Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2000, Blaðsíða 8
8
Útlönd
LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2000
I>V
Margrét Þórhildur
Danadrottningu finnst þegnarnir ekki
nógu umburöariyndir í garö útlendra.
Drottning dregur
ekki upp rétta
mynd af Dönum
Margrét Þórhildur Danadrottning
dregur ekki upp rétta mynd af þegn-
um sínum þegar hún segir að þeir
séu ekki nógu umburðarlyndir og
hagi sér eins og „þorpsbúaklíka"
gagnvart innflytjendum og flótta-
mönnum.
Þessu halda þeir fram, leiðtogar
Danska þjóðarflokksins. Þingtlokks-
formaður hans, Kristian Thulesen
Dahl, segir að drottning geri þá
skyssu, eins og svo margir aðrir, að
túlka framgang DÞ sem svo að Dan-
ir hafi eitthvað á móti útlending-
um. Svo sé þó alls ekki.
Gerhard Schröder og frú Doris
Fengu gamia mynd af sér aö gjöf
Schröder fékk
mynd af sér og
fýrrum ástkonu
Jens Stoltenberg, forsætisráð-
herra Noregs, færði Gerhard
Schröder Þýskalandskanslara held-
ur frumlega gjöf í heimsókn sinni í
vikunni, mynd af honum og þáver-
andi ástkonu hans, Doris Kopf, á ol-
íuborpaOinum Sleipni í Norðursjón-
um. Doris, sem nú er eiginkona
Schröders, var blaðakona á tímarit-
inu Focus.
Myndin, sem var tekin fyrir fjór-
um árum, olli miklu írafári og varð
til þess að þáverandi eiginkona
Schröders vísaði honum á dyr
skömmu eftir heimkomuna.
Tsjetsjenía:
Tillögur til lausn-
ar átökunum
koma eftir helgi
Evrópusambandið tilkynnti í gær
að Vladímír Pútín, nýkjörinn for-
seti Rússlands, myndi leggja fram
tillögur að pólitískri lausn átakanna
í Tsjetsjeníu í næstu viku. Talsmað-
ur Pútíns sagði hins vegar að engar
slikar tillögur væru í smíöum.
Jaime Gama, utanríkisráðherra
Portúgals, sagöi fréttamönnum eftir
fund með Pútín í Moskvu aö rúss-
neski forsetinn hefði rætt um ætlan
sína að leggja fram tillögur til
lausnar á deilunni.
Rússnesk stjómvöld fordæmdu í
gær atkvæðagreiðslu í Evrópuráð-
inu á fimmtudag þar sem Rússar
voru sviptir atkvæðisrétti sínum og
mælt var með því að þeir yrðu rekn-
ir úr ráðinu. Sögðu Rússar að at-
kvæðagreiðsla bæri vott um kalda-
stríðshugsunarhátt.
Faðir Elians litla faðmaði dómsmálaráðherrann:
Stuttar fréttir
Fær að hitta son-
inn í næstu viku
Faðir kúbverska drengsins Elians
Gonzalez fær að hitta son sinn á
Flórída á miðvikudag, ef allt gengur
eftir, að því er bandarísk stjómvöld
sögðu í gær. Harðvítug deila um for-
ræði yflr drengnum hefur verið
milli föðurins og ættingja drengsins
í Miami.
Juan Miguel Gonzalez, sem kom
til Bandaríkjanna frá Kúbu á
fimmtudag, hitti Janet Reno dóms-
málaráðherra í Washington í gær.
Tilfmningaþrunginn fundur þeirra
hófst með formlegu handbandi en
þegar þau kvöddust föðmuðust þau.
„Þau veittu mér allan stuðning í
að leysa þetta eins fljótt og hægt er.
Ríkisstjómin hefur fullvissað mig
um að það verði gert. Ég er viss um
að svo verður og að ég fái son minn
fljótlega," sagði Gonzalez við frétta-
menn eftir fundinn með Reno og
Doris Meissner, yfirmanni banda-
ríska innflytjendaeftirlitsins.
Feðgamir hafa ekki sést síðan í
Faðir Elians í Bandaríkjunum
Juan Miguel Gonzalez, faöir Elians
litla, eiginkona hans og ungt barn
ræöa viö fréttamenn eftir fund meö
Janet Reno dómsmálaráöherra í
Washington í gær.
nóvember þegar Elian fannst fljót-
andi á bíldekksslöngu undan
ströndum Flórída. Móðir hans
drukknaði í flóttatilraun þeirra til
Bandaríkjanna. Foreldramir voru
fráskildir.
Heimildamenn innan dómsmála-
ráðuneytisins sögðu að bréf yrði
sent til ættingja Elians á Flórída og
þeim fyrirskipað að afhenda dreng-
inn foður sínum, hugsanlega þegar
á miðvikudaginn kemur.
Faðirinn, sem var nýja eiginkonu
sína og ungt barn þeirra með sér,
sagði Janet Reno dómsmálaráð-
herra frá því hversu sárt það hefði
verið fyrir hann að fá ekki að vera
með Elian.
Ættingjar Elians litla vilja ekki
heyra á það minnst að hann fari aft-
ur heim til Kúbu með foður sínum
og alist upp í kommúnistaskipulag-
inu þar. Svo kann að fara að
lögregla verði til kvödd en reyna á
að forðast það í lengstu lög.
Sól og blíða í dýragarðinum
Þessir undirfögru pelíkanar nutu svo sannarlega veöurblíöunnar í dýragaröinum í Varsjá, höfuöborg Póllands, í gær.
