verið tvö-
falt dýrari eða svo. Bindingar
kosta um 6-7 þúsund krónur.
Þar sem allur búnaður sem fylg-
ir brettinu er dýr má reikna með
því að aukabúnaðurinn kosti
u.þ.b. það sama og brettið sjálft eða
jafnvel meira ef dýr búnaður er
keyptur.
Auk bindinga og skófatn-
aðar þurfa brettaiðkendur
góðan hlifðarfatnað og
hlífar til vamar hnjaski.
Ráðlegt er að vera með
hjálm á höfði, stóra og
þykka hanska með
spelkum sem ná upp
fyrir úlnlið og vatns-
og vindheldan fatnað.
(Heimild: M.a. Vár bostad og
Neytendablaðið)
-GLM
Bindingar og
skór
Snjóbretti skiptast í tvo
flokka, frjálsstílsbretti og svig-
bretti. Frjálsstílsbrettin eru mun
algengari en svigbrettin hérlendis
enda auðveldari viðfangs en svig-
brettin. Á frjálsstílsbrettunum
þarf sterka en mjúka skó, sveigj-
anlega um ökklann. Hægt er að
nota góða fjallgönguskó en best er
að nota sérstaka
brettaskó sem
minnst var á áðan. Skó-
stærð skiptir ekki máli en ekki er
ráðlegt að skór nái meira en rúm-
an sentímetra út fyrir brettið.
Bindingar á brettum er hægt að
stilla eftir aðstæðum en oftast er
miðað við að bilið á milli binding-
anna sé jafnt axlarbreidd notand-
ans.
Ljóst er því að það er að ýmsu
að hyggja áöur en snjóbretti er
keypt en líklega verða slík bretti í
fermingarpökkum margra ung-
linga í ár.
Hagsýni I eldhúsinu
Útsjónarsemi og e.t.v. vænn
skammtur af hugmyndaauðgi eru
lykilorðin þegar kemur að því að
lækka útgjöldin sem fylgja hinu
daglega heimilishaldi.
Hér á eftir fara ýmiss konar hag-
sýnisráð sem ættu að gleðja þá sem
sjá um fjármál heimilisins.
a) Ekki þarf að henda káli sem
farið er að láta á sjá, t.d. orðið lint,
ef kálið er ekki skemjnt. Gott ráð er
að skella kálinu í skál með köldu
vatni og einni afhýddri kartöflu um
stund. Þá verður kálið aftur stinnt
og fallegt.
b) Tómatar eru ekki girnilegir
þegar þeir eru orðnir mjög linir. í
stað þess að henda þeim er ráð að
láta þá liggja yflr nótt í skál með
söltu vatni.
c) í stað þess að kaupa dýrt tilbú-
ið mýkingarefni fyrir þvottinn má
aiveg eins setja tvær teskeiðar af
borðediki í þvottavélina.
d) Sumir henda osti sem verið
hefur í ísskápnum um tíma einfald-
lega vegna þess að hann er orðinn
dálítið rakur. Þess í stað er ráð að
taka ostinn strax úr þeim umbúð-
um sem hann er keyptur í og vefja
hann inn í álpappír. Það kemur í
veg fyrir rak-
ann.
e) Taktu ljós-
rit af öllum
greiðslukort-
um íjölskyld-
unnar svo
að þú getir
g e f i ð
J| greinar-
g ó ð a r
upplýs-
i n g a r
um þau ef þú týnir
þeim eða þeim er
stolið.
f) Rennilásar í
gömlum fötum
standa stundum á sér
og þá getur verið
erfitt að nota flíkina.
Ráð við þessu er að
renna kerti sem hef-
ur verið hitað ör-
skamma stund í ör-
bylgjuofni/ofni upp
og niður eftir lásn-
um.
g) I stað þess að
kaupa sérstakt
hreinsiefni til þess að
hreinsa baðkarið má
auðveldlega þrífa það
með því að klæða
svamp í gamlan
nælonsokk. Nælon-
sokkurinn sýgur vel í
sig öll óhreinindin og
fituna.
h) Ef hendurnar
eru illa lyktandi, t.d. eftir að þú hef-
ur meðhöndlað fisk eða gert við bíl-
inn, er ráð að nudda þær upp úr
rakfroðu.
i) Til aö halda eldhúspönnunni í
góðu standi sem lengst er ráð að
þurrka hana alltaf vel eftir uppþott,
geyma hana á þurrum stað og
nudda hana að innan með ólífuolíu
og salti. Þá endist pannan mun
lengur en ella.
j) Til að halda nýjum skóm falleg-
um sem lengst er ráð að úða þá með
hárúða í hvert skipti sem þeir hafa
verið pússaðir. Það heldur leðrinu
fallegu. -GLM
Auglýsingar
Auglýsingar eru stór hluti af
okkar daglega lífi. Þær eru mis-
jafnlega áhrifarikar en allar eiga
þær þó að lúta eftirfarandi regl-
um:
Auglýsingar skulu ekki inni-
halda boðskap, í orðum eða
myndum, sem brýtur gegn al-
mennri velsæmiskennd.
Auglýsingar skal semja þannig
að traust neytandans, takmörkuð
reynsla hans eða þekking, sé ekki
misnotað.
Auglýsingar skulu ekki inni-
halda staðhæfingar eða myndir
sem líklegar eru til aö villa um
fyrir neytandanum.
Ef samanburður er notaður í
auglýsingum skal þess gætt að
samanburðurinn sjálfur sé ekki
viilandi og að hann brjóti ekki
gegn grundvallarreglum um
sanngimi í samkeppni.
í auglýsingum skal ekki hall-
mæla neinu fyrirtæki eða sam-
keppnisvöru, hvorki beint né
með því að gefa ókosti hennar I
skyn.
í auglýsingum skal ekki mis-
nota hina eðlilegu trúgirni barna
eða reynsluskort yngri kynslóð-
arinnar og skal þess gætt að aug-
lýsingar raski ekki samlyndi inn-
an fjölskyldunnar.
Vörulýsingar og staðhæfingar
um eðli eða myndameðferð skulu
ávallt vera sannleikanum sam-
kvæmar. Auglýsendur skulu fús-
ir til að leggja fram sönnunar-
gögn án tafar sé þess óskaö af að-
ilum sem sjá um að reglunum sé
framfylgt.
Hör og baðmull
Hör er vefjarefni sem unnið er
úr basttrefjum stönguls hörplönt-
unnar. Kostir hörs eru að hann
er slitsterkur, þéttur og svalur
viðkomu. Hann dregur vel í sig
raka og teygist ekki. Ókostir hans
eru að hann getur upplitast,
hlaupið í þvotti og krumpast
fljótt. Vel þarf að athuga meðferð-
armerkingar.
Baðmull er fræhár baðmull-
arplöntunnar. Kostir baðmullar-
innar eru að hún er fíngerð og
ódýr. Hún hefur einnig góða
spunaeiginleika, er slitsterk og
þolir vel þvott. Hún hefur ekki
ertandi áhrif á húðina og litast
vel. Ókostir baðmullarinnar eru
að hún er ekki fjaðurmögnuð og
getur því krumpast í þvotti.
Einnig getur hún hlaupið í þvotti.
-GLM