Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2000, Page 33
FIMMTUDAGUR 2. MARS 2000
37
Bryndís Halla Gylfadóttir leikur
einleik meö Sinfóníunni í kvöld.
Rauður þráður,
sinfónía og
sellókonsert
í kvöld verða gulir áskriftartón-
leikar Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands í Háskólabíói og hefjast þeir
kl. 20. Á verkefnaskrá kvöldsins
verða tónverkin Rauður þráður
eftir Hjálmar H. Ragnarsson,
Fyrsti sellókonsert Dmítríjs
Shostakovitsj og Önnur sinfónía
Pjotrs I. Tsjajkovskíjs, gjaman
nefnd Litla Rússland.
Tónleikar
Þegar Önnur sinfónía Tsjajkov-
skíjs var frumflutt í Moskvu i febr-
úar 1873 hlaut hún strax framúr-
skarandi undirtektir, ólíkt því
sem höfðu verið örlög Fyrstu sin-
fóniu tónskáldsins sem hann hafði
smíðað sex árum áður. Fyrsti sell-
ókonsert Shostakovitsj er eitt af
mikilvægustu verkum hans og án
efa eitt af vinsælustu tónverkum
þessarar aldar. Hjálmar Ragnars-
son samdi Rauðan þráð fyrir um
það bil tíu árum fyrir litla hljóm-
sveit og íslenska dansflokkinn.
Frumflutningur fór fram í Þjóð-
leikhúsinu. Um verkið segir tón-
skáldið meðal annars: „að eitthvað
fæðist úr engu: fæðing nýs lífs, eða
kannski: upprisa nýrrar jarðar!"
Hljómsveitarstjóri er íslands-
vinurinn Anne Manson og ein-
leikari Bryndís Halla Gylfadóttir.
Þess má geta að Bryndís Halla
vígir á þessum tónleikum selló
sem Hans Jóhannesson hljóðfæra-
smiður smíðaði fyrir hana.
Nýiistasafnið. Samspil hinna ýmsu
miöla er þemað.
Kvikar myndir
Síðastliðinn laugardag var opnuð
í Nýlistasafninu sýningin Kvikar
myndir, sem er samspil ýmissa
kvikra mynda. Fjöldi listrænna
stuttmynda og tilraunamynda er
sýndur á sýningunni eða alls um
eitt hundrað myndir. Auk þess er
starfrækt á sýningunni vídeósafn
þar sem fólk getur komið inn, valið
Sýningar
sér spólu og skoðað á staðnum.
Hinn margbrotni heimur tölvuleikj-
anna er skoðaður, allt frá gömlum,
einföldum leikjum til flókinna
leikja nútímans. Umsjón með sýn-
ingunni hafa Böðvar Bjarki Péturs-
son og Bjargey Ólafsdóttir. Nýlista-
safnið er opið milli kl. 14 og 18.
Gravity Skins -
Framlenging
Sýning Alistair Macintyre,
Gravity Skins, sem ljúka átti um
helgina, hefur verið framlengd um
tvær vikur, eða til 12. mars. Sýning-
in sem haldin er í sal ísl. graflkfé-
lagsins í Hafharhúsinu, Tryggva-
götu 17, samanstendur af stórum
pappírsverkum, gerðum úr ís og
jámlitarefni. Hún er opin fimmtu-
dag til sunnudags frá kl. 14-18.
Skítamórall á Hard Rock Café
Skítamórall mun leika ný og gömul lög á Hard Rock Café í kvöld.
atburðar. Þeir félagar Trausti
„Tuddi“ Lomber og Flóki Guð-
mundsson munu rifja upp gang fer-
ils síns í máli og músík og spila lög
af plötum sínum, allt frá Komd’í
kleinu til Einnar stórrar frænku.
Guðbjörg S. Maack mun mæta með
gamla takta og margt fleira
skemmtilegt mun skjóta upp kollin-
um.
Vinir Dóra á
Amigos
I kvöld ætlar Halldór Bragason að
hóa aftur í vini sína og leika
blús á veitingastaðnum
Amigos í Tryggvagötu.