íbúar Varsjár og nærsveita hafa loks endurnýjaö kynni sín af vorinu undanfarna daga. Á sama tíma eru landar þeirra í
sunnanverðu Póllandi aö drukkna í regni eöa snjókomu, nema hvort tveggja sé.
Niðurlæging óskabarns íhaldsins algjör:
Archer lávarður hand-
tekinn og yfirheyrður
Rithöfundurinn, milljónamæring-
xu-inn og fyirum þingmaður breska
íhaldsflokksins, Jeffrey Archer lá-
varður, var handtekinn í gær og
tekinn til yfirheyrslu á lögreglustöð
í Lundúnum. Archer er grunaður
um aö hafa hindrað framgang rétt-
vísinnar í tengslum við meiðyrða-
mál sem hann höfðaði gegn
æsifréttablaði fyrir þrettán árum.
Talsmaður rannsóknarlögregl-
unnar Scotland Yard sagði að
Archer hefði átt pantaðan tíma á
lögreglustöðinni, eins og hann orð-
aði það, og að hann hefði samstund-
is verið handtekinn. Frekari upplýs-
ingar var ekki að fá hjá talsmannin-
Jeffrey Archer lávaröur
Óskabarn íhaldsins breska í yfír-
heyrslu á löggustöö í London.
um.
Archer var rekinn úr íhalds-
flokknum í fimm ár í febrúar síöast-
liðnum vegna hneykslismáls sem
batt enda á tilraunir hans til að
veröa borgarstjóraefni íhaldsins í
Lundúnum. Archer hafði beðið vin
sinn um að bera ljúgvitni fyrir sig í
málaferlunum gegn blaðinu Daily
Star árið 1987. Archer voru dæmdar
60 milljónir í skaðabætur fyrir þær
fullyrðingar blaösins að hann hefði
sofið hjá vændiskonu. íhaldsflokk-
urinn afneitaði Archer i gær.
Andstæðingar hans sögðu þetta
til merkis um að íhaldsflokkurinn
væri enn á kafi í spillingu.
Krajisnik segist saklaus
Momcilo Krajis-
nik, hægri hönd
Radovans Kara-
dzics, leiðtoga
Bosníu-Serba í
borgarastyrjöld-
inni, lýsti í gær yfir
sakleysi sínu af
ákærum um stríðs-
glæpi fyrir stríðsglæpadómstólnum
í Haag í Hollandi. Krajisnik er
ákærður fyrir þjóðarmorð, glæpi
gegn mannkyninu og sitthvað mis-
jafnt annað.
Færeyingar verða að velja
Danska stjómin hefur ákveðið að
þeir Færeyingar sem hafa búið í
Danmörku undanfama þrjá til fjóra
áratugi verði að velja milli dansks
rikisfangs og færeysks, fari svo að
Færeyjar verði sjálfstæðar. Fulltrúi
færeyskra jafnaðarmanna í danska
þinginu kallar þetta siðleysi.
Þrælahald stórglæpur
Franska þjóðþingið hefur sam-
þykkt lög þar sem þrælahaldi er lýst
sem glæpi gegn mannkyninu og þar
sem kveðið er á um að endaloka
þess árið 1848 verði minnst árlega.
Náðu tökum á gaseldi
Sænskir sérfræðingar náðu síð-
degis í gær tökum á eldinum sem
logar í gasflutningavagni á jám-
brautarstöðinni í Lilleström i Nor-
egi. Þeim tókst að tengja slöngu við
gasgeyminn og leiða gasið burt frá
eldinum. Ekki er gert ráð fyrir að
ibúar, sem þurftu að fara að heiman
á miðvikudag, kæmust heim fyrr en
einhvem tima í dag.
Mori lagður inn
Yoshiro Mori, nýskipaður forsæt-
isráðherra Japans, dvaldi á sjúkra-
húsi í nótt og gekkst undir áður fyr-
irhugaða læknisskoðun. Talsmaður
Moris segir hann heilsuhraustan.
Óttast stórgos í Japan
Vísindamenn óttast að mikið gos
verði í eldfjallinu Usu innan fárra
daga. Hraunkvika er þegar farin af
stað undir yfirborði jarðar.
Mugabe í vígahug
Robert Mugabe,
forseti Simbabve,
sagði í gær að ef
nauðsyn krefði
myndi hann berjast
fyrir aðgangi að
landi hvítra bænda.
Þing Simbabves
samþykkti naum-
lega á fimmtudag heimild til að yfir-
taka land hvítra bænda án þess að
greiöa fyrir það bætur.
Rán á Arlandaflugvelli
Bíræfnir þjófar stálu 172 kílóum
af peningaseðlum á Arlandaflugvelli
við Stokkhólm í gær. Talið er að
þýfið sé að verðmæti um 300 millj-
ónir íslenskra króna. Þetta er í ann-
að sinn á tveimur vikum sem stór-
rán er framið á Arlanda.
Tyrki játar á sig morð
Tyrkneskur karlmaður hefur ját-
að að hafa stungið annan tveggja
áhangenda enska knattspymuliðs-
ins Leeds sem vora drepnir í Istan-
bul í vikunni.
ESB of þungt í vöfum
Evrópusambandið er orðið svo
þungt í vöfum að Frakkar og Þjóð-
verjar megna ekki lengur að knýja
sambandið áfram eins og áður.
Bjó með líki eiginmanns
Fullorðin kona í Múnchen í
Þýskalandi hafði lík eiginmanns
síns hjá sér í rúminu í fjóra mánuði
áður en áhyggjufullur ættingi lét
lögreglu vita.