Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2000, Qupperneq 29

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2000, Qupperneq 29
LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2000 DV 29 Helgarblað Samkomugestir sitja og hiýöa á málstaöinn í ijóöum ísland úr Nató - enn lifir í gömlum glæðum hjá Samtökum herstöðvandstæðinga „Ég er þokkalega ánægður með starfið. Okkur hefur gengið vel að koma málstað okkar á framfæri í framhaldsskólum þó Varðberg og önnur slík samtök um vestræna samvinnu vilji aldrei koma á kappræðufundi. Mér finnst við geta borið höfuð- ið hátt í þeirri vissu að sem hluti alþjóðlegrar friðarhreyfingar eig- um við okkar þátt í breyttri heims- mynd. Þó Samtök herstöðvaand- stæðinga séu ef til vill ekki eins áberandi í þjóðlífinu og oft áður eru þau t.d. leiðandi í samstarfs- hópi friðarhreyfinga sem stendur fyrir ýmsum atburðum s.s. kertafleytingum á Tjörninni og Þorláksmessugöngu." Þetta segir Stefán Pálsson, for- maður Samtaka herstöðvaand- stæðinga, um lifið í samtökunum nú þegar ríflega hálf öld er liðin síðan ísland gekk í Nató. Stefán segir að Dagfari, tímarit samtak- anna, sé sent til tæplega 2000 fé- lagsmanna og áskrifenda. í fótspor mömmu Stefán er alinn upp í Samtökum herstöðvaandstæðinga og móðir hans Ingibjörg Haraldsdóttir var formaður Samtakanna frá 1986 til 1992. „Þetta var fyrsta pólitíska af- staðan sem ég tók og það má ef- laust segja að ég hafi drukkið hana í mig með móðurmjólkinni í bók- staflegri merkingu. Ég man eftir mér 12 ára gömlum i Keflavikur- göngu 1987, seljandi merki Sam- takanna og þess háttar.“ Stefán metur það svo að gullöld starfs í þessum anda hafi verið á níunda áratugnum þegar uppbygg- ing kjamavopna var mikil og ógn- in sem stafaði frá þeim mjög skýr. „Flestir muna áreiðanlega eftir andvökunóttum sem þeir áttu í æsku vegna heims á heljarþröm. Síðan kalda stríðinu lauk og þessi ógn varð minna áberandi hefur dregið mjög úr starfi friðarhreyf- inga um allan heim. Lífhræðslan er sterkur hvati í þessum efnum. Átökin á Balkanskaga hafa þó orð- ið til að ýta við fólki að nýju.“ Hvað eru margir? Það er virkilega heimilisleg stemning í kjallaranum á Hallveig- arstíg þegar Samtökin halda menningarvöku sína. Þegar kalda stríðið stóð sem hæst birtu Morg- unblað og Þjóðviljinn alltaf ákaf- lega ólíkar tölur af fundum og mannfógnuðum sem snertu áróð- ursstarf eins og þetta. Þegar Mogg- inn sagði 50 þá sagði Þjóðviljinn 500 og var yflrleitt verið að deila um fjölda gesta á fundum eða þátt- takendum I mótmælaaðgerðum. í anda þessara gömlu hefðar kasta ég tölu á gestina og tel rúmlega 60 manns. Stefán segir að þetta sé innra starf og þetta sé eðlileg þátt- taka þegar ekki er mikið auglýst. Að horfa á andlit gestanna er eins og að fletta gömlu félagatali Fylkingarinnar eða skoða myndir frá mótmælastöðum við bandarísk herskip. Þama eru margir hvöss- ustu broddarnir í andófi vinstri manna síðustu 20-30 árin saman- komnir. Þarna eru Birna Þórðar- dóttir, Þorvaldur Örn Árnason, Sigríður Kristinsdóttir, Jón Torfa- son, Dagný Kristjánsdóttir, Einar Ólafsson, Helgi Seljan, Ingibjörg Haraldsdóttir, Páll Biering, Sig- urður A. Magnússon, svo fáeinir séu nefndir. Dagskráin er hefðbundin. Fyrst heldur Stefán Pálsson þrumandi ræðu og