Blúskvöldið fyrir viku gekk
svo vel að ástæða þykir að
endurtaka það. Kvöldið
gengur undir nafninu Bar-
bique og blús. Eins og nafn-
ið gefur til kynna verður
boðið upp á barbeque-mat
og segja þeir sem til þekkja
að enginn matur bragðist
betur með blúsnum. Með
Dóra í kvöld eru marg-
reyndir blúsmenn, sem
áður hafa leikið með hon-
um, gítarsnillingurinn Guð-
mundur Pétursson, Jón
Ólafsson á bassa og hinn
óþreytandi Ásgeir Óskars-
son á trommur. Hefja þeir
leik um klukkan 22.
syni á gítar, slagverk og annan
hljóðnema. Sveitin kemur til með
að leika nýtt efni sem væntanlegt
verður á öldum ljósvakamiðla og í
plötuverslunum með hækkandi sól.
Fítónn jóðsjúkra
kvenna
Einn af ástsælari dúettum síðasta
áratugar, Fítónn jóðsjúkra kvenna,
mun halda endurkomutónleika í
Kafflleikhúsinu í kvöld kl. 21 og er
öllum gömlu aðdáendunum boðið að
koma og verða vitni þessa einstaka
Það er hljómsveitin Skítamórall
sem á næsta leik í tónleikaröðinni
Sítrónu á Hard Rock Café. Skíta-
mórall hefur legið í dvala síðan um
áramót og hefur þess vegna ekkert
Skemmtanir
komið fram opinberlega síðan í lok
desember. Sveitin er skipuð þeim
Jóhanni Bachmann á trommur,
Herbert Viðarsyni á bassa, Adda
Fannari á gítar, Gunnari Óla á gítar
og hljóðnema og Einari Ágúst Víðis-
Snjóþotur til styrktar
Barnaspítala Hringsins
Efnt hefur verið til söfnunarátaks
undir yfirskriftinni Bamið okkar
sem samnefnt félag stendur að. Til-
gangurinn er að safna fé til tækja-
kaupa fyrir hinn nýja Bamaspítala
Hringsins sem mun rísa á lóð Land-
spítalans.
Meðal leiða til fjár-
söfnunar er sala á .
norskum snjóþotum sem fengnar
voru til landsins á framleiðsluverði.
Flutti Eimskip þotumar frítt. Leitað
hefur verið til fyrirtækja og stofn-
ana um að þau festi kaup á þessum
snjóþotum og selji þær síðan til al-
mennings fyrir eitt þúsund krónur
sem renna til Bamaspítalans. Áætl-
að er að selja fimm þúsund snjóþot-
ur. Undirtektir hafa verið góðar og
má geta þess að Esso keypti fimmt-
án hundrað þotur. Auk þess hafa
Nettó, Samkaup, BYKO, Húsasmiðj-
an og fleiri fyrirtæki keypt snjóþot-
ur auk kaupfélaga um allt
SÖfHUIl land. íslenska útvarpsfé-
lagið mun síðan auglýsa
þetta átak.
Nú er leitað til almennings um að
styrkja verkefnið með því að kaupa
snjóþotur og leggja þar með sitt af
mörkum til að búa nýjan Bamaspít-
ala Hringsins sem mestu af nauð-
synlegum hjúkrunar- og lækninga-
tækjum.
André Bachmann, einn forsvarsmanna söfnunarátaksins, afhendir Jóhanni
P. Jónssyni, deildarstjóra markaösdeildar Olíufélagsins, fyrstu snjóþotuna.
Bústaöakirkja er ein af mörgum
kirkjum sem halda hátíölegan
æskulýösdag þjóökirkjunnar.
Æskulýðs-
og fjöl-
skyldudagur
Næstkomandi sunnudag er
æskulýðsdagur þjóðkirkjunnar. Þá
er ungmennum sérstaklega boðið
til kirkju ásamt foreldrum sinum
og öðrum ástvinum í æskulýðs og
fjölskyldumessu kl. 11 í Bústaða-
kirkju. Messuformið er breytt frá
því sem venja er og nýir og léttir
söngvar hljóma. Ungmenni taka
þátt í messunni með margvíslegum
hætti. Öll tónlist er flutt af ungu
fólki og alls taka um 100 ungmenni
þátt i tónlistarflutningi í bama-,
stúikna- og bjöllukór kirkjunnar.
