Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2000, Qupperneq 36
MILLENNIUM SLJBAR
FR ETTAS KOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá t síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað t DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FIMMTUDAGUR 2. MARS 2000
íslensk erfðagreining:
Tek þessu
með varúð
„Ég tek nú öllum svona niðurstöð-
um með mikiili varúð en það hefúr
v alltaf verið gert ráð fyrir að íslending-
ar væru af blönduðum uppruna. Það
hefur iðulega komið fyrir að við höfum
fengið raunvís-
indalegar niður-
stöður um sagn-
fræðileg efni sem
reynast ekki vera
reistar á sterkari
forsendum en
sögulegu heimild-
imar,“ segir
Gunnar Karlsson
sagnfræðingur um
að helmingur
kvenna se frá Bret-
landseyjum en
ekki Norðurlönd-
um eins og talið
var.
„Þegar fróðleikur færist á miili
fræðigreina þá færast bara niðurstöð-
umar en ekki fyrirvaramir. Það er
alltaf hætta á því að niðurstöður sem
menn komast að i einni fræðigrein séu
notaðar sem ótvíræður sannleikur í
annarri," segir Gunnar.
-hól
Gunnar Karls-
son: Gert ráð
fyrir að íslend-
ingar séu
blandaðir.
* Klám, ES-smokkar
og höfuðkúpubrot
í Fókusi, sem fylgir DV á morgun,
er gerð ítarleg leit að mesta költinu í
dag. Ásta Hafþórsdóttir ævintýra-
kona segir frá Afríkudvöl sinni og
Ragnar Bragason, leíkstjóri bíómynd-
arinnar Fíaskó, spjallar um myndina,
Vestfirði og það þegar hann braut
hauskúpu með jöxlunum. Svo hefur
það komið í ljós að smokkurinn fer
eftir Evrópustaðli og Fókus lék for-
vitni á að vita hvort strákarnir okkar
passa í hann. Lífið eftir vinnu er tólf
síðna blaðauki um allt sem þú vilt
vita um menningar- og skemmtanalíf.
Það var einmitt í Iðnó sem íslendingar kynntust breska skáldjöfrinum Shakespeare í fyrsta sinn og því fór vel á aö þar skyldi hann kynntur „eins og hann
leggur sig“ í gærkvöldi. Er ekki að orðlengja það: leikhúsgestir uröu nánast veikir af hlátri á þessari snöfurlegu og snilldarvel leiknu hraðferð yfir öll leikrit
meistarans - og sonnetturnar að auki. Full ástæða var fyrir ieikstjórann, Benedikt Erlingsson, að þakka leikhópnum vel fyrir frammistöðuna. Á myndinni
kyssir hann Friðrik Friðriksson en Halldóra Geirharðsdóttir og Halldór Gylfason bíða þolinmóð eftir að korhi að þeim. Sjá umsögn bls. 17. DV-mynd Pjetur
Upplausn í Flugskóla íslands:
Öll yfirstjórnin flogin
- Arngrímur Jóhannsson verður skólastjóri
„Ég hef sagt upp störfum og hætti
15. mars,“ sagði Gylfi Ernst Gísla-
son, skólastjóri Flugskóla íslands.
„Ég hætti ekki einn heldur hættir
Jens Kane yfirflugkennari einnig og
Sigurður Jónsson yfirkennari lét af
stöfum fyrir skemmstu. Ástæðan er
faglegur ágreiningur á milli okkar
og stjómar skólans," sagði Sigurður
sem að öðru leyti vildi ekki tjá sig
um þann ágreining.
Ákveðið hefur verið að nýkjörinn
stjórnarformaður Flugskólans, Arn-
grímur Jóhannsson í Atlanta, taki
við skólastjórastarfinu auk þess að
Arngrímur Jó-
hannsson.
Fyrst stjórnar-
formaður - svo
skólastjóri.
gegna stjómar-
formennsku.