minnir á að Nató sé hern- aðarbandalag og þessi fundur sé góður en lítill áfangasigur. Síðan kemur Jóhanna Þórhallsdóttir og syngur tvö lög sem koma andófi gegn hemum ekkert við en fá samt góðar viðtökur því Jóhanna syng- ur eins og rauðhærður engill. Gamla truntan í Skjaldarvík Síðan stígur Baldvin Halldórs- son leikari í pontu og les nokkur þekkt föðurlandskvæði gegn land- sölu og svikum af slíkum drama- tískum þunga að maður fer að skammast sín fyrir áhugaleysið. Ég sé út undan mér að þeir fund- argestir sem lifa sig mest inn í lesturinn sitja með lokuð augun og þylja kveðskapinn með Baldvini. Þeir hafa heyrt þetta áður. Þarna er farið með bæði Guðmund Böðv- arsson, Snorra Hjartarson og Þor- stein Valdimarsson. Síðan stígur Eyvindur Eiríksson rithöfundur á stokk og les úr eigin verkum. Hann segir í óspurðum fréttum að hann hafi skrifað bestu sögu sem rituð hefur verið gegn stríði á íslensku nema ef vera skyldi Atómstöðin. En hann ætlar ekki að lesa úr henni því það hef- ur hann gert svo oft áður. Þess í stað les hann úr nýjustu sögu sinni. Þar segir frá heimsókn aðal- söguhetjunnar til Hallgríms bónda í Skjaldarvík og Eyvindur les með sérstæðum vestfirskum rd-fram- burði lýsingar af því hvernig gest- ur og gestgjafi fella gamlan húðar- klár sem hefur lokið erfiðu jarð- lífi. Hann fer líka með ljóð eftir sjálfan sig sem fjalla að mestu leyti um Davíð Oddsson og fá góð- ar viðtökur fundargesta sem skríkja af fognuði. Þegar samkomunni lýkur með hefðbundnum fjöldasöng og slag- orðið Island úr Nató hljómar takt- fast við undirleik kassagítars Þor- valdar Arnar stig ég aftur út í myrkrið og er af einhverjum ástæðum að hugsa um gamla jálk- inn í Skjaldarvík sem hafði lokið hlutverki sinu. -PÁÁ Nuddpottar & nuddböð í miklu úrvali lik. •• ' Verðdæmi á mynd. að ofan: Sea-Coral, 4ra manna, kr. 99.400 Verð frá kr. 59.900 Hrísmóum 4 ................ Garðatorgi 210 Garðabæ Símk 565 9242, 861 6167, 894 1430 Fax: 565 9241 _Veffang: www.centrum.is/abctec l#CI\lll Netjang: abctech@centrum.is Sænsku bjálkahúsin frá Ská&tab mmmmmm Mtidttlugormmmmmm Bjálkabústaðir og ferðaþjónustuhús 10,0 • 26,5 • 40,ó og 52,6 m2 Vönduð fulleinangruð heilsárshús, hagstætt verS 26,5m2 bjálkabústaöur + 8,0m2 verönd <f'’rrnar* /> u x 40,6m2 bjálkabústaður + 19,0m2 verönd og 19,0m2 svefnlofí Armúla 36 - s. 581 -4070 og 699-6303 Selmúla megin http://www.itn.is/elgur B^| ^ j yjjílflj f www.brimborg.is **brimborgar Volvo S70 2,5, 03/97 4 d„ grár, ek. 44 þús. km, framdrif. Verð 2.190.000 Ford Explorer, 4,0,10/96 5 d„ grænn, ek. 47 þús. km, 4x4. ssk. Verð 2.730.000 Ford Puma 1,4,04/99 Opel Astra 1,6, 10/98 5 g„ 3 d„ silfurl., ek. 15 þús. km, framdr. ssk„ 5 d„ vínr., ek. 14 þús. km, framdr. Verð 1.590.000 Verð 1.490.000 VW Passat 1,8, 04/98 Ford Focus Ghia 1,6, 06/99 5 g„ 4 d„ svartur, ek. 30 þús. km, framdr. 5 g„ 4 d„ beige, ek. 4 þús. km, framdr. Verð 1.680.000 Verð 1.580.000 Ford Mondeo 2,0,11/97 Volvo S40, 07/98 ssk„ 5 d„ grænn, ek. 27 þús. km, framdr. ssk„ 4 d„ rauður, ek. 22 þús. km, framdr. Verð 1.590.000 Verð 1.860.000 Opið laugardaga 11-16 brimborg Reykjavlk • Akureyrl Brimborg Reykjavík, Bíldshöföa 6, sími: 5 1 5 7000 Brimborg Akureyri, Tryggvabraut 5, sími. 462 2700
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.