Ávörp dagsins flytja þau Atli
Bollason, nemi í Réttarholtsskóla,
og Bára Elíasdóttir, kennari og
fræðari í barnastarfi Bústaða-
kirkju, og fermingarböm annast
flutning ritningarlestra.
Fjölskyldur eru hvattar til þess
Kirkjan
að koma saman til kirkju og taka
þátt í messunum. í erli þjóðlífsins
era samverushmdir fjölskyldunnar
á hröðu undanhaldi. Margir þekkja
þá tilfmningu að ætla síðar að vera
með börnum sínum en áður en við
er litið era þau flogin úr hreiðrinu
og foreldrar og börn hafa þá farið á
mis við þá ánægju og þroska sem
slíka samvera gefur.
Óskar
Myndarlegi drengurinn
á myndinni er orðinn átta
vikna gamall og hefur
hann fengið nafnið Óskar
Barn dagsins
Dagur
Dagur. Hann fæddist á
Landspítalanum 3. janúar
og var 4720 grömm og 52
sentímetrar. Foreldrar
hans eru Haukur Óskars-
son og Hulda Bjamadóttir
og er hann þeirra fyrsta
bam.
Mæöur fylgjast með dætrum í
hæfileikakeppni.
Drop Dead,
Gorgeous
Háskólabió sýnir Drop Dead
Gorgeous. Um er að ræða kol-
svarta og léttgeggjaða gaman-
mynd sem gerist í Miðvesturríkj-
um Bandaríkjanna. Hart er deilt á
fegurðar- og hæfileikakeppnir
stúlkna, meö vopnum háðsádeil-
unnar. Stjörnufans fer með aðal-
hlutverkin í myndinni og má þar
nefna Kirstie Álley, Ellen Barkin,
Kirsten Dunst og Denise Ric-
hards. Barkin og Alley eru báðar
þrautreyndar leikkonur sem þó
hafa ekki áður leikið saman og
hvorug þeirra hefur áður leikið í
kvikmynd þar sem allt er gert út á
svartan húmor. Denise
Richards, sem -
margir ættu að 'A
Kvikmyndir
kannast við úr nýj-
ustu James Bond-myndinni. Kirst-
en Dunst byrjaði snemma aö leika
og hver man ekki eftir henni í
hlutverki litlu blóðsugunnar með
saklausa andlitið i Interview With
The Vampire.
Nýjar myndir í kvikmynda-
húsum:
Bfóhöllin: Three Kings
Saga-bíó: Bringing out the Dead
Bíóborgin: Breakfast of Champions
Háskólabió: Drop Dead Gorgeous
Háskólabíó: Anna and the King
Kringlubíó: Toy Story 2
Laugarásbfó: Magnolia
Regnboginn: The Talented Mr.
Ripley
Stjörnubíó: Bicenntenial Man
Krossgátan
1 2 3 4 5 6 7
8
10 11
12 13
15 16 17 u
1$ ?í
22
Lárétt: 1 öragga, 8 þreytti, 9 hress,
10 espa, 11 nudds, 12 frétt, 15 lækk-
uðu, 17 rugga, 19 narti, 21 form, 22
þrjót.
Lóðrétt: 1 hamagangurinn, 2 bygg-
ing, 3 ánægju, 4 mjúki, 5 sprotum, 6
ágóða, 7 svari, 13 karlmannsnafn, 14
kona, 16 gljúfur, 18 fæða, 20 skoða.
Lausn á síðustu krossgátu:
Lárétt: 1 kafalds, 8 órar, 9 æra, 10
lítið, 11 ól, 12 fagnar, 15 utan, 17 sói,
18 rá, 19 götin, 22 öm, 23 senn.
Lóðrétt: 1 kólfur, 2 aría, 3 fat, 4 ar-
inn, 5 læðast, 6 dró, 7 salli, 13 gagn,**
14 róin, 16 tár, 20 ös, 21 nn.