Mun ætlun hans
vera að gegna
starfinu tíma-
bundið og rífa
skólann upp úr
þeirri ládeyðu
sem hann hefur
verið í en sem
kunnugt er af
fréttum hefur fall
nemenda í skól-
anum verið
meira en viðun-
andi getur talist. Fyrir nokkru féllu
76 prósent nemenda á einkaflug-
mannsprófi sem er einsdæmi í sögu
flugkennslu hér á landi.
Flugskóli íslands er i eigu rikis-
ins að stærstum hluta en aðrir hlut-
hafar eru Flugleiðir, Atlantik og
nokkrir aðrir smærri aðilar. Hall-
dór Kristjánsson, skrifstofustjóri í
samgönguráðuneytinu, sem gegndi
starfi stjómarformanns við stofnun
skólans, lét af því embætti eftir fall-
ið mikla á einkaflugmannsprófun-
um og Arngrimur Jóhannsson tók
við. Nú verður Amgrímur einnig
skólastjóri ef Flugmálastjórn veitir
samþykki sitt en mjög strangar
hæfniskröfur em gerðar við ráðn-
ingu skólastjórans að sögn Gylfa
Emsts Gíslasonar, fráfarandi skóla-
stjóra, sem hverfur aftur til fyrri
starfa sem flugmaður hjá Flugleið-
um. Arngrímur Jóhannsson er nú
staddur í Afriku þar sem hann sinn-
ir verkefni í lofti fyrir afríska flug-
félagið Air Afrique. -EIR
Gosaska á rúðum
DV, Selfossi:
Formannsframboð Samfylkingar:
Ákvörðun á næstu dögum
„Ákvörðunar er að vænta á
næstu dögum,“ sagði Össur Skarp-
héðinsson við DV í morgun um
mögulegt framboð í formannsemb-
ætti Samfylkingarinnar. Frestur til
að bjóða sig fram til formanns Sam-
fylkingarinnar rennur út 16. mars
en reglur um formannskjörið eru
frágengnar og voru kynntar í gær.
Þeir sem eru félagar í einhverju
Samfylkingarfélagi eða í stjóm-
málaafli sem á aðild að Samfylking-
unni verða kjörgengir. Mun opin
hlutfallskosning væntanlega ráða
formannskjöri. Stofnfundur Sam-
fylkingarinnar verður 6. mai.
„Það styttist í að fresturinn renni
út og það má því vænta ákvörðunar
næstu daga,“ sagði Guðmundur
Árni Stefánsson sem staddur var er-
lendis. Guðmundur Ámi hefur,
ásamt Össuri og Jóhönnu Sigurðar-
dóttur, sem ekki lét ná í sig í morg-
un, helst verið nefndur sem for-
mannskandídat.
Bryndís Hlöðversdóttir hefur ver-
Fyrirkomulag og reglur um formannskjör í Samfylkingunni var kynnt í gær.
Á myndinni eru Þórunn Sveinbjarnardóttir, Margrét Frímannsdóttir og Sig-
hvatur Björgvinsson. DV-mynd ÞÖK
ið nefnd sem kandídat í varafor-
mannsembætti. Hún sagðist í morg-
un ekki hafa tekiö neina ákvörðun.
„Þetta er seinni tíma mál sem verð-
ur útkljáð á stofnfundinum og mun
ráðast nokkuð af því hver verður
formaður," sagði Bryndís.
Lúðvík Bergvinsson sagðist enn
vera að hugleiða sín framboðsmál.
-hlh/GAR
Götur á Selfossi voru ófærar í
morgun og veðrið bandþreifandi vit-
laust fyrir austan fjall. Þeir sem
hættu sér út á götur á bílum sínum
i morgun sáu rétt fram á vélarhlífar
bílanna. Þegar bæjarbúar vöknuðu í
morgun mátti sjá örla fyrir gosösku
á rúðum húsa og bíla. Vindáttin var
norðaustanstæð og mun hafa borið
gosefnin frá Heklu. -NH
brother P-touch 9400
Stóra merkivélin sem
10 leturgerðir
margar leturstærðir
16 leturstillingar
prentar í 10 línur
borði 6 til 36 mm
Rafoort
Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443
Veffang: www.if.is/rafport
Erum flutt í
Skipholt 50 d
Skipholti 50 d